Dagur - 16.05.1988, Blaðsíða 8
8-DAGUR-16. maí 1988
%
16. maí 1988 - DAGUR - 9
Vítin sökktu Völsungum!
- Daníel Einarsson leikmaður IBK fékk rautt spjald
ÍSLANDSMÓTIÐ
Völsungar byrjuðu 1. deildina,
eins og í fyrra, með tapi gegn
Keflvíkingum. Það voru tvær
vítaspyrnur í seinni hálfleik
sem sökktu vonum Húsvíkinga
um stig suður með sjó.
„Það var einbeitingarleysi sem
skipti sköpum í þessum leik fyrir
okkur,“ sagði Jónas Hallgríms- I
son hinn marksækni leikmaður
Völsunga, sársvekktur eftir leik-
inn. „Við erum með mun betra
lið en í fyrra en okkur vantar
leikæfingu. Þegar búið er að
pússa leikmennina saman þá
verðum við ekki auðsigraðir," I
bætti hann við að lokum.
Það voru víst orð að sönnu að
einbeitingarleysi hefði orðið
Völsungum að falli í þessum leik.
Eftir að hafa haldið jöfnu fram
að leikhléi og átt síðan góð
marktækifæri í byrjun seinni hálf-
leiks komu tvær vítaspyrnur sem
Knattspyrna:
Ársþing SKÍ:
sökktu vonum þeirra græn-
klæddu.
Völsungar byrjuðu leikinn
mun betur en Keflvíkingar og
voru frískir fyrstu 15 mínútur
leiksins. Þá komu Suðurnesja-
piltarnir betur inn í leikinn og oft
skall hurð nærri hælum upp við
mark Völsunga. Haraldur Har-
aldsson, sem lék í stað Þorfinns
Hjaltasonar sem lá veikur heima,
var dálítið óöruggur í nokkrum
úthlaupum en varði síðan vel á
milli. Óli Þór Magnússon átti
þrjú mjög góð marktækifæri í
fyrri hálfleik en brást bogalistin
tvisvar og einu sinni bjargaði
stöngin Húsvíkingum. Lítið bar á
sóknarmönnum Völsunga í fyrri
hálfleik og var því jafnt ():() í hálf-
leik.
Völsungar komu grimmir til
leiks og Snævar Hreinsson gaf
tóninn strax á 2 mínútu með
hörkuskoti sem fór rétt yfir höfuð
Þorsteins Bjarnasonar markvarð-
ar ÍBK, en því miður líka yfir
markið. Nokkru síðar átti Guð-
mundur Guðmundsson ágætt
skot sem fór rétt framhjá.
Á 10. mínútu áttu Völsungar
besta marktækifæri leiksins fram
að því. Kristján Olgeirsson átti
góða sendingu á Jónas Hall-
grímsson á kantinum sem braust
vel inn úr horninu og sendi hann
fyrir á Aðalstein Aðalsteinsson.
Því miður negldi Aðalsteinn bolt-
ann beint á Þorstein markvörð
og þar með var komið að vendi-
punkti í leiknum.
ÍBK-leikmaðurinn Daníel Ein-
arsson var rekinn út af fyrir að vera
dónalegur við dómarann og hljóp
mikið kapp í bæði leikmenn og
áhorfendur við brottreksturinn.
Ragnar Margeirsson komst einn
inn fyrir vörn Völsunga en Har-
aldur varði meistaralega frá
honum. Nokkru síðar felldi Guð-
mundur Guðmundsson Keflvík-
inginn Óla Þór klaufalega innan
vítateigs og var því vítaspyrna
dæmd. Sigurður Björgvinsson
skoraði örugglega úr henni.
Nokkrum mínútum síðar var
önnur vítaspyrna dæmd á Völs-
unga og var það á hæpnum for-
sendum. Óli Þór datt í átökum
við varnarmenn Völsunga og
Friðgeir dómari hljóp aftur að
vítapunktinum. Sigurður skoraði
síðan úr spyrnunni.
Norðanmenn voru þó ekki á
því að gefast upp og skoraði
Snævar Hreinsson stórglæsilegt
mark með þrumuskoti af um 25
Meiðsli hijá Þórsara
Sigurður
kjörinn
foimaður
Halldór Áskelsson hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu en vcrður
að öllum líkindum klár í slaginn um næstu helgi. Hér er Halldór að kljást við
Erling Kristjánsson fyrirliða KA.
Þessi föngulegi hópur skíðamanna 13
metra færi. En það var skamm-
góður vermir því Ragnar Mar-
geirsson slapp í gegnum sókn-
djarfa miðherja Völsunga og
skoraði örugglega hjá Haraldi
markverði. Þar með voru úrslitin
ráðin 3:1 fyrir ÍBK.
Bestu menn Völsunga voru
Theodór Júlíusson sem var
traustur í vörninni og átti marga
skallaboltana, Jónas Hallgríms-
son sem barðist vel allan tímann
og einnig átti Eiríkur Björgvins-
son ágætan leik. Haraldur var
dálítið taugaóstyrkur í byrjun
leiksins en náði sér síðan á strik
og verður ekki sakaður um mörk-
in þrjú. Lítið bar á sóknarmönn-
um Völsunga í þessum leik. Bestu
menn Keflvíkinga voru þeir
Sigurður Björgvinsson og Óli Þór
Magnússon, þótt hann hefði
gléymt skotskónum heima.
Lið Völsunga: Haraldur Haraldsson.
Skarphéðinn ívarsson, Theodór
Júlíusson, Eiríkur Björgvinsson, Björn
Olgeirsson. Helgi Hclgason. Snævar
Hreinsson, Sigurður lllugason. Jónas
Hallgrímsson, Kristján Olgeirsson ( Stef-
án Viðarsson 35 mín), Aðalsteinn Aðal-
steinsson.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjarnason. Jóhann
Magnússon, Guðmundur Sighvatsson,
Daníel Einarsson, Jóhann Júlíusson,
Sigurður Björgvinsson, Peter Farrel,
Gestur Gylfason, Óli Þór Magnússon,
Ragnar Margeirsson. Grctar Einarsson.
Gul spjöld: Stefán Viðarsson Völs. og
Gestur Gylfason ÍBK.
Rautt spjald: Daníel Einarsson ÍBK.
Dómari: Friðgeir Hallgrímsson.
Línuvcrðir: Magnús Jónatansson og
Gunnar Guðmundsson.
AP
Snævar Hreinsson skoraði glæsilegt mark fyrir Völsung í Keflavík en það
dugði ekki til.
Trausti skoraði
á fyrstu mínútu
- er KR og Víkingur gerðu jafntefli
Þriðja viðureignin í 1. umferð
Sl-mótsins 1. deild í knatt-
spyrnu sem fram fór í gær, var
leikur KR og Víkings á gervi-
grasvellinum í Laugardal.
Leikurinn var nokkuð fjörugur
á köflum en honum lauk með
jafntefli, hvort lið skoraði 2
mörk.
Trausti Ómarsson leikmaður
Víkings, var ekki lengi að finna
leiðina í KR-markið í gær en
hann kom sínum mönnum yfir
strax á fyrstu mín. leiksins. Björn
Rafnsson jafnaði fyrir KR
skömmu síðar og fyrir hlé bætti
Sæbjörn Guðmundsson við öðru
marki fyrir KR og þannig var
staðan í hálfleik.
í síðari hálfleik bætti Trausti
síðan við sínu öðru marki og
jafnaði fyrir Víking. Fleiri urðu
mörkin ekki og þessi Reykjavík-
urfélög tvö, sem flestir spá góðu
gengi í sumar, fóru því á brott
með sitt stigið hvort.
Fjórði leikurinn í 1. umferð fer
fram í kvöld en þá mætast
íslandsmeistarar Vals og bikar-
meistarar Fram á gervigrasinu í
Laugardal og hefst leikur liðanna
kl. 20.
Uppskeruhátíð SRA:
Nokkrir leikmanna Þórs í
knattspyrnu eiga nú við meiðsli'
að stríða og óvíst er hvort þeir
verða klárir í slaginn á laugar-
dag, er liðið fær Fram í heim-
sókn í Sl-mótinu 1. deild.
Halldór Áskelsson hefur verið
meiddur í læri frá því í leiknum
við A.-Þjóðverja fyrir skömmu en
hann verður að öllum líkindum
orðinn góður fyrir laugardag.
Jónas Róbertsson á við hné-
meiðsli að stríða og þarf að fara
suður í sprautumeðferð. Ekki er
vitað hversu lengi Jónas verður
frá.
Þá hefur Kristján Kristjánsson
ekkert getað æft í þrjár vikur
vegna meiðsla í hásin og óvíst er
hvænær hann getur hafið æfingar
á ný. Litlar líkur eru þó á því að
hann verði orðinn leikhæfur um
næstu helgi. Árni Þór Árnason
fer í uppskurð í dag en hann er
að öllum líkindum með rifinn lið-
þófa í hné og óvíst er hversu
lengi hann verður frá.
Ölafur Þorbergsson er einnig
meiddur um þessar mundir.
Hann er með bólginn ökkla og
verður frá æfingum einhverja
daga eða vikur. Þá er Páll Gísla-
son einnig meiddur og hefur ekk-
ert getað æft að udanförnu. Blað-
inu er þó ekki kunnugt um það
hvers eðlis þau meiðsli eru, eða
hversu alvarleg.
Loks má geta þess að Bjarni
Sveinbjörnsson hefur lítið getað
æft að undanförnu vegna hné-
meiðsla sinna. Bjarni sem hefur
Tarið tvívegis undir hnífinn á
undanförnum árum, virðist ætla
að eiga enn lengur í sínum
meiðslum, þrátt fyrir aðgerðirnar
tvær og leikur varla með Þórslið-
inu í sumar.
frá Akureyri. Hlutverk okkar er
jú að gera okkar fólk þannig úr
garði að hægt sé að senda það í
landslið.
Árangur einstakra keppenda
hefur verið góður í vetur. Ef við
tökum skíðagöngu þá höfum við
menn eins og t.d. Hauk Eiríks-
son, hann hefur alveg staðið við
það sem við bjuggumst við og
gert betur því hann hefur mynd-
að góðan kjarna af göngumönn-
um sem virðast ætla að spjara sig.
í alpagreinum erum við búin að
vera með forystulið kvenna
undaníarin 10-12 ár, og þær
stelpur sem hafa verið í vetur eru
þær albestu sem við höfum haft í
mörg ár, og þær hafa líka staðið
sig vel á erlendum vettvangi.
Strákarnir eru líka að sækj i á í
karlaflokki og ég á von á að svo
verði áfram.
Hvað aldursflokkinn 13-15 ára
varðar þá erum við í samkeppni
við staði eins og ísafjörð og
Húsavík, það er alltaf keppni þar
á milli.
Rekstur SRA á síðasta ári var
upp á rúntar 3 milljónir króna, og
það er nokkuð mikið miðað við 4
mánaða rekstur á ári. Okkur hef-
ur gengið þokkalega að afla pen-
inga og ég vil nota tækifærið til að
þakka öllum sem hafa stutt
okkur,“ sagði Þröstur að lokum.
EHB
í gær var haldin uppskeruhátíö
Skíðaráðs Akureyrar að Skíða-
stöðum í Hlíðarfjalli. Afhent
voru verðlaun í öllum flokkum
innanhéraðsmóta SRA, gerð
var grein fyrir starfseminni á
vetrinum og rætt um helstu
málefni, svo sem æfingar í
sumar, fyrirhugaðar æfinga-
ferðir í Kerlingarfjöll og til
Austurríkis, þjálfaramál, skíða-
landsliðið o.s.frv. A fjórða
hundrað manns mættu á upp-
skeruhátíðina.
Þröstur Guðjónsson, formaður
SRA, sagði að sér fyndist starfið
hafa gengið nokkuð vel í vetur og
aðsókn í æfingar SRA hefði
aldrei verið meiri. SRA hefur
aldrei haft jafnmarga starfsmenn
á sínum snærum og í vetur, en þá
störfuðu 12 þjálfarar hjá ráðinu.
„Árangurinn var eins og búast
mátti við, og fólk frá SRA er í
fremstu víglínu í skíðaíþróttinni í
dag, t.d. er stór hluti landsliðsins
ára og yngri mætti á uppskeruhátíð SRA á Skíðastöðum í gær. Mynd: tlv
Norðurlandamót kvenna í blaki:
íslenska liðið
í neðsta sæti
Sigurður Einarsson úr Reykja-
vik var kjörinn formaður Skíða-
sambands íslands á ársþingi
þess sem frám fór um heigina.
Hann var kjörinn í stað Hregg-
viðs Jónssonar sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs.
Þá var Walter Hjartarson
kjörinn nýr í stjórn SKÍ í stað
Trausta Ríkharðssonar sem gaf
heldur ekki kost á sér en að öðru
leyti er stjórnin óbreytt. Á þinginu
kom fram að stefnt er að því að
halda þrjú alþjóðleg FlS-mót hér
á landi næsta vetur, á Akureyri,
ísafirði og í Reykjavík og ætlar
SKÍ að tryggja að lágmarksfjöldi
erlendra keppenda mæti á þau
mót.
Þá varð töluverð umræða um
Lottóið á þinginu en SKÍ fær nú
minni sneið af þeirri köku en
áður og eru ekki allir á eitt sáttir
um réttmæti þeirrar ákvörðunar.
Kvennalandslið íslands í blaki
hafnaði í neðsta sæti á Norður-
landamótinu sem fram fór í
Noregi um helgina og tapaði
liðið öllum sínum leikjum í
mótinu.
Finnar urðu Norðurlanda-
meistarar en Norðmenn urðu í
öðru sæti. Svíar höfnuðu í þriðja
sæti, Danir í því fjórða en íslend-
ingar ráku lestina.
Karlalið íslands í blaki keppti í
Luxemborg um og fyrir helgina
í keppni smáþjóða og hafnaði þar
í þriðja sæti. Liðið lagði lið San
Marinó að velli 3:2 í keppninni
um þriðja sætið. Heimamenn
sigruðu á mótinu en þeir unnu
Kýpurbúa í úrslitaleik, 3:2. Alls
tóku 9 þjóðir þátt í þessari
keppni og var leikið í tveimur
riðlum.
Góður árangur og mikill
áhugi síðasta vetur
Enska knattspyrnan:
Liverpool lagt á Wembley
- Óheppnin - dómarinn og Beasant sáu um það
Já, það urðu svo sannarlegai
óvænt úrslit í bikarúrslitaleiknum
á Wembley á laugardaginn. Wim-
bledon sem hóf að leika í deilda-
keppninni fyrir aðeins 11 árum
sigraði Englandsmeistara Liver-
pool með einu marki gegn engu og
kom þannig í veg fyrir að Liver-
pool tækist að verða fyrst enskra
liða til að sigra tvívegis í deild og
bikar á sama keppnistímabili. En
það var ekki burðug knattspyrna
sem 100.000 áhorfendum á Wem-
bley var boðið upp á. Hafi úrslita-
leikur Arsenal og Luton í deilda-
bikarnum verið sigur fyrir knatt-
spyrnuna, þá var þessi leikur hið
gagnstæða og óhætt að segja að
knattspyrnan hafl borið lægri hlut
í þessum leik sem jafnan er há-
punktur knattspyrnutímabilsins á
Englandi.
Liðin fóru rólega af stað í leikn-
um, en leikmenn Wimbledon þó
ákveðnari og greinilegt að þeir töldu
sig hafa sama rétt á bikarnum og hin-
ir frægu mótherjar þeirra. Stórkarla-
leg knattspyrna þeirra, háar og lang-
ar sendingar virtust fara í taugarnar á
liði Liverpool sem er þekkt fyrir
nettan og fallegan samleik. En smám
saman náði Liverpool betri tökum á
leiknum og minnstu munaði að liðið
næði forystu á 27. mínútu. Peter
Beardsley tók þá góða spyrnu, stakk
síðan boltanum inn til Ray Houghton
sem gaf fyrir á John Aldridge, David
Beasant markvörður Wimbledon
hálfvarði, en John Barnes sem fylgdi
inn var kominn úr jafnvægi og hitti
ekki boltann fyrir opnu marki.
Skömmu síðar gerði dómari leiksins,
Brian Hill afdrifarík mistök. Beards-
ley braust þá í gegn, lenti í samstuði
við Andy Thorn en komst þó áfram
og skoraði gott mark, en dómarinn
flautaði of snemma á brotið og mark-
ið var því dæmt af. Á 36. mínútu
kom síðan sigurmarkið í leiknum,
bakvörðurinn Terry Phelan braust
upp vinstri kantinn, en var hindraður
af Steve Nicol. Dennis Wise sendi
aukaspyrnuna fyrir mark Liverpool
og Lawrie Sanchez skallaði í mark,
óverjandi fyrir Bruce Grobbelaar
markvörð Liverpool. Alan Hansen
fyrirliði Liverpool var nærri að jafna
rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en Beas-
ant sá við honum.
Síðari hálfleikurinn var alger ein-
stefna að marki Wimbledon, leik-
menn liðsins lögðust í vörn og börð-
ust með kjafti og klóm. Gífurleg bar-
átta í leikmönnum liðsins sem hugs-
uðu um það eitt að halda marki sínu
hreinu. Flestar spyrnur þeirra lentu
upp í áhorfendastúkunni og leik-
menn liðsins spörkuðu í allt sem
hreyfðist. Liverpool fékk þó gullið
tækifæri til að jafna leikinn snemma í
síðari hálfleiknum er John Aldridge
komst í gegn, en var felltur af Clive
Goodyear og vítaspyrna dæmd.
Aldridge tók spyrnuna sjálfur, en
Beasant gerði sér lítið fyrir og varði
glæsilega. Þar fór besta tækifæri
Liverpool í súginn og þrátt fyrir
þunga sókn liðsins til loka leiksins
tókst leikmönnum liðsins ekki að
jafna og óvæntur sigur Wimbledon í
höfn.
Lið Liverpool náði sér aldrei á
strik í leiknum ef frá er talinn síðari
hluti fyrri hálfleiks. Beardsley lék vel
í fyrri hálfleik, en gekk lítið í þeim
síðari. John Aldridge sást ekki í
leiknum og var skipt út af fyrir Craig
Johnston. Jan Molby kom einnig inn
á fyrir Nigel Spackman, en tókst ekki
að breyta neinu.
Ray Houghton og Steve McMa-
hon hafa oft leikið betur, en mestu
munaði um að John Barnes var
aðeins skugginn af sjálfum sér. Lítið
sást til hans, þrátt fyrir að hann léki
gegn Goodyear, þungum og seinum
bakverði sem hann hefði leikið sér
að á góðum degi. Leikmenn liðsins
virtust óttast hina harðskeyttu leik-
menn Wimbledon, spiluðu of flatt og
gerðu lítið af því að reyna að ein-
leika inn í teiginn.
En lið Wimbledon er ekkert lamb
að leika við og margir leikmenn liðs-
ins óyndislegir mótherjar. Það sýndu
þeir í leiknum og tókst að sigra þrátt
fyrir að Liverpool ætti 90% af leikn-
um. Fyrirliðinn og markvörður liðs-
ins Beasant átti frábæran leik. Mjög
stór og öruggur í teignum þar sem
hann ríkti eins og kóngur í ríki sínu.
Miðvörðurinn Eric Young átti einnig
mjög góðan leik og steig ekki rangt
niður fæti allan leikinn. í framlín-
unni var John Fashanu mjög sterkur
og vann nánast alla skallabolta sem
hann fór í. Þessir þrír risar í liðinu
báru öðrum fremur uppi liðið, en
hinn smávaxni Dennis Wise var
einnig mjög góður. Liðið notaði
báða varamenn sína í leiknum eins
og Liverpool, Laurew Cunningham
og John Scales komu inn á fyrir þá
Allan Cork og Terry Gibson.
En maður leiksins var án efa mark-
vörður Wimbledon, David Beasant
sem kórónaði daginn með því að
handsama FA-bikarinn öruggum
höndum frá Díönu prinsessu við
mikinn fögnuð sinna manna í leiks-
lok. Glæsilegur árangur hjá fram-
kvæmdastjóranum Bobby Gould
sem tók við liðinu í haust og þjálfar-
anum Don Howe.
Úrslitin eru þó mjög ósanngjörn,
en óvænt úrslit sem þessi gera knatt-
spyrnuna eins skemmtilega og raun
ber vitni þó að fylgismenn Liverpool
eigi örugglega erfitt með að skilja
það þessa dagana. ÞLA
Úrslitakeppnin:
Chelsea byrjar vel
- sigraði Blackburn af öryggi 2:0 - Bradford sigraði heima
í gær hófst úrslitakeppnin um laus
sæti í 1., 2. og 3. deild. Fyrri leikir
liðanna í undanúrslitum, en síðari
leikirnir verða á miðvikudaginn.
Mesta athygli vakti í gær viður-
eign Blackburn á heimavelli gegn
1. deildarliði Chelsea sem hefur
átt mjög erfltt uppdráttar í vetur.
Fyrir þennan leik hafði Chelsea
aðeins sigrað einu sinni í síðustu 25
deildarleikjum sínurn. Það var ekki
sjálfsöruggt lið er mætti til leiks gegn
Blacburn og ekki bætti úr skák að
tveir af leikmönnunr liðsins meidd-
ust, þeir Tony Dorrigo og John
Gordon Durie hefur verið iðinn við að
skora fyrir Chelsea að undanförnu og
skoraði niikilvægt niark gegn Blackburn
í gær.
Bumstead. En þrátt fyrir það sýndi
liðið ágætan leik og sigraði verð-
skuldað með tveim mörkum gegn
engu og liðið hefur því góða mögu-
leika á að halda sæti sínu í 1. deild.
Blackburn hóf leikinn ágætlega og
fékk tvö góð marktækifæri í fyrri
Úrslitin Úrslit leikja um og fyrir helgina í
ensku knattspyrnunni urðu þessi:
FA-bikarinn úrslit: Liverpool-Wimbledon 0:1
1. dcild í vikunni: Liverpool-Luton 1:1
Man.United-Vimbledon 2:1
Luton-Nott.Forest 1:1
Nott .Forest-Luton 1:1
Úrslitakeppnin: Um sæti í 1. deild: Blackburn-Chelsea 0:2
Bradford-Middlesbro 2:1
Um sæti í 2. deild:
Notts County-Walsall 1:3
Um sæti í 3. deild:
Swanesa-Roterhain 1:0
Torquay-Scunthorpe 2:1
hálfleik. Chris Price og Howard
Gayle skölluðu báðir framhjá úr
góðum færum. Þá vildi liðið fá víta-
spyrnu er Simon Garner var felldur
af Colin Pates í vítateig, en dómar-
inn vildi ekkert sjá. Það var síðan á
2. mínútu síðari hálfleiks að Chelsea
náði forystu í leiknum, Kevin Wilson
sendi þá góða sendingu fyrir markið
og Gordon Durie skoraði með
hörkuskoti, óverjandi fyrir Terry
Gennoe í marki Blackburn. Chelsea
bætti síðara marki sínu við á 70. mín-
útu, David Mail mistókst þá sending
sem lenti hjá Pat Nevin útherja
Chelsea, hann var ekki að tvínóna
við hlutina, heldur sendi knöttinn
með þrumuskoti af 25 metra færi í
bláhornið uppi á marki Blackburn.
Það verður því erfitt fyrir Black-
burn að vinna upp þetta forskot
Chelsea í síðari leiknum á miðviku-
dag. Bradford náði að knýja frant
sigur á heimavelli gegn Middles-
brough með tveim mörkum gegn
einu, en leikmenn Middlesbrough
eiga síðari leikinn á heimavelli og
ættu því að geta afgreitt Bradford.
Walsall kom mjög á óvart með 3:1
sigri á útivelli gegn Notts County í
keppni um sæti í 2.deild, en baráttan
um sætið í 3. deild er hörð, Swansea
og Torquay sigruðu bæði með eins
marks mun á heimavelli sínum.
ÞLA