Dagur - 05.04.1988, Blaðsíða 3
5. apríl 1988 - DAGUR - 3
STAÐGREBSLU
BERAÐ
SUNDURLBA
og skila mánaðariega
Frá og með 1. apríl ber launagreið-
endum að skila sundurliðun á stað-
greiðslu opinberra gjalda launamanna.
Sundurliðuninni ber að skila mánaðarlega
með skilagrein vegna launagreiðslna fyrir
næstliðinn mánuð.
í fyrsta sinn skal skila 3 sundurliðunar-
yfirlitum þ.e. einu fyrir hvem mánuð (jan.,
febr., mars).
Heimilt er að senda útskrift úr launa-
bókhaldi launagreiðanda, þar sem fram
koma sömu atriði og krafist er á sundurlið-
unaryfirliti.
Eyðublað fyrir sundurliðun verður sent
launagreiðendum mánaðarlega. Skil
vegna reiknaðs endurgjalds eru óbreytt.
Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar.
Ekki er nægilegt að greiða greiðsluna í
banka eða póstleggja hana fyrir eindaga.
Greiðslan þarf að berast skrifstofu inn-
heimtumanns í síðasta lagi á eindaga.
Greiðslur sem berast eftir það munu sæta
dráttarvöxtum. Póstleggið því greiðslur
tímanlega.
Skilið tfmanlega -forðist öriröð
í
RÍKISSKATTSTJÓRI