Dagur - 16.05.1988, Blaðsíða 7
16: maí 1988 - DAGUR - 7
Leiftursmenn komust á
blað í sínum fyrsta leik
- gerðu
markalaust jafntefli við Skagamenn í Ólafsfirði í gær
Það ríkti sannkölluö hátíðar-
stemmning í Ólafsfirði í gær er
Leiftur og ÍA mættust í 1.
umferð SL-mótsins 1. deild í
knattspyrnu. Leiknum lauk
með markalausu jafntefli og
því komust nýliðar Leifturs á
blað strax í sínum fyrsta leik en
liðið leikur nú í 1. deild í fyrsta
sinn í sögu félagsins. Fjölmarg-
ir áhorfendur víðs vegar af
Norðurlandi fylgdust með
leiknum. Leikurinn var ekkert
sérlega vel leikinn en þó fengu
bæði liðin ágæt marktækifæri
sem ekki nýttust.
Skagamenn byrjuðu leikinn og
þeir höfðu undirtökin fyrstu 10
mín., án þess þó að skapa sér
nein marktækifæri. Heimamenn
voru heldur seinni í gang en þeg-
ar mesti taugaspenningurinn var
farinn af leikmönnum liðsins
tóku þeir völdin á vellinum. Strax
á 10. mín.varð Sigursteinn Gísla-
son að yfirgefa Ieikvöllinn vegna
meiðsla, eftir að hafa lent í sam-
stuði við einn leikmanna Leifturs
og kom Hafliði Guðjónsson inn á
í hans stað.
Leiftursmenn léku undan vindi
í fyrri hálfleik og þeir fengu tvö
góð marktækifæri. Það fyrra á 22.
mín. er Steinar Ingimundarson
fékk góða sendingu inn fyrir vörn
í A en gott skot hans frá vítateig
fór rétt yfir. Skömmu síðar
komst Hörður Benónýsson inn
fyrir vörn ÍA en gott skot hans
fór undir Ólaf Gottskálksson
markvörð ÍA og í hliðarnetið.
Síðustu mín. fyrri hálfleiks, jafn-
Hörður Benónýsson var nærri því að skora fyrir Leiftur gegn í A í gær en skot hans hafnaði í hliðarnetinu.
Mynd: TLV
Sigurður Lárusson þjálfari og leikmaður ÍA:
„Á að banna möl í 1. deild“
Óskar Ingimundarson:
Nokkuð sáttur
við úrslitin
aðist leikurinn á ný en í hálfleik
hafði hvorugu liðinu tekist að
skora en þó voru heimamenn
mun nær því en gestirnir.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
komst Steinar upp að endamörk-
um Skagamanna, gaf síðan góð-
an bolta fyrir markið en Haf-
steinn Jakobsson hitti ekki bolt-
ann í ákjósanlegu færi. Hættuleg-
asta marktækifæri Skagamanna
fékk Aðalsteinn Víglundsson á
58. mín. Hann skaut góðu skoti
frá vítateig sem Þorvaldur Jóns-
son varði mjög vel en hann hélt
ekki boltanum og Árni Stefáns-
son náði boltanum á undan Har-
aldi Ingólfssyni og bjargaði í
horn. Upp við mark Skagamanna
reyndi Steinar hjólhestaspyrnu
eftir ágæta fyrirgjöf Lúðvíks
Bergvjnssonar en án árangurs,
Síðasta marktækifæri leiksins
fengu Skagamenn síðan skömmu
fyrir leikslok. Karl Þórðarsön
fékk þoltann í vítateig en ágætt
skot hans hafnaði í Guðmundi
Garðarssyni varnann.an.ni Leift-
urs. ' ■ ■
Léikmönnufn liðanna 'tókst ’
ekki aö koma boltanum í markiö •
og úrslitin því.():(). sein yerða áð
teljast nokkuö sanngjörn úrslit,
Leiftiirsrúenn þörðust áf krafti og '
sýndu það’ög sönntiðu' 'að-þeir
eiga eftir að gera.-góða hluti í
sumar. Leikmenn liðsins áttu
flestir ágætan dag en að öðrurri
ólöstúðum, var Þorvaldúr márk-
vörður bestur.
Skagámenn léku án Ólafs
Þórðarsonar sem lagðist í. rúmið
með flensu á laugardag og mun-
aði um minria fyrir liðið. Ólafur
Gottskálksson markvörður, var
besti maður liðsins en einnig átti
Sigurður Már Harðarson sem
kom inn á sem varamaður, ágæta
spretti. Til gamans má geta þess
að þeir Ólafur og Sigurður léku
sem kunnugt er með KA á síð-
asta keppnistímabili.
Eysteinn Guðmundsson
dæmdi leikinn og fórst honum
það vel úr hendi.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Gúst-
av Ómarsson, Árni Stefánsson, Sigur-
björn Jakobsson, Guðmundur Garðars-
son. Friðgeir Sigurðsson, Hafsteinn
Jakobsson, Halldór Guðmundsson, Lúð-
vík Bcrgvinsson (Róbert Gunnarsson
vm. á 80. mín), Steinar Ingimundarson,
Hörður Benónýsson (Óskar lngimundar-
son vm. á 80. mín).
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Heimir
Guðmundsson, Mark Duffield, Sigurður
Lárusson (Sigurður Már Harðarson vm.
á 55. mín.), Sigurður Jónsson, Guðbjörn
Tryggvason, Karl Þórðarson, Haraldur
Ingólfsson, Haraldur Hinriksson, Aðal-
steinn Víglundsson, Sigursteinn Gíslason
(Hafliði Guðjónsson vm. á 10. mín.).
„Þaö er svo sem lítið hægt að
segja um þennan leik. Eg hef
aldrei á mínum ferli séð góðan
fótbolta leikinn á malarvelli,“
sagði Sigurður Lárusson þjálf-
ari og leikmaður í A eftir leik-
inn við Leiftur í gær.
„Þetta var þóf og kýlingar um
allan völl og lítið um fótbolta.
Leiftursmenn verjast ágætlega en
þeir þruma boltanum sem lengst
fram og það er árangursríkt. Ég
átti von á erfiðum leik eins og
raunin varð á. Annars er mín
skoðun sú, að það eigi að banna
malarvöll í 1. deild. Það á að
byrja keppnina seinna, þegar
grasvellirnir eru tilbúnir og liðin í
1. deild skikkuð til þess að leika á
grasi.“
- Ertu feginn því að bera búinn
að leika hér í Ólafsfirði?
„Já það er gott að vera búinn
hér en annars tekur svo sem ekk-
ert betra við. Við eigum að leika
á Húsavík á laugardag og það
verður örugglega erfitt
líka,“ sagði Sigurður einnig.
„Við fengum færi til þess að
skora mörk en í heildina er ég
nokkuð sáttur við þessi úrslit,“
sagði Oskar Ingimundarson
þjálfari og leikmaður Leifturs
eftir leikinn í gær.
„Þetta var mikill baráttuleik-
ur og kannski frekar lítið um
fótbolta. Ég átti von á erfiðum
leik og við bjuggum okkur und-
ir það. Strákarnir voru mjög
taugaspenntir fyrir leikinn en
þetta á eftir að lagast í næstu
leikjum og ég held að memiháfi
séð hér í dag að þetta er hægt.
En við vituin eiginlega ekki á
hverju við eigum von í sumar,
þar seni við þekkjum líitid til
binna liðanria.“ - -
Þorvaldur Jónsson:
„Ég er að mörgu leyti ánægður
með þessi úrslit. Það er mjög
móralskt iýrir okkur að hafa
náð í stig í dag og það hvetur
okkur til enn frekari dáða,“
sagði Þorvaldur Jónsson fyrir-
liði Leifturs.
„Við eigum eftir að laga ýmsa
hluti en að fá stig í dag er vissu-
lega örvandi. Við fenguin ekki
síður færi en þeir og hefðuin
alveg eins getað unnið leikinn.“
- Hvernig líst þér á leikinn
við Val á fimmtudaginn?
„Það verður örugglega erfið-
ur lcikur en við munuin leggja
okkur alla fram í þeim lcik.“
Árni Stefánsson:
„Ég er nokkuð ánægður með
. úrslit leiksins en hefði þó viljað
sigur,“ sagði Árni Stefánsson
varnarmaður Leifturs.
„Þessi úrslit sýna strákunum
að við stöndum öðrum liðuin
jafnfætis og ég er sannfærður
um það að við eigum eftir að
gera góða hluti i sumar. Ég er
því mjög bjartsýnn á framhald-
ið.“