Dagur - 11.01.1988, Page 7
1 f.'jáhúanSBfit-OÍÍfciOA- 7 *
Annars er kisa besti vinur
Drellis. Hún klórar Drelli á
maganum með loppunum, og
það þykir honum svo gott, að
hann veltir sér á bakið með lapp-
irnar upp í loft. Svo fá þau sér
miðdegislúr saman, vefja sig
hvort upp að öðru.
Drellir er lyktnæmur og forvit-
inn og fljótur að læra, og hann er
afburðagóður varðgrís. Það kem-
ur enginn ókunnugur til hennar
Birgittu án þess að Drellir taki á
móti honum í garðinum eða for-
stofunni og þá drynur í honum
eins og blásið sé í lúður.
Það er h'elst, að einhver snurða
hlaupi á þráðinn, þegar Drelli
verður það á að éta matinn frá
kisu. En þá jafnar hún metin með
því að fara og drekka kakómjólk-
ina hans.
Drellir er ekkert svín í þeirri
merkingu, að hann sé sóði. Hann
kemur ilmandi og nýbaðaður til
dyra, og hann lætur vita, þegar
hann þarf út að gera stykkin sín.
.lá, hún Birgitta segir að hann
sé vinsæll fjölskyldumeðlimur.
Sambýlismaöur hennar var ekki
ýkja hrifinn í fyrstu og óttaðist að
heimilið yrði að svínastíu. Nú er
hann ekki siður hrifinn af Drelli.
Allt frá því Birgitta var ung
stúlka hefur hún verið með ein-
hver dýr í kringum sig. Skjald-
bökur, gullhamstrar, hvítar mýs,
kanínur og hundar hafa löngum
fylgt henni. En nokkur síðustu
árin eru það grísir, sem hafa stað-
ið hjarta hennar næst.
(Lausl. þýtt. - Þ.J.) |
af erlendum vetfvangi
Grísinn
minn viil
sofa undir
sæng og
fá svolítið
horn af
koddanum
inínuni
Fyrir tíu árum varð Birgitta
Dolving til að bjarga lífinu hjá
litlum grís. Gylta nágrannans
hafði eignast nokkra smágrísi, en
einn í hópnurn var að dauða
kominn og hjartað hætti að slá.
- Ég bjargaði honum með
hjartahnoði og munn-við-munn
aðferðinni, segir Birgitta. - Eftir
það leit hann á mig sem móður
sína . . .
En við þetta kviknaði ást Birg-
ittu á smágrísum. Fyrir ekki
löngu sá hún dvergvaxinn grís í
fjölleikahúsi og fann strax, að
einn slíkan yrði hún að eignast.
Og hún eignaðist Drelli. Það er
kanadískur grís af smávöxnum
stofni. Hann er hlýðinn eins og
hundur og afar námfús. Pegar
hann þarf út sinna erinda rýtir
hann og úti á lóðinni lætur hann
gjarna í sér heyra í vinalegum
tón. Birgitta Dolving er yfir sig
hrifin.
Hún er 36 ára hjúkrunarkona
og býr í litlu þorpi í sænsku smá-
löndunum ásamt sambýlismanni
sínum og 17 ára syni. Og svo
Drelli!
Drellir er minigrís, sem rýtir
glaðlega og tiplar á eftir matmóð-
ur sinni innandyra og utan. Hann
er 25 sentimetrar á hæð og 6 kílóa
þungur. Komi það fyrir, að hann
fari einn út, er auðvelt að finna
gripinn með því að ganga á
hljóðið.
En Drellir heldur sig mest hjá
Birgittu. Meðan hún er að sinna
eldhússtörfum leikur hann sér að
gúmmíkanínu og smábolta á
gólfinu.
Pegar að því kemur aö horfa á
sjónvarpið, stekkur hann upp í
kjöltu Birgittu til að láta klóra sér
og til að kíkja á Dynasti. Þcgar
að háttatíma kemur lallar hann
að svefndýnunni sinni við eldhús-
borðið. Þetta gerir hann þó ekki
alveg án andmæla, því að helst
vill hann sofa í rúminu hjá Birg-
ittu. Þá vill hann líka láta breiða
ofan á sig og fá svolítið horn af
koddanum. Grísir eru svolítið
mannlegir líka.
Vandætinn er Drellir ekki.
Hann gerir sér að góðu flesta þá
afganga, sem til falla, en kannski
eru borðsiðir hans ekki eins og
þeir gerast fínastir. Hann smjatt-
ar hástöfum, þegar hann fær
súkkulaði eða annað sælgæti, sem
honum þykir gott. Annars eru
hafragrautur og eplamauk uppá-
haldsfæðan.
Á hverjum degi fara þau Drell-
ir og Birgitta í gönguferð gegnum
skóginn og niður að vatni. Þá er
Drellir fullkomlega hamingju-
samur. En á eftir er hann svo
þreyttur, að hann nennir ekki
einu sinni að leika sér við kisu.
UTIHURDIR
B C D E F G
Trésmiðjan Fjalar hf. Húsavík
Pósthólf 50. Simi 96-41346.
XJtsalan hefst
í dag mámidag
20-50% afsláttur á:
Peysum, pilsum, kjólum, jogginggöllum, jogg-
ingpeysuin, náttsloppum og fleiru.
*«»Yerslunin
Takið eftir!
Framvegis verður opið JMMfl QQ
á laugardögum ff M/wmkj
frá kl. 10-16. M lilf If f
Sunnuhlíð 12, sími 22484.
fugla-
föður
1000gi:
Fæst í kjörbúðum
KEA og víðar!
III FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRI
Baejarmálafundur
verður mánudaginn 11. janúar kl. 20.30
að Hafnarstrœti 90.
Fundarefni: Dagskré bæjarstjórnar n.k.
þriðjudag. Félagar fjölmennið.
S-tjórnin.