Dagur - 11.01.1988, Page 16
Akureyri, mánudagur 11. janúar 1988
^MONROEF
höggdeyfar
í flesta bíla
- eykur afköst og vinnslu-
verðmæti verulega
í frystihúsi KEA í Hrísey er nú
unnið að uppsetningu nýrrar
vinnslulínu í frystisal, svokall-
aðrar llæðilínu. Frystihúsið
verður hið fyrsta á landinu til
að taka upp þessa nýju aðferð
við vinnslu á fiski en hluti kerf-
isins hefur verið prófaður á
Höfn í Hornafirði. Hið nýja
kerfí felur í sér aukna vélvæð-
ingu vinnslunnar og aukin
alköst, betri nýtingu og meiri
verðmæti aflans.
Knattspyrnufélag Akureyrar 60 ára
Knattspyrnufélag Akureyrar varð 60 ára síöastliðinn föstudag. Afmælisins
var ininnst með margvíslegum hætti um helgina. Síðdegis á föstudaginn var
opið hús í KA-heimilinu þar sem inikill fjöldi barna og fullorðinna kom og
þáði kaffiveitingar. (Jin kvöldmatarleytið var glæsileg flugeldasýning á fé-
lagssvæöinu við Lundarskóla en síoan var gleðskapnum haldið áfram, fram
eftir kvöldi. Um helgina fór fram afinælismót KA í handknattleik en nánar
er frá því sagt á íþróttasíðum blaðsins. I hádeginu á föstudaginn var haldinn
sérstakur afmælisfundur yfirstjórnar KA. A fundinn mættu formenn ein-
stakra deilda innan félagsins og fyrsta stjórn félagsins, en hana skipuðu þeir
Tómas Steingrímsson, Helgi Schiöth og Jón Sigurgeirsson. Það er talið vera
algjört einsdæmi að í sextíu ára gömlu félagi séu allir meðlimir fyrstu stjórn-
arinnar lifandi og í fullu ijöri eins og þeir þremenningar. Myndin var tekin
áður en hátíðarfundurinn hófst. Á henni eru standandi frá vinstri: Stefán
Magnússon formaður blakdeildar, Olafur Ásgeirsson, Oðinn Óðinsson for-
niaðiir júdódeildar, Jóhannes Bjarnason, Sigbjörn Gunnarsson, Aðalsteinn
Jónsson formaður handknattleiksdeildar og Gunnar Garöarsson. Sitjandi
frá vinstri: Stefán Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar, Helgi Schiöth,
Guðmundur Heiðrcksson formaður KA, Tómas Steingrímsson fyrsti for-
maðurinn, Jón Sigurgeirsson og Finnur Sigurgeirsson. Mynd: Tl.v
Kvótinn loksins samþykktur á Alþingi:
„Töfin hefur komið sér illa
fyrir sjávarútveginn“
- segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráöherra Akureyri:
Fram til þessa hefur í frystihúsi
KEA í Hrísey, eins og öðrum
frystihúsum á landinu verið not-
ast við svokallað bakkakerfi og
launakerfið falist í einstaklings-
bónus. Eftir breytinguna hverfa
bakkarnir og við tekur hópbón-
uskerfi.
Uppbygging vinnslukerfisins
verður með þeim hætti að í stað
þess að fiskurinn komi og fari frá
vinnsluborðunum í bökkum og
vigtað sé að og frá einstökum
borðum, þá flyst allt yfir á færi-
bönd. Frá því að fiskurinn fer í
þvottakar í móttöku og þangað
til hann er kominn í pakkningar
þá er hann alltaf á færibandi
nema meðan unnið er við skurð
og snyrtingu.
Inn í hið nýja kerfi verður bætt
vélum þannig að eftir að fiskur-
inn hefur farið í roðflettivél þá
liggur leið hans í nýja kerfinu í
skurðarvél sem sker flökin niður
eða merkir fyrir skurðum. Þá
verða settar upp nýjar stærðar-
flokkunarvélar auk þess sem öll
færibönd verða ný.
Uppsetning kerfisins hófst
strax eftir áramót og að sögn
Jóhanns Þórs Halldórssonar
frystihússtjóra er gert ráð fyrir að
notkun þess hefjist 19. janúar.
Kostnaður við uppsetningu kerf-
isins er áætlaður um 5-6 milljón-
ir. ET
Veturinn hefur hingað til verið
Norðlendingum léttbær og
kemur það m.a. fram í litlum
tilkostnaði vegna snjómokst-
urs. Sigurður Oddsson hjá
Vegagerð ríkisins segir að ef
sparnaður verði eftir veturinn
vegna minni snjómoksturs en
gert var ráð fyrir í snjómokst-
ursáætlun komi það öðrum og
varanlegri framkvæmdum til
góða.
Að sögn Sigurðar er varla hægt
að segja að snjóruðningstækjum
hafi verið beitt fyrr en eftir ára-
mót í vetur, en eins og íbúar á
Norðurlandi vita var tíðarfar
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um stjórnun fiskveiða, kvóta-
frumvarpið svokallaða, var
loksins samþykkt á fundi
með eindæmum milt fram til ára-
móta. „Þegar veturnir koma vel
út fá menn meira til almenns við-
halds í staðinn. Þá verða e.t.v.
fleiri krónur til skiptanna þegar
til sumarviðhalds veganna
kemur,“ sagði Sigurður.
Sumir hafa velt því fyrir sér
hvort það fé sem sparaðist í
snjómokstri yrði notað til að
opna tilteknar leiðar oftar en gert
er ráð fyrir í áætlunum, ef
skyndilega yrði snjóþungt og úr-
koma fleiri daga í röð. Sigurður
sagði að slíkt kæmi ekki til
greina, vegir yrðu aðeins opnaðir
samkvæmt fastri áætlun, burtséð
Alþingis aðfaranótt föstudags-
ins. Dagur hafði samband við
Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra og spurði hann
frá því hvort eitthvað hefði spar-
ast fyrr um veturinn.
Nú vantar aðeins herslumun-
inn á að bundið slitlag sé komið á
allan veginn milli Akureyrar og
Húsavíkur. í fyrra var Norður-
landsvegur eystri endurbyggður á
tveimur köflum, í Ljósavatns-
skarði og við Birningsstaði. Eftir
er að setja efra burðarlag eða
jöfnunarlag á vegarspottana og
síðan bundið slitlag. Þetta verður
gert strax og veður leyfir í vor.
Sigurður Oddsson sagði að sig
hefði komið fram í veginum á
nokkrum stöðum en það yrði lag-
fært áður en frekari framkvæmdir
hæfust. EHB
hvaða afleiðingar þessi dráttur
á samþykkt frumvarpsins hefði
haft.
„Þetta hefur komið sér illa fyr-
ir sjávarútveginn í landinu,"
sagði ráðherrann. „Það hefur
verið nokkuð um að skip hafi
ekki komist til veiða vegna þess
að heimild var ekki fyrir hendi.
Þetta á sérstaklega við skip sem
stunda dragnótaveiðar við suður-
ströndina."
Að sögn Halldórs er ráðuneyt-
ið nú á fullu að semja reglugerð
vegna hinna nýju laga. Einnig
verður öllum útgerðarmönnum í
landinu skrifað bréf þar sem þeir
eru beðnir að velja á milli afla- og
sóknarmarks. Þetta mun taka
nokkurn tíma og er jþað bagalegt
að sögn Halldórs Asgrímssonar
sj á varútvegsráðherra.
Þær breytingar sem gerðar
voru á frumvarpinu í meðförum
neðri og efri deildar eru að nú
telst undirmálsfiskur aðeins að
hluta til kvóta. Banndögum
smábáta var fækkað úr 30 í 20 í
desember og þeir bátar, undir 10
tonnum, sem bindandi smíða-
samningur hafði verið gerður um
fyrir gildistöku laganna skulu fá
veiðileyfi og kvóta. AP
Framtíð skó-
gerðarinnar
- í deiglunni
Framtíðarmál skógerðarinnar
á Akureyri, sem er undir
stjórn verslunardeildar SÍS,
hafa verið til athugunar undan-
farnar vikur í kjölfar rekstrar-
erfiðleika. Mikil hlýindi í vetur
og lítill snjór hafa haft mjög
neikvæð áhrif á sölumöguleika
verksmiðjunnar á kuldaskóm,
af eðlilegum ástæðum, og því
hafa birgðir hlaðist upp.
Gunnar Kjartansson, forstöðu-
maður fatadeildar verslunar-
deildar, er staddur á Akureyri
um þessar mundir, en hann og
Úlfar Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri skógerðarinnar, eru nú að
athuga möguleika á endurskipu-
lagningu fyrirtækisins. Að sögn
Gunnars hefur m.a. komið til tals
að fá nýja aðila að rekstri skó-
gerðarinnar, og hefur verið rætt
við menn á Akureyri af þessu
tilefni. Ekkert hefur verið ákveð-
ið ennþá um framhaldið en að
sögn Gunnars er hann bjartsýnn
á að farsæl lausn finnist á málinu.
EHB
Sparnaður í snjómokstri:
Kemur öðmm framkvæmdum
Vegagerðarinnar til góða
Frystihús ÚKE Hrísey:
Flæðilína
í stað
bakkakerfis