Dagur - 31.12.1987, Blaðsíða 4
4 - dWG\M- 31/‘déséínber 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir),
PÁLL B. VALGEIRSSON (Blönduósi vs. 95-4070), STEFÁN SÆMUNDSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRl:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Við áramót
Við áramót staldra menn gjarnan við og
gera það upp við sig hvernig til hafi tekist
á árinu sem er að líða. Tókst að ná þeim
markmiðum sem að var stefnt og þoka
málum í réttan farveg? Margir láta áramótin
marka þáttaskil í lífi sínu á einhvern hátt,
stíga á stokk og strengja heit og lofa sjálf-
um sér því að gera betur á nýja árinu.
Mönnum gengur síðan misvel að efna
þessi loforð.
Vafalaust verður ársins 1987 ekki minnst
sem árs mikilla tíðinda, hvorki innanlands
né utan. Það er helst að samkomulag stór-
veldanna um að útrýma skammdrægum og
meðaldrægum kjarnorkuvopnum standi
upp úr þegar litið er um öxl. Ef til vill verð-
ur ársins fyrst og fremst minnst hér á landi
sem „skattlausa ársins" þegar fram líða
stundir, enda þótt það hafi alls ekki verið
skattlaust í raun.
En við áramót líta menn ekki einungis
um öxl, heldur einnig fram á við til að
reyna að átta sig á því hvað framtíðin beri
í skauti sér. Stefnan er sett á að varðveita
það sem áunnist hefur og bæta um betur á
sem flestum sviðum. Sumum hættir til að
einblína um of á hin veraldlegu gæði og
gleyma því sem er meira um vert. í lífs-
gæðakapphlaupinu missum við stundum
sjónar á hinum háleitari markmiðum og
áttum okkur ef til vill ekki á því fyrr en það
er um seinan.
Við áramót er einnig vert að gefa gaum
að þeim hættum sem að þjóðinni steðja á
komandi ári og ekki er unnt að sigrast á
nema allir leggist á eitt. Við skulum hafa
það hugfast að ef við gáum ekki að okkur,
er sjálfstæði okkar og menningu hætta
búin af þeim erlendu áhrifum sem hellast
yfir þjóðina í auknum mæli í takt við æ
stórstígari tækniframfarir. Við verðum að
gæta þess öll sem eitt að hlúa vel að tungu
okkar og þeim menningararfi sem fyrri
kynslóðir skópu. Það er verðugt verkefni
um ókomin ár.
Dagur þakkar lesendum sínum og vel-
unnurum samstarfið og stuðninginn á
árinu sem er að líða og óskar þeim og
landsmönnum öllum gleðilegs árs, með
von um að nýja árið færi þeim hagsæld og
hamingju. BB.
í hlöðunni á Helgastöðum brann allt sem brunnið gat. Hins vegar tókst að
halda eldinum frá áföstum gripahúsum. Mynd: rþb
til gjaldþrotaskipta á árinu 1986.
13. Skemmdarvargar fengu útrás
fyrir hvatir sínar þegar þeir stór-
skemmdu á annað hundrað trjáa
á svokölluðu Borgartúni á Akur-
eyri. Tjón garðyrkjudeildar
bæjarins var tilfinnanlegt.
16. í könnun sem unnin var fyrir
stjórn Strætisvagna Akureyrar
kom meðal annars fram að 78%
farþega vagnanna væru 20 ára
eða yngri. Einnig kom fram að
sjöundi hver Akureyringur not-
aði vagnana yfir vetrarmánuðina.
17. Verkfall kennara skall á 16.
mars. Öll kennsla lagðist niður í
MA, aðeins stundakennarar
kenndu við VMA og á Akureyri
voru 14 grunnskólakennarar í
verkfalli.
18. Skemmdarvargar létu ekki
staðar numið og enn varð síma-
klefinn í göngugötunni fyrir
barðinu á þeim. Sú hugmynd
kom upp að láta falda myndavél
fylgjast með því sem fram færi.
Nýliðin helgi var að sögn lög-
reglunnar róleg en íbúi í Mið-
bænum hafði aðra sögu að segja.
„Allt kolbrjálað" var eftir honum
haft.
„Anægður að þessu er lokið,“
sagði Rúnar Þór Björnsson sem á
árinu 1980 slasaðist í skemmti-
staðnum H-100 og hafði alla tíð
síðan staðið í málaferlum til að fá
greiddar skaðabætur. Ábyrgðar-
sjóður Lögfræðingafélags íslands
féllst á að greiða Rúnari fram-
reiknaða upphæð skaðabóta, um
1,9 milljónir.
19. Kartöflubændur voru mjög
uggandi um framtíð sína enda
stóðu sölumál kartaflna mjög
illa. Margir gengu jafnvel svo
langt að tala um að hætta kart-
öflurækt og einhverjir létu verða
af því.
I sama blaði segir Helgi Helga-
son veitingamaður hjá Bita sf.:
„íslenskar kartöflur eru rusl.“
Þessu vísuðu talsmenn bænda vit-
anlega á bug skömmu síðar.
Nálægð alþingiskosninga setti
sitt mark á fréttir blaðsins þessa
dagana því margar fréttir voru
fluttar af niðurstöðum skoðana-
kannana um fylgi flokkanna og
fleira.
25. „Vertíðin hefur gengið sér-
staklega vel, þetta er algjört eins-
dæmi. það hefur verið mokveiði
allan tímann og aldrei neinar
frátafir," sagði Heiðar Jónsson
stýrimaður á Hilmi SU í samtali
við Dag um loðnuvertíðina.
26. Skagstrendingur hf. á Skaga-
strönd var svo vinsamlegur að
lána Vegagerð ríkisins níu millj-
ónir króna til þess að unnt væri
að Ijúka lagningu bundins slitlags
á veginn milli Blönduóss og
Skagastrandar um sumarið.
27. I úttekt sem Úlfar Hauksson
hagsýslustjóri Akureyrarbæjar
vann á fjárhagsstöðu Leikfélags
Akureyrar kom fram að rekstur
atvinnuleikhúss gengi ekki upp
nema til kæmu verulega hækkað-
ir styrkir. Að öllu óbreyttu myndi
verða 5-10 milljóna tap á rekstr-
inum árlega.
Sana hf. á Akureyri hóf dæl-
ingu bjórs í dósir fyrst íslenskra
drykkj arvöruframleiðenda.
30. Tillögur voru lagðar fram um
rekstur framhaldsskóla á Laug-
um í Reykjadal á komandi
hausti. Gert var ráð fyrir tveggja
ára námi.á fjórum brautum.
31. Tveir unglingspíltar á Akur-
eyri voru handteknir fyrir að
skjóta úr rifflum á kyrrstæða bíla
og valda verulegu tjóni.
Kennaradeilan leystist loks
þegar fulltrúaráð HÍK samþykkti
að ganga til samninga á grund-
velli þeirra samningsdraga sem
fyrir lágu.
Apríl
1. „Glórulaust veður“ helltist yfir
Norðurland og olli margvíslegu
tjóni. Víða fuku þakplötur og
jafnvel heilu þökin, skip slitnaði
upp frá festum og á Kópaskeri
varð rafmagnslaust. Víða voru
björgunarsveitir kallaðar út til að
aðstoða fólk í erfiðleikum
Sagt var frá því að Arnór
Guðjohnsen og Maradona
myndu leika með Völsungsliðinu
gegn íslenska landsliðinu á lands-
móti UMFÍ um sumarið. Þarna
mun dagsetningin einhver áhrif
hafa haft á sannsögli blaðamanns
og sömu sögu er að segja um
fréttina þar sem sagði að fyrstu
100 viðskiptavinir þennan dag
hjá bókamarkaði sem rekinn var
í bænum, myndu fá 10 kíló af
bókum fyrir 500 krónur.
Fyrstu fréttir bárust af ósam-
komulagi milli útgerðar og fisk-
verkenda á Raufarhöfn vegna
fyrirhugaðra breytinga á Stakfell-
inu í frystiskip. Deilur þessar
urðu nokkuð harðar og langvinn-
ar en skipinu var breytt.
2. Einn maður fórst en öðrum
tókst að bjarga þ'gar Reynir EA
frá Árskógssandi sökk rétt utan
við höfnina í fárviðrinu sem áður
var sagt frá.
Þá er í blaðinu einnig sagt frá
stúlku sem var hætt komin á
Öxnadalsheiði þar sem hún
dvaldi í tæpan sólarhring í frosti
og byl. Stúlkan var heppin að
komast inn í kyrrstæðan bíl á
heiðinni.
Verkfall kennara hafði mikil
áhrif á kennslu í skólum og rætt
var um að kenna um helgar og í
dymbilviku. Samræmdum próf-
um yrði ekki frestað.
6. Miklir rekstrarerfiðleikar
steðjuðu að skinnasaumastofu
SÍS á Akureyri og af þeim sökum
var henni lokað um ótiltekinn
tíma. Starfsfólkinu voru boðin
önnur störf hjá Iðnaðardeildinni.
Nýr þingflokkur Framsóknarflokksins fyrir framan alþingishúsið.
Mynd: Róbert.