Dagur - 11.01.1988, Blaðsíða 15
janúar Í9t88 -HiaAGUR wí15
Minning:
Þórhildur Frímannsdóttir
Fædd 1. nóv. 1912 - Dáin 24. des. 1987
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi Norðurverk hf.,
fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Iðn-
lánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Pví hvað er ástar og hróðrardís
og hvað er engill íparadís
hjá góðri og göfugri móður?
Þessar ljóðlínur séra Matthías-
ar komu upp í huga minn þegar
mér var sagt að Þórhildur í Ar-
gerði væri dáin.
Hún var svo sannarlega góð
móðir.
Að morgni 24. desember lést
hún á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Hún hafði átt við vanheilsu að
stríða og gekk undir aðgerð fyrir
rúmu ári, sem heppnaðist vel og
var heilsa hennar eftir öllum
vonum. En skyndilega veiktist
hún heima, rúmri viku fyrir jól og
var flutt á sjúkrahúsið. Eg veit að
jólin hefur hún verið búin að
undirbúa og hef ég verið að
hugsa um það af hverju sá sem
öllu ræður lofaði ekki þessari
elskulegu konu að halda heilaga
jólahátíð með eiginmanni sínum
í fallega litla húsinu þeirra og
fjölskyldum, sem allar búa á
Sandinum, en fæ það svar að eng-
inn getur ráðið sínum næturstað
og að henni hafi verið ætlað
stærra hlutverk handan tjaldsins
mikla þar sem henni verður
ábyggilega vel fagnað.
Þórhildur ólst upp á Ytri-Vík
ásamt 5 systkinum sínum hjá
ástríkri fjölskyldu. Oft talaði hún
um Víkina og saknaði að mörgu
leyti æskuheimilis síns, fyrst í stað
og hvergi fannst henni eins fallegt
og þar. Þegar hún var á unga
aldri veiktist Þórhildur af berkl-
um og þurfti að fara á Kristnes-
hæli. Þar dvaldi hún um nokkurt
skeið og mun aldrei eftir það hafa
fengið fulla heilsu, en engum sem
til hennar kom gat dottið það í
hug að hún gengi ekki heil til
skógar, því að heimilið var allt
fágað og prýtt, svo og öll hennar
handavinna, dúkar, myndir og
allt sem hún gerði af sérstakri
vandvirkni.
Þann 13. maí 1937 gekk hún að
eiga Guðmund Benediktsson ætt-
aðan af góðu fjölhæfu fólki af
Ströndum. Það var hennar
stærsta gæfuspor og eftir 50 ára
hjúskap var kærleikur þeirra
hjóna jafn innilegur. Fyrst
bjuggu þau á Ytri-Vík og þar
fæddust drengirnir þeirra
Hermann, Svavar og Ingvar. Þar
gerði faðir þeirra út trillu en þar
var engin bryggja og óhægt um
vik hvað sjósókn snerti. Fluttu
þau út á Sand og keyptu Árgerði
árið 1948. Þar átti faðir Guð-
mundar heima, nýlega orðinn
ekkjumaður og dvaldi hann hjá
þeim af og til á meðan hann lifði.
Nokkur ár gerði Guðmundur út
trillu við gömlu bryggjuna á
Sandinum þá var beitt lína og
gekk Þórhildur í beitinguna eins
og önnur verk og kvartaði aldrei
um tímaleysi. Hún sá um að
mjólka og gera því til góða, þá
áttu þau nokkrar kindur, sem
líka þurfti að sinna, sérstaklega á
vorin þegar mest var að gera við
sjóinn, það gerði Þórhildur af
nákvæmni, hún sagði stundum
við mig eftir að þau hættu með
kindurnar að hún saknaði. þeirra,
sérstaklega litlu lambanna.
Sannarlega var hún vorsins
barn, hún vildi hlúa að öllu, garð-
urinn þeirra, litla gróðurhúsið
fullt af ilmandi rósum og dásam-
legum blómum og svo stofublóm-
in báru þess vitni að hugur og
mildar hendur hlúðu að þeim.
Guðmundur átti líka sinn þátt í
að gera heimilið vistlegt. Hann er
þúsund þjala smiður og sá alltaf
eitthvað sem betur mátti fara
jafnt innan húss sem utan og
hjálpaði konu sinni enda sagði
hún oft: „Hann Guðmundur
minn gerði nú þetta.“ Gestrisni
þeirra Árgerðishjóna var með
eindæmum allir jafn velkomnir
og bakaði Þórhildur allt sitt góða
brauð og sá um að heimilið vant-
aði aldrei neitt, nýtni og reglu-
semi voru ríkir þættir í fari
hennar. Þegar börnin mín voru í
línu hjá þeim þá 10-12 ára dreif
Þórhildur þau oft í mat til sín svo
þau þyrftu ekki að labba heim,
oft tala þau um það hvað það hafi
verið gaman að vinna þarna í
skúrnum við litlu bryggjuna og
koma við hjá Þórhildi, sem oft
færði þeim eitthvað gott út á
tröppur ef þau komu ekki inn. Ef
veikindi eða eitthvað amaði að á
mínu heimili fylgdist hún með
hvernig liði eins og við værum
henni nákomin og var eins og
hún vissi þá hvað okkur best
kom. Hugsunin var alla tíð sú
sama og margt ber okkur að
þakka þegar leiðir skilja um sinn.
Síðastliðinn vetur þann 31.
mars urðu þau hjónin fyrir þeirri
þungu sorg að Svavar sonur
þeirra fórst í ofsaveðri þegar
hann var að reyna að bjarga bát
sínum og var öllum harmdauði
sem hann þekktu.
Synir þeirra hjóna urðu allir
duglegir sjómenn enda byrjuðu
þeir að róa með föður sínum inn-
an við fermingu, konur þeirra eru
allar frá Akureyri myndarlegar
ágætis stúlkur. Kærleikur sona og
tengdadætra til Þórhildar var
mjög til fyrirmyndar, þau öll
reyndu að létta undir með henni
þegar heilsan fór að bila og var
hún elskuð og virt af öllum í fjöl-
skyldunni. Oft lá leið þeirra heim
í Árgerði. Hún sá barnabörnin
vaxa úr grasi og verða fullorðið
myndar- og dugnaðarfólk og svo
voru langömmubörnin henni kær-
kominn.
Guðmundur og synir stofnuðu
fyrirtækið G. Ben. sent er nú
stórútgerð og vinnur þar margt
fólk allt árið og má segja að þeir
hafi að nokkru leyti byggt upp
Sandinn. Þórhildur fylgdist með
vexti þess og hvernig gekk í sveit
og við sjó.
Þórhildi fannst hún standa í
þakkarskuld við allt og alla. Svo-
leiðis hugarfar er sérstakt, en
framúrskarandi fórnfýsi, velvild
og góðar gáfur hafa átt sinn þátt í
þessu, sem hún hélt til dauða-
dags.
Fjölskylda mín sendir Guð-
mundi, sonum og fjölskyldum
innilegar samúðarkveðjur.
Hafðu hjartans þökk fyrir allt
og allt.
Karolína Gunnarsdóttir.
Nýtt fjárfestingar-
félag stofnaö
Mánudaginn 21. desember sl.,
var formlega stofnað nýtt fjár-
festingarfélag að frumkvæði
Iðnþróunarsjóðs, sem heitir
Fjárfestingarfélagið Draupnir
hf. Markmið þess er að stuðla
að þróun hlutabréfamarkaðar
hérlendis. Félagið er fjárfest-
ingarfélag, þar sem Iðnþróun-
arsjóður verður meirihlutaeig-
andi í upphafi, en ætlunin er
að það fyrirkomulag gildi að-
eins fyrstu ár starfseminnar.
Hlutafé hins nýja félags er 150
milljónir króna, en stjórn
félagsins hefur heimild til að
auka það um aðrar 150 m.kr.
og opna það fyrir þátttöku
annarra.
Markmiðið með stofnun Fjár-
festingarfélagsins Draupnis hf. er
eins og fyrr segir, að stuðla að
þróun hlutabréfamarkaðar á ís-
landi. Þessum tilgangi hyggst
félagið m.a. ná með þeim hætti
að festa kaup á hlutabréfum,
skuldabréfum og öðrum verð-
bréfum atvinnufyrirtækja, sem
líkleg eru til þess að skila góðum
arði miðað við áhættu. Félagið
mun stefna að því að stunda kaup
og sölu á hlutabréfum, eða vera
eins konar viðskiptavaki. Megin-
áhersla verður lögð á fjárfestingu
í hlutabréfum í stafandi fyrir-
tækjum, þar sem engar hömlur
eru lagðar á viðskipti með
hlutabréf. Fjárfest verður í
hlutabréfum og verðbréfum með
skráð markaðsvirði. Jafnframt
verður fjárfest í óskráðum
bréfum, þegar verulegar líkur
benda til að þau komi til skrán-
ingar innan fárra ára. Nýja félag-
ið mun gera kröfur um að sam-
þykktir þessara fyrirtækja sam-
rýmist þessari stefnu.
Á vegum Seðlabanka íslands
er nú unnið að reglum um skrán-
ingu hlutabréfa á Verðbréfaþingi
íslands. Þá fer einnig fram fyrir
tilstuðlan Seðlabankans og Iðn-
þróunarsjóðs athugun á stöðu
hlutabréfaviðskipta hér á landi
og með hvaða hætti megi örva
viðskipti með hlutabréf. Niður-
stöður þessara athugana munu
liggja fyrir næsta vor og verða
þær m.a. hafðar til hliðsjónar við
mótun framtíðarstefnu félagsins.
Á stofnfundinum voru eftirtaldir
menn kosnir í stjórn: Ragnar
Önundarson, bankastjóri Iðnað-
arbanka íslands hf., Sigurður B.
Stefánsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfamarkaðar Iðnaðar-
bankans hf. og Tryggvi Pálsson,
framkvæmdastióri Fjármálasviðs
Fandsbanka Islands. Eigendur
hins nýja fjárfestingarfélags eru:
Iðnþróunarsjóður, sem á fyrst í
stað yfir 90% hlutafjárins, Félag
íslenskra iðnrekenda, Fandssam-
band iðnaðarmanna, Iðnlána-
sjóður og Verðbréfamarkaður
Iðnaðarbanka íslanda hf.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skarðshlíð 24e, Akureyri, þingl. eigandi Torfi
Sverrisson, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. '88 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Jón Kr. Sólnes hrl., Gunnar Sólnes
hrl., Ásmundur Jóhannsson hdl., Þorsteinn Eggertsson hdl.,
Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skarðshlíð 25a, Akureyri, þingl. eigandi Þor-
steinn Sigurbjörnsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. '88 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðnaðarbanki íslands hf., Jón Ingólfs-
son hdl. og innheimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Áshlíð 7, Akureyri, þingl. eig-
andi Friðrik Friðriksson, fer fram í dómsal embættisins Hafn-
arstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Landsbanki
íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Gráriufélagsgötu 19, e.h,
Akureyri, þingl. eigandi Selma Jóhannsdóttir, fer fram í dóm-
sal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud.
15. jan. ’88 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðandi er Gunnar Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Litluhlíð 2c, Akureyri, þingl.
eigandi Haukur Guðmundsson, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl.
15.30.
Uppboðsbeiðandi er Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Skarðshlíð 22e, Akureyri,
þingl. eigandi Jóhanna Valgeirsdóttir, fer fram í dómsal
embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15.
jan. '88 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sunnuhlíð 12, G-hl„ Akureyri, þingl. eigandi
Huld sf„ fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri föstud. 15. jan. ’88 kl. 13.45.
Uppboösbeiðendur eru: Iðnaðarbanki (slands hf. og irin-
heimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Hafnarstræti 97, Akureyri,
þingl. eigandi Huld Jóhannesdóttir, fer fram í dómsal
embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 15.
jan. ’88 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Sigurður G. Guðjónsson hdl„ Iðnað-
arbanki íslands hf. og Gunnar Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.