Dagur - 05.04.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 5. apríl 1988
Langamýri í Skagafirði:
Organistar og
kirkjukórar þjálfaðir
Nokkra undanfarna vetur hef-
ur söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar Haukur Guðlaugsson
komið norður á Löngumýri til
að þjálfa organista og kirkju-
kóra í Skagafirði og nágrenni.
Var slík vika á Löngumýri dag-
ana 9. til 13. mars sl. í þetta
skipti var megináhersla iögð á
þjálfun kirkjukóranna og
mætti kirkjukórafólk til
Löngumýrar á hverju kvöldi til
æfinga. Flestir fyrsta kvöldið
57 manns, en nokkuð færra hin
kvöldin.
Kom þarna saman fólk úr 8
kórum í héraðinu og einnig
kirkjukór Siglufjarðar á laugar-
daginn. Siglfirðingarnir sáu sér
hins vegar ekki fært að vera með
á sunnudaginn, en þá var loka-
punktur vikunnar með messu í
Sauðárkrókskirkju. Par sungu
,kórarnir saman, organistar
FARARHEILL
TIL FRAMTÍÐAR
Ef þú hefur enn ekki fengið
bæklinginn heim til þín, sendu þá
nafn þitt og heimilisfang til: Nafn
Ég óska eftir að fá bæklinginn sendan:
ERTU BÚINN
AÐ LÆRA HEIMA?
w*að hefur alltaf margborgað
sig að læra vel heima. Þannig stendur
maður vel að vígi þegar að prófi
kemur!
8æklingurinn um nýju umferðar-
lögin er nú kominn inn á öll heimili á
landinu. LESTU HANN STRAX OG
FRESTAÐU ÞVÍ EKKI. HANN Á
ERINDI VIÐ ALLA! Efþú þekkir nýju
lögin ertu vel settur þegar á reynir, í
sjálfri umferðinni.
UMFERÐARRÁÐS,
UNDARGÖTU 46,
101 REYKJAVlK.
Heimilisfang _
Póstnr. / Staður
margra kóranna léku bæði forspil
og eftirspil í kirkjunni og kirkju-
kór Hofsóss flutti stólvers. Þá lék
einnig blásarasveit Tónlistarskóla
Sauðárkróks.
Að messu lokinni þáði kórfólk-
ið kaffiveitingar í Bifröst í boði
Sauðárkrókssafnaðar.
Þar kvaddi Eyþór Stefánsson
tónskáld og fyrrverandi organisti
Sauðárkrókskirkju sér hljóðs og
bryddaði upp á þeirri hugmynd
að kirkjukórasamband Skaga-
fjarðar yrði endurvakið. Það
voru einmitt Eyþór og Sigurður
heitinn Birkis fyrsti söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar sem endur
fyrir löngu beittu sér fyrir stofnun
sambandsins, en starfsemi þess
hefur nú legið niðri um nokkurt
skeið. Við þetta tækifæri sagði
Eyþór að eftir nokkra lægð hefði
starf kirkjukóranna f héraðinu
verið að eflast nú á síðustu árum,
einkum vegna þess að organist-
um á svæðinu hefði fjölgað, og
m.a.s. þar komið ungt og kraft-
mikið fólk til starfa. Því væri nú
lag að hleypa meira fjöri í þetta
og endurvakning kórasambands-
ins gæti eflaust leitt til enn blóm-
legri kórstarfsemi í héraðinu.
Sagðist Eyþór vera viss um að
kæmist þessi hugmynd sín í
framkvæmd, ætti samband kór-
anna góða menn að sem myndu
styðja starfsemi þess eins og þeir
mögulega gætu, og nefndi þar til
söngmálastjórann Hauk Guð-
laugsson, prófastinn séra Hjálm-
ar Jónsson og vígslubiskupinn á
Hólum séra Sigurð Guðmunds-
son. -þá
Blásarasveit Tónlistarskóla Sauðárkróks lék.
Eyþór Stefánsson bryddar upp á þeirri hugmynd að kirkjukórasamband
Skagafjarðar verði endurvakið.
í 15*%^ i 1
*
Kvennalistinn á Akureyri:
Lýsir stuðningi við
kjarabaráttu kvenna
Fundur Kvennalistans haldinn
á Akureyri 20. mars lýsir yfir
eindregnum stuöningi við
kjarabaráttu kvenna og fagnar
því að konur skuli vera farnar
að huga meira að samninga-
málum sínum og séu að athuga
hvort þær ættu að semja einar
og sér, fyrir sig.
Vonandi verður ekki langt að
!bíða þess að konur verði líka í
hópi vinnuveitenda við samninga
bæði á vegum ríkis, bæja og ein-
^staklinga. Þar munu þær vissu-
ilega geta látið gott af sér leiða
með því að auka hagsýni og
sparnað í atvinnulífinu og opin-
berum rekstri þannig að það
|Verði hægt að borga öllum
mannsæmandi laun.