Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 11

Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 11
11. janúar 1988 - DAGUR, - 11. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Skattmat í staðgreiðslu á árinu 1988 1. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 45/1987 um stað- greiðslu opinberra gjalda teljast fríðindi og hlunnindi svo sem fatnaður, fæði, húsnæði og afnot bifreiða til launa sem reikria skal staðgreiðslu af. Samkvæmt 116. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignaskatt skal ríkisskattstjóri meta hlunnindi til verðs. Með tilvísun til áðurnefndra lagagreina met- ur ríkisskattstjóri eftirtalin hlunnindi sem veitt verða á árinu 1988 þannig til verðs sem staðgreiðsla reiknast af. 1.1. Fullt fæði, sem launagreiðandi lætur launamanni í té endurgjaldslaust, skal metið honum til tekna sem hér segir: Fyrir fullt fæöi, fullorðins ............. 437 kr. á dag Fyrir fullt fæöi barns, yngra en 12 ára . 350 kr. á dag Fyrir fæði aö hluta (ein máltíö) ......... 175 kr. ádag Fjárhæð fæðisstyrks (fæðispeninga) í stað fulls fæðis eða fæðis að hluta ber að telja til tekna að fullu. Allt fæði, sem fjölskyldu launamanns er látið í té endurgjaldslaust hjá launagreið- anda hans, svo og fjárhæð fæðisstyrkja (fæðispeninga) sem launamanni er greidd frá launagreiðanda hans vegna fjölskyldu launamannsins, ber að telja til tekna á sama hátt. Sérhver önnur fæðishlunnindi, látin launa- manni og fjölskyldu hans í té endurgjalds- laust, ber að telja til tekna á kostnaðar- verði. 1.2. Endurgjaldslaus afnot íbúðarhúsnæðis, sem launagreiðandi lætur launamanni sínum í té, skulu metin launamanni til tekna sem hér segir: Fyrir ársafnot reiknast 2,7% af gildandi fasteignarmati íbúðarhúsnæðisins, þ.m.t. bílskúr og lóðar. Fjárhæð þessi skiptist hlutfallslega á greiðslutimabil miöað við tímalengd þeirra. Hafi launamaður afnot íbúðarhúsnæðis, sem launagreiðandi hans lætur honum í té gegn endurgjaldi sem er lægra heldur en 2,7% af gildandi fasteignarmati íbúðar- húsnæðisins (þ.m.t. bílskúr) og lóðar, skal meta launþega mismuninn til tekna eftir því sem hlutfall greiðslutímabils segir til um. Sá hluti orkukostnaðar launamanns sem launagreiðandi hans greiðir skal tal- inn að fullu til tekna. Endurgjaldslaus afnot launamanns á orku (rafmagni og hita) skulu talin að fullu til tekna á kostnaðarverði. Húsaleigustyrk, sem launagreiðandi greiðir launamanni sínum, ber að telja til tekna að fullu. Fylgi starfi launþega kvöö um búsetu í húsnæði, sem vinnuveitandi lætur honum í té, er skattstjóra heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda með hliðsjón af ákvæðum 5. gr. reglugeröar nr. 104/1970 við álagningu opinberra gjalda á næsta ári eftir staðgreiðsluár, svo sem verið hefur. Eigi skal meta launamanni til hlunninda afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnu- búðum þar sem launamaður dvelur um takmarkaðan tíma í þjónustu launagreið- anda. 1.3. Fatnaður, sem ekki telst einkennisfatnað- ur, skal talinn til tekna á kostnaðarverði. Eigi skal reikna launamanni til tekna nauð- synlegan hlífðarfatnað sem launagreið- andi afhendir honum til afnota við störf í þágu launagreiðandans. Af greiðslum launagreiðanda til launamanns til kaupa á fatnaði skal hins vegar ávallt reikna stað- greiðslu af allri greiðslunni. 1.4. Endurgjaldslaus afnot launamanns af bif- reið, sem launagreiðandi hans lætur hon- um í té, skulu metin honum til tekna sem hér segir: Fyrir fyrstu 10.000 km afnot 15,50 pr. km. Fyrir næstu 10.000 km afnot 13,90 pr. km. Yfir , 20.000 km afnot 12,25 pr. km. Láti launagreiðandi launamanni í té afnot bifreiðar gegn endurgjaldi sem lægra er en framangreint mat skal mismunurinn teljast launamanni til tekna. Hafi launamaður fullan umráðarétt yfir bifreið í eigu launagreiðanda hans skal við það miðað að launamaður aki bifreiðinni a.m.k. 10.000 km á ári í eigin þágu eða 833 km á mánuði. Staðgreiðsluskyld hlunnindi slíks launamanns skulu því telj- ast nema kr. 12.912 hið lægsta á mánuði. Ef vitað er að umræddur akstur launa- manns í eigin þágu muni nema meiru en 10.000 km á ári skal ákveða mánaðarleg- an akstur sem 1/i2 af áætluðum heildar- akstri á ári. Við ákvörðun á staðgreiðslu- skyldum hlunnindum á mánuði er þá mat á eknum km umfram 833 km kr. 13,90, enda fari heildarakstur á ári eigi fram úr 20.000 km. Leggi launamaður fram gögn með skatt- framtali sínu er sanni óvéfengjanlega að akstur hans í eigin þágu hafi verið minni en viðmiðun ríkisskattstjóra til ákvörðunar staðgreiðslu byggir á skal leiðrétta hlunn- indamat vegna bifreiðaafnota í samræmi við fram komnar upplýsingar viö álagn- ingu. 2. Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 591/1987 um laun, greiðslur og hlunnindi utan stað- greiðslu skal ríkisskattstjóri meta endur- greiddan kostnað til launamanns, vegna afnota launagreiðanda af bifreið hans, sem halda má utan staðgreiöslu. Samkvæmt 6. gr. sömu reglugerðar skal ríkisskattstjóri meta fjárhæð dagpeninga sem launamaður fær greidda vegna ferða sinna á vegum launagreiðanda og sem halda má utan stað- greiðslu. Með tilvísun til áðurnefndra reglugerðar- greina metur ríkisskattstjóri endurgreiddan bifreiða- og ferðakostnað sem halda má utan staðgreiðslu á árinu 1988 þannig: 2.1. Mat samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar, þ.e. á kílómetragjaldi undir viðmiðunarmörkum: Fyrir 1 - 10.000 km kr. 15,50 pr. km. Fyrir 10.001 - 20.000 km kr. 13,90 pr. km. Fyrir 20.001 - > kr. 12,25 pr. km. Þar eð kílómetragjald er lægra fyrir akstur umfram 10.000 km þarf launagreiðandi að fylgjast með heildarakstri launamanna í hans þágu. Fái launamaður greitt kílómetragjald frá opinberum aðilum vegna aksturs í þágu þeirra, sem miðaðst við „sérstakt gjald“ sem Ferðakostnaðarnefnd ákveður, má hækka viðmiðungarfjárhæðir fyrir 1- 10.000 km akstur um 2,55 pr. km og um kr. 5,60 pr. km miðist kílómetragjaldið við „torfærugjald" sem Feröakostnaðarnefnd ákveður einnig. Fyrir akstur á bilinu 10.001-20.000 km má hækkun vegna sér- staks gjalds nema kr. 2,25 pr. km en kr. 5 pr. km vegna torfærugjalds. Fyrir akstur umfram 20.000 km má hækkun vegna sérstaks gjalds nema 2 kr. pr. km en kr. 4,40 vegna torfærugjalds. Varðandi skilyrði fyrir því að heimilt sé að fella greiðslur samkvæmt framangreindri viðmiðun fyrir afnot launagreiðanda af bifreið launamanns undan staðgreiðslu er vísað til þeirra skilyrða sem um það eru sett í áðurnefndri 3. gr. reglugerðarinnar, sbr. 2. mgr. þeirrar gr., sem hljóðar svo: „Heimild þessi er að öðru leyti bundin þeim skilyrðum að færð sé akstursdagbók eða akstursskýrsla þar sem skráð er hver ferð, dagsetning, ekin vegalengd, aksturs- erindi, kílómetragjald greitt launamanni, nafn og kennitala launamanns og ein- kennisnúmer viðkomandi ökutækis. Gögn þessi skulu færð reglulega og vera aðgengileg skattyfirvöldum þegar þau óska þess, hvort sem er í bókhaldi launa- greiðanda eða hjá launamanni.'1 2.2. Mat samkvæmt áKvæðum 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar á dagpeningum undir viðmiðunarmörkum til greiðslu á gistingu, fæði og fargjöldum frá og að flugvöllum og öðrum sambærilegum fargjöldum erlendis verður sem hér segir: Almennir dagpeningar: Noregur og Svíþjóð SDR 165 Annars staðar SDR 150 Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa: Noregur og Svíþjóð SDR 105 Annars staðar SDR 95 2.3. Mat samkvæmt 2. mgr. 6. gr. reglugerðar- innar á dagpeningum undir viðmiðunar- mörkum til greiðslu á gistingu og fæði innanlands: Gisting og fæöi í einn sólarhring kr. 3.960 Gisting í einn sólarhring kr. 1.890 Fæöi hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 2.070 Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 1.035 Varðandi skilyrði fyrir því að heimilt sé að fella dagpeninga, sem greiddir eru sam- kvæmt framangreindri viðmiðun undan staðgreiðslu, er vísað til þeirra skilyrða sem um það eru sett í áðurnefndri 6. gr. reglugerðarinnar. Sé gisting erlendis greidd samkvæmt reikningi frá þriðja aðila og launamanni auk þess greitt ferðafé til að standa straum af öðrum ferðakostnaði erlendis skal við það miða að heildarfjárhæð þeirra dag- peninga sem falla innan mats ríkisskatt- stjóra hverju sinni sé 67 SDR á dag. Af þeim hluta dagpeninga sem er umfram þá fjárhæð skal þá reikna staðgreiðslu. Sam- bærilegri reglu skal beitt um staðgreiðslu af umframfjárhæð hafi annar ferðakostn- aður en gisting verið greiddur samkvæmt reikningi en ferðafé greitt til að standa straum af gistingu. Reiknast þá stað- greiðsla af greiddum dagpeningum sem eru umfram 83 SDR á dag. Fái launamaður greidda dagpeninga fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári skulu viðmiðunar- mörk skv. 2.2. og 2.3. hér að framan lækka um kr. 437 fyrir hvern dag umfram 30 daga. Reykjavík 4. janúar 1988. Garðar Valdimarsson, ríkisskattstjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.