Dagur - 11.01.1988, Side 10

Dagur - 11.01.1988, Side 10
1Ó -'DÁ'&JR - 1 l^jainiar rfÓ8Ó 1 fþróttir p- Enska knattspyrnan - FA-bikarkeppnin: Ekkert stjömuhrap í 3. umferð - Liverpool og Everton sluppu fyrir horn 3. umferð FA-bikarkeppninn-1 ar var leikin um helgina á1 Englandi. í þeirri umferð koma 1. og 2. deildarliðin fyrst við sögu í keppninni ásamt þeim liðum úr 3. og 4. deild sem hafa komist í gegnum tvær fyrri umferðir. En FA- bikarkeppnin hófst strax í haust meðal utandeildarliða og Bath, Macclesfield, Maid- stone, Sutton og Yeovil voru þau 5 utandeildarlið sem kom- ust alla leið í 3. umferð að þessu sinni. Oft hafa orðið mjög óvænt úrslit í þessari umferð, en að þessu sinni urðu engin verulega óvænt úrslit þótt sum stóru liðanna slyppu með skrekkinn, en lítum þá á helstu úrslit á laugardaginn. Sutton náöi bestum árangri utandeildarliðanna á laugardag þegar liðið náði jafntefli á heima- velli sínum gegn Middlesbrough sent er í hópi efstu liða í 2. deild. Gary Pallister náði forystu fyrir Middlesbrough, en 7 mín. fyrir leikslok náði utandeildarliðið að jafna og fær því annað tækifæri. Liverpool sem er yfirburðalið í 1. deild lenti í kröppum dansi í leik sínunt gegn Stoke City. Mjög erfiður völlur setti ntark sitt á leikinn og Mike Hooper lék í marki Liverpool þar sem Bruce Grobbelaar hafði meiðst á æfingu fyrr í vikunni. Pað var einmmitt Hooper sem bjargaði Liverpool 6 mín. fyrir leikslok er hann varði frá Graham Shaw sem var nýkominn inn á sem varamaður. Hann slapp í gegnum vörn Liv- erpool, en Hooper bjargaði með úthlaupi. Peter Beardsley og John Barnes léku vel í liði Liverpool sem náði aldrei veru- lega góðum tökum á leiknum, en George Berry miðvörður hélt John Aldridge alveg niðri. Liðin verða því að mætast aftur og þá ætti Liverpool ekki að verða skotaskuld úr því að sigra á An- field. Everton slapp einnig með skrekkinn á útivelli gegn Shef- field Wed. og fær annað tækifæri á heimavelli sínum í næstu viku. Everton fór illa með færin í leikn- um og virðist fyrirmunað að skora mörk. Á 74. mín. náði heimaliðið forystunni með marki Colin West eftir sendingu frá Lee Chapntan. Allt virtist því benda til þess að Everton félli úr keppn- inni þar til 9 mín. fyrir leikslok að Peter Reid jafnaði fyrir Everton eftir að markvörður Sheffield hafði hálfvarið skot. Bikarmeistarar Coventry kom- ust áfram með sigri á Torquay. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sent ekkert var skorað náði Brian Kilcline fyrirliði Coventry foryst- unni með marki úr vítaspyrnu snenuna í þeim síðari og varla höfðu leikmenn Coventry lokið fagnaðarlátum sínum er Cyrille Regis braust í gegnum vörn Torquay og bætti við síðara marki liðsins. Utandcildarliðið Yeovil barð- ist ntjög vel gegn Q.P.R. og gaf 1. deildarliðinu lítið eftir, en munurinn á þessum liðuin var sá að Q.P.R. hafði menn til að Mitchell Thontas og félagar hjá Tottenham gerðu góða ferð til Oldham. íþróttamaður Norðurlands 1987 Nafn íþróttamanns: 1. íþróttagrein: Nafn: Sími Heimilisfang: Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1987 c/o Dagur Strandgötu 31 600 Akureyri Skilafrestur til 20. janúar 1988. koma boltanum í netið. Mark Falco skoraði tvívegis og Kevin Brock bætti þriðja markinu við. Tottenham vann góðan sigur gegn Oldham á útivelli og virðist til alls líklegt í keppninni. Clive Allen náði forystu fyrir Totten- ham snemrna í leiknum eftir sendingu frá Ossie Ardiles og bætti stuttu síðar við öðru marki með skalla eftir sendingu Chris Waddle, bæði mörkin stórglæsi- leg. Tontmy Wright náði að minnka muninn fyrir Oldham, en Mitchell Thontas bætti þriðja marki Tottenham við rétt fyrir leikhlé. Waddle gerði fjórða mark liðsins áður en Miehele Cecere gerði annað mark Old- ham. Aston Villa heldur uppteknum hætti á útivöllum og lagði Leeds Utd. í fjörugum leik á Elland Road. Eftir pressu Leeds Utd. í fyrri hálfleik slapp Alan Mclnally í gegnum vörn liðsins og skoraði. Andy Gray sem liðið keypti ný- lega frá Crystal Palace bætti við öðru ntarki snemma í síðari hálf- leik, en Leeds Utd. varð að láta sér nægja mark Bobby Davison og er þar með úr leik í keppninni sem það komst í undanúrslit í síðasta vetur. Chelsea hefur gengið illa að undanförnu, en á laugardaginn var liðið í miklum ham og sigraði Derby á útivelli með óvæntum yfirburðum. Kevin McAllister, Kerry Dixon og Roy Wegerle skoruðu mörk Chelsea í leiknum, en David Penney jafnaði 1:1 fyrir Derby og seint í leiknum varði Roger Freestone markvörður Chelsea vítaspyrnu frá John Gregory. Mark Dempsey skoraði sigur- Paúl „feiti“ Gascoignc skoraúi sigurmark Newcastle gegn Crystal Palace. mark Sheffield Utd. gegn utan- deildarliðinu Maidstone. Fjórðu deildar lið Halifax varð engin hindrun fyrir Nottingham For. Terry Wilson og Stuart Pearce skoruðu í fyrri hálfleik, en í þeim síðari bættu Calvin Plummer og Paul Wilkinson við mörkum fyrir Forest. Micky Weir og Darron Mc- Donough skoruðu mörk Luton í 1:2 sigrinum gegn Hartlepool. Blackburn sem hefur staðið sig mjög vel í 2. deild að undanförnu varð að láta í minni pokann á heimavelli gegn Portsmouth úr 1. deild, Simon Garner skoraði mark Blackburn, en Mike Quinn og Kevin Dillon tryggðu Ports- mouth sigur. Wimbledon heldur þó áfram á sigurbraut og burstaði lið W.B.A. 4:1. John Fashanu, Dómarínn sleppti vítaspymu - og Man. United sigraði Ipswich Stórskemmtilegum leik Ips- wich og Manchester Utd. í 3. umferð FA-bikarkcppninnar á sunnudaginn iauk með naum- um sigri Utd. sem skoraði tvö mörk gegn einu frá heima- mönnum. Þegar staðan var jöfn 1:1 gerðist umdeilt atvik er markvörður Manchester Utd., Chris Turner, felldi David Lowe innan vítateigs, en dómari leiksins sá ekkert athugavert við það og sleppti að dæma vítaspyrnu. Tony Humes skoraði mark Ips- wich í leiknum, en sjálfsmark Mich D’Avray jafnaði fyrir Manchester Utd. Síðan varð hið umdeilda atvik er Ipswich hefði getað náð forystunni, en Manch- ester Utd. slapp fyrir horn og Viv Anderson skoraði síðan sigur- mark Manchester Utd. með skalla eftir hornspyrnu. Mark- vörður Ipswich, John Hallworth hefði átt að geta komið í veg fyrir mark Andersons og framherjar liðsins fengu tækifæri til að gera út um leikinn í fyrri hálfleik, en mistókst og það kostaði liðið áframhaldandi þátttöku í keppn- inni. Síðari FA-bikarleikurinn á sunnudaginn var viðureign Port Vale og utandeildarliðsins Maccl- esfield og hafði Port Vale betur í þeirri viðureign og sigraði með einu marki gegn engu. í dag, mánudag, verður dregið í 4. umferð keppninnar og verður fróðlegt að sjá hvort stórliðunum tekst að forðast hvert annað í drættinum. Þ.L.A. Viv Anderson hægri bakvörftur Man. Utd. skoraði sigurmark liðsins gegn Ipswich. Dennis Wise, Robert Turner og Carlton Fairweather sáu um að skora. Liam Brady og Tony Cottee komu West Ham í 4. umferð með tveim mörkum undir lok leiks liðsins gegn Charlton. Southampton er einnig komið áfram eftir nauman sigur gegn 2. deildar liði Reading. Matthew Le Tissier gerði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Wolves náði forystu gegn Bradford á útivelli er einn leik- manna Bradford skoraði sjálfs- mark, en þeir John Hendrie og Mark Ellis sáu um að koma bolt- anum í rétt mark síðar í leiknum. Neðsta lið 1. deildar, Watford tókst ekki að nýta sér heimavöll- inn gegn Hull City, en fær þó annað tækifæri. Garreth Roberts kom Hull City yfir, en Malcolm Allen tókst að jafna leikinn fyrir Watford. Ekki fyrir margt löngu sigraði Manchester City lið Huddersfield 10:1 í 2. deildar leik, en litlu munaði að Huddersfield tækist að hefna þeirra ófara í leik lið- anna í bikarnum. Gamli bak- vörðurinn John Gidman sem áður lék með Man. Utd. jafnaði fyrir City á síðustu mín. leiksins sem lauk 2:2. Newcastle sem lék án Mir- andhinha sigraði Crystal Palace með marki Paul Gascoigne. Martin Foyle og Dean Saund- ers skoruðu fyrir Oxford gegn Leicester. Arsenal sigraði Millwall með mörkum David Rocastle og Martin Hayes, en fylgismenn lið- anna höfðu sumir hverjir meiri áhuga á að berja hver á öðrum, en leiknum sem þurfti að seinka vegna óláta. Þ.L.A. Bikarkeppnin: Úrslit FA-bikarkeppnin 3. umferft: Arscnal - Millvvall 2:1) Barnsley - Bolton 3:1 Blackburn - Portsmouth 1:2 Bradford - Wolves 2:1 Brighton - Bournemouth 2:0 Covcntry - Torquay 2:0 Derby - Chclsea 1:3 Gillinghani - Birmingham 0:3 Halifax - Nottingham For. 0:4 Hartlepool - Luton 1:2 Huddersfield - Man. City 2:2 Ipswich - Man. Utd. 1:2 Leeds Utd. - Aston Viila 1:2 Mansfíeld - Bath 4:0 Newcastie - Crystal Palacc 1:0 Oldiiam - Tottenham 2:4 Oxford - Leicester 2:0 Plymouth - Colchester frcstað Port Vale - Macdesfieid 1:0' Reading - Southampton 0:1 Scunthorpe - Blackpool 0:0 Shefficld Wed. - Everton 1:1 Shrewsbury - Bristol Rovers 2:1 Shefficld Utd. Maidstone 1:0 Stockport - Leyton Orient 1:2 Stoke City - Liverpool 0:0 Sutton - Middlcshrough 1:1 Swindon - Norwieh 0:0 Watford - Hull City 1:1 West Ham - Charlton 2:0 Wimbledon - W.B.A. 4:1 Ycovil - O.P.R 0:3

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.