Dagur - 05.04.1988, Blaðsíða 1
n
Filman þm
á skiliö þaö
besta!
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 Sími 27422 Pósthólf 196
Hraö-
framköllun
Opiö á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Öxnadalsheiði:
Vitlaust veður
- Bílum snúið frá í gær
Frá því á miðvikudag fyrir
páska og fram að miðjum degi
í gær urðu 14 árekstrar á Akur-
eyri að sögn lögreglunnar þar,
allir minniháttar. Þá voru 3
ökumenn teknir um helgina
grunaðir um ölvun við akstur
og 4 gistu í fangageymslum.
Mikið mæddi á lögreglunni við
umferðarstjórn í Hlíðarfjalli
enda gríðarlegur fjöldi bíla á
svæðinu.
Á Öxnadalsheiði skall á vit-
laust veður í gær og var hún ófær
sakir hálku og óveðurs en búið
var að ryðja snjó af veginum. Að
sögn varðstjóra hjá Akureyrar-
lögreglunni var maður frá þeirn í
gær á heiðinni við að snúa öllum
bílum við, en þó munu einhverjir
hafa brotist í gegn. Þá var Vatns-
skarðið orðið illfært í gær.
Hjá lögreglunni á Húsavík
fengust þær upplýsingar að
umferð hefði gengið ljómandi
yfir páskana, engin óhöpp og
rólegt á Húsavík og þar fyrir
austan. Dansleikur var í bænum
aðfaranótt mánudagsins og fór
hann vel fram. Töluvert var um
ferðamenn í Þingeyjarsýslum,
t.a.m. í Mývatnssveit, en allt
virðist hafa gengið klakklaust fyr-
ir sig. SS
Vörur Plastiðju Bjargs:
Lagabreytingu þarf
Eins og Dagur skýrði frá í síð-
ustu viku hefur störfum á
Plastiðjunni Bjargi á Akureyri
fækkað um tæpan helming frá
áramótum vegna tollabreyt-
inga stjórnvalda. Fjármála-
ráðuneytið synjaði beiðni um
að 17,5% vörugjald sem lagt
var á innflutning Bjargs á Tic-
ino raftenglum og klóm yrði
Aðstöðugjöld Álafoss:
Lánuð til
þriggja ára
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
nú tekið afstöðu til erindis frá
Álafossi hf. en vegna rekstrar-
erfiðleika í ullariðnaði fór
fyrirtækið fram á tímabundna
niðurfellingu aðstöðugjalda til
bæjarsjóðs.
Bæjarráð Akureyrar lagði til,
samkvæmt bókun sinni frá 24.
mars, að Álafossi hf. verði lánað
aðstöðugjald ársins 1988 á
skuldabréfi til þriggja ára. Lánið
verður verðtryggt samkvæmt
lánskjaravísitölu en vaxtalaust.
Lánsupphæðin greiðist í einu lagi
að liðnum þremur árum, en
skuldabréf af þessu tagi eru nefnd
„kúlubréf'\ EHB
fellt niður og samkvæmt upp-
lýsingum frá ráðuneytinu virð-
ist sem erfitt sé að fá undan-
þágur frá þessum lögum. Sam-
setningu á þessum vörum hef-
ur því verið hætt hjá Plastiðj-
unni.
Pegar tollabreytingarnar gengu
í gildi um síðustu áramót lagðist
17,5% vörugjald á allar raf-
magnsvörur, bæði þær sem fram-
leiddar eru hér innanlands og þær
■sem fluttar eru inn erlendis frá.
Reglur um þessa skattlagningu
eru mjög strangar og jafnframt er
erfitt að fá heimildir fyrir undan-
þágum. Að sögn Guðrúnar Ástu
Sigurðardóttur fulltrúa í tolla-
deild fjármálaráðuneytisins þarf
að koma til lagabreyting til þess
að hægt sé að fella niður þetta
vörugjald og málið þyrfti að taka
upp á Alþingi. Því virðist margt
benda til að ekki verði hægt á
næstunni að hefja að nýju sam-
setningu á rafvörunum hjá Bjargi
og þessar vörur verði eftirleiðis
fluttar samsettar frá Ítalíu.
Á sama tíma og störfum fækk-
ar hjá Bjargi er verið að koma
upp atvinnuleit fatlaðra á Akur-
eyri þar sem gert er ráð fyrir að
þeir einstaklingar sem á starfs-
þjálfun þurfa að halda geti fengið
hana á Bjargi. Ekki er því útséð
um hvernig þessari þjálfun verð-
ur sinnt þegar svo mjög fækkar
störfum hjá Plastiðjunni. JÓH
Já, aðsóknin í Hlíðarfjalli var góð um helgina. Fáir létu sig vanta í skíðalandið og jafnvel heimilishundarnir nutu
blíðunnar. Myrni: tlv
Hlíðarfjall:
Aðsóknarmetin slegin
- þúsundir gesta í skíðalandi Akureyringa um páskahátíðina
Fjöldi fólks brá sér á skíöi í
Hlíðarfjalli við Akureyri yfir
hátíðarnar og á föstudaginn
langa og laugardag var „super-
aösókn" eins og ívar Sig-
ntundsson forstöðumaður
Skíðastaða orðaði það. Hvorn
daginn voru um þrjú þúsund
manns á skíðum í Hlíðarfjalli
en á skírdag voru um 1000
gestir á skíðasvæðinu. Hins
vegar versnaði veður á páska-
dag og loka varð skíðasvæðinu
þann daginn en í gær var veður
skárra og komu þá um 500
gestir í brekkur Hlíðarfjalls.
Með þessu var slegið aðsókn-
armet í Hlíðarfjalli en um pásk-
ana í fyrra voru þar á þriðja þús-
und manns á einum degi þegar
flest var. Að sögn ívars Sig-
mundssonar var stór hluti gesta
nú aðkomufólk, mikill hluti af
suðvesturhorni landsins.
„Ég held að þetta bendi til þess
að skíði á Akureyri um páska er
orðin venja í hugum íslendinga.
Þaö sem Akureyringar þurfa að
gerá núna er að útvíkka þessa
venju og setja hér upp einhvers
konar skíðavertíð á vorin. Ef
Akureyringum dytti t.d. til hugar
að setja upp bæjarprógramm sem
samanstæði af föstum liðum í lík-
ingu við Týrólakvöldin í Austur-
ríki þá gæti það skipt miklu. Ég
held að nú sé að verða grunnur
fyrir eitthvað í líkingu við þetta,
skíðamenn finna að hér eru
aðstæður bestar og hingað vilja
þeir koma,“ segir Ivar. JÓH
Banaslys á
Tröllaskaga
Edduhótel:
Víða pottur brotinn í brunavömum
Að sögn Bergsteins Gizurar-
sonar brunamáiastjóra, er
ástand brunavarna á Eddu-
hótelum víða slæmt. Hann seg-
ir það kröfu Brunamálastofn-
unar ríkisins að öll hótel hafi
viðvörunarkerfi, en víða sé
pottur brotinn í þessum
efnum.
Bergsteinn segir stofnunina
gera þessa kröfu um alla þá staði
sem fólk gistir utan heimila
sinna. Með viðvörunarkerfi er átt
við stjórnborð eða stýritöflu, er
sýni hvar eldur er laus og geti
stjórnað opnun útgönguleiða,
eða lokað t.d. loftræstikerfum til
að hindra útbreiðslu reyks.
Skortur á þess konar viðvörun-
arkerfum er töluverður á þeim
Edduhótelum sem eru notuð sem
heimavistir á vetrum, þar sem
börn og unglingar eru læst inni
eftir ákveðinn tíma á kvöldin.
Þar vantar stýrikerfi sem geta
opnað útgönguleiðir ef eldur
brýst út.
Brunamálastofnunin er nú að
gera átak í þessum málum, reynt
er nú að einbeita sér að umbótum
í viðvörunarkerfum og útgöngu-
leiðum. Allar nýjar byggingar á
þessu sviði verða að fást sam-
þykktar hjá stofnuninni, en eftir-
lit með brunavörnum er í hönd-
um slökkviliðsstjóra og sveitaryf-
irvalda í hverju sveitarfélagi,
samkvæmt lögum. Undanfarið
hefur brunamálastofnunin aukið
að taka út byggingar og senda
slökkviliðsstjórum skýrslur.
Markmiðið er að safna saman
upplýsingum um allar þær bygg-
ingar sem flokkast undir hótel,
sjúkrahús og stofnanir sem fólk
dvelur á. Þessum upplýsingum
um ástand brunavarna á hverjum
stað verður síðan komið á fram-
færi til brunavarnayfirvalda á
hverjum stað. KJ
4 föstudaginn langa varð
banaslys á Tröllaskaga er vél-
sleði fór fram af 150 metra
háum hamravegg og valt niður
bratta fjallshlíð. Ökumaður
lést samstundis.
,Sex vélsleðamenn höfðu farið
upp á Tröllaskaga úr Grjótárdal
sem gengur til suðurs frá Hjalta-
dal í Skagafirði. Ætlunin var að
fara í stutta ferð en þessir menn
voru allir vanir þessu svæði. Af
einhverjum ástæðum beygði einn
sleðinn frá hópnum með fyrr-
greindum afleiðingum.
Maðurinn sem fórst var 22 ára
gamall og lætur eftir sig unnustu.
Ekki er hægt að skýra frá nafni
hans. JÓH