Dagur - 17.03.1988, Qupperneq 5
17. mars 1988 - DAGUR - 5
Ætlar Hagkaup að endur-
greiða neytendum Kringluna?
Gunnlaugur Juliusson:
Ætlar Hagkaup að niðurgreiða kjúklinga fyrir neytendur?
Peirri spurningu er varpað fram
æ ofan í æ upp á síðkastið hvort
ekki væri ódýrast fyrir neytendur
að flytja egg og kjúklinga til
landsins og leggja alla fram-
leiðslu innanlands niður sökum
óhagkvæmni.
í þessari umræðu hefur verið
velt upp ýmsum tölum þegar
menn vilja sanna mál sitt, eða
auka gildi þess sem sett er fram.
Nú síðast lætur forstjóri Hag-
kaups, Jón Ásbergsson, taka við
sig viðtal í DV þann 29. febrúar
þar sem hann fullyrðir að matar-
reikning neytenda megi lækka
um rúman milljarð króna ef inn-
flutningur á kjúklingum og eggj-
um verði gefinn frjáls. f>ar af vegi
kjúklingar 3/4 eða um 750 millj-
ónir og hefur margan munað um
minna. Þetta er svo ítrekgð af
blaðamanni DV í blaðinu í dag
(8.3.) þar sem reiknað er áfram
og farið að reikna áhrif þessa
innflutnings inn í framfærsluvísi-
töluna.
Það er oft þannig og eru til um
það fræg dæmi að með því að
endurtaka hlutina nægjanlega
oft, þá verða þeir smám saman
að staðreyndum í huga fólks,
óháð því hversu mikið rugl þeir
annars eru í upphafi.
Þessi umræða um verðlagningu
á innfluttum kjúklingum er að
verða dæmi um slíka hluti. Mér
sýnist að sé þetta dæmi reiknað í
fullu samræmi við raunveruleik-
ann þá sé hér á ferðinni tilraun
Hagkaupsmanna til að laga
samviskuna og endurgreiða í
matarbuddu alinennings hluta af
því fé sem neytendur hafa greitt
fyrir fjárfestingu í Kringlunni.
Framleiðslukostnaður í
Danmörku
í DV þann 17.2. sl. var lagður
fram útreikningur Neytenda-
samtakanna á kostnaði við fram-
leiðslu á kjúklingum í Dan-
mörku, sem byggðist á skýrslu frá
danska landbúnaðarráðuneytinu
og „Landsudvalget for fjerkræ“.
Þar kemur fram eftirfarandi:
Framleiðslukostnaður í Dan-
mörku pr. kg kjúklings er kr.
62,00.
Sláturkostnaður í Danmörku
pr. kg kjúklings er kr. 49,50,
samtals kr. 111,50.
Þetta eru tölur sem NS hafa
fengið frá virtum aðilum í Dan-
mörku, og sé ég ekki ástæðu til
að rengja þær, þrátt fyrir að af
hverju kílói er bóndanum ein-
ungis ætluð ein króna í laun og
launatengd gjöld.
Kjúklingar í Danmörku eru
ódýrir, enda skipulagning á kyn-
bótum, útungun eggja, fram-
leiðslu og slátrun fugla mjög góð
þar í landi og á við það sem gerist
best. Því er þessi verðlagning hæf
til viðmiðunar sem lágt verð.
Flutningur yflr hafíð
Samkvæmt upplýsingum frá Eim-
skipafélagi íslands þá myndi
flutningur á um 2500 tonnum af
kjúklingum á ári vera á bilinu 7-9
kr. pr kg. Erfitt er að gefa upp
eina tölu sem er algild, en hér er
reiknað með 8 kr. á kg og er inni
í henni flutningur, uppskipunar-
gjald og vörugjald.
Dreifingarkostnaður
Samkvæmt upplýsingum frá
framleiðendum þá hefur dreifing-
arkostnaður verið u.þ.b. 10% af
heildsöluverði. Hér er reiknað
með 325 kr. heildsöluverði en frá
því hafa framleiðendur gefið 10-
15% afslátt í stórmarkaðina. Nú
er varla ódýrara að dreifa erlend-
um kjúklingum en innlendum,
nema ef einungis á að selja þá
örfáum ákveðnum stórmörkuð-
um í Reykjavík og kannski
Akureyri og Keflavík, þá má
efalaust lækka þennan lið. Miðað
við að hér yrði innflutningur á
einni hendi (eða fárra), þá væri
hægt að ná þessum lið eitthvað
niður, og því er hann reiknaður á
kr. 20 hér. Þó fer þetta allt eftir
því, eins og áður segir hvort á að
selja kjúklingana í örfáum stór-
mörkuðum, eða í öllum matvæla-
verslunum. Einnig skiptir máli í
hve stórar einingar kjúklingunum
er pakkað og sá tími sem varan
liggur í geymslum. Einnig ber að
huga að því hvort erlendir selj-
endur væru tilbúnir til að „gefa“
eins langan greiðslufrest og fram-
leiðendur innanlands hafa gert.
Smásöluálagning
Eins og áður segir þá hefur verð-
ið upp á síðkastið verið miðað
við 325 kr. sem heildsöluverð.
Frá því er gefinn 10-15% afslátt-
ur í stærri verslunum, mismun-
andi eftir hve þýðingarmikið er
fyrir einstaka framleiðendur að
halda sölu þar.
Miðað við 15% afslátt er heild-
söluverð komið niður í 276 kr.
(325x0,85=276). Smásöluverð er
ca. 420 kr./kg. Þar af er greiddur
24% söluskattur. Smásöluverð
án söluskatts er því 339 kr. Því er
mismunur á heildsöluverði með
afslætti (276 kr.) og smásöluverði
fyrir söluskattsálagningu (339
kr.) eftirfarandi:
339-276=63 krónur = (smá-
söluálagning).
Hér er kannski um hámarks-
mismun að ræða þar sem gengið
er út frá hámarksafslætti. Því er
reiknað með að smásöluálagning
sé kr. 50 á hvert kíló að jafnaði,
hvort sem um innlendan eða
erlendan kjúkling er að ræða því
varla getur verið ódýrara að selja
innflutta kjúklinga en innlenda.
Tafla 1
Hvað kostar innfluttur
kjúklingur?
Hér á undan hefur verðmyndun
ímyndaðs kjúklings verið rakin
út frá staðreyndum hvað varðar
verð til framleiðenda í Dan-
mörku og sláturkostnað þar ytra
(ekki er reiknað með að flytja þá
inn lifandi), flutningskostnað,
dreifingarkostnað og smásölu-
álagningu.
Þá lítur dæmið þannig út: (Sjá
töflu 1)
Hér liggur niðurstaðan fyrir „í
grófum dráttum" eins og sagt er
þegar ákveðnir fyrirvarar eru
hafðir.
Umhyggja Hagkaups fyrir
neytendum
Jón Ásbergsson segist ætla að
selja kjúklingana á kr. 100 út úr
sinni búð. Til þess að geta gert
það þarf hann að gera eftirfar-
andi: (Sjá töflu 2)
Hann hefur reiknað með 2500
tonna sölu á ári, og ekki efa ég að
þeir útreikningar standist miðað
við gefnar verðforsendur, því
mun endurgreiðsla Hagkaups til
neytenda nema eftirtalinni
upphæð:
2500 tonn x 122,44 kr. pr. kg
eða samtals á ári rúnium 300
millj. kr.
Endurgreiðslu á Kringlunni
yrði því væntanlega lokið með
þessum hætti á 10-15 árum (fer
eftir hve háir vextir væru reikn-
aðir).
Þess ber að geta að lokum að
hér er gengið út frá að einungis sé
innflutt fyrsta flokks vara því
ekki ætla ég Hagkaupsmönnum
svo illt að reikna með að þeir hafi
í hyggju að flytja inn annars
flokks kjúklingadrasl sem hefur
ekki selst innan tilskilins tíma og
því varla talinn mannamatur
erlendis. Slík vara er víða til sölu
á stórlega niðursettu verði í borg-
um Evrópu, eftir því sem kunn-
ugir segja en það er annar hand-
leggur.
Gunnlaugur Júlíusson
kr. kr.
Verð til framleiðenda í Danmörku: 62,00
Sláturkostnaður í Danmörku: 49,50
- VASK í Danmörku (22%); -20,1! 91,39
Flutningur yfir hafið: 8,00
Dreifingarkostnaður: 20,00
Smásöluálagning: 50,00
Ófyrirséð (5%): 10,00 88,00
Söluskattur24%: 43,05
Samtals kr. 222,44
a) selja þá án álagningar kr. 50,00
b) greiða söluskattinn úr eigin vasa kr. 43,05
c) niðurgreiða þá niður í kr. 100 kr. 29,39
Samtals endurgreiðsla til neytenda kr. 122,44
Electric Theater
í Sjallanum föstudags- og laugardagskvöld
ásamt Hljómsveit Ingimars Eydal.
Glæsilegur þríréttaður matseðill.
Tafla 2