Dagur - 16.05.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 16. maí 1988
Ferðamálaráð fslands:
300 þúsund erlendir
ferðamenn árið 1993?
í ársskýrslu Ferðamálaráðs
Islands kemur fram að á árinu
1987 heimsóttu 129.315 ferða-
menn Island og nemur aukn-
ingin 13,9% miðað við árið
1986. Þeim hefur fjölgað um
44.025 frá árinu 1984 eða uin
51,6% og með sama áfram-
haldi munu 196.000 útlending-
ar heimsækja landið árið 1990
og tæplega 300.000 árið 1993.
Hvernig getum við tekið á
móti öllu þessu fólki?
í skýrslunni er bent á að hér sé
aðeins um vangaveltur að ræða,
raunveruleikinn gæti orðið allt
annar, og það er skoðun Birgis
Þorgilssonar ferðamálastjóra að
erlendum ferðamönnum muni
Davíðshús:
íbúð fyrir lista-
og fræðimenn
Menningarmálanefnd Akur-
eyrar hefur um nokkurt skeið
velt vöngum yfir því hvernig
nota mætti nýlega standsetta
íbúð í kjallara Davíðshús.
Nefndin hefur nú ákveðið að
íbúðin verði nýtt á svipaðan
hátt og sumarhús starfsmanna-
félaga.
íbúðin í Davíðshúsi mun
standa lista- og fræðimönnum til
boða í 1-6 mánuði og verður sú
dvöl ókeypis. Umsóknir skulu
sendar Ingólfi Ármannssyni,
skóia- og menningarfulltrúa, en
menningarmálanefnd ráðstafar
íbúðinni hverju sinni. SS
Skólanefnd VMA:
Mælt með Garðarí
Lárussyni í stöðu
áfangastjóra
Skólanefnd Verkmenntaskól-
ans á Akureyri hefur tekið fyr-
ir umsóknir um stöður sem
auglýstar voru við skólann. í
framhaldi af því mælir nefndin
með Garðari Lárussyni í stöðu
áfangastjóra frá 1. júní nk. til
eins árs.
Þá mælir skólanefndin með
Hauki Harðarsyni í stöðu
kennslustjóra á viðskiptasviði frá
1. ágúst nk. til eins árs. Nefndin
samþykkir að endurráða Nönnu
Þórsdóttur kennslustjóra á upp-
eldissviði til eins árs og Hálfdán
Örnólfsson umsjónarmann öld-
ungadeilda til eins árs. SS
fjölga minna á þessu ári en verið
hefur.
1 „Nokkur óvissa ríkir nú um
afkomu ferðaþjónustunnar á
árinu 1988. Hvorutveggja er að
mikil aukning erlendra ferða-
manna á undanförnum árum vek-
ur spurningar um hvort sú aukn-
ing haldi áfram, og verðhækkanir
á Islandsferðum erlendis, í kjölfar
fastgengisstefnu og verðbólgu,
gerir markaðssetningu og sölu
erfiðari nú en oft áður, í harðri
samkeppni við orlofsferðir til
annarra landa þar sem verðlag er
stöðugt," segir Birgir í skýrsl-
unni.
Gjaldeyristekjur af þjónustu
við erlenda ferðamenn á árinu
1987 voru 5.379.000 kr. og er
aukningin frá árinu 1986 26,8%.
Sé ekki tekið tillit til meðalvið-
skiptagengis er aukningin milli
ára 30,5% og við tölur ársins
1987 má síðan bæta svonefndum
duldum tekjum sem lauslega
SS
sem
áætlað nema 600.000 kr.
Hvar er drottning drauma
minna, dýrlegasta veran á
jörðinni? Er hún horfin
mér að eilífu? O nei, ó neil
Mývatnssveit:
Reyna að stýra umferð ferða-
manna um viðkvæmar náttúruminjar
- vinnuhópur á vegum Ferðamálafélagsins og Náttúruverndarráðs að störfum
„Gífurlegt álag er á stöðum
eins og Dimmuborgum og
Höfða ásamt nokkrum öðrum
svæðum í Mývatnssveit. í
Dimmuborgum reynum við að
halda fólki á vissum göngustíg-
um til þess að landið troðist
ekki niður að óþörfu, og merk-
ingar ásamt köðlum forða því
að fólk lendi í ranghölum. Þá
verður komið fyrir upplýsinga-
töflu við hliðið til að sýna
gönguieiðir í Dimmuborgum,“
sagði Þóroddur Þóroddsson
hjá Náttúruverndarráði.
Áhugamenn um ferðamál í
Mývatnssveit stofnuðu á sínum
tíma Ferðamálafélag Mývatns-
sveitar, og er tilgangur félagsins
m.a. að efla ferðamannaþjónustu
á svæðinu en stuðla jafnframt að
náttúruvernd, og hefur mikið og
náið samstarf því verið við Nátt-
úruverndarráð.
Þóroddur sagði að ætlunin væri
að bjóða upp á þrjár merktar
gönguleiðir í Dimmuborgum, og
gefa jafnframt út leiðbeininga-
bækling. Þess væru ýmis dæmi að
ferðamenn villtust í Dimmuborg-
um, og því væri nauðsynlegt að
hafa leiðbeiningar sem greinileg-
astar. Eitt af því, sem gert hefur
verið, er að sett voru upp skilti
Áburðarsala
við Glerárósa
Áburðarsala er hafin í áburð-
arskemmunni við Glerárósa á
Akureyri, sama stað og undan-
gengin ár. Salan er opin frá kl.
8 til kl. 5 alla virka daga en
sr1 hádeginu.
Til sölu er gaTÍ*f ^ur^ur_
auk þess mosaeyðir, þörung^"
mjöl, áburðarkalk og fleira.
Áburðarsalan við Glerárósa
verður væntanlega opin til mán-
aðamóta en eftir að henni verður
lokað verður hægt að fá afgreiddan
áburð í fóðurvörudeild KEA á
Akureyri. JÓH
með örvum í girðinguna
umhverfis Dimmuborgir, þar
sem ferðamenn sjá rétta átt að
hliðinu.
„Við sjáum að nauðsynlegt er
að taka á málum á vissum stöðum
eins og í Dimmuborgum og
Höfða. Það hafa t.d. myndast
óskemmtilegir göngustígar í Arn-
arbæli og í Hverfjalli, en áhugi
fólks á að ganga á Hverfjall hefur
stóraukist. í Námaskarði hefur
verið reynt að halda ferðamönn-
um á slóð sem liggur suður á fjall-
ið að útsýnisskífunni, og reynt er
að koma í veg fyrir akstur utan
vega, en menn hafa sporað
brekkurnar heldur leiðinlega á
mótorhjólum og fleiri farartækj-
um,“ sagði Þóroddur.
Vinnuhópur á vegum Náttúru-
verndarráðs og Ferðamálafélags
Mývatnssveitar vinnur nú að
ferða- og umhverfismálum í
Mývatnssveit, en Jón Illugason í
Eldá veitir Ferðamálafélaginu
forstöðu. EHB
Tiyggingar dráttarvéla:
Mikil hækkun iðgjalda
Lengi hefur bændum þótt, að
eitt það ódýrasta sem þeir
keyptu, vegna búrekstursins,
væru ábyrgðartryggingar drátt-
arvéla en nú hafa orðið þar
nokkur umskipti. Ekki svo að
skilja að þarna er verið að
greiða iðgjöld af tryggingum
sem standa fyrir verulegum
fjárhæðum ef vélarnar valda
tjóni. En hverjar skyldu þær
Ijárhæðir vera?
Algengt iðgjald af ábyrgðar-
tryggungu dráttarvéla mun nú
vera á bilinu á milli fimm og sjö
þúsúnd krónur.
Sem dæmi má nefna að af
stórri dráttarvél af gerðinni IMT
voru tryggingagjöld á sl. ári kr.
2195 en iðgjald tryggingar af
sömu vél á þessu ári er kr. 7055.
Þarna er því um hækkun að ræða
langt fram yfir allar eðlilegar
verðhækkanir og bændur óhressir
yfir þessu.
Dráttarvélar eru ekki hrað-
skreið farartæki og þó að oft sé
tengt við þær nokkuð af hættu-
legum tækjum geta þær þó varla
með öllum þeim búnaði valdið
fjöldaaftökum fyrir vangá öku-
manns.
Þrátt fyrir það er innifalin í
ábyrgðartryggingunni, trygging
vegna slysatjóns að upphæð 250
milljónir, vegna munatjóna 50
'iilljónir og slysatrygging öku-
nianns 10 -niillÍóni.r- Sfamtals ,er
þarna keypt tryg^ ^rj}óm
upp á allt að 310 milljórii;. n
hvernig í ósköpunum á ein drátt-
arvél að geta valdið slíku tjóni?
Til þess þyrfti hún að sökkva
togara með allri áhöfn. Það verð-
ur að teljast vafasamt að slík
undur geti gerst.
Samkvæmt upplýsingum frá
umboðsmanni Brunabótafélags
íslands er þessi mikla hækkun,
fyrst og fremst, vegna hækkunar
á tryggingu ökumanns. Fyrir þá
tryggingu voru greiddar á síðasta
ári 120 krónur en nú í 3200
krónur. Að öðru leyti munu
hækkanir á öðrum þáttum
iðgjaldsins vera orðnar eðlilegar.
En hvað býr þá að baki þessar-
ar miklu hækkunar á tryggingu
ökumannsins?
Þetta mun stafa af ákvæðum í
nýjum umferðarlögum, þar sem
kveðið er á um að sértrygging á
ökumönnum á dráttarvélum sé
skylda, en það mun ekki hafa
verið þar til nýju umferðarlögin
tóku gildi. fh
Vatnsósa jarðvegur:
Akið ekki utan vega
- Náttúruverndarráð sendir áskorun
til ökumanna
Nú fer í hönd sá tími sem frost
er að fara úr jörðu og jarðveg-
ur er hvað viðkvæmastur fyrir
rofí. Náttúruverndarráð hefur
sent frá sér áskorun til fjór-
hjólaeigenda að sýna ýtrustu
varfærni og aka alls ekki utan
vega nema í algjörri neyð.
Akstur utan vega, sérstaklega
á grónu landi sem er vatnsósa,
hefur á hverju vori valdið land-
spjöllum auk þess sem slóðir af
slíkum akstri eru til mikilla lýta.
Vegagerð ríkisins hefur lokað
helstu hálendisvegum fyrir allri
umferð fyrst um sinn, svo þeir
verði ekki fyrir skemmdum af
völdum umferðar. Margir veg-
slóðar á láglendi eru ekki heldur í
ástandi til þess að taka við
umverð á þessum árstíma og er
eindregnum tilmælum beint til
ökumanna að hafa það í huga.
Náttúruvemdarráð skorar á
alla ökumenn landsins, að halda
akstri um viðkvæmt landið í
algjöru lágmarki og gera ekki til-
raunir til ferðalaga inn á hálend-
ið, fyrr en vegirnir eru tilbúnir að
taka við umferð. AP