Dagur - 16.05.1988, Blaðsíða 15
16. maí 1988 - DAGUR - 15
Þessar duglegu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri og söfnuðu 1583 krónum. Þær
heita, f.v.: Arna Jórunn Óskarsdóttir, Ellen Sæmundsdóttir og Eydís Eyþórsdóttir. Kærar þakkir.
Heildarvelta í smásöluverslun:
Rúmlega helmingur
veltunnar í Reykjavík!
Upplýsingar um heildarveltu
einstakra atvinnugreina árið
1987 liggja nú fyrir. Þær tölur
sem hér um ræðir eru unnar
mánaðarlega úr söluskatts-
framtölum og sýna heildar-
veltu í hverri grein, þ.e. bæði
þann hluta sem er söluskatts-
skyldur svo og þann hluta sem
er undanþeginn söluskatti.
Söluskatturinn og aðrir óbeinir
skattar eru meðtaldir í heildar-
veltunni. I byrjun október var
settur 10% söluskattur á ýmsar
vörur sem áður voru undan-
þegnar söluskatti og gætir
áhrifa frá þeirri breytingu í
þessum tölum.
Veruleg aukning í sölu á
bflum
Heildarvelta í smásöluverslun á
árinu 1987 var rúmlega 54 millj-
arðar króna og jókst um rúmlega
32% frá árinu 1986. í almennri
heildverslun varð veltuaukningin
nokkru meiri eða um 34%. Veru-
leg aukning varð í sölu á bílum
og bílavörum eða rúmlega 58%
og nam heildarveltan rúmum 13
milljörðum króna. Verslun með
byggingarvörur jókst um tæp
40% á síðasta ári eða úr rúmum
5,6 milljörðum í tæpa 7,9 millj-
arða króna. í heild jókst veltan í
verslunargreinum um rúmlega
36% og var á árinu 1987 um
107,2 milljarðar króna.
Nokkru meiri veltuaukning
varð í þjónustugreinum en í
verslunargreinum. í þeim þjón-
ustugreinum sem eru söluskatts-
skyldar varð veltuaukningin rúm-
lega 41%.
Heildarvelta í vörugrein-
um iðnaöar
Tölur um veltubreytingar í vöru-
greinum iðnaðar gefa ekki eins
skýra heildarmynd og fyrir versl-
unar- og þjónustugreinar, þar
sem um helmingur veltunnar í
iðnaði er undanþeginn söluskatti.
Samkvæmt söluskattsskýrslum
nam heildarveltan í vörugreinum
iðnaðar 35,4 milljörðum króna
og jókst um 34,4% frá árinu
1986.
Til samanburðar við ofan-
greindar veltutölur má nefna að
vísitala vöru og þjónustu hækk-
aði um 18,5% milli áranna 1986
og 1987 og má af því ráða að
umsvif í verslun hefi aukist að
raungildi á sama tíma um tæp
15% en í þjónustugreinum
nokkru meira eða 19%, en hér er
um grófar vísbendingar að ræða
þar sem vægi einstakra liða í vísi-
tölu vöru og þjónustu kann að
vera annað en í veltutölunum.
Smásöluverslun 51.3
Almenn heildverslun 86.1
Sala á bílum og bílavörum 89.7
Byggingarvöruverslun 48.4
Verslun alls 65.8
Rúmlega helmingur
heildarveitunnar er í
Reykjavík
Ef litið er á hlutdeild einstakra
landshluta í heildarveltu verslun-
argreina kemur í Ijós að rúmlega
helmingur heildarveltunnar í
smásöluverslun er í Reykjavík,
sem er töluvert hærra en hlutfall
íbúa í höfuðborginni af heildinni.
Á Reykjanesi er þessu hins vegar
öfugt farið þar sem veltuhlutfall-
ið í smásöluverslun er mun lægra
en íbúahlutfallið. Annars staðar
á landinu gætir meira samræmis
milli þessara hlutfalla í smásölu-
verslun. Almenn heildverslun og
sala á bílum og bílavörum er að
langmestu leyti skráð í Reykja-
vík og á Reykjanesi, eða um 95%
af heildarveltunni í báðum grein-
um. Svipaða sögu er að segja um
byggingarvöruverslun, þar sem
tæplega 84% af heildarveltunni
fer fram á suðvesturhorni
landsins. Eins og sést af töflunni
52.8 14.6 15.4 34.1 31.8
84.7 8.0 9.6 5.9 5.7
88.1 4.9 7.4 5.3 4.5
51.8 35.2 31.7 16.4 16.5
66.6 13.0 13.9 21.2 19.5
hér að ofan breytast þessi hlutföll
nokkuð milli áranna 1986 og
1987. Sérstaklega vex hlutur
Reykjavíkur í smásölu- og bygg-
ingarvöruverslun. í smásöluversl-
un á kostnað landsbyggðarinnar
en í byggingarvöruverslun verður
vöxturinn á kostnað Reykjaness.
Heildarvelta skv. söluskatts- framtölum (m.kr.) 1986 1987 Veltu- breyting
Smásöluverslun 40.822 54.033 32.4
Almenn heildverslun 23.967 32.082 33.9
Sala á bílum og bílavörum 8.333 13.194 58.3
Byggingarvöruverslun 5.637 7.886 39.9
Ýmsar þjónustugreinar 12.446 17.562 41.1
Vörugreinar iðnaðar 26.331 35.393 34.4
Hlutdeild einstakra landshluta
í heildarveltu verslunargreina í prósentum.
Reykjavík Reykjanes Aðrir landshlutar
1986 1987 1986 1987 1986 1987
íbúahlutfall 1.12.1987 37.8 23.9 38.3
Kaupþing Norðurlands hf.
hefur sölu á skammtímabréfum
Kaupþing Noröurlands hf. hef-
ur í samvinnu viö Kaupþing hf.
hafið sölu á skuldabréfum úr
nýjum verðbréfasjóði sem
fengið hefur nafnið Peninga-
markaðssjóðurinn. Sjóðurinn
gefur út skammtímabréf á pen-
ingamarkaði. Markmið sjóðs-
ins er að gefa sparifjáreigend-
um kost á að ávaxta fé til
skamms tíma á verðbréfa- og
peningamarkaði.
Peningamarkaðssjóðurinn
bindur fé sitt með kaupum á
ríkisvíxlum, skammtímabréfum
banka og sparisjóða og spari-
skírteinum sem koma til inn-
lausnar innan árs.
Kaupendur skammtímabréfa
bera engan kostnað við kaup eða
sölu bréfanna. Því geta sparifjár-
eigendur sem hafa fé til ráð-
stöfunar í skamman tíma - frá 2
vikum upp í sex mánuði - ávaxt-
að skammtímafé sitt með mun
betri hætti en hingað til hefur
verið hægt. Kaupendur taka þátt
í áhættudreifðum peningamark-
aðssjóði, þar sem áhersla er lögð
á hámarksöryggi jafnframt því
sem leitað verður að hagstæðustu
vöxtum á skammtímapeninga-
markaði hverju sinni.
Með hliðsjón af núverandi
markaðsvöxtum má reikna með
að ávöxtun skammtímabréfa
verði á bilinu 7-8% umfram verð-
tryggingu. Skammtímabréf eru
seld í 10, 100 og 500 þúsund
króna einingum.
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Síöustu vortónleik-
amir á miðvikudag
Áttundu og síðustu vortónleik-
ar á skólaárinu verða í Akur-
eyrarkirkju miðvikudaginn 18.
maí, og hefjast þeir á óvenju-
legum tíma eða kl. 18.30. Þar
verður flutt orgel- og gítartón-
list.
Að sjálfsögðu er allt áhugafólk
velkomið á vortónleikana sér að
kostnaðarlausu.
Stórsveit (Big-Band) skólans
er að undirbúa tónleikaferð á
vinabæjamót til Randers í Dan-
mörku, og sem þáttur í fjáröflun
fyrir þá ferð heldur sveitin opin-
bera tónleika sem auglýstir verða
síðar.
Tónlistarskólanum verður síð-
an slitið í Akureyrarkirkju föstu-
daginn 20. maí kl. 17 og era
nemendur, foreldrar og annað
áhugafólk hvatt til að mæta.
Söhunaður
Við leitum að sölumanni til starfa hjá rót-
grónu vaxandi heildsölufyrirtæki.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FELL hf. Tryggvabraut 22, sími 25455.
Rafveita Siglufjarðar
Vélstjórar - Vélstjórar
Vélstjóra vantar aö Skeiðsfossvirkjun í 15 mánuði frá
1. júní nk.
Starfið verður veitt frá 1. júní nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi S.M.S. og
bæjarstjórnar Siglufjarðar.
Allar nánari upplýsingar gefa Sverrir Sveinsson
veitustjóri, símar 96-71700 og 96-71414 og Heiðar
Albertsson stöðvarstjóri, símar 96-73222 og 96-73203.
Dalb
r
heimili aldraðra
Hjúkrunarforstjóri
Staða hjúkrunarforstjóra á Dalbæ, Dalvík, er laus
til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júní. Viðkomandi þarf
helst að geta hafið störf um miðjan júlí.
Einnig vantar hjúkrunarfræðing í fullt starf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefa forstöðumaður og hjúkrun-
arforstjóri í símum 96-61379 eða 61378.