Dagur - 31.12.1987, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 31. desember 1987
yrðu ekki að veruleika og hún
yrði boðin upp eins og aðrar
eignir kaupfélagsins.
4. Hátíðarfundur Flugleiða í
tilefni af 50 ára afmæli atvinnu-
flugs á íslandi, var haldinn á
Akureyri. Á fundinum var undir-
ritaður samningur um kaup
félagsins á tveimur Boeing 737-
400 þotum.
5. Óánægja Skagstrendinga með
málefni sjúkraflutninga tók enda
þegar Pétur Eggertsson festi
kaup á sjúkrabíl til staðarins.
í fyrssta skipti í sögu akur-
eyrskrar löggæslu var kona ráðin
lögregluþjónn. Pað var Unnur
Elva Árnardóttir sem braut
ísinn.
9. Þverárhrossin sjö sem verið
höfðu týnd frá 10. janúar fundust
loks skammt frá bænum þar sem
þau höfðu hrapað til bana í Sand-
feili. Þar með var endir bundinn
á hinar ýmsu vangaveltur og
ásakanir sem gengið höfðu vegna
þessa dularfulla hestahvarfs.
Ársþing HSÍ var haldið á
Akureyri. Birgir Björnsson þjálf-
ari og fyrrverandi Ieikmaður og
þjálfari með landsliðinu var
sæmdur gullmerki sambandsins.
10. í yfirliti LÍÚ um aflaverðmæti
og úthaldsdaga íslenskra togara
fyrstu fjóra mánuði ársins kom
fram að Akureyrin EA var efst á
blaði með aflamagn og verðmæt-
ið sem var hvorki meira né minna
en 114 milljónir.
Mikil gróska var f smíði plast-
báta á Norðurlandi og á Skaga-
strönd hófst smíði á stærsta plast-
skipi landsins 100 tonn að stærð.
11. Umdeildum breytingum á
togaranum Stakfelli frá Pórshöfn
lauk og var kostnaður við þær um
11 milljónir.
Ólafur fræðslustjóri mætti til
starfa en sagðist „tilbúinn að
standa upp.“
12. Verðlagsráð sjávarútvegsins
samþykkti á fundi sínum að gefa
fiskverð frjálst frá 15. júní til 30.
september. Miklar vonir voru
bundnar við þessa tilraun.
16. Enn jókst eftirspurn eftir nýj-
um bílum| og töldu menn að
mikla aukningu mætti rekja til
ótta við tollahækkanir og gengis-
fellingu.
17. Bráðadauði kúa í Eyjafirði
vakti með mönnum grun um að
þeirra virtust ekki allir kunna
með þessi farartæki að fara og
víða voru unnin mikil náttúru-
spjöll.
14. Mikil gróska var í bílasölu um
þetta leyti. Innflutningur var gíf-
urlegur en sala á notuðum bílum
gekk einnig óvenju vel. Framboð
þeirra var þó meira en eftirspurn-
in.
15. Mikillar óánægju gætti meðal
verslunarfólks á landsbyggðinni
vegna þeirra kjarasamninga sem
landssamtök þeirra gerðu við
vinnuveitendur. Til tals kom að
15 félög verslunarfólks á lands-
byggðinni segðu sig úr landssam-
tökunum.
18. Kaupfélag Eyfirðinga festi
kaup á nýju tölvukerfi fyrir 20
milljónir. Hin nýja tölva er ein sú
stærsta á landinu og til dæmis
afkastameiri en tölva SÍS.
Fiskmiðlun Norðurlands hf. á
Dalvík var formlega stofnuð. 32
stofnféiagar skráðu sig fyrir um
1,2 milljón króna hlutafé.
Banaslys varð við Árgerðisbrú
sunnan Dalvíkur þegar bíll ók á
enda brúarhandriðsins. Farþegi í
bílnum beið bana en ökumaður
og annar farþegi slösuðust alvar-
lega.
Um þetta leyti var fyrst farið
að tala um hugsanlegt samstarf
Iðnaðardeildar SÍS og Álafoss-
verksmiðjunnar.
20. Plastiðjan Bjarg jók mjög
umsvif sín. Keypt var vélasam-
stæða til framleiðslu og pökkunar
á sogrörum og bygging 1000 fer-
metra verksmiðjuhúss var fyrir-
huguð.
Könnun um útiveru unglinga í
miðbæ Akureyrar leiddi í ljós að
unglingarnir ættu hrós skilið.
21. Prentsmiðjan Fontur hf. var
tekin til gjaldþrotaskipta að
beiðni framkvæmdastjóra en
áður hafði húseign fyrirtækisins
verið seld á nauðungaruppboði.
Mikið góðviðri var á Ákureyri
síðari hluta maí og iðulega 18-20
stiga hiti.
22. Sverrir Hermannsson lét mót-
mæli sem vind um eyru þjóta
heldur gerði sér lítið fyrir og setti
Ólaf Guðmundsson fræðslustjóra
Norðurlandsumdæmis eystra.
25. Trésmiðir á Akureyri voru
svo sannarlega ekki verkefna-
lausir um þetta leyti og raunar
var skortur á slíkum mönnum
yfirvofandi um sumarið miðað
við útlit um framkvæmdir í
bænum. Guðmundur Ómar for-
maður Trésmiðafélagsins sagði
að réttara væri að tala um
offramboð á verkefnum er skort
á smiðum.
Hjá Iðnaðardeild SÍS varð
þenslunnar líka vart því þar vant-
aði starfsfólk. Skortur á húsnæði
í bænum gerði þeim Iðnaðar-
deildarmönnum erfitt fyrir eins
og svo mörgum öðrum.
26. Deilur um verksvið faglærðra
óg ófaglærðra starfsmanna Kísil-
iðjunnar við Mývatn hafði í för
með sér að Járniðnaðarmanna-
félagið kærði fyrirtækið.
27. Á Húsavík varð vart mikillar
skjálftahrinu og eina nóttina varð
vart 30 skjálfta. Talið var að
skjálftarnir, sem allir voru litlir,
gætu verið undanfari stærri
skjálfta.
Um 20 aðilar lofuðu hlutafé að
upphæð um 4,5 milljónir króna
til stofnunar hlutafélags um lúðu-
eldi í Eyjafirði.
28. Mikillar óánægju gætti meðal
íbúa Skagastrandar í kjölfar hús-
bruna sem þar varð. Taldi fólk að
allt of langur tími hafi liðið frá
því hringt var í neyðarsíma á
Blönduósi og þar til sjúkrabíllinn
var kominn.
Júní
1. Loks var gengið frá samning-
um um kaup Sovétmanna á ullar-
vörum frá Iðnaðardeild SÍS.
Samið var um sölu fyrir um 200
milljónir en verðið þótti lágt.
Upp komst um eggjastuld úr
fálkahreiðri á Tjörnesi rétt einu
sinni enn. Lögreglan á Húsavík
rannsakaði málið án árangurs.
Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri brautskráði yfir 160 stúdenta
tveimur dögum fyrir þriggja ára
afmæli skólans, 1. júní.
Ritstjóraskipti urðu á Degi.
Hermann Sveinbjörnsson lét af
störfum eftir rúmlega sjö ára
starf en við tóku þeir Áskell
Þórisson og Bragi Bergmann.
2. Enn var fræðslustjóramálið til
umræðu því Ólafur Guðmunds-
son hætti við að mæta til starfa
sinna sem fræðslustjóri 1. júní.
Ólafur sagðist sjá eftir að hafa
ekki hitt norðanmenn áður en
hann tók að sér starfið.
Tafir urðu á afgreiðslu áburðar
til bænda á félagssvæði Kaup-
félags Norður-Þingeyinga vegna
þess að bankar þráuðust við að
veita bændum lán til áburðar-
kaupanna.
3. Ákveðið var að hætta fram-
leiðslu á frönskum kartöflum í
kartöfluverksmiðjunni á Sval-
barðseyri sem Kjörland rak. Svo
virtist sem samningar um kaup
fyrirtækisins á verksmiðjunni
garnapest væri að láta til sín taka
þar eins og í Austur-Húnavatns-
sýslu.
19. Menntaskólinn á Akureyri
brautskráði 115 stúdenta. í fyrsta
sinn í iangan tíma fór athöfnin
ekki fram í Akureyrarkirkju
heldur í rúmbetri salarkynnum
íþróttahallarinnar.
Laxveiði í norðlenskum ám fór
vel af stað, sérstaklega í Laxá í
Aðaldal.
22. Forráðamenn Héraðsskólans
á Laugum voru mjög ósáttir við
þá ákvörðun Sverris Hermanns-
sonar menntamálaráðherra að
leigja einstaklingi húsnæði skól-
ans til reksturs sumarhótels, í
stað þess sem verið hafði að skól-
inn hafði tekjur af slíkum rekstri.
Sæplast hf. á Dalvík flutti í
nýtt og glæsilegt 840 fermetra
húsnæði og þegar hófust fram-
kvæmdir við viðbyggingu.
23. „Vinnan“ fréttabréf ASÍ birti
niðurstöður könnunar um kyn-
ferðislega áreitni á vinnustöðum
á Akureyri. í ljós kom að þriðja
hver iðnverkakona hafði orðið að
þola slíkt í starfi.
Veitustjórn Akureyrar sam-
þykkti 7,16% hækkun á gjaldskrá
Hitaveitu Akureyrar.
25. Hafrannsóknastofnun rann-
sakaði í samvinnu við erlenda
aðila, jarðhita á sjávarbotni í
grennd við Kolbeinsey.
Offramleiðsla á mjólk á félags-
svæði Kaupfélags Eyfirðinga var
talsvert vandamál. í stað þess að
gefa mjólkursamlaginu mjólkina
þá tóku allmargir bændur upp á
því að hella henni niður.
26. Fjórðungsmót norðlenskra
hestamanna hófst á Melgerðis-
melum og stóð í fjóra daga. Mót-
ið tókst í alla staði sérstaklega vel
enda veður afburðagott fyrstu
þrjá dagana. Til að brynna
mönnum og málleysingjum á
mótinu þurftu tankbílar Mjólk-
ursamlags KEA að flytja 90 þús-
und lítra af vatni á Melana.
30. Jón Baldvin Hannibalsson
skilaði forseta íslands umboði
sínu til stjórnarmyndunar eftir að
fyrstu viðræður framsóknar-
manna, sjálfstæðismanna og
alþýðuflokksmanna fóru út um
þúfur.
Júlí
1. Sæluhúsið á Öxarfjarðarheiði
komst heldur betur í fréttirnar
þegar upp komst um vægast sagt
hroðalega umgengni sem ein-
hverjir höfðu þar gert sig seka
um. Smjör í dýnum og hrossa-
skítur á gólfum, þannig var
aðkoman.
Olíufélögin létu sig ekki muna
um að snara upp þremur glæsi-
legum bensínstöðvum á Akureyri
í sumar. Þarna var um að ræða
framkvæmdir fyrir tugi milljóna.
2. Enn var skortur á iðnaðar-
mönnum til umræðu og nú voru
það múrarar og trésmiðir sem
voru eftirsóttari en svo að þeir
gætu sinnt því. Ástæðan var talin
hækkandi verð á notuðum fast-
eignum sem leiddi til aukinna
nýbygginga.
Hjá loðnuverksmiðju SR á
Raufarhöfn var unnið að miklum
endurbótum og afkastageta verk-
smiðjunnar stóraukin.
í júní fór bíll í Glerá. Vel gekk að
bjarga ökumanni bifreiðarinnar úr
flakinu, en hann var cinn í bílnuni.
Á meðfylgjandi mynd sjást björgun-
armenn hífa manninn upp í sig-
kölfu. Mynd: RPB