Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 9
11. janúar 1988 - DAGUR - 9
Haukur Valtýsson leggur boltann fyrir félaga sinn Sigurð Arnar Ólafsson í
leiknum gegn Víkingi á laugardag. Mynd: ehb
Blak 1. deild karla:
KA sigraði
Víking í sveiflu-
kenndum leik
- Liðið nær öruggt í úrslitakeppnina
KA hélt sigurgöngu sinni
áfram á laugardag, er liðið
fékk Víking í heimsókn í 1.
deild karla í blaki. Leikurinn
var jafn allan tímann en nokk-
uð sveiflukenndur. KA-menn
reyndust þó sterkari og sigruðu
3:2 og hefur liðið nú svo gott
sem tryggt sér sæti í 4ra liða
úrslitakeppninni í vor. KA
þarf nú aðeins að vinna einn af
þeim fimm leikjum sem liðið á
eftir.
En það voru þó gestirnir sem
byrjuðu betur í leiknum í íþrótta-
húsi Glerárskóla á laugardag.
Víkingar unnu fyrstu hrinuna
15:9 og aðeins var jafnræði með
liðunum í upphafi hrinunnar. í
annarri hrinu tóku KA-menn
völdin strax í upphafi og unnu
mjög sannfærandi, 15:4.
Víkingar snéru dæminu aftur
sér í hag í þriðju hrinunni og sigr-
uðu. KA hafði yfirhöndina rétt í
upphafi en fljótlega tóku Víking-
ar leikinn í sínar hendur og sigr-
uðu af öryggi, 15:6. KA-menn
höfðu yfir í fjórðu hrinunni og
leiddu 10:5,12:6 og sigruðu síðan
15:8.
Það þurfti því oddahrinu til
lild kvenna:
jthjá
ígnKA
leikinn var Sigurborg Gunnars-
dóttir, nýkrýndur Blakmaður
ársins 1987 en hún var í prófum í
Háskólanum. Breiðabliksstelp-
urnar mættu mjög ákveðnar til
leiks og unnu fyrstu hrinuna 15:7
en aðra og þriðju hrinuna 15:6.
Liðið situr því enn á toppi deild-
arinnar með fullt hús stiga.
þess að knýja fram úrslit og eins
og gegn Þrótti fyrir jólin, höfðu
KA-menn betur og sigruðu 15:9.
KA komst í 3:0 og hafði yfir 8:3
er skipt var um velli. Þeir komust
síðan í 13:5 en Víkingar minnk-
uðu muninn í 13:8. KA-menn
voru hins ekki á því að gefa sinn
hlut eftir, sigruðu 15:9 og í leikn-
um því 3:2.
Knattspyrna:
Hinrík þjálf-
ar Snæfell
Hinrik Þórhallsson knatt-
spyrnumaður úr KA hefur
ákveðið að gerast þjálfari og
leikmaður 4. deildarliðs Snæ-
fells í Stykkishólmi næsta
keppnistímabil. Hinrik hefur
leikið með KA undanfarin ár
við góðan orðstír. Hann á að
baki yfir 150 leiki í 1. deild
með UBK, Víkingi og KA og
skorað alls 32 mörk í þeim. Þá
hefur hann leikið 2 A lands-
leiki og 1 leik með U-18 ára
landsliðinu.
„Þetta leggst alveg ágætlega í
mig. Annars er þetta svo nýtil-
komið að ég er ekki búinn að
kynna mér þetta almennilega,“
sagði Hinrik í samtali við Dag í
gær. „Það er mikill hugur í mann-
skapnum og stefnan að sjálf-
sögðu sett á 3. deild. Ég mun
hitta flesta leikmennina í fyrsta
skipti á íslandsmótinu innanhúss
eftir hálfan mánuð en þeir eru
dreifðir víðs vegar um landið í
vetur.“
- Og ætlar þú einnig að leika
með liðinu?
„Já ef ég kemst f liðið en það
verður strangt aðhald á
mönnum,“ sagði Hinrik einnig.
Snæfell lék í C-riðli 4. deildar
síðasta keppnistímabil og hafn-
aði þar í 3. sæti.
Afmælismót KA í handbolta:
KA sigraði með
fullu húsi stiga
KA sigraði ineð miklum yfirburðum
á afmælismóti félagsins í handknatt-
leik sem fram fór í íþróttahöllinni á
Akureyri um helgina. Mótið var
haldið í tilefni 60 ára afmælis félags-
ins og auk KA tóku Þór og Breiða-
blik þátt í mótinu og var leikin tvö-
föld umferð. KA-menn léku mjög
vel og unnu alla leiki sína mjög
örugglega. Er greinilegt að liðið
kemur vel undirbúið til leiks að
loknu jólafríi.
Þór-UBK
Seinni umferðin í mótinu var leikin í
gær og fyrst léku Þór og Breiðablik.
Þórsarar sigruðu í leiknum með 27
mörkum gegn 20, eftir að Blikar höfðu
haft yfir í hálfleik, 13:10. Þórsarar
byrjuðu leikinn vel og höfðu yfir í
byrjuri. En fyrir hlé voru Blikarnir
búnir að ná yfirhöndinn og leiddu
13:10 í hálfleik. Þórsarar náðu að jafna
í upphafi síðari hálfleiks og komast
yfir. Þeir juku síðan forskot sitt jafnt
og þétt og sigruðu 27:20.
Sigurpáll Aðalsteinsson skoraði 10
mörk fyrir Þór en Sigurður Pálsson 9.
Flest mörk UBK skoruðu Aðal-
steinn Jónsson 7 og Hans Guðmunds-
son 5. Guðmundur Lárusson og Guð-
mundur Stefánsson dæmdu leikinn illa.
KA-Þór
Næst léku KA og Þór og gerðu KA-
menn út um leikinn strax í fyrri hálf-
leik. Þórsarar voru mjög þungir eftir
leikinn við UBK og KA-menn skoruðu
flest mörk sín úr hraðaupphlaupum. í
hálfleik var staðan 22:7 KA í vil. Þórs-
arar hresstust örlítið í síðari hálfleik og
náðu að minnka muninn í 12 mörk fyr-
ir leikslok. Lokatölur leiksins urðu
30:18 fyrir KA.
Pétur Bjarnason skoraði 7 mörk fyr-
ir KA og Axel Björnsson 6.
Flest mörk Þórs skoruðu Ólafur
Hilmarsson og Kristján Kristjánsson, 4
mörk hvor. Stefán Arnaldsson og Ólaf-
ur Haraldsson dæmdu leikinn ágæt-
lega.
KA-UBK
Síðasti leikur mótsins var á milli KA og
Breiðabliks. KA-menn höfðu þegar
unnið mótið en léku engu að síður af
krafti í byrjun og unnu öruggan sigur.
Úrslitin urðu 35:26 eftir að KA hafði
liaft yfir 17:8 í hálfleik. Blikarnir áttu
Úrslit og
lokastaöa
Úrslit leikja á afmælismóti KA I hand-
bolta um helgina urðu þessi:
Þór-KA 15:20
Þór-UBK 21:31
KA-UBK 35:26
Þór-UBK 27:20
Þór-KA 18:30
KA-UBK 35:26
Lokastaðan varð þessi:
KA 4 4-0-0 120:85 8
UBK 4 1-0-3 103:118 2
Þór 41-0-3 81:101 2
Markahæstir:
Hans Guðmundsson UBK 30
Friðjón Jónsson KA 26
Sigurpáll Aðalsteinsson Þór 26
Pétur Bjarnason KA 24
Axel Björnsson KA 21
aldrei möguleika í leiknum og spurn-
ingin var aðeins hversu stór sigur KA
yrði. Mestur varð munurinn 15 inörk,
31:16 en úrslitin urðu 35:26 sem fyrr
sagði.
Friðjón Jónsson skoraði 10 mörk
fyrir KA og Pétur Bjarnason 9.
Hans Guðmundsson skoraði 9 mörk
fyrir UBK og Aðalsteinn Jónsson 4.
Guðmundur Lárusson og Guðmundur
Stefánsson dæmdu leikinn var þetta
besti leikur þeirra á mótinu.
Iriðjón Jónsson lék mjög vel með KA á afmælismótinu um helgina.
Myndi EHB
Dómaramir í
aðalhlutverki
- í fyrsta leik mótsins
KA sigraöi Þór með 20 mörkum
gegn 15 í fyrsta leiknum á afmælis-
móti KA í handbolta sem fram fór í
íþróttahöllinni á Akureyri um helg-
ina. Auk KA og Þórs keppti Breiða-
blik á mótinu en unglingalandsliðið
lét ekki sjá sig eins og til stóð. Leik-
in var heil umferð á laugardag og
önnur á sunnudag. Það voru dómar-
ar leiksins sem voru í aðalhlutverki í
viðureign KA og Þórs í þessum
fyrsta leik mótsins. Nafnarnir Guð-
mundur Lárusson og Stefánsson
dæmdu leikinn og var frammistaða
i þeirra vægast sagt hörmuleg, þótt það
hafi ekki bitnað á öðru liðinu frem-
ur en hinu.
Þórsarar skoruðu fyrsta mark leiks-
ins en síðan náðu KA-menn yfirhönd-
inni og héldu henni til leiksloka. í hálf-
leik var staðan 9:5 og í síðari hálfleik
hélst þessi munur að mestu og úrslitin
sem fyrr sagði 20:15.
Friðjón Jónsson skoraði flest mörk
KA eða 5 og Axel Björnsson skoraði 4.
Hjá Þór var Sigurpáll Árni Aðalsteins-
son markahæstur með 8 mörk.
Þór-UBK
Annar leikur mótsins var á milli Þórs
og Breiðabliks og er skemmst frá því
að segja að Blikarnir unnu með 10
marka mun, 31:21.
Þórsarar byrjuðu leikinn mjög vel og
höfðu yfir 6:3 snemma í fyrri hálfleik.
Blikarnir jöfnuðu 6:6 en Þórsarar kom-
ust í 8:6. Næstu 7 mörk voru frá Blik-
unum, þeir komust yfir 13:8 og leiddu
15:9 í hálfleik. Þórsarar náðu að
minnka muninn í þrjú mörk. 16:19 um
miðjan síðari hálfleik en nær komust
þeir ekki. Blikarnir tóku öll völd á ný í
lokin og juku muninn í 10 mörk áður
en yfir lauk og sigruðu 31:21.
Sigurður Pálsson og Sigurpáll Árni
skoruðu 5 mörk hvor fyrir Þór en hjá
UBK voru þeir Hans Guðmundsson og
Þórður Davíðsson atkvæðamestir með
6 mörk hvor.
KA-UBK
Þriðji og síðasti leikurinn fyrri keppn-
isdaginn var viðureign KA og Breiða-
bliks. KA-menn léku á als oddi í
leiknum og sigruðu mjög örugglega
35:26, eftir að hafa haft yfir 18:12 í
hálfleik. Brynjar Kvaran var í miklu
stuði og varði alls 15 skot í leiknum.
Friðjón Jónsson skoraði 8 mörk fyrir
KA, Éggert Tryggvason 7 og Axel
Björnsson 6.
Hjá UBK skoraði Hans Guðmunds-
son langmest eða 10 mörk.
Stefán Arnaldsson og Ólafur Har-
aldsson dæmdu tvo seinni leikina og
stóðu sig með prýði.