Dagur - 03.03.1988, Side 16

Dagur - 03.03.1988, Side 16
iftBUDL Akureyri, fímmtudagur 3. mars 1988 41 tMONROEW höggdeyfar í flesta bila Lögreglan: Of margir án Ijósa og belta Síðdegis í gær, höfðu orðið 5 árekstrar á Akureyri. Daginn áður, fyrsta dag gildistöku nýju umferðarlaganna, varð enginn árekstur í bænum. Allir árekstrarnir í gær voru með minna móti. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri, virðast skýrslublöð trygg- ingafélaganna eitthvað vefjast fyrir ökumönnum sem á þeim þurfa að halda og hefur lögreglan þurft að aðstoða við útfyllingu þeirra. Pað hefur þýtt tvöfalda skýrslugerð hjá lögreglunni og ollið nokkrum töfum. Sömuleiðis virðast brögð að því, að öku- mönnum hafi láðst að hafa nýju eyðublöðin í bifreiðum sínum og að þeir sem þau hafa, hafi ekki kynnt sér innihald þeirra nógu vel. Ökumenn á Akureyri virðast strax farnir að slaka á löghlýðni sinni gagnvart nýju umferðar- lögunum því lögreglan telur að enn aki of margir ljóslausir og án öryggisbelta. I gærdag athugaði lögreglan 441 bifreið. Af þeim reyndust 23 ljóslausar og 40 öku- menn voru ekki með beltin spennt. VG Skíðastaðir: Aðsókn jókst um 80% Gísli Bragi Hjartarson, bæjar- fulltrúi, vakti máls á því á síð- asta fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar að aðsókn að Skíðastöð- um hefði aukist um 80% í janúar miðað við sama tíma í fyrra. Aðsóknin að Skíðastöðum hef- ur aukist mikið í vetur, og fagn- aði Gísli Bragi þeirri staðreynd. Nefndi hann, að mjög mörg börn og unglingar æfðu sig reglulega í Fjallinu á vegum Skíðaráðs Akureyrar undir stjórn þjálfara, og að þar færi fram gott starf. Hvað kaup á nýjum snjótroð- ara snerti, þá væri ekki tímabært að kaupa slíkt tæki fyrir þá skíða- vertíð sem nú stendur yfir. Að þessu þyrfti þó að huga næsta haust, því stundum væri skíða- færi erfitt og hvert fótbrot væri dýrt. Um það væri ástæða til að hugsa í sambandi við verð á nýjum snjótroðara, sem væri þó vissulega dýrt tæki. EHB Sameiningarmál Skarðshrepps og Sauðárkróks: Skaröshreppur slítur viðræðum Á fundi hreppsnefndar Skarðs- hrepps sl. sunnudag var ákveð- ið með 3 atkvæðúm meirihlut- ans að slíta viðræðum við Sauðárkróksbæ um samein- ingu þessara tveggja sveitarfé- laga. Minnihlutinn taldi ekki ástæðu til að slíta viðræðunum að svo stöddu og vildi að samn- inganefndirnar ræddu málin frekar. Það var í byrjun nóvember sl. sem Sauðár- króksbær óskaði eftir viðræð- um. Aðilarnir hittust síðan á 2 fundum í janúar. Að sögn Úlfars Sveinssonar oddvita hefur ekkert komið út úr þeim fundum og að athuguðu máli þyki ekki fýsilegt fyrir hreppinn að sameinast Sauðár- krók. Segist hann ekki hafa hitt neinn íbúa í hreppnum sem hafi áhuga á því. Þaö sem fyrst og fremst skapi það álit, sé ótti bænda um að glata yfirráðarétti yfir bújörðum sínum eftir að þær væru komnar í lögsögu Sauðár- króks. „Boð forráðamanna Sauðár- króks t.d. um lagningu hitaveitu heim á bæina, sem er álitlegasti kosturinn í þeirra tilboðum, dug- ar þar ekki á móti. Að okkar áliti eigum við miklu meiri samleið með einhverjum sveitahrepp- anna frekar en Sauðárkrók, verði um einhverja sameiningu sveitar- félaga að ræða. Þcir voru með tvær tillögur um sameiningu. Annars vegar að all- ur hreppurinn sameinaðist Króknum og hins vegar hluti hans, þ.e. Sjávarboig, Borgar- gerði, Brennigerði, Áshildarholt og Skarð. Mönnum leist enn síð- ur á þá tillögu,“ sagði Úlfar oddviti á Ingveldarstöðum. „Ég trúi því ekki að hrepps- nefnd Skarðshrepps sé svo óábyrg að slíta viðræðunum á þessu stigi. Enn höfum við ekki fengið nein viðbrögð við þeim til- boðum sem við gáfum. Með lagn- ingu hitaveitu heim á bæi o.fl., og að mér vitandi hefur hugur hins almenna hreppsbúa til þeirra ekki verið kannaður. Ég er svo- lítið hissa ef þeir ætla að gefa þetta frá sér eftir svo stuttan umfjöllunartíma. Mér hefur fram til þessa ekki sýnst hreppsnefnd Skarðshrepps hafa verið svo fljót að afgreiða erindi sem við höfum til hennar beint,“ sagði Þorbjörn Árnason forseti bæjarstjórnar Sauðárkróks. Vildi hann ekki tjá sig frekar um málið fyrr en af- greiðsla þess bærist bæjarstjórn- inni. -þá Aðalsteinn Helgason aðstoðarforstjóri Álafoss hf., sendinefnd frá sovéska samvinnusambandinu og Kolbeinn Sig- urbjörnsson. Mynd: gb Aiafoss hf: Seljum framleiðsluvömr okkar á háu verði - segir Jón Sigurðarson um verðstefnu fyrirtækisins „Við höfum þá stefnu að selja framleiðsluvörur okkar á háu verði og við erum þess fyllilega meðvitaðir að íslenskur iðnað- ur getur ekki keppt við fjölda- Þessa dagana fara fram samn- ingaviðræður milli VSÍ og Landssambands íslenskra verslunarmanna. Að sögn Björns Þórhallssonar for- manns sambandsins, ganga samningaviðræðurnar prýði- lega. „Mér þætti líklegt að það komi í Ijós í vikunni hvort næst saman eða ekki,“ sagði hann. „Við höfum ekki sett niður kröfur á hefðbundinn hátt, held- ur höfum við t.d. verið að reyna að samræma samninga sem gerð- ir voru á síðasta sumri, því samn- ingar sem gerðir voru við Vinnu- málasambandið annars vegar og Vinnuveitendasambandið hins vegar, voru ekki þeir sömu. Sömuleiðis er verið að ræða eftir- framleiðslu með lágt vöruverð. Þess vegna verðum við að bjóða vöru sem er sérstök, mikil að gæðum og hefur eitthvað fram yfír vöru fram- vinnu og greiðslu fyrir hana, líkt og gert var hjá VMSÍ og ýmsar aðrar leiðréttingar." Björn sagðist aðspurður um hvort þeir myndu sætta sig við sömu launahækkanir og VMSÍ fékk, að enn hefði ekki verið gengið frá neinu slíku. „Mér þyk- ir ólíklegt annað en að launa- hækkanir verði í þeim takti. Auðvitað myndum við vilja meira, eins og þeir vildu líka, en mér finnst ósennilegt að vinnu- veitendur verði til viðtals um það, því þá væru þeir um leið búnir að opna hinn samninginn upp á gátt. Það Iiggur því nokkuð ljóst fyrir að launahækkanir verða innan þess ramma,“ sagði Björn að lokum. VG leidda í láglaunalöndum,“ sagði Jón Sigurðarson, for- stjóri Álafoss hf. þegar hann var spurður um verðstefnu fyrirtækisins. Jón sagði, að fyrirtæki eins og Álafoss gæti ekki borið sig nema að fylgja slíkri verðstefnu. Sovét- menn frá sovéska samvinnusam- bandinu væru komnir til Akur- eyrar, og myndu þeir dvelja hér fram að helgi. Reynt yrði að semja um sölu á ullarvörum, en of snemmt væri að spá í árangur af viðræðunum. Þó væri ljóst, að Sovétmenn hefðu undanfarin ár keypt um fjórðung allrar fram- leiðslu fyrirtækisins. „Við höfum ástæðu til að vera bjartsýnir hvað Evrópumarkað- inn snertir og höfum fengið mjög góðar fréttir af Japansmarkaði. Staðan er óljósari hvað Banda- ríkjamarkað snertir, en þó væri alls ekki ástæða til svartsýni þar. Við erum ákaflega ánægðir með umboðsmannakerfi okkar í Evr- ópu og nýja fatalínan frá Álafossi virðist ætla að takast mjög vel. Hvað sameiningu fyrirtækjanna varðar þá er ljóst að hagræðing af henni er farin að skila sér og kemur til með að skila sér enn betur síðar á árinu,“ sagði Jón að lokum. EHB Reykjavíkurskákmótið: Nær Jón Garðar áfanga? Eftir sjö umferðir á alþjóð- lega skákmótinu í Reykjavík eru línur nokkuð teknar að skýrast því Jón L. Árnason vann Þröst Þórhallsson í 7. umferð og er nú efstur með 6 1/2 vinning. Næstu menn eru hins vegar með 5 vinninga, þannig að Jón L. er greini- Íega í miklum ham. Akureyringunum gekk mjög vel í 7. umferð. Jón Garðar Viðarsson vann alþjóðlega meistarann Östenstad frá Nor- egi, Arnar Þorsteinsson vann Sörensen, Tómas Hermannsson vann Þorstein Þorsteinsson, Áskell Örn Kárason vann Snorra Bergsson og Bogi Páls- son gerði jafntefli við Apol frá Færeyjum. Jón Garðar er í 13. sæti ásamt fleirum með 4 vinninga og á nú möguleika að ná fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Til þess þarf hann að fá a.m.k. 2 vinninga úr þeim fjórum umferðum sem eftir eru. SS Kjarasamningar LÍV ganga vel: Búist við svipuðum launa- hækkunum og hjá VMSÍ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.