Dagur


Dagur - 01.03.1988, Qupperneq 10

Dagur - 01.03.1988, Qupperneq 10
iífettan0ft°--i.,8Sí.m- Erlendir skiptinemar: „Húsnæði, fæði og mikil ást“ - er það sem fósturfjölskyldurnar þurfa að láta af hendi „Það eina sem við ætlumst til af fjölskyldum sem taka skipti- nema er að þær veiti þeim húsnæði, fæði og mikla ást,“ sagði Vigdís Rafnsdóttir fuíl- trúi alþjóðlegu skiptinema- samtakanna AFS á Akureyri í samtali við Dag, en hún er um þcssar mundir að leita að heimilum fyrir erlenda skipti- nema til sumardvalar. Fyrir nokkru rann út umsóknar- frestur til að sækja um að komast Vísna- samkeppni Tóbaksvama- nefndar Tóbaksvarnanefnd efnir til samkeppni um vísur og Ijóð (rímuð og órímuð) til notkunar í baráttunni gegn tóbaksnotk- un. Meðal annars kemur til greina að nota eitthvað af því sem berst til merkinga á sígar- ettupökkum og til auglýsinga. Síðasti skiladagur er 25. mars nk. og stefnt er að því að birta úrslit á reyklausa daginn 7. apríl. Þátttakendur í samkeppninni eru beðnir um að merkja ekki kveð- skapinn með nafni heldur láta nafn og heimilisfang fylgja í lok- uðu umslagi. Dómnefnd skipa: Árni John- sen, Helgi Sæmundsson og Krist- ín Þorkelsdóttir. Prenn verðlaun verða veitt. 50 þúsund krónur í fyrstu verðlaun, 30 þúsund krónur í önnur verð- laun og 20 þúsund krónur í þriðju verðlaun. Tóbaksvarnanefnd áskilur sér rétt til að nota allt það efni sem henni berst í samkeppnina. Sam- keppnisgögn sendist: Vísnasam- keppni Tóbaksvarnanefndar, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík. BÍaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun ■ Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Blaðaprentun • Blaðaprentun Dagsprent Strandgötu 31 Sí 24222 í sumardvöl erlendis sem skipti- nemi. Vigdís sagði að umsækj- endum á Akureyri hefði fjölgað og væru 8 talsins í ár á aldrinum 16 til 23 ára, 3 strákar og 5 stelpur. „Nemarnir geta sótt um að fara til þriggja landa en flestir kjósa Bandaríkin og er þar helst verið að sækjast eftir enskunám- inu. Nemarnir sem komast, fara í júlí og dvelja í tvo mánuði.“ Að sögn Vigdísar hefur við- horf fólks breyst mjög undanfar- in ár varðandi það að fara til útlanda sem skiptinemi. „Fyrir nokkrum árum þótti það mikið tiltökumál að fara hvort sem var sem heilsársnemi eða skiptinemi og var horft á það að krakkarnir misstu ár úr skóla. Nú þykir sjálf- sagt að nýta sér það að geta kom- ist til útlanda og kynnst öðrum þjóðum.“ Þegar umsóknir hafa borist, tekur Vigdís viðtöl við umsækj- endur og sendir þær síðan til höfuðstöðvanna í Reykjavík. Þar er skorið úr um hverjir komast út. Fjöldi þeirra sem komast út, ræðst aö miklu leyti af því hvern- ig gengur að fá fjölskyldur fyrir þau erlendis og hversu marga nema er hægt að taka til íslands. „Við höfum verið heppin á Akur- eyri því þeir sem hafa sótt um eru mjög efnilegir ungir krakkar og flestir hafa fengið náð fyrir sunnan. Sem dæmi þá sóttu 5 um að komast sem ársnemar og þeir fara allir. Tveir fara t.d. til Suð- ur-Afríku í þessum mánuði.“ Næsta verkefni er að finna fjöl- skyldur fyrir erlenda nema. Þá eru settar auglýsingar í blöð og á veggspjöld um bæinn. Vigdís sagði að það hefði gengið frekar erfiðlega að fá fjölskyldur til að taka að sér skiptinema á Akur- eyri. Aðspurð sagði hún að þeir sem prófað hafa að taka skipti- nema væru mjög ánægðir. „Þetta er ekki eins mikið mál og fólk heldur. Ég veit ekki af hverju það er, fólk virðist hrætt við að taka að sér nema og heldur að þar með sé það að taka að sér gest sem þarf að skemmta í tvo mánuði. Þetta er mikill misskiln- ingur því skiptineminn á að vera sem einn af fjölskyldunni. Það er ekki ætlast til þess að fjölskyldan haldi fólkinu uppi. ÁFS veitir nemunum vasapeninga að upp- hæð 25 dollarar á viku.“ Aðspurð sagði Vigdís að í langflestum tilfellum hefði geng- ið mjög vel þegar fjölskyldur á Akureyri hafa tekið nema. Flest- ir sumardvalarnemanna eru frá Bandaríkjunum. Hjá Vigdísi er hægt að fá bækl- ing með upplýsingum um í hverju það felst að taka skiptinema og geta þeir sem vilja kynna sér mál- ið hringt til hennar t' síma 96- 27151. VG Eldavélin kveikti í þvottinum Vafalaust er það algengt að hústnóðirin fari með hreina þvottinn inn í eldhús til að strauja hann, ef til vill til þess að geta sinnt matseldinni á meðan. En frúin sem lagði þvottakörf- una frá sér á eldavélina og brá sér út í búð rétt sem snöggvast, gleymdi því í augnablikinu, að hún var búin að kveikja á einni hellunni, átti bara eftir að setja kartöflupottinn á. Ef til vill hefur hún farið að kaupa kartöflur. Þvotturinn logaði vel, þegar hún kom til baka, og skáparnir fyrir ofan eldavélina voru að byrja að brenna. Flýtið ykkur hægt og farið að öllu með gát, þar sem rafmagnið er. Eldinn sem af því getur hlotist getur reynst erfitt að slökkva. Rafmagnseftirlit ríkisins. Frá kynningarfundi á Akureyri Fjárfestingarfélags íslands hf. stóð fyrir ráðstefnu undir nafn- inu „Fjármál fjölskyldunnar“ að Hótel KEA á miðvikudags- kvöldið. Þar kynntu starfs- menn Fjárfestingarfélagsins og Féfangs hf. starfsemi fyrirtækj- anna og gerðu sérstaklega að umræðuefni leiðir og markmið fjölskyidna til ávöxtunar, sparnaðar og útvegunar fjár- magns til húsakaupa eða lausa- fjárkaupa, t.d. bifreiðakaupa. Gunnar Óskarsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Fjárfestingar- félagsins, var spurður sérstaklega um fjármögnunarráðstafanir, sem stæðu einstaklingum til boða varðandi húsnæðiskaup. „Við erum ekki beinlínis með húsnæðislánakerfi,“ sagði Gunnar. „Við bjóðum upp á ýmsar leiðir við útvegun fjármagns, sem fyllir upp í þær eyður sem eru til staðar. Það er ekki beinlínis hægt að kalla þetta húsnæðislánakerfi, en við eigum ákveðna möguleika til að fylla upp í göt í fjármögnun, og getum því komið til móts við þær þarfir sem hið opinbera getur ekki uppfyllt." - Hvernig er hægt að lýsa starfsemi Fjárfestingarfélagsins? „Starfsemi þess felst í að mæta þörfum einstaklinga og fjöl- skyldna, annars vegar í ávöxtun fjármuna og til að fá fólk til að spara meira - en sparnaður á Is- landi jókst um 20% umfram verðbólgu á síðasta ári, og hins vegar til að mæta þörfum fyrir- tækja. Hvað varðar sparnað þá höfum við veitt fé til arðbærrar fjárfestingar í atvinnurekstri, sem hefur minnkað erlendar lán- tökur og hefur sannað að slík fjárfesting stendur undir þeim kostnaði við frjálsan verðbréfa- rnarkað." - Eruð þið í samkeppni við bankakerfið í landinu? ,Við erum ekki í beinni sam- keppni við bankakerfið en það má segja að við séum í óbeinni samkeppni, því við erum auðvit- að að keppa um sparifé. Við erum fyrst og fremst að tala um langtímasparnað, bankakerfið uppfyllir veltusparnað einstakl- inganna, sem er annars konar. Við erum frekar að keppa við veðdeildir bankanna, sem gefa út verðbréf til lengri tíma, en ekki innlánsstofnanir sem slíkar.“ EHB Frá fundi fjárfestingarfélagsins. Mynd: EHB Fjárfestingarfélag íslands: Ert þú áskrifandi? Dagur Akureyri, sími 96-24222 Dagur Húsavík, sími 96-41585 Dagur Reykjavík, sími 91-17450 Dagur Sauðárkróki, sími 95-5960 Dagur Blönduósi, sími 95-4070 Skilið getraunaseðlimim fyrir febrúar sem fyist Einungis skuidlausir áskrifendur geta tekið þátt í getrauninni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.