Dagur - 01.03.1988, Síða 7

Dagur - 01.03.1988, Síða 7
886 r eism .r - flUOAa - 8 1. mars 1988 - DAGUR - 7 leiklist Leikfélag Akureyrar: „Horft af brúnni“ Föstudaginn 4. mars frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritiö „Horft af brúnni“ eftir Arthur Miller í þýöingu Jakobs Bene- diktssonar. Leikstjóri er Theo- dór Júlíusson, leikmynd og búningar koma úr smiðju Hall- mundar Kristinssonar og Ingv- ar Björnsson skapar lýsinguna. Við skulum fræðast aðeins um verkið og höfundinn. Arthur Miller fæddist í Harlem í Bandaríkjunum árið 1915. For- eldrar hans voru gyðingar, inn- flytjendur frá Austurríki. Fjöl- skyldan var í þokkalegum efnum og settist að í Brooklyn árið 1929 þar sem hún upplifði hrunið á verðbréfamarkaðinum í Wall Street sem lagði fjármál fjöl- skyldunnar í rúst. Þá var Miller 14 ára og Brooklyn mun smærri í sniðum en nú og íbúarnir voru af ýmsum kynþáttum. Miller fór að vinna hjá föður sínum að lokinni skólagöngu en þoldi ekki við og leitaði sér að vinnu annars staðar en upplifði þá slíkt gyðingahatur að það mótaði félagslegar og pólitískar skoðanir hans á afar sterkan hátt, enda skína þær víða í gegn í verkum hans. Með þessa fárán- legu fordóma á bakinu vildi hann láta flokka sig með rökhyggju- mönnum, fyrst með því að gæla við kommúnismann en síðan sveigðist hann til frjálslyndis- stefnunnar. Nítján ára gamall fór hann í Háskólann í Michigan og lagði stund á blaðamennsku sem aðal- grein en fór síðan í enskunám. Þá byrjaði hann að skrifa fyrir alvöru. Hann giftist bekkjarsyst- ur sinni, kaþólskri stúlku, og þau settust að í Brooklyn. Þau drógu fram lífið á tekjum konunnar sem vann hjá útgáfufyrirtæki en Miller fékk einnig smáræði fyrir útvarpsleikrit, þótt ekki hefði hann hlotið mikla athygli á þeim árum. Fyrsta leikrit Millers sem var sett á svið í leikhúsi var „The Man Who Had AU the Luck“ (1944j og vakti það litla hrifn- ingu, enda varð tap á sýningunni. Honum gekk betur með „Situat- ion Norrnal" og „Focus“ en það - Verkið og höfundurinn var ekki fyrr en með „All My Sons“ (1947) sem Miller gat farið að líta á sjálfan sig sem alvöru leikritahöfund. Velgengni leik- ritsins lagði grunninn að heims- frægð Millers og nægir að nefna verk á borð við „Sölumaður deyr“ (Death of a Salesmen) og „Horft af brúnni“ (A View from the Bridge). Horft af brúnni Arthur Miller samdi tvær útgáfur af leikritinu „Horft af brúnni". Fyrri útgáfan var einþáttungur og textinn skrifaður í ljóðformi. Ætlun Millers var að skrifa nútíma harmleik sem að forminu til var hægt að rekja til grísku harmleikjanna. Þessi útgáfa var frumsýnd í New York árið 1955 en til gamans má geta þess að sér- stök ritskoðunarnefnd bannaði leikritið er það var fyrst sýnt í London. Sú útgáfa sem Leikfélag Akur- eyrar ætlar að sýna okkur er hins vegar í tveimur þáttum og textinn er eðlilegt talmál. Þetta er ágengt, dramatískt verk sem hreyfir við fólki. Leikritið gerist í Brooklyn um miðjan 6. áratuginn og fjallar um ítalska innflytjenda- fjölskyldu, Eddie Carbone, Beatrice konu hans og Katrínu systurdóttur hennar. Andrúmsloftið á heimilinu er dálítið rafmagnað. Eddie virðist ekki vilja sleppa hendinni af Katrínu og fyllist óbeit við til- hugsunina um að hún fari að vinna hjá pípulagningafyrirtæki í grennd við flotastöðina, í hverfi hafnarverkamanna. Eddie er afbrýðisamur út í hvern þann sem vogar sér að gjóa augunum á Kötu. Fjölskyldan hýsir tvo ólöglega innflytjendur frá Ítalíu, bræðurna Marco og Rodolpho. Þegar sá síðarnefndi sýnir Kötu áhuga kemur í ljós að Eddie hef- ur einkennilega mikið á móti því ,að þau umgangist of náið. Fram- haldið förum við ekki út í hér, en það kemur örugglega flestum á óvart. „Horft af brúnni“ snýst mikið um Eddie, sálarlíf hans, félags- legar aðstæður innflytjenda, pólitík og ameríska drauminn. Áhorfendur mega búast við spennandi sýningu og við skulum að lokum líta á persónur og leikendur í sýningu Leikfélags Akureyrar: Stormasamt heimilislíf. Þráinn Karlsson (Eddie), Sunna Borg (Beatrice) og Erla Ruth Harðardóttir (Katrín). Sunna Borg, Erla Ruth, Skúli Gautason (Rodolpho) og Jón Benónýsson (Marco) Upplýsingasími 91-685111 Sainband Eddies og Katrínar þykir cinkennilegt. Eddie Carbone - Þráinn Karlsson, Beatrice-Sunna Borg, Katrín - Erla Ruth Harðardóttir, Alfieri lögmaður - Marinó Þor- steinsson, Marco-Jón Bcnónýs- son, Rodolpho - Skúli Gautason, Louis - Pétur Eggerz, Mikki - Halldór Ingi Ásgeirsson, Lög- reglumenn útlendingaeftirlitsins - Jónsteinn Aðalsteinsson og Frið- Myndir: TLV þjófur Sigurðsson, Tony - Pétur Eggerz, Hr. Lipari - Þórður Rist, Frú Lipari - Margrét Kr. Péturs- dóttir, „Kafbátur' - Þorgeir Tryggvason, Nágrannar - Arn- heiður Ingimundardóttur, Jón- steinn Aðalsteinsson, Friðþjófur Sigurðsson og Þorgeir Tryggva- son. SS Vinningstölur 27. febrúar. Heildarvinningsupphæð kr. 4.847.584.- 1. vinningur kr. 2.429.630.- Skiptist á milli 2ja vinningshafa kr. 1.214.815.- 2. vinningur kr. 726.754.- Skiptist á milli 322 vinningshafa kr. 2.257,- 3. vinningur kr. 1.691.200.- Skiptist á milli 8456 vinningshafa sem fá kr. 200.- hver.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.