Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 16

Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 16
16 - DAÖUR - 18. desember 1987 ERICSSON ^ Farsímar í fararbroddi Hér gefur að líta sænska meistarann í léttþungavigt við Tryggvabraut • Sími 27700. 2*1? Dyi Ul % dyn m io.ííítfignu'ig: og gárdnmd. Leikföngin sem vaxa með barninu Playmo Heill heimur af sterkum og Droskandi eikföngum rmméuriim HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96 27744 AKUREYRI Hýjar vörur - vandaöar vörur Kaupmannafélag Akureyrar Tvær bækur um Kalla og Kötu Iðunn hefur endurútgefið tvær barnabækur sem uppseldar hafa verið árum saman, en það eru: Kalli og Kata eiga afmæli og Kalli og Kata í leikskóla. Bækur þessar eru eftir Margret Rettich, en bækur hennar um þessar sögu- hetjur hafa notið ótrúlegra vin- sælda hjá íslenskum börnum, enda er í þeim margt að finna sem börn þekkja úr eigin lífi og umhverfi. Líflegur og einfaldur frásagnarstíll og ríkulegar mynd- skreytingar á hverri síðu lýsa daglegu lífi í leikskólanum þar sem skipst geta á skin og skúrior. Ánægjunni við undirbúning afmælisveislunnar og fjörinu þeg- ar enginn vill fara heim að henni lokinni er líka vel lýst. 0g hvað með það? Komin er út hjá Iðunni ný ung- lingabók eftir Helgu Ágústsdótt- ur og nefnist hún Og hvað með það? Þetta er þriðja bók höfundar en hinar fyrri, Ekki kjafta frá og Ef þú bara vissir, nutu mikilla vinsælda meðal lesenda sinna. Um efni þessarar nýju bókar segir: „Unglingarnir lenda í ýmsu og það er ekki víst að þeir full- orðnu viti alltaf málavöxtu. Þeir halda að þetta sé allt vitleysa eða barnaskapur. Þeir ættu bara að vita í hverju maður getur lent! Og pælingarnar, þeir vita nú minnst um þær . . . Og svo á maður bara að vera stilltur og góður og læra vel heima! Það þarf nú líka að sinna öðru, sem er að minnsta kosti jafn áríðandi. Spennandi og óvenjuleg bók, þar sem söguhetjan neyðist til að horfast í augu við fleira en hún vill. Það þurfa lesendur líka við óvænt sögulok." Á besta aldri Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá sér bókina Á besta aldri sem Jóhanna Sveinsdóttir ritar í sam- vinnu við Þuríði Pálsdóttur. í bókinni er fjallað um breytinga- skeið kvenna (og reyndar karla líka), rætt um helstu fylgikvilla sem og alvarlegri einkenni eins og beinþynningu. Pá er í bókinni sérstakur kafli um hormónagjafir og gildi þeirra og loks er ítarleg umfjöllun um líkamsrækt mið- aldra kvenna og holla fæðu svo og baráttuna við þunglyndið. Lifmnli orð „Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadóm- urinn hvíla. Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi, Guð- hetja, Eilífðarfaðir, Friðar- höfðingi. “ Jesaja 9. 6. Fæðing frelsarans var boðuð mörgum öldum fyrir- fram af spámönnum Drottins. Jesaja segir einnig: „Fyrir því mun Drottinn gefa yður tákn sjálfur: Sjá yngis- mær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel." Jes. 7.14. En Immanúel þýðir Guð með oss. Það var einmitt það sem gerðist við fæðingu barnsins í Betlehem, að Guö kom inn í okkar mannlega heim. Hann átti erindi inn í þennan heim og hann á erindi við þig og mig. Jóhannes postuli segir: „Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum.“ Jóh. 1. 14. „Guð er kærleikur" og koma lausnarans í heiminn á sitt upphaf í kærleika hans. Fæðing hans er til komin og knúin fram af kærleiksríkum Guði. „( því birtist kærleikur Guðs meðal vor, að Guð hef- ur sent einkason sinn í heim- inn til þess að vér skyldum lifa fyrir hann.“ 1. Jóh. 4. 9. Hann kom til að bæta fyrir brot okkar. Hann kom til að friðþægja fyrir syndir og greiöa lausnargjaldið, svo við mættum öðlast frelsi úr syndaböndum og ánauð. Hann kom til að skapa grundvöll sátta og fyrirgefn- ingar. Hann kom til þess að sætta heiminn við Guð. Hann kom með sáttargjörð- ina og þar sem allt er komið í sátt, þar ríkir friður. Hann mætti sjálfur skilyrðum hins heilaga og réttláta Guðs, með því að uppfylla allar réttlætiskröfur fyrir okkur. „Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn." Jesús Kristur var sonur í enn dýpri merk- ingu, hann var sonur Guðs og mannssonur, eins og hann kaus svo oft að nefna sjálfan sig. „Ef sonurinn gjör- ir yður frjálsa, munuð þér sannarlega verða frjálsir." Jóh. 8. 36. „Því að Manns- sonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.“ Lúk. 19.10. „Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf.“ Jóh. 3. 36. „Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi." Hann kom fram og sýndi okkur ráðs- ályktun Guðs. Hann kom til þess að gjöra kunnugt hver hjálpræðisáform Guðs væru. Hann var undursamlegur í orði og verki. Hugarfar hans og hjartaþel tók öllu öðru fram. Barnið sem fæddist á svo einstæðan hátt, vakti undrun og jafnvel ótta. Sálmaskáldið orti um hann, leiddur af heilögum anda: „Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefur Guð blessað þig að eilífu." Sálm. 45. 3. Undur og tákn gjörðust þar sem hann kom nærri, máttarverk sem aldrei áður höfðu sést meðal manna. En hans innri fegurð er best lýst í þessum orðum: „Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti." Heb. 1. 9. Er hægt að fá hærri einkunn frá Guði og mönnum og lof- samlegri vitnisburð? Það finnst ekki nokkur sem Jesús á jörð svo ríkur af kærleikans auð, hann finnur og leiðir í föðurins hjörð hinn fráviiita, tapaða sauð. Hann er nefndur „Friðar- höföingi". Jesús var hinn mikli friðflytjandi og meðal- göngumaður milli Guðs og manna. Hinn innri friður hjartans byggist ávallt á trausti. Börnin eiga frið í' hjartanu, ef þau finna að þau geta alveg treyst foreldrum sínum. Því meir sem við lær- um að treysta Guði, því raunverulegri og innilegri frið fáum við í hug og hjarta. Friðurinn fyllir sál okkar, þeg- ar við sannfærumst um fyrir- gefningu Guðs og elsku hans til okkar. !

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.