Dagur - 15.03.1988, Blaðsíða 16
Hafið þið reynt
okkar þjonustu? cpediGmyndir
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
JiuiiyiiiHHiiiiiiminniHmiiinv
Að sligast undan
fjármagnskostnaði
Landsbyggðarhótel:
boðað til ráðstefnu um máliö
„Hótel á landsbyggðinni eiga
flest við erfiðleika vegna
fjármagnskostnaðar að glíma.
Nánast ekkert þeirra getur
skilað rekstri sem getur borgað
fjármagnskostnaðinn sem hvíl-
ir á þeim,“ sagði Björn Her-
mannsson, stjórnarformaður
Hótel ísafjarðar, en ísfirðingar
Áskrifendagetraunin:
Dregið í dag
í dag verður dreginn út febrúar-
vinningur í áskrifendagetraun
Dags. Vinningurinn er húsgagna-
úttekt í Vörubæ á Akureyri að
verðmæti 100.000 kr. Getrauna-
seðill marsmánaðar birtist á
morgun en dregin verður út
sumarferð með Samvinnuferð-
um/Landsýn þann 13. apríl.
hafa boðað til ráðstefnu um
rekstrarvanda hótela á lands-
byggðinni.
„Þau lán sem veitt hafa verið
úr ferðamálasjóði til uppbygging-
ar, eru ákaflega erfið lán til
skamms tíma, eða um 10-12 ára.
Ef vel ætti að vera, þyrftu þau að
vera til 30-40 ára. Það eru það
miklar afborganir og kostnaður
við þessi lán, að þau eru að drepa
landsbyggðarhótelin. “
Björn sagði að sum hótelanna
hat'i reynt að klóra í bakkann og
standa í basli við að ná sér út úr
vandanum með mismunandi að-
gerðum. Þau hafa unnið við það
hvert í sínu lagi, en nú hefur ver-
ið boðað til ráðstefnu til að reyna
að finna úrbætur. „Við buðum til
hennar hótelum sem rekin eru á
ársgrundvelli og við vissum að
standa í þessum vanda. Þetta eru
rúmlega 15 hótel um allt land.
Sveitarstjórnir eru yfirleitt stórir
eignaraðilar að þessum hótelum
og buðum við því líka fulltrúum
þeirra,“ sagði Björn.“
Á ráðstefnunni verða haldnir
fyrirlestrar frá öllum aðilum sem
málið snertir. Framsöguerindi
flytja, Kjartan Lárusson formað-
ur Ferðamálaráðs, Guðmundur
Malmquist frá Byggðastofnun,
Hólmfríður Árnadóttir f.h.
Ferðamálasjóðs, Tryggvi Guð-
mundsson f.h. Hótel Eddu og
Ferðaskrifstofu ríkisins, Sigfús
Erlingsson frá Flugleiðum og
tveir fulltrúar frá landsbyggðar-
hótelum, þeir Sigurður Skúli
Bárðarson Stykkishólmi og Har-
aldur Líndal Haraldsson ísafirði.
„Við vonum að sjálfsögðu að
einhver niðurstaða fáist á ráð-
stefnunni. Þetta er starfsgrein
sem hefur vaxið mikið undanfar-
in ár og mikið er rætt um að
byggja upp. Bæjarfélögin geta
ekki án þjónustunnar verið, til að
geta tekið á móti fólki,“ sagði
Björn að lokum.“
Ráðstefnan verður haldin á
ísafirði laugardaginn 26. mars
nk. VG
Hafnarstræti 103:
Endalokin nálgast
- Lóðin auglýst til umsóknar á næstunni
Verslunar- og íbúðarhúsið að
Hafnarstræti 103, stundum
nefnt Lyngdalshús, verður
e.t.v. rifið á þessu ári.
Að sögn Finns Birgissonar
skipulagsstjóra Akureyrarbæj-
ar verður lóðinni sennilega
úthlutað á næstu vikum, en
óvíst er hvenær framkvæmdir
heljast við nýtt hús á þessum
stað en þá verður hið gamal-
gróna hús að víkja.
Finnur sagði að ákveðið hefði
verið að bíða með úthlutun lóð-
arinnar þar til úrslit í samkeppn-
inni um skipulag og mótun Ráð-
hústorgs og Skátagils væru fyrir-
liggjandi, enda væri hugsanlega
hægt að taka einhver atriði úr
þeirri samkeppni inn í skipulags-
skilmála hússins.
„Það á eftir að skoða þetta mál
nánar, t.d. hvað varðar afmörk-
un á byggingarreit og tröppur
sem hugsanlega tengdust húsinu.
Þegar búið er að skoða það ætti
ekkert að vera því til fyrirstöðu
að auglýsa lóðina til umsóknar,"
sagði Finnur.
Hann benti á að þótt lóðinni
yrði úthlutað fljótlega væri ekki
þar með sagt að framkvæmdir
myndu hefjast á þessu ári því öll
hönnunarvinna væri eftir. Það
gæti allt eins farið svo að fram-
kvæmdir myndu ekki hefjast fyrr
en vorið 1989, en Lyngdalshús
mun standa allt þar til byrjað
verður á nýbyggingunni.
Gert er ráð fyrir 4-5 hæða
nýbyggingu á lóðunum Hafnar-
stræti 103-105, en húsið á lóð nr.
105, Rakarastofa Ingva Flosason-
ar, hefur þegar verið rifið. Ekk-
ert hefur verið ákveðið um hlut-
verk nýja hússins að öðru leyti en
því að það skuli flokkast undir
miðbæjarstarfsemi. SS
'
mw
£ ■% s- ■:
Þetta gamalgróna hús í miðbæ Akureyrar á það í vændum að verða stórvirkum vinnuvélum að bráð, en það verður
að víkja fyrir 4-5 hæða nýbyggingu. Mynd: tlv
Fyrrihluta gærdagsins urðu fjórir árekstrar á Akureyri. Engin meiðsl urðu á
fólki en nokkrar skemmdir a bifreiðum. Mestar skemmdir urðu á Toyota
bifreið sem, eins og sjá má á myndinni, ók á Ijósastaur á gatnamótum Glerár-
og Grænugötu. Ökumaður ætlaði að beygja austur Gríenugötu en náði ekki
beygjunni og rann á staurinn með fyrrgreindum afleiðingum. Mynd: GB
Þrefað um gjaldheimtuna á Norðurlandi vestra:
„Rökin fyrír stað-
setningu fráleit“
-segir Axei Axelsson bæjarfulltrúi á Siglufirði
„Okkur fínnst þau rök sem við
höfum heyrt fyrir staðsetningu
gjaldheimtunnar alveg fráleit.
Að vegna þess að við séum á
jaðri kjördæmisins og með
frekar lélegar samgöngur komi
Siglufjörður ekki til greina.
Því erindi við þessa stofnun
verða að mestu afgreidd í
gegnum banka og síma. Við
erum með skattstofuna hérna
út frá og manni þykir nú
trúlegt, að æskilegt sé að þess-
ar stofnanir vinni saman. Og
að auki er fráleitt að safna öll-
um þjónustustofnunum saman
á Króknum.“
Svo sagði Axel Axelsson
bæj arfulltrúi Sj álfstæðisflokksins
á Siglufirði, en hann ásamt full-
trúum annarra flokka í bæjar-
stjórninni stóð að ályktun sem
samþykkt var einróma á bæjar-
stjórnarfundi fyrir helgina. í
henni mótmælir bæjarstjórn
harðlega þeim tillögum starfs-
hóps um staðsetningu gjald-
heimtu fyrir Norðurland vestra,
að höfuðstöðvar gjaldheimtunn-
ar verði á Sauðárkróki. Á Sauð-
árkróki séu nú þegar ýmsar stofn-
anir til þjónustu fyrir allt kjör-
dæmið, s.s. fjölbrautaskóli,
svæðisstjórn um málefni fatlaðra,
heilbrigðisfulltrúi, vinnueftirlit,
Vegagerð ríkisins o.fl.
Því verði að telja sjálfsagt að
staðsetja gjaldheimtuna annars
staðar á svæðinu. Var bæjar-
stjóra og bæjarráði falið að vinna
að því að fá tillögu um staðsetn-
ingu gjaldheimtunnar breytt og
hún verði staðsett á Siglufirði, en
leita að öðrum kosti annarra
leiða en þátttöku í sameiginlegri
gjaldheimtu á Sauðárkróki.
Að sögn Axels hefði mönnum í
bæjarstjórninni þá helst dottið í
hug að gjaldheimta á Siglufirði
yrði framkvæmd í samvinnu við
bæjarfógetaembættið eins og nú
er.
Ófeigur Gestsson sveitarstjóri
á Hofsósi einn staðsetningar-
nefndarmanna vildi ekki tjá sig
um rök fyrir staðsetningu gjald-
heimtunnar á Sauðárkróki. Sagð-
ist ekki gera það fyrr en sveitar-
stjórnum hefði verið kynnt niður-
staða nefndarinnar, en það yrði
gert á fundum í dag og á morgun.
Málið hefði lekið í fjölmiðla á
óheppilegum tíma. -þá
Ólafsfjarðarmúli:
Bíll fastur
á milli
flóða
Vegurinn um Ólafsfjarðar-
múla lokaðist snemma í gær-
morgun er snjóflóð féllu á
veginn. Ekki er vitað hve mörg
flóð höfðu fallið á veginn í
gærkvöld en snjóflóð féllu
bæði austan og vestan í Qall-
inu. Einum bíl tókst að komast
frá Ólafsfirði til Dalvíkur í
gærmorgun. Annar bfll festist
á milli flóða og varð ökumað-
urinn að ganga úr bifreið sinni
til Ólafsfjarðar.
Að sögn Valdimars Stein-
grímssonar vegaeftirlitsmanns í
Ólafsfirði var í gærdag mjög
slæmt veður í Ólafsfjarðarmúla.
Vindátt var austan-suðaustan-
stæð en í slíku veðri skefur af
fjallinu og snjór hleðst í gil og
kletta. Því er algengt að minni
flóð sem þessi falli við þessar
aðstæður. Hér er yfirleitt um að
ræða minni flóð.
Múlavegurinn var með öllu
lokaður í gær en verður opnaður
strax og veður batnar. JÓH