Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 8
8- DAGUR- 18. desember 1987 Jólaumferðin verður meiri í ár en nokkm sinni fyrr! Nú í svartasta skammdeginu er nauðsynlegt að allir vegfarend- ur sýni sérstaka aðgát og tillits- semi í umferðinni. Jólaum- ferðin þyngist dag frá degi og ættu allir að stefna að slysa- lausri og farsælli þátttöku í henni. Gangandi vegfarendur geta aukið öryggi sitt verulega með því að bera endurskinsmerki og nota þau á réttan hátt. Þörf fyrir þau er nú brýnni en endranær þar sem óvíða slær birtu frá snævi þakinni jörð. í hálku ættu þeir sem ganga mikið skilyrðislaust að heimsækja næsta skósmið og fá sér búnað til hálkuvarna svo sem mannbrodda eða neglda sóla. í þessari miklu umferð er nauðsynlegt að fólk akandi og gangandi ætli sér meiri tíma en endranær. í því sambandi má hafa í huga mikla fjölgun bíla í ár sem eðlilega leiðir til þyngri umferðar og þvf miður einnig til þess að margir ökumenn verði þungir á brún við stýrið. Það hæf- ir jólaumferð illa. Ljósabúnaður þarf að vera í góðu lagi og ættu ökumenn að nota ökuljósin allan sólarhríng- inn. Vert er að huga að hjólbörð- um, oft duga grófmynstruð dekk, en víða eru skilyrði þannig að þau þurfa auk þess að vera negld. Nú um þessar mundir munu um 30 þúsund börn í skólum landsins spreyta sig á getraun um umferöarmál. Getraunin kallast „í jólaum- ferðinni" og er ætluð fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Þau eiga að hjálpa jólasveinunum með hin ýmsu atvik sem upp koma þegar þeir koma í bæinn. Ekki virðast karlarnir hafa lært mikið um umferðarreglur eftir spurningun- um að dæma. Ætlast er til að börnin glími sem mest sjálf við þessar spurn- ingar en foreldrar eða aðrir aðstandendur aðstoði þau eftir þörfum. Vonast er til að með þessu skapist umræður um umferðarmál á heimilum barn- anna og þau verði hæfari þátttak- endur í henni á eftir. Dregið er úr réttum Iausnum Þessa dagana er víða veitt „Jólaglögg". Ökumenn ættu að minnast þess að oftast er í því áfengi - stundum sterkt. Gildir sama um „Jólaglögg“ sem neyslu annars áfengis að akstri og áfengi má alls ekki blanda saman. Benda má á að gott „Jólaglögg“ má blanda án áfengra efna og eru til prýðisgóðar uppskriftir að slíkum ökumannadrykkjum. Umferðarráð væntir þess að allir landsmenn verði jákvæðir og tillitssamir í jólaumferðinni þannig að sem flestir megi eiga slysalaus og gleðileg jól. og hafa yfirleitt félög, stofnanir eða fyrirtæki gefið þau verðlaun sem veitt eru. Því miður fá ekki öll börn sem senda inn rétt svör verðlaun en þau heppnu mega eiga von á því að fá einkennis- klæddan lögregluþjón í heimsókn á aðfangadag, eða einhvern dag- inn rétt fyrir jól, með bókarverð- laun. Kennarar og forráðamenn barna eru vinsamlegast beðnir um að taka þátt í þessu með börnunum og veita þeim þá aðstoð sem með þarf. Sá stutti tími sem fer í að veita barni smá leiðbeiningu um umferðarmál getur komið í veg fyrir að það slasist í umferðinni. Verndum börnin okkar og ger- um þau að ábyrgum vegfarend- um. Það gerum við best með hnitmiðuðum ábendingum og góðu fordæmi okkar sjálfra. Samuel Beckett - gefinn út í fyrsta sinn á íslensku Út er komin hjá bókaforlaginu Svart á hvítu bókin Samuel Beck- ett - sögur, leikrít, ljóð. Þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir þann merka höfund eru gefin út í íslenskri þýðingu og telst til bók- menntaviðburða í íslensku menningarlífi. Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöfunda þessarar aldar og hefur ef til vill öðrum fremur stuðlað að róttækum breytingum á skáldsagnagerð og leikritum eftir seinni heimsstyri- öld. Beckett, sem hlaut bók- menntaverðlaun Nóbels árið 1969 er áleitinn höfundur, einstakur og frumlegur, en stendur jafn- framt nær hinni klassísku evr- ópsku bókmenntahefð en flestir aðriri nútímahöfundar. í þessari bók eru sjö leikrit, sex sögur og tíu ljóð frá fimmtíu ára ferli, þar á meðal þekktasta verk Becketts, leikritið Beðið eftir Godot, í nýrri þýðingu og eitt nýjasta snilldarverkið, hin stutta og magnaða skáldsaga Félags- skapur frá 1980. Þýðandinn er Árni Ibsen sem hefur um árabil kannað verk þessa alvörugefna írska húmorista og hann skrifar jafnframt inngang og skýringar. Göngur og réttir - 5. bindi Hið eftirsótta ritsafn Göngur og réttir, sem kom út hjá bókaútgáf- unni Norðra 1948-1953 og Bragi Sigurjónsson safnaði efni í og bjó til prentunar, hefir verið ófáan- legt í mörg ár. Nú hefir Bókaútgáfan Skjald- borg endurútgefið ritsafnið í umsjón Braga, sem raðað hefir efni þess upp á nýtt, aflað upplýs- inga um breytta gangnatilhögun á helstu gangnaslóðum og bætt ýmsu efni við, sem aflast hefir. Hverju bindi fylgir formáli, sem fjallar á einhvern hátt um selfarir, fráfærur og í þessu loka- bindi um sauðkindina og íslenska sjálfsþurftarþjóðfélagið. Er í öll- um þessum formálum margan fróðleik að finna. Hverju bindi fylgir nafnaskrá, gullnáma örnefna, safn upplýs- inga staðkunnugra manna. í þessu bindi er hinn rómaði þáttur Benedikts frá Hofteigi, Vopnfirðingar á Fellsrétt. Þetta er fimmta og síðasta bindi Gangna og rétta og fjallar um göngur og réttir í Þingeyjar- og Múlasýslum. Bók þessi er röskar 500 blað- síður og í henni um 100 myndir. í bókinni er bókarauki, nýjar frá- sagnir. Börn aöstoöa jólasveina í umferðinni jóUláttur tíl félagsmanna Sjónvörp, myndbandstæki, hljómflutningstæki, sambyggð útvarps- og snældutæki, bíltæki og hátalarar Öll bestu merkin Örugg og góð þjónusta Afslátturinn gildir til jóla Munið að sýna félagskortin ^PIONEER JVC % _ READY \/^SL|stem VIDEO PROGRAM VHS *** «********&

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.