Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 15
18. desember 1987 - DAGUR - 15 var þaö Moly Pasta, Hóstaflex og ■ ■ ■ “ Röggi: „Ekki skrifa meira um Sigga!" Jói: „Ég lærði í 5 ár á píanó . . !“ Röggi: „Og er aö veröa búinn að læra Gamla Nóa!“ Jói: ....ég gafst svo fljótt upp (þ.e. eftir 5 ár!) og hef síð- an stundað sjálfsnám á klarinett í tvær vikur með löngum hlé- um!“ Röggi: „Ég hef nú verið í Sýkkklunum, Límbandinu, Möðruvallamunkunum, sem var Ijómandi léleg hljómsveit, svo Parror og loks LOST.“ - Nú vantar % hljómsveitar- innar í viðtalið. Viljið þið ekki segja eitthvað fallegt um þá drengi? Jói: „Nei!“ Röggi: „Jú, hann ívartromm- ari er með alveg Ijómandi sítt hár, alveg eins og konan hans. Hann er með alveg Ijómandi fal- legri konu!“ Jói: „Kristján Pétur er 36 ára og hefur yndi af góðri rokkmús- ik. Svo á mamma hans Hamm- ond orgel!“ Röggi: „Nú ætla ég að út- skýra af hverju ég borða ekki svið! í fyrsta lagi finnst mér svið vond. I öðru lagi finnst mér kindur ekki svo fallegar skeþnur að ég finni hjá mér þörf fyrir að borða af þeim höfuðið. í þriðja lagi leiðast mér lopapeysur!" - Hvaða hljómsveitir eru svo í mestu uppáhaldi hjá ykkur? Siggi: „Nú, fyrsta ber að telja LOST aftur á bak, þ.e. TSOL, New Model Army, CCCP, Tex and the Horseheads, Cure, Kill- ing Joke og Einsturzende Neubauten." Röggi: „Öll hljómsveitin fílar svo Ingimar Eydal. . .“ Siggi: „Annars er poppbrans- inn hér heima alveg herfilegur, fólk er allt of dautt fyrir lifandi tónlist." Röggi: „Já, og allt of lifandi fyrir dauðri tónlist!" - Hvað um framtíðina? Siggi: „Við stefnum á upptök- ur og tónleika. Jafnvel útgáfu á kassettu." Röggi: „Ertu nýbúinn að fá útborgað Siggi!" Jói: „Ég vil endilega taka það fram að nýru hljómsveitarmeð- lima verða ekki gefin fyrr en að þeim látnum!" - Nú varég orðinn hálf lúinn, enda klukkan orðin tuttugu mín- útur í sex að morgni samkvæmt egypskum tíma, svo ég labbaði mér heim að lúlla. Góða nótt. Umsjón: Einar Logi Vignisson. OPP Siggi er drengur góður. Á tónleikum með Sykurmolun- um í Möðruvallakjallara fyrr í þessum mánuði kom akur- eyrska hljómsveitin LOST skemmtilega á óvart. Þar hitaði sveitin upp fyrir Molana og það allrækilega. Mér fannst þeir bara helv. . . góðir. Þegar ég hitti svo þrjá drengi úr bandinu í Kjallaranum kvöldið eftir skellt- um við okkur í viðtal. Ég, Jói, Röggi og Siggi, ásamt einhverj- um fylgifiskum, röltum upp í Brekkugötu til Sigga og hreiðr- uðum þar um okkur innan um kött, naggrís og fleiri dýr. - Fyrsta spurningin, hverjir eru í bandinu? Siggi: „Það eru Rögnvaldur Rögnvaldsson bassaleikari, ívar Örn Eðvarðsson trymbill, Jóhann Ásmundsson klarin- ettuleikari og söngvari, Kristján Pétur söngvari og Sigurjón Baldvinsson gítarleikari." - Nú var prógrammið á tón- leikunum þrælgott, hvað voruð þið eiginlega að sþila? Jói: „Þetta voru nú ein 13 lög sem við þeyttum í gegn, öll nema eitt frumsamin.“ - Hverjir semja lög & lýrík? Jói: „Ja, það eiga nú allir í bandinu í þessu en Röggi hefur nú annars samið flest lögin og Kristján Pétur textana." - Hvernig fannst ykkur ann- ars tónleikarnir með Molunum? Siggi: „Hálfleiðinlegir, haha- ha!“ Heiðar Jónsson var ekki á tón lcikununi. Jói: „Þegiðu maður, þeirvoru alveg meiriháttar, sjúklegir." Röggi: „Já, við vorum líka svo helvíti hissa á þessum dúndur viðtökum, þetta er óal- gengt fyrir upphitunarhljóm- sveit. Við áttum bara að véra í hálftíma, en áhorfendur voru svo frábærir að við héldum áfram í korter." Jói: „Við vorum klappaðir upp, en urðum að hætta, bárum virðingu fyrir æðri músfköntum, Molarnir vildu fara að komast að!“ - Nú hafið þið eitthvað verið að braska áður? Siggi: „Jú, jú, mikil ósköp, ég byrjaði ungur að glamra á gítar, svona einu sinni á ári. En fyrst var það Joð X (ásamt Rögga), við afrekuðum það helst að eiga lag á plötu frá SATT, svo KP og Jói á útopnu. landsleiknum ogláttu drauminn rætast ivrir i<

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.