Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR “■ 11. janúar 1988 Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Norðurgötu 55, Akureyri, þingl. eigandi Aðalgeir og Viðar hf., talinn eigandi íspan hf., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Útvegsbanki íslands og innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. tMinning:^ Ema Guðlaug Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur Fædd 17. október 1954 - Dáin 30. desember 1987 Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Sandskeiði 20, n.h. (Baldursh.) Dalvík, þingl. eigandi Jóna Vignisdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Bæjarfógetinn á Dalvík. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fastelgninni Skáldalæk, Svarfaðardal, þingl. eigandi Hallur Steingrímsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. '88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ragnar Steinbergsson hrl. og Veð- deild Landsbanka íslands. Sýslumaðurinn f Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð á fasteigninni Ásvegi 13, e.h. Akureyri, þingl. eigandi Arnald Reykdal, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur Gústafsson hrl., Garðar Garð- arsson hrl. og Iðnlánsjóður. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Smárahlið 4f, Akureyri, þingl. eigandi Jón Pálmason, ferfram í dómsal embættisins Hafnar- stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. '88 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka (slands, Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar Sólnes hrl., Sveinn Skúlason hdl., Gísli Baldur Garöarsson hrl., Baldur Guðlaugsson hrl., Gjaldskil sf., Guðmundur Jónsson hdl., Benedikt Ólafsson hdl. og innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Lerkilundi 9, Akureyri, þingl. eigandi Sveinbjörn Vigfússon, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Iðnaðarbanki íslands hf. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Lyngholt 26, Akureyri, þingl. eigandi Jón Ásmundsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Hreinn Pálsson hdl., Veðdeild Lands- banka íslands og Bæjarsjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Mánahlíð 3, Akureyri, þingl. eigandi Arnar M. Friðriksson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. '88 kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Bæjar- sjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Óseyri 7, Akureyri, þingl. eigandi Híbýli hf., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. '88 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls og brugðist getur lánið frá morgni til kvelds. (M. Joch.) Þessar hendingar koma í hugann þegar litið er til baka til 30. des. síðastliðins. Þann dag lagði ung kona af stað ásamt fjölskyldu sinni í bíl frá Reykjavík, og var ferðinni heitið til æskustöðvanna á Sólvöllum 7 á Akureyri. Þar átti að halda áramótin hátíðleg með ættingjum og vinum. Til- hlökkunin var mikil bæði hjá ferðafólkinu og einnig okkur sem væntum góðra gesta. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er og óhöppin gera ekki boð á undan sér. Unga konan náði ekki heim á Sólvelli í þetta skiptið - hún fórst í bílslysi á Holtavörðuheiði þennan dag. Erna Guðlaug var fædd og uppalin á Akureyri dóttir hjón- anna Ingibjargar Ólafsdóttur og Ólafs Jónssonar leigubifreiða- stjóra. Erna var elst þriggja systkina. Bróðir hennar er Jón Óli húsasmiður 32 ára - hann er kvæntur Sigurbjörgu Óladóttur og eiga þau 3 börn. Yngst er Kristín María nemi við Kennara- háskóla íslands hún er 23 ára. Ung að árum ákvað Erna hvað hún ætlaði að gera að sínu ævi- starfi og stefndi markvisst að því - hún fór í Hjúkrunarskóla Islands og útskrifaðist þaðan sem hjúkrunarfræðingur árið 1976. Erna lifði hamingjusömu lífi alla sína allt of stuttu ævi. Á námsárunum í Reykjavík kynnt- ist hún góðum dreng - Sigurði Guðna Gunnarssyni fiskmats- manni ættuðum frá Bíldudal og varð hann hennar lífsförunautur. Þau giftu sig árið 1978 og eignuð- ust 2 efnilega drengi - Gunnar Óla og Arnar Björn. Fljótt eftir að Erna lauk námi fluttust þau til Bolungarvíkur - þar áttu þau heima í 5 ár og allan þann tíma vann hún við hjúkrunarstörf. Síðustu ár hafa þau verið búsett í Reykjavík og starfaði Erna sem aðstoðarhjúkrunarforstjóri við geðdeild Landspítalans. Hjúkr- unin var fyrir Ernu meira en starf - það var köllun. Hún þótti ákaf- lega góð hjúkrunarkona. Hlý og glaðleg í viðmóti við sjúklingana - þannig var Erna. Að vera í fullu starfi við hjúkr- un og jafnframt sinna um 4 manna fjölskyldu er í raun tvöfalt starf. Við lausn á þessum vanda kom best í ljós lipurð og hjálp- semi Sigurðar og hversu samhent þau hjónin voru. Erna átti mörg áhugamál en fyrst og fremst voru það félags- mál í þágu líknarstarfsemi sem hún sinnti í vaxandi mæli, enda var það í samræmi við lífshlaup hennar. Hennar stærsta persónuein- kenni var hversu opin og aðlað- andi hún var í allri umgengni við fólk - enda var hún vinsæl og vinamörg. Henni var það hug- leikið að treysta fjölskyldu- og vinaböndin. Hún var umhyggju- söm og elskuleg dóttir - systir og frænka. Við sem höfum búið í sama húsi og foreldrar hennar allt frá því að við öll giftum okkur og þekkt Ernu frá fæðingu höfum margs að minnast. Það var oftast bjart yfir bernskudögum barn- anna sem ólust upp á Sólvöllum 7. Ekki alltaf friður og ró sem varla var von, þar sem hópurinn samanstóð af 8 frændsystkinum sem öll voru kát og hress! Lengst af voru það þó fjögur elstu börn- in sem léku sér saman - þrjár frænkur á sama ári og „brói litli“ einu ári yngri. Þau urðu því nokkuð mörg gleðiár æskunnar sem við minnumst í þessu sam- bandi. Þó að 30. des. síðastliðinn sé dimmur í hugum okkar reynum við að fletta upp í minningabók- inni og skoða allar björtu mynd- irnar af fallegu, góðu frænkunni með brúnu augun sín, sem veitti gleði og birtu til okkar allra. Það er komið að leiðarlokum og þú horfin okkur í bili. Við kveðjum þig elsku Erna í hinsta sinn. Megi það kærleiksljós sem þér fylgdi í lífinu umvefja þig á alheimsbrautum. Við drúpum höfði í samúð og biðjum almættið að styrkja þá sem næst standa og gera líf þeirra bjart og fagurt. Hulda og Ingi. Hvað erum vér? Einn dropi úr lífsins legi. Hvarlifum vér? Á andans þroskavegi. Hvað Ixrum vér? Að finna Föðurhendi. Hvert förum vér? Til þess, er okkur sendi. (Hj.Bj.) Þegar tilkynning kom um að slys hefði orðið og að hún ástkæra frænka okkar hefði látið lífið var fyrsta hugsun okkar allra að þetta gæti ekki verið, þetta væri ekki rétt. Erna Guðlaug var dóttir hjón- anna Ingibjargar Ólafsdóttur og Ólafs Jónssonar. Hún var fædd og uppalin á Akureyri að Sólvöll- um 7. Húsið að Sólvöllum 7 er TILKYNNING til þeirra sem annast dreifingu og sölu á flugvélaeldsneyti Seljendur flugvélaeldsneytis skulu frá og með 7. janúar 1988 innheimta 25% söluskatt af sölu á flug- vélaeldsneyti til annarra en handhafa flugrekstrar- leyfa. Söluskattsfrjálsri sölu til flugrekstrarleyfis- hafa skal halda greinilega aðgreindri frá annarri sölu þannig að hún sé færð á sérstaka reikninga. Fjármálaráðuneytið 6. janúar 1988. með þremur íbúðum og byggt í sameiningu af Ólafi, Ingólfi bróður hans ásamt föður þeirra. Allan sinn búskap hafa þeir bræður búið í sama húsi ásamt fjölskyldum sínum. Og höfum við því alist upp eins og hálfgerð systkini. Oft var glatt á hjalla á Sól- völlunum hvort sem komið var saman uppi eða niðri, minningar æskuáranna hrannast fram og of langt mál yrði að tíunda þær hér en við munum eiga eftir að ylja okkur við þær um ókomna fram- tíð. Þegar barnsárin voru að baki og alvara lífsins tók við þá minnkuðu tengslin sem höfðu bundið okkur svo sterkt saman meðan við bjuggum öll undir sama þaki. Erna valdi sér að starfa við hjúkrun og átti það mjög vel við hennar ljúfu skapgerð sem alls staðar veitti birtu og yl til þeirra sem hún annaðist. Einnig kom það í ljós að Erna var sú okkar sem hvað mest hélt við þeim sterku tengslum sem bundið höfðu okkur saman sem börn og unglinga. Hún var mjög opin og hlý og sýndi það í orði og verki að fjölskylda og ættingjar er það dýrmætasta sem maður á. Og það var einmitt tilgangurinn með þessari ferð að öll fjölskyld- an kæmi saman á Sólvöllunum en það hafði ekki tekist um árabil. Erna var sú fyrsta af okkur frændsystkinunum sem fór að heiman þegar hún fór til náms við Hjúkrunarskóla íslands. Á náms- árunum í Reykjavík kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum Sig- urði Guðna Gunnarssyni og eign- uðust þau tvo drengi Gunnar Öla 13 ára og Arnar Björn 8 ára. Við sendum þeim okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Einnig foreldrum, systkinum og öllum þeim sem eiga um sárt að binda á þessum sorgarstundum. Hafðu þökk fyrir allt og allt elsku Erna frænka. Oft er líkt og leiðsögn góðra vætta sé lokið eftir skamma stund. (D.St.) Frændsystkinin, Gréta Berg, Eva Þórunn, Hrefna Laufey, Eggert Þór, Edda Ásrún. Þegar sú harmafregn barst mér þann 30. desember að Erna vin- kona mín hefði dáið í bílslysi, var erfitt að trúa því að þetta væri raunverulegt. Hún svona ung og í blóma lífsins. Erna var fædd 17. október 1954, dóttir hjónanna Ingibjargar Ólafsdóttur og Ólafs Jónssonar. Ernu hef ég þekkt frá því við vorum smástelpur, en fyr- ir tæpum 5 árum komu veikindi upp í fjölskyldu minni, þá reyndi virkilega á, þá brást Erná ekki. Þau hjónin voru boðin og búin að hjálpa og heimili þeirra stóð okk- ur alltaf opið þegar við þurftum að leita suður til læknis. Þá fund- um við vel hvernig það er að eiga góða vini. Minningarnar eigum við alltaf þær getur enginn tekið frá okkur. Þó að Erna sé horfin okkur þá bíða hennar eflaust margir handan við móðuna miklu og fá að njóta samveru hennar. Einhver er tilgangurinn þó okkur reynist erfitt að skilja hann. Elsku Siggi, Gunnar Óli, Arn- ar Björn, foreldrar og systkini! Guð styrki vkkur í sorginni og hjálpi til að líta björtum augum á framtíðina. Hófý og tjölskylda.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.