Dagur - 01.03.1988, Qupperneq 14
14 - DÁÖIUR -í. ririars 1988
Dancall - Dancall - Dancall.
Frábærir farsímar í bílinn, bátinn,
sumarbústaðinn, snjósleðan.
Dancall hentar vel við allar
aðstæður.
Radióvinnustofan Kaupangi,
sími 22817 og farsimi 22117.
Dancall - Dancall - Dancall.
Bókaútsala - Bókaútsala.
Barnabækur - Unglingabækur.
Ástarsögur - Spennusögur.
Ferðasögur - Ævisögur.
Nýjar og gamlar bækur.
Fróði, Kaupvangsstræti 19.
Sendum i póstkröfu.
Sími 26345. Opið 2-6.
Óska eftir barngóðri stúlku til að
gæta 4ra ára stelpu og 10 mán.
stráks á kvöldin og um helgar.
Er í Kjalarsíðu.
Uppl. í síma 26033 eða Kjalarsíðu
16f.
Dráttarvél til sölu.
International B-275 árg. ’64, með
ámoksturstækjum. Tvöföld
kúpling.
Einnig Scout árg. ’67, diesel.
Uppl. í síma 43623.
Barnavagn óskast!
Óska eftir vel með förnum barna-
vagni.
Uppl. í síma 21985.
Hestafólk.
Hnakkur og reiðhjálmur óskast til
kaups.
Ennfremur alþægir hestar til leigu.
Hringið í síma 23862 (Guðrún).
Óska eftir 4-5 herb. einbýlishúsi
eða raðhúsi til leigu frá og með
1. júní.
Helst í Glerárhverfi.
Uppl. í síma 26057.
Toyota Corolla hatchback, árg.
’86 til sölu.
Ekin um 20.000 km. Útvarp og
segulband, vetrardekk og sumar-
dekk. Litur: blágrár. Lítur vel út.
Uppl. í síma 27717 eftir kl. 18.00.
Tilboð óskast í Lödu Saftr, árg.
’83 til niðurrifs.
Vél ek. 32 þús. km.
Uppl. í síma 21632 eftir kl. 5 á
daginn.
Til sölu Colt, árg. ’80.
Upplýsingar í síma 96-52106.
Veitum eftirfarandi þjónustu:
Veggsögun - Gólfsögun.
Malbikssögun - Kjarnaborun.
Múrbrot og fleygun.
Loftpressa - Háþrýstiþvottur.
Vatnsdælur - Vinnupallar.
Rafstöð 20 kw - Grafa mini.
Stíflulosun.
Upplýsingar í símum 27272 -
26262 og 985-23762.
Verkval, Naustafjöru 4,
Akureyri.
Bíli til sölu.
Til sölu er Mazda 323 station,
árgerð 1979.
Nýskoðaður 1988.
Upplýsingar í síma 43515.
Lada Sport.
Til sölu Lada Sport árg. 79. Þarfn-
ast viðgerðar - eða til niðurrifs.
Uppl. í síma 22306 eftir kl. 17.00.
Til sölu Lada Sport árg. ’82, ek.
50 þús. km.
Upplýsingar gefur Reynir i síma
96-41337 á daginn og 96-41125 á
kvöldin.
I.O.O.F. Obf. 1 = 169328tó =
Slysavarnafélagskonur
Akureyri.
Aðalfundurinn verður
haldinn mánudaginn 7.
mars kl. 20.30 að Laxagötu 5.
Venjulcg aðalfundarstörf. Árbók
S.V.F.Í. ’87 til sölu. Mætum vel.
Stjórnin.
Gunnar Árnason, bifreiðastjóri,
Grænugötu 2, Akureyri, er fimm-
tugur í dag. Hann tekur á móti
gestum í Hljómborg, félagsheimili
Karlakórs Akureyrar, laugardag-
inn 5. mars frá kl. 18.00.
Möðru vallaklaustursprestakall.
N.k. sunnudag kl. 14.00 á æsku-
lýðsdegi þjóðkirkjunnar verður
guðsþjónusta á Möðruvöllum fyrir
allt prestakallið. Predikun flytur
14 ára fermingarbarn Jón Helgi
Pétursson. Unglingar sýna helgi-
leik og lesa ritningagreinar.
Sóknarprestur.
Náttúrugripasafnið á Akureyri.
Frá 10. sept. verður sýningarsalur-
inn aðeins opinn á sunnudögum
kl. 13-15.
Opnað fyrir hópa eftir samkomu-
lagi í síma 22983 eða 27395.
Minjasafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, sími: 24162.
Opnunartímar: Alla daga frá 1.
júní ti! 15. sept., kl. 13.30-17.00.
Á sunnudögum frá 15. sept. til 1.
júní, kl. 14-16.
Minningarkort Líknarsjóðs
Arnarneshrepps fást á eftirtöldum
stöðum:
Brynhildur Hermannsdóttir, Hofi,
sími 21950. Berta Bruwik, Hjalt-
eyrarskóla, sími 25095.
Jósafína Stefánsdóttir, Grundar-
gerði 8a, sími 24963.
Leikstjóri: Theodór Júlíusson.
Leikmynd: Hallmundur Kristinsson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Frumsýning föstud. 4. mars
kl. 20.30. Uppselt.
Laugard. 5. mars kl. 20.30.
Sunnud. 6. mars kl. 20.30.
Æ Æ MIÐASALA
96-24073
löKFéLAG AKUREYRAR
Freyvangsleikhúsið
auglysir:
Mýs og menn
3. sýning
miövikudagskv. 2. mars kl. 20.30
4. sýning
föstudagskv. 4. mars kl. 20.30
5. sýning
laugardagskv. 5. mars kl. 20.30
Miðapantanir í síma 24936.
Leikfélag Öngulsstaðahrepps.
U.M.F. Árroðinn.
Freyvangsleikhúsið
Sími 25566
Opið aila virka daga
kl. 14.00-18.30.
Aðalstræti:
Þriggja herbergja íbúð í suður-
enda. Allt sér.
Furulundur:
5 herb. raðhúsíbúð á tveimur
hæðum ca. 125 fm.
Ásabyggð:
4ra herb. ibúð i austurenda. Allt
sér.
Stapasíða:
Glæsilegt einbýlishús á tveimur
hæðum ásamt bílskúr, samtals
rúmlega 300 fm.
Þriggja herbergja íbúðir
við Tjarnarlund og Sunnuhlíð allar
i mjög góðu standi.
Dalvík:
Einbýlishús ásamt bílskúr, við
Ægisgötu. Ekki alveg fullgert.
FASTÐGNA& (J
SKIPASALAlgSI
NORÐURLANDS O
Amaro-húsinu 2. hæð
Sími 25566
Benedikt Ólafsson hdl.
Sölustjóri, Pétur Jósefsson, er á
skrifstofunni virka daga kl. 14-18.30.
Heimasími hans er 24485.
Nýjar rannsóknir:
Fjórðungur pilta
tekur fyrsta staupiö
innan 9 ára aldurs
í desember 1986 birti breska
ríkisstjórnin niðurstöður rann-
sókna á drykkju unglinga í
Stóra-Bretlandi. Heilbrigðis-
ráðuneytið stóð að rannsókn-
inni en Hagstofan skipulagði
hana. Könnun þessi fór fram
1983-1984. Niðurstöður henn-
ar eru slíkar að við íslendingar
megum nokkra lærdóma áf
þeim draga.
Hér eru nokkrar tölur:
Af 13 ára drengjum höfðu 82%
neytt áfengis og 77% stúlkna á
sama aldri. 24% - tæpur fjórð-
ungur - drengjanna hafði drukk-
ið fyrsta sopann yngri en 9 ára. í
Borgarbíó
Þriðjud. 1. mars
Kl. 9.00 Nornirnar
í Eastwick
Kl. 11.00 Nornirnar í
Eastwick
Kl. 9.10 Sjúkraliöarnir
Kl. 11.10 From the Hip
þessum aldurshópi drukku 26%
drengja og 17% stúlkna fjórum
sinnum í viku eða oftar - og 34%
fimmtán ára drengja og 25%
stúlkna á þeim aldri drukku fjór-
um sinnum í viku eða oftar.
Helmingur 15 ára drengja og
þriðjungur 15 ára stúlkna drukku
meira en 10 skammta (sjússa)
áfengis í viku hverri. Um það bil
einn af hverjum fimm 15 ára
drengjum drakk meira en 25
áfengisskammta á viku.
Þá sýnir þessi rannsókn, svo og
nýleg könnun meðal 18.000
skólabarna, að algengt er að börn
og unglingar drekki á krám þó að
Bretar séu taldir manna lög-
hlýðnastir. Tæpur helmingur
þeirra 15 ára drengja, sem áfeng-
is neyttu, drakk á almennum
ölkrám.
Nýtt náms-
efni um
mannanöfn
Námsgagnastofnun hefur gefið
út námsefni í móðurmáli sem
nefnist Nafnakver. Kverið er
eftir Vénýju Lúðvíksdóttur og
hefur Aðalheiður Skarphéð-
insdóttir teiknað myndirnar
við námsefnið.
Námsetni þetta er til komið
einkum vegna þess hversu nteð-
ferð mannanafna hefur brenglast
bæði í munnlegri og skriflegri
notkun. í kverinu er höfuð-
áhersla lögð á fallbeygingu
nafna. Það er því mikið um verk-
efni í kverinu sem veita þjálfun í
að skrifa nöfn rétt í öllum föllum.
Kverið skýrir og ljóslega merk-
ingu og uppruna margra nafna og
fyrir hvers kyns áhrif nöfn hafa
skotið rótum í íslenskri menn-
ingu. Að auki er að finna í kver-
inu fjölda verkefna sem hvetja til
eigin athugana nemenda. Hér er
á ferð þarft námsefni sem veitir
mikilvæga þjálfun í ritun og með-
ferð íslenskra mannanafna. Bók-
in er tilvalin sem viðbótarefni fyr-
ir 5. og 6. bekk grunnskóla.
Eiginmaður minn,
ÞÓRIR VALDEMARSSON,
Munkaþverárstræti 8,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að kveldi 28. febrúar.
Guðrún Kristjánsdóttir.
Alúðarþakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug
vegna andláts
JÓNS JÓNSSONAR,
fyrrverandi kennara,
Dalvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar fyrir umönnun og
góða aðhlynningu.
Stefán Jónsson, Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
Gunnar Jónsson, Kristín Klemensdóttir,
Jón Anton Jónsson, Hekla Tryggvadóttir,
Helgi Jónsson, Hanney Árnadóttir,
Filipía Jónsdóttir, Hafsteinn Pálsson,
Gerður Jónsdóttir, Arngrímur Kristinsson,
Kristján Tryggvi Jónsson, Margrét Ingólfsdóttir,
Svanfríður Jónsdóttir, Eiríkur Helgason,
Hanna Soffía Jónsdóttir, Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.