Dagur - 01.03.1988, Side 6
6-DAGUR-1. mars 1988
Gleðihnegg í hrossum Breiðholtshverfis
- Jórunn sf. hestaþjónusta hefur tekið til starfa
Jórunn er óvenjulegt nafn á
fyrirtæki. En tvær ungar konur
á Akureyri, þær Guðrún Hall-
grímsdóttir og Sigurborg
Daðadóttir, stofnuðu fyrirtæki
með þessu heiti fyrir nokkru.
Fullt nafn er raunar Jórunn sf.
hestaþjónusta og er aðsetur
þess við Stjörnugötu, syðst í
hverfi hestamanna á Akureyri.
Það hverfi ber hið virðulega
nafn Breiðholt sem er svo aftur
kapítuli út af fyrir sig og ber
ekki að skoða sem skot á
íbúðahverfi með sama nafni í
Reykjavík. Markmið fyrirtæk-
is kvcnnanna tveggja er
almenn þjónusta við hesta-
menn og áhugafólk um hross.
Það var á björtum og fallegum
laugardegi er Dagsmenn lögðu
leið sína til Guðrúnar og Sigur-
borgar. Sú síðarnefnda var þá
önnum kafin við að undirbúa
aðgeró á hesti sem var með s.k.
„streng“. í húsi því sem þær stöll-
ur keyptu á síðasta ári starfrækir
fyrirtækið dýralæknastofu sem
Sigurborg starfar við, en hún er
dýralæknir að mennt. Báðar eru
miklir áhugamenn um hesta og
hestarækt og áætlanir þeirra um
uppbyggingu Jórunnar sf. eru
fullar bjartsýni. Og þær fóru ekki
óundirbúnar af stað. Á síðasta
ári var haldið sérstakt námskeiö
fyrir konur sem hafa áhuga á að
stofna eigið fyrirtæki. Þangað
fóru þær og sóttu sér menntun
sem án efa mun nýtast þeim vel.
Eitt fyrsta verkefni Guðrúnar
og Sigurborgar verður að bjóða
unglingum að leigja hjá þeim
bása. „Þá geta þau verið með eig-
in hesta eða leigt þá af okkur.
Sumir vilja ekki hefja hesta-
mennskuna á því að kaupa hest
og tilheyrandi útbúnað. En smám
saman ætlum við okkur að byggja
upp alhliða þjónustu við hesta-
menn. Þetta tekur tíma en við
ætlum ekki að láta deigan síga
því í sumar er hugmyndin að
stækka húsið.“
Það kann að hljóma undarlega
en áður en langt um líður geta
hestamenn komið í Jórunni og
fengið hesta sína þvegna. Sumum
dettur. eflaust í hug bílaþvotta-
stöð, rétt eins og sú sem er í
Glerárhverfi. Raunar er samlík-
ingin ekki alveg út í hött því
Uppá
þjónustu
Upp á hvaö er boðið hjá Jór-
unni sf.? Nefna má eftirfarandi
atriði og þá ætti lcsandinn að
fá um það glögga hugmynd.
Hestamenn geta t.a.m. komið
þangað með hrossin og fengið
dýralækni til að líta á þau.
Dýralæknaþjónustan er opin
þrisvar í viku. Til viðbótar
þessu, og ekki síst, er rétt að
nefna hestaleigu, afleysinga-
þjónustu, umboðssölu, ráðgjöf
og unglingastarf.
Hestaleigan er jafnt fyrir börn
sem fullorðna og hún er starfrækt
á laugardögum. Ef einhver þarf
að bregða sér af bæ eða forfallast
um lengri eða skemmri tíma sér
Jórunn um hrossin á meðan. Þá
er umboðssalan ekki síður
„Þetta er önnur aðgerðin sem
ég framkvæmi hér,“ sagði Sig-
urborg skömmu áður en hest-
urinn sem heitir Valur var
leiddur inn á „stofuna“. Ailt
var til reiðu vegna aðgerðar-
innar. Heitt vatn kraumaði í
íláti og kaðlar voru tilbúnir til
að fella hestinn.
Skurðstofan er fremur lítil en
vistleg. Áður var hlaða hesthúss-
ins þar sem nú eru hnífar og
áhöld Sigurborgar. „Við erum
búnar að vera í vetur að innrétta
húsnæðið og koma því í viðun-
andi horf." Aðspurð sagði Sigur-
borg að þörf á þjónustu sem
þeirri sem hér um ræðir væri
mikil. „Þetta heíur ekki verið hér
áður en þó má segja að við renn-
um blint í sjóinn hvað varðar
afkomu og viðskipti við okkur.
En hvað mig varðar, þá hef ég
hér vel upplýst og upphitað hús-
næði sem skipir að sjálfsögðu
afar miklu máli. Hér er bás sem
hægt er að binda hestana niður
svo þeir valdi ekki skaða á sér og
þeim sem eru viðstaddir. Héreru
öll tæki við hendina sem nauð-
synleg eru.“
- Hvernig hafa hestamenn
tekið ykkur?
„Þeir hafa mikinn áhuga á
þessu. Að minnsta kosti hafa þeir
oft lagt leið sína til okkar og
spurt hvenær við ætluðum að
hefjast handa.“
- En hestar hverfisins?
„Þeir hneggja alltaf þegar þeir
fara fram hjá. Svei mér ef það er
ekki gleðihnegg því að sjálfsögðu
eiga þeir rétt á því, ekki síður en
mannfólkið, að fá bestu hugsan-
legu þjónustu."
Sigurborg Daðadóttir í upphafi aðgerðar.
Guðrún Hallgrímsdóttir.
Hvemig á að kaupa
„Það er nokkuð löng saga að
baki þess að við ákváðum að
stofna þetta fyrirtæki. Ég fann
það greinilega þegar ég kom
fyrst nálægt hestamennsku að
það var erlitt að taka fyrstu
sporin. Ég vissi t.d. ekki
hvernig ég átti að bera mig að
því að kaupa hest eða fá pláss
fyrir hann,“ sagði Guðrún þeg-
ar við vorum búin að fá okkur
sæti á heystabba í hlöðunni.
„Þetta á við um fleiri. Fólk
verður að þekkja hestamenn
mjög náið en því er ekki þann-
ig háttað um alla að viðkom-
andi þekki til í heimi hesta-
manna. Sérstaklega á þetta við
um unglinga. Sú staðreynd að
þeir fá ekki nauðsynlega til-
sögn getur orðið þess valdandi
að krakkarnir snúi sér að
öðru.“
Heitt vatn kraumaði í íláti
Guðrún segir að hestar, rétt eins
og bílar og mannskepnan, eigi
kröfu til þess að vera þrifnir
reglulega. „Þetta er nýjung á
Islandi en víða í útlöndum er að
finna fólk sem hefur með hönd-
um þvott á hrossum. Auk þess
sem hestarnir líta betur út hreinir
og stroknir þá líður þeirn betur.“
- Þú segir að þið hafið í
hyggju að vera með umboðssölu.
Hefur skort slíka þjónustu á
Akureyri?
„Já það er óhætt að segja það.
Ef þú hefur áhuga á að kaupa þér
hest þá er næsta öruggt að þú
veist ekki hvert þú átt að snúa
þér. Eins og málum er háttað í
dag verður þú að leita uppi
bónda eða bæjarmann sem þú
veist að ræktar hross og selur. En
í rauninni veist þú ekki hvað þú
ert að gera eða hvað þú færð í
hendurnar. Því miður eru til aðil-
ar sem segja ekki allan sannleik-
ann þegar kemur að hestakaup-
um. Ovanur kaupandi getur ekki
dæmt um aldur eða getu hests.“
- Þið ætlið með öðrum orðum
hest?
aö reyna að koma í veg fyrir að
óprúttnir hrossaprangarar hafi fé
af fólki?
„Já einmitt. Við viljum að
þessi viðskipti verði opnari enda
er það allra hagur. Við gerum
t.d. ráö fyrir að hrossabændur
geti haft hrossin heima í haga og
að við getum haft hér video-
myndir af hestunum. Þetta er
e.t.v. svolítil framtíðarósk en þó
ætlum við að reyna að byrja á
þessu í ár.“
- Þarf fólk ekki að vera svolít-
ið bjartsýnt þegar það stofnar
fyrirtæki sem þetta?
„Nei það held ég ekki. Við fór-
um ekki óundirbúnar af stað. Á
síðasta ári sátum við hálfs árs
námskeið sem bar yfirskriftina
„Konur stofna fyrirtæki“ og það
gerði það að verkum að við drif-
um í að stofna Jórunni sf. Þetta
var mjög gott og gagnlegt nám-
skeið. Já, við erum bjartsýnar.
Báðar höfum við mikinn áhuga á
hestum og hestamennsku. Allar
okkar frístundir hafa á umliðnum
árum farið í hestana okkar og fátt
er eins gefandi og skemmtilegt og
að annast þá.“
hvaða
er boðið?
athyglisverð. Sigurborg og Guð-
rún ætla að útvega fólki hross við
allra hæfi og þær munu skrá hross
sem ætlunin er að selja. Sé þess
óskað er hægt að taka videomynd
af hestinum. Ráðgjöfin nriðast
einkum við byrjendur í hesta-
mennsku. Þær munu og aðstoða
við val á hesti, reiðtygjunr og
þess háttar. Hvað unglingastarfið
varðar þá er þarna aðstaða fyrir
krakka sem eiga hesta og Jórunn
mun einnig útvega þeim hesta
sem það vilja. Innifalið í umsjón
hestanna er hey, hirðing og
járning.
Þess nrá geta að alltaf er hcitt á
könnunni sem er að sjálfsögðu
bráðnauðsynlegt - a.nr.k. fyrir
mannfólkið.