Dagur - 17.03.1988, Qupperneq 1
71. árgangur Akureyri, fímnitudagur 17. mars 1988
54. tölublað
Venjuiegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Örlítil hugarleikfími í morgunsárið. Fyrir iesendur sem ekki eru vel vaknaðir skal það upplýst, að hér er um að ræða
handfang á hjólhesti með bjöllu og tilheyrandi. Mynd tl.v
Norðlenskir vinnuveitendur:
Geta greitt hærri
—segir Þóra Hjaltadóttir formaður AN, en fyrsti samningafundurinn
BKNE:
„Stjómvöld
ábyrg“
- ef kennarar verða
neyddir til verkfalis
„Þetta var mjög góður fundur
og mættu töluvert á annað
hundrað manns,“ sagði Ragn-
hildur Skjaldardóttir kennari í
samtali við Dag, en í fyrradag
var haldinn fjölmennur fundur
Bandalags kennara á Norður-
landi eystra á Akureyri.
Að sögn Ragnhildar ríkti
mikill einhugur á fundinum og
var gerður góður rómur að ræðu-
mönnum sem allir voru fylgjandi
verkfallsheimild. Eftirfarandi
ályktun var samþykkt á fundin-
um: „Starfskjaranefndir kenn-
arafélaganna, menntamálaráðu-
neytisins og fjármálaráðuneytis-
ins skiluðu á síðasta hausti áliti
og tillögum um hvernig efla megi
skólastarf í landinu. Þar er
megináhersla lögð á bætt kjör
kennara.
Nú hafa samningaviðræður
staðið yfir frá því í desember og
ekkert miðað í samkomulagsátt.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit um
kjarabætur til kennara og bætt
skólastarf liggur nú fyrir tilboð
sem gengur í þveröfuga átt.
Fundurinn harmar afstöðu
ríkisvaldsins í þessum samninga-
viðræðum og átelur stjórnvöld
harðlega fyrir að etja kennurum
enn einu sinni út í verkfalls-
aðgerðir sem koma til með að
bitna á þeim er síst skyldi. Fund-
urinn lýsir fullri ábyrgð á hendur
stjórnvöldum vegna þeirrar
röskunar sem verður á skóla-
starfi ef kennarar verða neyddir
til verkfalls.“ VG
„Ef ég heföi ekki bæöi trú og
von, gæti ég bara hætt þessu,“
sagði Þóra Hjaltadóttir for-
maður AN aðspurð um hvort
hún væri bjartsýn á komandi
kjarasamningaviðræður, en
fyrsti fundur í kjaradeilu vinnu-
veitenda og Alþýðusambands
Norðurlands verður haldinn á
mánudaginn, 21. mars, klukk-
an 13.30 í Alþýðuhúsinu á
Akureyri. Ljóst er, að eftir
þann fund ættu línur að skýrast
um hvort viðræður halda
áfram, eða hvort boðað verður
til verkfalls.
Þóra sagði aðspurð, að ný kröfu-
gerð byggði á nýgerðum Verka-
mannasambandssamningi nema
að kaupkröfur væru hærri. Með
því væri verið að gera tilraun til
að halda kaupmætti síðasta árs,
ná fram sömu starfsaldurshækk-
unum og annað ófaglært fólk
fékk á síðasta ári gegnum fast-
launasamninga og að halda því
eina yfirvinnuálagi sem VMSÍ
samdi um, án þess að þurfa að
breyta vinnutímanum.
Hún var sömuleiðis spurð,
hvort meira fengist út úr samning
sem gerður væri á Norðurlandi
og sagðist hún ekki í vafa um
það. „Hér ættu norðlenskir
vinnuveitendur að vera að semja
við norðlensk verkalýðsfélög. Því
ættum við að vera betur stödd en
aðrir á landinu því samningar fyr-
ir fiskvinnslu eru miðaðir við
7. umferö alþjóðlega skákmótsins á Akureyri:
Margeir vann Gurevich
- spennan magnast á toppnum
Slippstöðin hf.:
Yfirvinnu-
bann enn
í gildi
Uppsagnir á yfirvinnu starfs-
manna í Slippstöðinni hf. á
Akureyri hafa enn ekki verið
dregnar til baka, en Hákon
Hákonarson, formaður Félags
málmiðnaðarmanna, vonast til
að samkomulag þar að lútandi
geti tekist á næstu dögum.
Yfirvinna var felld niður hjá
' fyrirtækinu þann 29. febrúar sl.
og átti það að gilda um alla starfs-
mennina þótt einhver misbrestur
muni hafa orðið á því.
„Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um það að breyta því
ástandi þannig að allir færu að
vinna yfirvinnu, en við eigum von
á því að það gerist innan
skamms," sagði Hákon. SS
laun
verður á mánudaginn
ýkveðið meðaltal afkomu frysti-
húsanna. Ef Norðurland er tekið
út, verður meðaltalsafkoma mun
hærri og lít ég svo á að norð-
lenskir vinnuveitendur ættu þar
af leiðandi að að geta greitt mun
hærri laun.“
Nú hafa vinnuveitendur tekið
skýrt fram, að alls staðar verði
samið um það sama og sagði Þóra
að í því sambandi vildi hún vitna
í orð Gísla Konráðssonar í Degi í
gær. „Hann sagði að þeir gætu
ekki án verkafólks verið, en það
er hlutur sem allir gera sér grein
fyrir. Þess heldur hlýtur það að
vera þeirra hagur eins og okkar
að samið sé sem fyrst. Þeir hljóta
því að láta af þessum kjána-
skap,“ sagði Þóra að lokum. VG
Skinnauppboð í Danmörku:
Verð á minkaskinnum
svipað og í febrúar
„Þetta er æðisleg skák,“ var
meðal þess sem heyrðist hvísl-
að á meðan fylgst var með
skák þeirra Adorjans og
Jóhanns í 7. umferð alþjóðlega
skákmótsins á Akureyri í gær.
Skákin var mjög tvísýn og er
óhætt að segja að áhorfendur
hafi iðað í sætum sínum því
Jóhann hafði lengi mjög slaka
stöðu. Henni lauk með jafn-
tefli eftir 53 Ieiki en þá var
Jóhann kominn með þráskák.
Skák Margeirs og Gurevich var
sömuleiðis spennandi en henni
lauk með sigri Margeirs eftir 61.
leik. Margeir tefldi mjög vel og
töluðu skákskýrendur um stíl-
hreina skák.
Af öðrum skákum er það að
segja, að Tisdall vann Ólaf eftir
30 leiki. Karl Þorsteins og
Dolmatov sömdu um jafntefli og
hafði Karl heldur betri stöðu þeg-
ar skákinni lauk. Polugaevski
vann Helga og tefldi Polugaevski
rólega en traust. Hann skipti
drottningu fyrir tvo hróka og
þegar hann var að vinna riddara,
gafst Helgi uþp. Jón Garðar gafst
frekar óvænt upp fyrir Jóni L.
Jón Garðar tefldi mjög vel en
lenti í tímahraki. Eftir 41 leik
gafst hann upp, að því er virtist
án þess að gefa sér tíma til að líta
á stöðuna á borðinu.
Biðskák Margeirs og Helga var
tefld í gær, en fór aftur í bið eftir
60 leiki. Þeir tefla því áfram í
dag. Margeir virðist reyna að
tefla til sigurs en Helgi ætti að
geta haldið jafntefli.
í kvöld verður 8. umferðin
tefld. Þar mun athyglin beinast
helst að skákum Margeirs og
Polugaevski, og Gurevich og
Jóhanns. Þar verður hart barist,
en þessir fjórir skipa efstu sæti
mótsins og eru allir með fjóra og
hálfan vinning. Þarna verður teflt
til sigurs á báðum borðum.
Um helgina er von á Friðriki
Ólafssyni til Akureyrar. Hann
mun fylgjast með skákunum og
jafnframt vera með skákskýring-
ar fyrir áhorfendur. Viðræður
standa yfir við fleiri þekkta skák-
skýrendur sem e.t.v. munu láta
sjá sig á Akureyri um helgina.
VG
Polugaevski sigraði Helga í gær og
er einn af fjórum í efsta sæti
mótsins. Mynd: GB
í gær voru boðin upp minka-
skinn í uppboðshúsi danska
loðdýrasambandsins í Kaup-
mannahöfn. Ekki er enn Ijóst
hversu mikill hluti afskinnun-
um var frá Islandi en það verð-
ur Ijóst þegar uppboðum verð-
ur lokið.
Á febrúaruppboði hækkuðu
minkaskinn í verði um allt að
10% og svo virðist sem verð sé
mjög svipað á marsuppboðinu. í
dag verður seinni uppboðsdagur
minkaskinna á marsuppboðinu í
Kaupmannahöfn.
Á uppboðinu í gær var mest
selt af pastelskinnum en boðin
voru upp rúmlega 145.276 högna-
skinn og 147.720 læðuskinn.
Meðalverð fyrir högnaskinnin
var 216 danskar krónur en 156
danskar krónur fyrir læðuskinn.
Hæsta verð fyrir högnaskinn var
270 kr. danskar en hæst var greitt
220 kr. danskar fyrir læðuskinn-
in.
Að sögn starfsmanns hjá Sam-
bandi íslenskra loðdýraræktenda
er verð fyrir minkaskinn nú svip-
að og á febrúaruppboði en þó
lægra í sumum tegundum en
aftur á móti nokkuð hærra í öðr-
um tegundum. JÓH