Dagur - 11.01.1988, Síða 4
4 - DAdÚR - fl.^januar ^988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉSPÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (Iþróttir),
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
STEFÁN SÆMUNDSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDI'S FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Slippstððin
í einkaeign?
Á fimmtudag í síðustu viku birti Dagur frétt þess
efnis að forstjóri Slippstöðvarinnar, Gunnar
Ragnars, hefði gengið á fund Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, fjármálaráðherra, og rætt við hann um
hvort ríkið væri tilleiðanlegt til að selja nokkrum
einkaaðilum hlutabréf þess í Slippstöðinni hf.
Hlutabréf ríkisins í Slippstöðinni eru á sölulista
núverandi ríkisstjórnar. Samkvæmt upplýsingum
fjármálaráðherra er málið enn á „kaffibollastigi"
eins og ráðherra orðaði það.
Að sjálfsögðu er hér um stórmál að ræða. Slipp-
stöðin hf. er eitt af grundvallarfyrirtækjum bæjar-
ins auk þess að vera leiðandi í skipasmíðum
landsmanna og þjónustu við skipastólinn. Á sínum
tíma lenti fyrirtækið í miklum rekstrarerfiðleikum
og tóku þá ríkissjóður, Akureyrarbær og Kaupfélag
Eyfirðinga höndum saman og komu því á réttan
kjöl. Þessir aðilar tryggðu Slippstöðinni hf. sam-
henta forystu sem hefur reynst fyrirtækinu afar
vel. Umræddir þrír aðilar hafa og myndað órofa
heild sem hefur komið Slippstöðinni til góða. Þann-
ig seldi Akureyrarbær Slippstöðinni hf. dráttar-
braut bæjarins á hagstæðum kjörum. Án efa hafa
þáverandi ráðamenn bæjarins haft í huga að fyrir-
tækið væri og yrði áfram í samfélagslegri eign.
Tæpast hafa þeir nokkurn tíma gert ráð fyrir að
einkaaðilar gætu skáskotið sér inn í fyrirtækið og
náð þar yfirhöndinni.
Slippstöðin hf. er í hlutafélagsformi í dag og frá-
leitt væri að halda því fram að fyrirtækið sé baggi á
ríki eða bæ. Ef umræddir einkaaðilar halda því fram
að þeir séu að gera ríkinu stóran greiða með tilboði
í hlutafé þess er það hinn mesti misskilningur.
Það ber að gjalda varhug við því að Slippstöðin
fari úr samfélagslegri eign. Það ber að gjalda var-
hug við því að ríkissjóður selji sinn hlut. En ef
fjármálaráðherra telur það nauðsynlegt þá ber að
leggja áherslu á að Akureyrarbær og Kaupfélag
Eyfirðinga verði meirihlutaaðilar að félaginu. Hér
er um að ræða fyrirtæki sem skiptir afar miklu máli
fyrir atvinnulíf bæjarins og því verða bæjarbúar að
hafa þar tögl og hagldir.
Án efa mun stjórn Slippstöðvarinnar ræða um
löngun forstjórans í hlutabréf ríkissjóðs, en það
hlýtur að teljast til tíðinda ef forstjóri fyrirtækis
sniðgengur stjórn þess og gerir tilraun til að kaupa
fyrirtækið. Gunnar Ragnars var valinn af þeim sem
eiga Slippstöðina til að annast daglegan rekstur.
Sú tilraun hans að ná meirihluta í fyrirtækinu án
þess að minnast á það einu orði við stjórnina veld-
ur miklum vonbrigðum svo ekki sé meira sagt. ÁÞ.
„Maður má ekki
hika of mikið“
- segir Hrafn Hrafnsson, 25 ára verslunarstjóri
og aðaleigandi Matvörumarkaðarins
Nýlega fóru fram eigendaskipti
á versluninni Matvörumarkað-
inum í Kaupangi við Mýrar-
veg. Við rekstrinum tóku fimm
aðilar, ungt fólk sem á það
meðal annars sameiginlegt að
hafa aldrei nálægt slíkum
rekstri komið. Stærsti hluthaf-
inn og jafnframt verslunar-
stjóri er 25 ára gamall Akur-
eyringur, Hrafn Hrafnsson og
tók hann við stjórnartaumun-
um 1. janúar síðastliðinn.
Hrafn er bifvélavirki að mennt
og starfaði við þá iðn sína fram
á síðasta ár þegar hann hóf
störf sem sölumaður hjá heild-
sölu hér í bæ. Þar með er upp-
talin verslunarreynsla Hrafns
sem hér er mættur í viðtal
dagsins.
- Er þetta ekki algjört glap-
ræði og allt of stórt stökk fyrir bif-
vélavirkja að fara út í rekstur
matvöruverslunar?
„Það verður bara að koma í
ljós. Ég er tilbúinn til að fórna
einhverju fyrir það að verða
minn eigin herra og vildi reyna
eitthvað nýtt.
Ég byrjaði í bifvélavirkjuninni
einfaldlega af því að mér bauðst
samningur. Ég vissi í rauninni
ekkert hvað ég vildi en ákvað þó
að ljúka náminu fyrst ég á annað
borð var byrjaður.
Þcgar ég svo var búinn að
vinna við þetta í átta ár þá fannst
mér ég vera farinn að festast í
þessu og fór þá í sölumennskuna.
Það varð svo til þess að koma
verulegri hreyfingu á hugann.“
- Eru laun bifvélavirkja það
góð að þau standi undir fjár-
mögnun svona fyrirtækis?
„Nei það er nú aldeilis ekki.
Þetta er allt meira og minna á
lánum og það verða bara árin
sem skila því inn.“
- Hvernig gekk að fjármagna
þetta dæmi?
„Það gekk bara nokkuð vel og
raunar mun betur en ég átti von
á. Það hjálpaði okkur mikið að
við gengum inn í samninga fyrri
eigenda og einnig hafa heildsalar
verið okkur mjög liðlegir.“
- Var langur aðdragandi að
þessum kaupum?
„Nei hann var mjög skammur.
Þetta kom fyrst á borðið hjá okk-
ur um miðjan október og við
skrifuðum undir í lok þess mán-
aðar.“
- Fyrri eigendur hafa ekki ver-
ið að selja vegna erfiðleika í
rekstri?
„Ekki virtist dæmið líta þannig
út þcgar við skoðuðum það niður
í kjölinn. Við fengum aðgang að
bókhaldi fyrirtækisins og það
virtist ganga ágætlega."
- Höfðu aðrir möguleikar
komið til greina en rekstur þesar-
ar tilteknu verslunar?
„Já ég hef verið að velta ýmsu
fyrir mér undanfarin ár. Mér leist
vel á það þegar þetta kom
skyndilega til og lét slag standa.
Ég hafði eiginlega aldrei fyrr velt
fyrir mér svona rekstri en
kannski meira hugsað um að
hefja sjálfstæðan rekstur í mínu
fagi.“
- Hvernig líst þér svo á starfið
eftir fyrstu tíu dagana eða svo?
„Mér líst mjög vel á þetta enn
sem komið er. Vöruskortur hefur
að vísu háð okkur nokkuð bæði
vegna þess að heildsalarnir hafa
ekki átt nóg til af vörum og eins
að lítið var til á lager þegar við
tókum við þessu. Þá var verslun-
in fyrstu dagana líka meiri en við
áttum von á og við höfðum ekki
undan að fylla upp. En þetta er
nú allt að komast í lag. Þetta er
hins vegar talsvert meiri vinna en
ég hafði gert mér hugmyndir
um.“
- Hvað er margt starfsfólk í
versluninni?
„Það eru fimm manns í fullu
starfi og svo tvær stúlkur við
afgreiðslu á kvöldin."
- Koma nýir eigendur til með
að breyta rekstrinum verulega?
„Við ætlum að reyna að auka
vöruúrval eins og við getum. Við
erum nýbúin að setja upp ávaxta-
torg, höfum gert samning við G.
Ben. á Árskógssandi um að sjá
okkur fyrir nýjum fiski daglega
og einnig reynum við að bæta
kjötborðið.
Þjónustuna ætlum við að bæta
og þá ber kannski fyrst að nefna
að við ætlum að taka upp heim-
sendingarþjónustu fyrir ellilífeyr-
isþega. Vöruverði ætlum við að
halda eins mikið niðri og við
getum.“
- Ertu ekkert hræddur við að
risarnir tveir „kæfi“ ykkur?
„Þetta er fyrst og fremst
svæðisverslun og ef okkur tekst
að halda vöruverði niðri og vera
með gott vöruúrval þá tel ég að
þessi verslun muni ganga.“
- Hvernig líst þér þá á aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar þessa dag-
ana?
„Mér líst ákaflega illa á þessar
breytingar og ekki síst það hvað
þetta fer hratt í gegnum þingið.
Þó að búið væri að samþykkja
söluskattshækkun um miðja síð-
ustu viku þá var ekki hægt að fá
nákvæmlega upp gefið hvað
myndi hækka. Mér finnst þessar
hækkanir alveg út í hött og ekki
eiga neinn rétt á sér.“
- Ertu annars pólitískur
maður?
„Nei ég er algjörlega hlutlaus.
Mitt brölt í pólitík hefur gert það
að verkum að ég er orðinn alveg
hlutlaus."
- Hefurðu nokkurn tíma til
annars þessa dagana en að sinna
starfinu?
„Nei það er alveg útilokað
mál. Undanfarna daga hef ég
verið að frá því klukkan átta á
morgnana til miðnættis og það
má búast við að svo verði ein-
hverjar fyrstu vikurnar.“
- Hvað með önnur áhugamál.
Eru þau einhver?
„Það er þá fyrst og fremst
hestamennskan. Eg á góða kunn-
ingja sem sjá um hirðingu hest-
anna á meðan þetta gengur yfir.“
- Ertu mjög bjartsýnn maður?
„Ég tel mig alltaf hafa verið
heldur bjartsýnan og ég hef lítið
hikað við að taka smá áhættu.
Lífið væri ekki þess virði að lifa
því ef maður tæki aldrei sénsa.
Maður má ekki hika of mikið,“
sagði Hrafn að lokum. ET
Hrafn við kjötborðið í versluninni. Þarna virðist úrvalið vera í góðu lagi en Hrafn segist þó ætla að bæta það enn
TLV