Dagur - 17.03.1988, Blaðsíða 11
17. mars 1988 - DAGUR - t1
fþróffir
i
Bikarkeppnin í biaki:
Enn hafði Þróttur betur gegn KA
- sigraði liðið 3:1 í íþróttahúsi Hagaskóla í gærkvöld og er komið í úrslit
Þróttarar hefndu fyrir tapið
gegn KA í undanúrslitum bik-
arkeppninnar í blaki í fyrra og
sigruðu þá örugglega í Haga-
skóla í gær 3:1. Þróttarar
komu mjög ákveðnir til leiks
og var aidrei spurning hvoru
megin sigurinn lenti.
Það virðist hrjá KA liðið að ná
sér ekki almennilega á strik í
fyrstu hrinunni í leikjununt hér í
Reykjavík og leikurinn í gær var
engin undantekning þar á. Þrótt-
arar tóku strax öll völd á vellin-
um og virkuðu KA-strákarnir
þungir í þeirri hrinu. Henni lauk
því með auðveldum sigri Þróttar
15:4.
KA hresstist í annarri hrinunni
og átti Stefán Magnússon mjög
góðan leik í þeirri hrinu. Það
dugði nú ekki til gegn sterku
Þróttaraliðinu og urðu norðan-
menn að sætta sig við tap 15:9.
Besti leikkafli KA liðsins kom
í þriðju hrinunni og var gaman að
fylgjast með samvinnu þeirra
Stefáns, Hauks og Sigurðar Arn-
ar upp við netið. Þróttarar töldu
sig líklegast hafa unnið leikinn en
vöknuðu upp við vondan draum,
að KA var komið með örugga
forystu í hrinunni. Lokamínút-
urnar í hrinunni voru nokkuð
spennandi en KA náði að tryggja
sér sigur 15:12.
Handbolti 3. deild:
IH sækir Völs
unga heim
Völsungur og ÍH mætast í
kvöld á Húsavík í 3. deildinni í
handbolta. Leikurinn fer fram
í íþróttahöll staðarins og hefst
kl. 20. Leik þessum varð að
fresta fyrir skömmu, þar sem
engir dómarar mættu til leiks.
Nú á sem sé að reyna aftur og
vonandi ganga hlutirnir upp að
þessu sinni. IH er í toppbaráttu
deildarinnar og hefur nú alla
möguleika á því að vinna sér sæti
í 2. deild að ári. Liðið er með 19
stig í 2. sæti deildarinnar en ÍBK
er efst með 24 stig og hefur þegar
tryggt sér 2. deildarsæti.
Völsungar gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu Hafnfirðingana í fyrri
leik liðanna í Hafnarfirði og þeir
væru vísir með að endurtaka
þann leik í kvöld. ÍH-menn mæta
örugglega grimmir til leiks, því
enn getur IA náð 20 stigum og
komist upp fyrir ÍH ef hlutirnir
ganga ekki upp í síðustu tveimur
leikjum liðsins.
Þróttarar slógu KA-menn út úr bikarkeppninni í blaki í gærkvöld.
Knattspyrna:
Tveir Bretar
á Siglufjörð
Siglfirðingar hafa fengið til liðs
við sig tvo breska knattspyrnu-
Handbolti 4. flokks:
Urslitin á Akureyri
- Keppni hefst kl. 18 annað kvöld
Úrslitakeppnin í 4. flokki pilta
á íslandsmótinu í handknatt-
leik fer fram í Höllinni á Akur-
eyri um helgina. Keppni hefst
annað kvöld kl. 18 og lýkur á
sunnudag en þá verður leikið
um sæti frá 1-10. Tíu lið hafa
unnið sér rétt til þátttöku í
úrslitakeppninni og leika þau í
tveimur fímm liða riðlum. I A-
riðli leika Valur, FH, Víking-
ur, ÍA og Þór en í B-riðli
Fram, ÍR, Týr, KR og
Stjarnan.
Vegna nokkuð einkennilegra
Húsavíkur-
mótið í svigi
Á laugardag fer fram Ilúsavík-
urmót í svigi og fer keppnin
fram í Stöllunum. Keppni hefst
kl. 10 í eldri flokkunum en kl.
13 í yngri flokkunum.
Það er orðið ansi langt síðan
að haldið var skíðamót á Húsa-
vík en það er fyrst og fremst
vegna snjóleysis. Húsavíkingar
eiga marga mjög snjalla skíða-
menn og þá sérstaklega í flokk-
um unglinga og því má búast við
hörkukeppni.
Eldri keppendurnir geta látið
skrá sig í Gagnfræðaskólanum en
þeir yngri í Barnaskólanum.
reglna sem gilda um keppni yngri
flokka og samþykktar voru á síð-
asta ársþingi HSÍ, fara tvö efstu
liðin í A-riðli, (1. deild) með
aukastig í úrslitakeppnina, efsta
liðið 2 stig og næst efsta liðið 1
stig. Þetta þýðir það, að Valur
sem varð efst í A-riðli að loknum
þremur túrneringum, byrjar með
2 stig annað kvöld en Fram sem
varð í 2. sæti riðilsins byrjar með
1 stig.
„Þessi regla var samþykkt á
síðasta ársþingi HSÍ og ég verð
að segja að mér finnst hún ákaf-
lega undarleg. Ég get ekki skilið
það að lið sem leika í hinum ýmsu
•riðlum og deildum, skuli taka
með sér mismörg stig í úrslita-
keppni. Mér finnst þetta svo
vitlaust og tel að menn séu komn-
ir langt út fyrir það sem eðlilegt
getur talist í sambandi við þessa
yngri flokka túrneringar," sagði
Guðjón Guðmundsson aðstoðar-
landsliðsþjálfari og starfsmaður
HSÍ er hann var spurður um
þetta mál í gær.
„Það var talað um að í fyrra
hafi menn verið að hagræða því í
síðustu túrneringunni í hvaða
sæti þeirra félög lentu, uppá að
lenda í hagstæðum riðli í úrslita-
keppninni. Við erum frægir fyrir
það hér á landi að vera búa alltaf
til reglur sem allir eru svo hund-
óánægðir með þegar til kemur,“
sagði Guðjón einnig.
Sem dæmi má geta þess að ef
t.d. Þór sem leikur í sama riðli og
Valur, vinnur alla sína leiki í
riðlakeppninni, gæti liðið samt
þurft að gera sér að góðu að leika
um 3.-4. sætið. Þ.e. ef Valur ynni
aðra leiki sína og kæmi út með
hagstæðara markahlutfall. En
sem fyrr sagði fara leikirnir fram
í Höllinni og leikjaniðurröðunin
er þessi:
Föstudagur 18. mars:
Kl. 18.00 Valur- FH
Kl. 18.50 Fram-ÍR
Kl. 19.40 Víkingur-ÍA
Kl. 20.30 Týr-KR
Kl. 21.20 Valur-Þór
Kl. 22.10 Fram-Stjarnan
Laugardagur 19. mars:
Kl. 9.00 FH-Víkingur
Kl. 9.50 ÍR-Týr
Kl. 10.40 ÍA-Þór
Kl. 11.30 KR-Stjarnan
Kl. 12.20 Valur-Víkingur
Kl. 13.10 Fram-Týr
Kl. 14.00 FH-ÍA
Kl. 14.50 ÍR-KR
Kl. 15.40 Víkingur-Þór
Kl. 16.30 Týr-Stjarnap
Sunnudagur 20. mars:
Kl. 9.00 Valur-ÍA
Kl. 9.50 Fram-KR
Kl. 10.40 FH-Þór
Kl. 11.30 ÍR-Stjarnan
Leikið um sæti:
Kl. 13.20 9. sætið
Kl. 14.10 7. sætið
Kl. 15.00 5. sætið
Kl. 15.50 3. sætið
Kl. 16.40 1. sætið
menn sem hyggjast leika með
þeim í 2. deildinni í sumar.
Annar er Skoti en hinn Eng-
lendingur og hér eru á ferðinni
mjög snjallir leikmenn sem
koma til með að styrkja lið KS
verulega.
Annar þeirra hefur verið
atvinnumaður í Englandi og leik-
ið um 240 deildaleiki og þar af
nokkra með Leicester á meðan
félagið var í 1. deild og Eddie
May þjálfari KS, var þjálfari
Leicester.
Eddie May er nú mættur til
starfa á Siglufirði og hyggst hann
fara á fulla ferð með liðið við
æfingar í næstu viku. Siglfirðing-
ar eru nokkuð bjartsýnir fyrir
komandi keppnistímabil og
vænta rnikils af hinum nýja þjálf-
ara sínum. Þeir hafa nú eignast
grasvöll og ætla að leika á honurn
í sumar, eða um leið og hann
verður orðinn keppnisfær.
Það var aldrei spurning í
fjórðu hrinunni hvort liðið myndi
standa uppi sem sigurvegari.
Leifur Harðarson átti sinn best
leik í vetur með liðinu og Jason
Ivarsson kom mjög á óvart og átti
stórleik að þessu sinni. Við þessu
áttu KA-menn ekki svar og end-
aði hrinan 15:8.
Enn citt tapið var því stað-
reynd hjá KA-liðinu og eru nú
aðdáendur þess orðnir langeygðir
eftir sigri. Liðið virðist í einhverri
lægð um þessar mundir en þó sást
oft skemmtilegt spil á köflum hjá
því í þessum leik.
Þróttaraliðið er firnasterkt um
þessar mundir og þarf rnikið að
gerast til að þeir vinni ekki tvö-
falt í ár. AP
Akureyrarmót
í badminton
Akureyrarmótiö í badminton í
flokkum fullorðinna fer fram í
íþróttahúsi Glerárskóla á laug-
ardag og hefst keppni kl. 14.
Mótið er opið og er öllum
heimil þátttaka.
Keppt verður í einliðaleik,
tvíliðaleik og tvenndarleik.
Keppendum er skipt í flokka, A
og B flokk karla, öðlingaflokk og
kvennaflcrkk. Reiknað er með að
allir bestu badmintonspilarar
bæjarins mæti til leiks og því má
búast við skemmtilegri keppni.
Skíði:
Akureyrarmót
í flokki
13-14 ára
Um helgina fer fram Akureyr-
armót í alpagreinum í flokki
unglinga 13-14 ára. Keppt
verður bæði í svigi og stórsvigi
og að sjálfsögðu í Hlíðarfjalli.
Bláfjallagangan, fjórði hluti
íslandsgöngunnar fer fram í Blá-
fjöllum á laugardag. Skráning fer
fram í síma 91-656359, 91-687000
eða 91-37392. Þetta er jafnframt
næst síðasta gangan í íslands-
göngunni en sú síðasta fer fram á
Isafirði í lok apríl.
Úrslitakeppnin í blaki:
Síðustu leikimir
um helgina
- Mikil spenna í báðum flokkum
Urslitakeppninni í blaki lýkur
um helgina. Aðeins eru eftir
tveir leikir í hvorum flokki og
spennan í hámarki. í karla-
flokki standa Þróttarar best að
vígi en í flokki kvenna er um
einvígi að ræða á milli UBK og
Víkings.
Þróttarar geta tryggt sér 8.
íslandsmeistaratitilinn í röð í
karlaflokki með því að sigra IS á
laugardag en sigri ÍS hins vegar
standa íiðin jafnt að vígi. Á
sunnudag ter síðan fram síðasti
leikurinn í keppninni en þá mæt-
ast HK og KA í Digranesi kl. 18.
Sigri HK í þeinr leik og vinni ÍS
Þrótt, eru Þróttur, ÍS og HK öll
jöfn að stigum og því yrði að fara
fram aukakeppni á milli þessara
liða um íslandsmeistaratitilinn.