Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 1
Tíu íslensk hótel efna til samstarfs:
Samtökin íslensk hótel
stofnuð á Akureyri
- hafa samstarf um markaðsmál og fleira
Um helgina unnu félagar úr Lionsklúbhnum Hæng að því að hreinsa allt lauslegt úr húsinu að Kringlumýri 4 en þar
brann sem kunnugt er allt sem brunnið gat skömmu fyrir jól. Fljótlega verður hafist handa við endurbyggingu
hússins. A myndinni sjást þeir Guðmundur Sigurbjörnsson og Haraldur Árnason önnum kafnir við hreinsunina.
Mynd TLV
Fóstrudeilan:
Dagvislimar opnar út vikuna
- jákvæðar viðræður en engin lausn fyrirliggjandi
Á laugardaginn var stofnfund-
ur nýrra samtaka undir hcitinu
íslensku hótelin haldinn á
Slippstöðin:
Kjölur
lagður á
Þorláks-
messu
Eftir að hefðbundinni vinnu í
Slippstöðinni hf. lauk á Þor-
láksmessu, lögðu starfsmenn
stöðvarinnar kjöl að nýjum
200 tonna togara. Þar með má
segja að hafin sé smíði togar-
anna tveggja sem fyrirhugað er
að smíða á árinu.
Forhönnun skipsins er lokið en
endanlegri hönnun lýkur ekki
fyrr en um það leyti sem smíði
skipanna lýkur. í lok febrúar er
gert ráð fyrir að farið verði að
reisa skrokk hins nýja skips og
þegar smíði þess er komin vel á
veg hefst vinna við hið síðara.
Ekkert hefur skýrst með hugs-
anlega kaupendur skipanna og
fyrr verður ekki ákveðið hvaða
vinnslubúnaður verður um borð.
Sigurður Ringsted yfirverk-
fræðingur stöðvarinnar sagði það
eitt víst að aðalvél skipsins yrði
japönsk. ET
Hótel KEA á Akureyri. Tíu
hótel á Islandi taka þátt í þessu
samstarfi, þar af tvö í Reykja-
vík og eitt á Akureyri. Á fund-
inum var lagður grunnur að
starfi þessa félagsskapar en
síðar í vetur verður gengið
endanlega frá starfi samtak-
anna.
„Ætlunin er að hafa samstarf
um markaðsmál og á döfinni er
að setja upp tilboð fyrir fólk
þannig að dvöl á hótelum verði
meira aðlaðandi fyrir hinn
almenna ferðamann. Að öðru
leyti get ég ekki skýrt frá áform-
um okkar," sagði Gunnar
Karlsson, hótelstjóri Hótel
KEA á Akureyri í gær en Hótel
KE A er eitt af þeim hótelum sem
þátt taka í samstarfinu.
Gunnar sagði markmið með
stofnun þessa félagsskapar helst
vera að hinn almenni ferðamaður
geti á sem hagkvæmastan og auð-
veldastan hátt notað hótelin
hringinn í kringum landið. Með
þessu sé verið að byggja upp net
og tengja hótelin meira saman.
Undirbúningur að stofnun
þessa félagsskapar hefur staðið í
allnokkurn tíma. Hótel Saga í
Reykjavík og Hótel KEA hafa
haft samstarf um kynningar og
eru bæði aðilar að norrænum
samtökum hótela. Gunnar sagði
að fljótlega hafi komið í ljós að
sá félagsskapur hentaði þeim
ekki sem skyldi, sérstaklega hvað
varðar innanlandsmarkað, og líta
megi því á stofnun þessa samtaka
nú sem framhald þeirra að aðild
norrænu hótelsamtakanna. JÓH
Mikil fundahöld voru um
helgina í kjaradeilu fóstra hjá
Akureyrarbæ og bæjaryfir-
valda. Fóstrur funduðu á laug-
ardag með dagvistarl'ulltrúa og
í gær með bæjarstjóra. Tals-
verð leynd hvílir yfir því sem
gerðist á þessum fundum en
þeim verður haldið áfram,
m.a. á grundvelli tilboðs
bæjarráðs um fasta yfirvinnu
hjá forstöðukonum. Málel'ni
almennra fóstra eru mun
skemmra á veg komin og ekk-
ert hcfur verið gert til að fá
nýjar fóstrur í bæinn.
Til stóð að loka tveimur dag-
vistarheimilum í bænum í dag, ef
ekki næðist samkomulag um
helgina en af því verður ekki.
Heimilin sem um ræðir eru Flúðir
og Síðusel en uppsagnir forstöðu-
kvenna þar tóku gildi á nýársdag.
Almennar fóstrur gengu í störf
yfirfóstru á Flúðum en á Síðuseli
gegndi fráfarandi forstöðukona
störfum í síðustu viku.
Frestur bæjaryfirvalda til að
skila inn tilboði rann út á föstu-
dag og áðurnefnd lausn átti að-
eins að gilda þangað til. Fóstrur
meta tilboð til yfirfóstra og gang
viðræðnanna jákvætt, svo já-
kvætt að ákveðið hefur að sami
háttur verði hafður á út þessa
viku og dagvistarheimilin verði
opin.
Bæjarráð fundar í dag og þar
verður fóstrumálið m.a. á
dagskrá og í dag verður einnig
haldinn fundur fóstra og dagvist-
arfulltrúa Akureyrarbæjar. ET
Kelduhverfi
og Axarfjörður:
Rafmagnslaust
í gær
Um kl. 11 í gærmorgun fór raf-
magn af raflínunni frá Laxár-
virkjun til Kópaskcrs vegna
bilunar í aöveitustöð í Lindar-
brekku í Kelduneshreppi. Við
þetta varð rafmagnslaust í
Kelduhverfi og Axarfirði.
Þórshöfn og Raufarhöfn nutu
rafmagns frá díselrafstöðvum
og reynt var að miðla rafmagni
til Kópaskers frá vararafstöðv-
unum.
f gær framleiddu þrjár raf-
stöðvar rafmagn fyrir Pórshöfn
og Þistilfjörð og sömuleiðis voru
keyrðar þrjár díselrafstöðvar á
Raufarhöfn sem einnig gátu
miðlað rafmagni til Kópaskers.
Vegna bilana sem urðu á raf-
línu í Þistilfirði í síðustu viku
þurfti að taka upp skömmtun á
rafmagni þar sem þær tvær raf-
stöðvar sem voru á Þórshöfn
dugðu ekki til að framleiða raf-
magn fyrir svæðið. Viðgerð á lín-
unni var lokið á laugardag og þá
var hætt skömmtun sem staðið
hafði í þrjá sólarhringa.
Síðdegis í gær fannst bilun í
aðveitustöðinni í Lindarbrekku í
Kelduneshreppi og var viðgerð
strax hafin. I gærkvöld komst
því rafmagn á í Kelduhverfi og
Axarfirði og hætt var við að
keyra díselrafstöðvar á Þórshöfn
og Raufarhöfn. JÓH
Golfvöllur Akureyrar:
Trjáplöntur og
flatir í hættu
- enn eru vélsleöamenn á ferð
Þeir láta ekki að sér hæða vél-
sleðamennirnir sem lítinn
skilning hafa á gildi trjáræktar.
Enn hafa þeir fengið aðila upp
á móti sér með gáleysislegum
akstri, fáir svartir sauðir koma
óorði á hópinn.
Nú eru það hríslur á svæði
Golfklúbbs Akureyrar sem orðið
hafa fyrir barðinu á hinum tillits-
lausu ökumönnum. Undanfarin
átta ár hafa verið settar niður 50-
70 þúsund trjáplöntur og flestar
eru þær enn mjög smávaxnar.
Þegar nú komin er smávegis
snjóföl hverfa margar þessara
plantna rétt undir yfirborðið,
aðrar standa eitthvað upp úr, en
allt treðst þetta niður þegar farar-
tækin mæta á staðinn. Síðastliðið
sumar var gert sérstakt átak í
gróðursetningunni og settar nið-
ur 8-10 þúsund plöntur.
„Þetta er alveg rosalegt. Við
höfum þegar fundið verulegar
skemmdir á hríslunum en það
sem við kannski óttumst mest er
að þessir menn spóli sig niður á
„grínin“. Þá myndi tjónið fljót-
lega skipta hundruðum þúsunda.
Þetta eru ekki bara börn og
unglingar heldur líka fullorðnir
menn. Og þessir menn vita upp á
sig sökina því þegar þeir eru
staðnir að verki þá þeysa þeir á
brott,“ sagði Guðmundur Lárus-
son gjaldkeri Golfklúbbs Akur-
eyrar í samtali við Dag. ET
„Þær þola ekki mikið þessar hríslur,“ sagði Guðmundur Lárusson
gjaldkeri Golfklúbbs Akurcyrar. Mynd: tlv