Dagur - 18.12.1987, Side 3
18. desember 1987 - DAGUR - 3
Dögun hf.:
Kaupir hluti í
fyrirtæki á
Stokkseyri
- Bauð starfsfólki sínu
í utanlandsferð
Röstin, skip rækjuvinnsiunnar
Dögunar á Sauðárkróki kom
um helgina úr sinni síðustu
veiðiferð á þessu ári. Var hún
með 11 tonn af rækju og 3 af
fiski. Veiðar hafa gengið
þokkalega hjá skipinu í haust,
en veður verið fremur óstilit á
miðunum, 80-100 mílur úti í
_ hafi.
Að sögn Garðars Sveins Árna-
sonar framkvæmdastjóra hefur
nokkurn veginn tekist að halda
upp vinnu hjá þeim 10 sem vinna
í rækjuvinnslunni í haust, með
því að verka líka fiskinn sem bát-
urinn hefur fengið með rækjunni.
Full vinna verður út þessa viku
en síðan mun starfsfólkið fara í
frí fram yfir áramót. Ástæðan
fyrir því að Röstin fer ekki fleiri
túra fyrir jól er sú að skipverjar
áttu inni boðsferð rækjuvinnsl-
unnar og flugu á þriðjudagsmorg-
un til Amsterdam. Fyrr í haust
var starfsfólkinu í rækjunni boðið
í 5 daga ferð til Hamborgar.
Á dögunum keypti Dögun
20% í Marver hf. útgerðarfyrir-
tæki á Stokkseyri, með þeim
skuldbindingum að Haförn 150
tonna skip sem það fyrirtæki á
landi rækju til vinnslu hjá Dögun
yfir sumartímann.
En þrátt fyrir allt sagði Garðar
þetta ár hafa verið Dögun óhag-
stætt eins og öðrum rækjuvinnsl-
um í landinu. -þá
Akureyrarmót BA:
Fjórar sveitir
slást um sigurinn
Áttunda umferð Akureyrar-
móts Bridgefélags Akureyrar
var spiluð s.l. þriðjudag. Úrslit
urðu þessi:
Sv. Grettis Frímannssonar -
sv. Ragnhildar Gunnarsdóttur: 25-2
Sv. Gylfa Pálssonar -
sv. Zarioh Hamadi: 25- 5
Sv. Stefáns Vilhjálmssonar -
sv. Gunnars Berg: 20-10
Sv. Gunnlaugs Guðmundssonar -
sv. Sigurðar Víglundssonar: 18-12
Sv. Ormars Snæbjörnssonar -
sv. Hellusteypunnar: 18-12
Sv. Sveinbjörns Jónssonar -
sv. Sporthússins: 16-14
Sv. Kristjáns Guðjónssonar sat yfir og
hlaut 18 stig.
Alls taka 13 sveitir þátt í
keppninni og er spilaður einn
32ja spila leikur á kvöldi.
Að loknum átta umferðum er
Ijóst að fjórar sveitir koma til
með að berjast um Akureyrar-
meistaratitilinn, aðrar blanda sér
varla í þá baráttu. Staða efstu
sveita er nú þessi:
1. Kristján Guðjónsson: 157 stig
2. Hellusteypan: 155 stig
3. Grettir Frímannsson: 151 stig
4. Stefán Vilhjálmsson: 147 stig
5. Zarioh Hamadi: 125 stig
6. Gylfi Pálsson: 120 stig
7. Sveinbjörn Jónsson: 116 stig
Níunda umferð verður spiluð
þriðjudaginn 5. janúar og hefst
spilamennskan kl. 19.30 í Félags-
borg.
Jólamót Bridgefélags Akureyrar
verður haldið í Blómaskálanum
Vín við Hrafnagil, sunnudaginn
27. desember n.k. Um er að ræða
tvímenningsmót, opið öllum spil-
urum á Norðurlandi og víðar.
Glæsileg verðlaun eru í boði og
stendur skráning yfir. Þátttöku-
gjald er kr. 1800 á manninn og er
hádegisverður innifalinn.
Mótið hefst kl. 9.30 árdegis,
sunnudaginn 27. desember.
SPENNANDI
Ajólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska
lambakjötið er hráefai sem á fáa sína líka,
svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á
jólaborðið. Hér er uppskrift af einni
ómótstæðilegri.
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá
ef lærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í
lærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
-ÞegarÞu
úvilt
þátídannat'
Lambalæri
með Kahlua-sósu
Fyrir6-7.
1 meðalstórt lambalæri
2 msk matarolía
3sellerístilkar
V blaðlaukur (púrrulaukur)
1 tsk græn eða hvít piparkom
1 tskrósmarín (sléttfull)
2 dl Kahlua-kaffilíkjör
2 msk Kikkoman sojasósa
saR úr 1 sítrónu
salt
2 dl Ijóst kjötsoð
dökkursósujafnari
sjóða í 3-5 mín. Kælið blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærinu og sláið
pokanum með lærinu í nokkmm sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holumar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðm hvom og nuddið safanum vel inn í
lærið um leið.
Hitiðofninní220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafið
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar til það er búið að fá á sig
fallegan lit. Minnkið þá hitann á ofninum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskálinni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafnara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skolaþvíniður.
MARKAÐSNEFND