Dagur - 05.04.1988, Blaðsíða 10

Dagur - 05.04.1988, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 5. apríl 1988 AKUREYRARBÆR Atvinnuleit fyrir fatlaða Sérstakur starfsmaður sem sinna mun atvinnu- leit fyrir fatlaða tekur til starfa hjá Félagsmála- stofnun Akureyrar þriðjudaginn 5. apríl 1988 að Strandgötu 19b sími: 25880. Félagsmálastjóri. Einingarfélagar Eyjafirði! Almennir félagsfundir um nýgerðan kjarasamn- ing og atkvæðagreiðsla um hann verða haldnir sem hér segir: Hrísey miðvikud. 6. apríl kl. 13.00 Ólafsfirði miðvikud. 6. apríl kl. 17.30 Dalvík miðvikud. 6. apríl kl. 20.30 Grenivík fimmtud. 7. apríl kl. 17.00 Akureyri fimmtud. 7. apríl kl. 20.30 Nánar auglýst á vinnustöðum. Félagar ath. Samningurinn er til afhendingar á skrifstofum félagsins. Stjórnin. Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Fíat Uno 45 S ............. 1986 Mazda 626 2000 a/t ........ 1982 Citroen GSA Pallas ........ 1982 MMC Colt 1200 ............. 1982 Bifreiðarnar verða til sýnis í porti BSA verkstæðisins við Laufásgötu frá kl. 10-16 fimmtudaginn 7. apríl. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 17 sama dag til Svan- laugs á BSA. VERNDGEGNVÁ TRYGGING HF = Garðyrkjuskóli ríkisins Reykjum - Ölfusi Innritun fyrir námstímabilið 1988-1990 stendur nú yfir. Umsóknarfrestur er til 1. maí 1988. Umsóknir eru afgreiddar eftir því sem þær berast. Garðyrkjunámið er þriggja ára nám, bæði bóklegt og verklegt. Nýir nemendur eru teknir beint inn í II. bekk bók- námsdeildar, annað hvert ár, næst nú 1988. Inntökuskilyrði almennt eru að viðkomandi hafi lokið a.m.k. einni önn í framhaldsskóla og tólf mánaða verknámi. Boðið er upp á eftirfarandi námsbrautir: 1. Ylræktun og útimatjurtaræktun. 2. Garðplönturæktun. 3. Skrúðgarðyrkju, sem er lögfest iðngrein. 4. Umhverfis- og náttúruvernd, sem er ný náms- braut. Kennsla hefst 1988 ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur um þessa námsbraut er til 20. maí 1988. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans, í síma 99-4340. Skólastjóri. íþróttir Enska knattspyrnan: Man. Utd. kom á óvart - vann upp tveggja marka forskot á Liverpool á Anfield Efstu lið 1. deildar, Liverpool og Manchester Utd. mættust á annan í páskum á Anfield Road í Liverpool. Yfir 43.000 áhorfendur urðu vitni að frá- bærum leik þessara stórliða sem skiptu bróðurlega með sér sex mörkum eftir miklar svipt- ingar. Manchester liðið kom Liver- pool í opna skjöldu strax í upp- hafi með stórsókn sem endaði með marki eftir aðeins 2 mín. Fyrirliðinn Bryan Robson skoraði eftir sendingu frá Peter Davenport. Smám saman náði Liverpool þó tökum á leiknum og Peter Beardsley jafnaði með góðu marki eftir undirbúning Ray Houghton. 5 mín. fyrir lok fyrri hálfleiks náði Liverpool síð- an forystunni er miðvörðurinn Gary Gillespie skallaði inn eftir þunga sókn liðsins. Aðeins mín. leið af síðari hálfleiknum áður en Liverpool komst í 3:1. Steve McMahon sendi þá boltann með Colin Gibson IMan. Utd. fékk orð í eyra frá Alex Ferguson stjóra Utd. er hann var rekinn útaf í leiknum gegn Liverpool. þrumuskoti í mark Utd. af 25 metra færi og leikurinn virtist unninn fyrir Liverpool. Þegar síðan Colin Gibson var rekinn af leikvelli hjá Man. Utd. virtist sem vonir liðsins væru endanlega úr sögunni, en það undarlega gerðist. Þeir 10 leikmenn liðsins sem eftir voru, tvíefldust við mótlætið og Bryan Robson lagaði stöðuna með sínu öðru marki í leiknum, skot hans af um 20 metrum fór í Alan Hansen, breytti um stefnu og Bruce Grobbelaar í marki Liverpool hafði ekki möguleika á að verja. Við markið jókst enn krafturinn í leikmönnum Utd. og barátta þeirra bar árangur, því Gordon Strachan slapp í gegnum vörn Liverpool, hljóp inn í sendingu Davenport og skoraði jöfnunar- mark liðsins framhjá Grobbel- aar. Sanngjarnt jafntefli, en Liverpool hefur nú tapað 4 stig- um í tveim leikjum og hefur því enn ekki tryggt sér Englands- meistaratitilinn, en forskot liðs- ins er þó það mikið að Iiðið verð- ur ekki stöðvað úr þessu. Nottingham For. nældi sér í þrjú stig með því að sigra Ports- mouth á útivelli. Eina mark leiksins skoraði Terry Wilson á 67. mín. og er liðið nú komið upp í þriðja sætið í deildinni. Arsenal sigraði Norwich ör- ugglega á heimavelli með mörk- um Alan Smith og Perry Groves, en hvorugt liðið hefur fyrir miklu að berjast í deildinni. Það var mikið í húfi í leik Charlton og Watford, bæði liðin í bullandi fallhættu. Staða Wat- ford að verða vonlítil og allt útlit fyrir að Elton John verði að gera sér 2. deildar leiki að góðu næsta vetur. Charlton sigraði í leiknum með marki Robert Lee og virðist sem liðið hafi nú alla burði til að forðast fall í 2. deild. Derby vann mjög mikilvægan sigur á heimavelli sínum gegn Newcastle þar sem Paul Gas- coigne besti maður Newcastle liðsins var rekinn af leikvelli. Newcastle varð fyrri til að skora, en Phil Gee jafnaði fyrir Derby og Gary Micklewhite skoraði síð- an sigurmark liðsins. Oxford undir stjórn Mark Lawrenson virðist hins vegar vera að síga niður í 2. deild. Markalaust jafntefli á heimavelli gegn Southampton voru ekki góð úrslit fyrir liðið sem þarf að ná öllum stigunum úr leikjum sem þessum til að hafa möguleika á að hanga uppi. Annað markalaust jafntefli varð í leik West Ham gegn Ever- ton, slæm úrslit fyrir West Ham sem er nú á miklu hættusvæði í deildinni. Og Tottenham með alla sína stjörnuleikmenn gerir ekkert af viti þessa dagana. Tapaði í gær fyrir nágrönnum sínum Q.P.R. á gervigrasinu með tveim mörkum gegn engu. David Kerslake skor- aði bæði mörk heimamanna í leiknum og greinilegt að Terry Venables framkvæmdastjóri Tottenham verður að gera rót- tækar breytingar á Iiðinu fyrir næsta keppnistímabil. í 2. deild virðist Aston Villa heillum horfið, tapaði á heima- velli 1:2 gegn Oldham, en heldur enn efsta sætinu, þar sem Black- burn og Middlesbrough gerðu aðeins jafntefli í sínum leikjum. Blackburn komst í 2:0 heima gegn Shrewsbury, en gestirnir jöfnuðu í síðari hálfleiknum. Middlesbrough gerði hins vegar markalaust jafntefli á útivelli gegn Hull City. Bradford og Crystal Palace berjast um 5. sæt- ið í 2. deild, Bradford stendur nú betur að vígi eftir að hafa marið sigur á útivelli gegn Sheffield Utd., en á meðan varð Crystal Palace að láta sér lynda jafntefli á útivelli gegn Stoke City. Þ.L.A. Staðan í 1. og 2. deild ensku knattspyrnunnar er þessi: 1. deild: Liverpool 33 23- 8- 2 73:20 77 Man.United 35 18-12- 5 58:35 66 Nottm.Forest 3218- 9- 6 58:29 63 Everton 34 17-10- 7 46:21 61 Q.P.R. 34 18- 7- 9 42:32 61 Arsenal 34 16-10- 8 49:29 58 Wimbledon 33 13-11- 9 50:38 50 Sheff.Wed. 34 14- 4-16 41:54 46 C'oventrv 33 11-10-12 40:48 43 Tottenham 37 11-10-16 35:45 43 Newcastle 33 10-12-11 43:46 42 Southampton 35 10-12-13 41:46 42 Norwich 35 12- 6-17 36:45 42 Luton 30 12- 5-13 44:43 41 Derby 35 9-11-15 32:41 38 WestHam 34 8-13-13 33:45 37 Chelsea 35 8-12-15 44:60 36 Charlton 35 8-11-16 33:49 35 Portsmouth 34 7-12-15 29:53 33 Oxford 34 6-11-17 39:63 30 Watford 34 5- 9-20 20:44 24 2. deild: Aston Villa 40 20-10-10 65:40 70 Middlesbro 39 19-12- 8 54:28 69 Blackhurn 39 19-12- 8 61:47 69 Millwall 38 20- 7-1161:44 67 Brudford 38 19-10- 9 61:47 67 C.Palace 39 19- 8-12 78:56 65 Lecds 39 17-10-12 56:47 61 Man.City 39 17- 84 5 70:52 58 Stoke 40 16-10-14 47:49 58 lpswich 39 15- 9-15 49:45 54 Oldham 38 15- 9-14 59:58 54 Barnsley 38 15- 8-15 55:52 53 Plvmouth 36 15- 7-14 58:53 52 Hull 38 13-13-12 48:52 52 Swindon 37 15- 9-13 67:52 51 Leicester 38 12-10-16 52:55 46 W.B.A 39 12- 7-20 44:61 43 Birmingham 38 10-13-15 38:59 43 Shrewsbury 39 9-15-16 36:49 41 Bournem. 37 10- 9-18 48:60 39 Sheff.Utd. 39 11- 6-22 41:71 39 Reading 37 8- 9-20 39:63 33 Huddersf. 38 6- 9-23 37:85 27

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.