Dagur - 16.05.1988, Blaðsíða 16

Dagur - 16.05.1988, Blaðsíða 16
Kodak ^ Express Gæöaframköllun Tryggðu filmunni þinni það besta! cPedí6myndir’ Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520. Atvinnuástandið: 800 manns án atvinnu í mars I marsmánuði sl. voru skráðir 17.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem er nánast sami fjöldi og skráður var í febrúar. Þetta jafngildir því að 800 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysiskrá allan mánuðinn. Þetta svarar til 0,7% af áætluð- um mannafla á vinnumarkaði samkvæmt spá Þjóðahagsstofn- unar. í marsmánuði í fyrra voru skráðir atvinnuleysisdagar 12.300 eða 5.000 færri en nú. SS Austur-Húnavatnssýsla: Sauðburður hefst með seinna móti Sauðburður virðist almennt hefjast seinna í Húnaþingi á þessu vori, en verið hefur á undanförnum árum. Ástæða þess er trúlega sú að síðan búmark fór að sníða bændum þrengri stakk varðandi fram- leiðslu hafa þeir valið þann kostinn að láta féð bera seinna til að minnka kostnað við vor- fóðrun, jafnvel þó að dilkar kunni að verða léttari til frá- lags að hausti vegna þess. Vegna takmarkana á fram- leiðslurétti hafa margir bændur gemlingana gelda en það eru ein- mitt þeir sem hafa verið látnir bera fyrst. Að sögn Sigurðar H. Péturs- sonar, héraðsdýralæknis í A,- Hún. hefur verið mikið að gera hjá honum vegna sauðburðar strax um mánaðamótin apríl-maí á undanförnum árum. Það sem af er þessu vori hefur aftur á móti verið rólegt og komið var með tvær fyrstu kindurnar í keisara- skurð sl. mánudag. Almennt mun sauðburður hefjast viku til tíu dögum síðar nú, en venja hef- ur verið. fh Skipagata 13 á Akureyri: Staðsetning hússins kæru- mál hjá ríkissaksóknara Húseignin Skipagata 13 á Akureyri er gamalt þrætuepli. Hjá skipulagsdeild bæjarins fengust þær upplýsingar að á lóðinni ættu að vera bflastæði samkvæmt miðbæjarskipulag- inu og því yrði að fjarlægja húsið. Það stendur hins vegar sem fastast og kemur í veg fyrir að hægt sé að Ijúka við gerð bflastæða á þessu svæði og framfylgja skipulaginu. Akur- eyrarbær lagði fram kæru á eigendur hússins veturinn 1986 og nú er málið á borði ríkis- saksóknara. Málið var sent ríkissaksóknara í júlí ’87 og átti hann að kveða Þetta hús kemur í veg fyrir að hægt sé að Ijúka við gerð bílastæða á þessu svæði. Mynd: gb Seiðaeldisstöðvar í Skagafirði: Enn er eftir að selja meiri hluta framleiðslu stöðvanna „Það var svo sem alveg vitað mál að þetta yrði svona. Reynsla síðustu ára segir okk- ur það. Það breytir því ekki að við seltuvenjum seiðin núna seinna í mánuðinum og síðan er reiknað með að fyrri farm- urinn fari út um 10. júní. Já!, það verður búið að ganga frá sölu þá,“ sagði Reynir Pálsson hjá Miklalaxi í Fljótum. Enn hafa seiðaeldisstöðvarnar 3 í Skagafirði ekki gengið frá sölusamningum, frekar en aðr- ar stöðvar í landinu. Lætur nærri að það séu allt að 700- 800 þúsund seiði sem Fljóta- stöðvarnar og Hólalax treysta á að selja út. Er Noregsmark- aðurinn talinn vænlegastur. Frá hvorri stöðinni, Miklalaxi og Fljótalaxi fara um 350 þúsund seiði á markað í vor. En Reynir í Miklalaxi er ekkert hræddur við erlenda markaðinn, ef stöðvarn- ar geta útvegað flutning á seiðun- um þegar kallið kemur. Það eru þeir Miklalaxmenn með á hreinu, Sauðárkrókur: Einn á 143 km hraða - Óvenjumikill hraðakstur Óvenjumikið hefur verið um hraðakstur á Sauðárkróki og í nágrenni bæjarins undafarið. Að sögn lögreglu hafa 10 öku- menn verð teknir fyrir of hrað- an akstur á tímabilinu frá mán- aðamótum apríl-maí til síðasta mánudagskvölds. Þar af voru þrír ökumenn sviptir ökuleyfinu á staðnum. Einn var tekinn á 143 á Sauðár- króksbraut og tveir í bænum á hundraði og þar yfir. Til að vinna bug á þessari tilhneigingu öku- manna hefur lögreglan því gripið til þess ráðs að beita radarmæl- ingum í auknum mæli. -þá tóku fyrir nokkru skip á leigu til að annast flutninga. Miklilax stílar eingöngu á sölu erlendis, en að sögn Teits Arn- laugssonar eru þeir í Fljótalaxi þegar búnir að selja 100 þúsund seiði til innlendra seiðaeldisfyrir- tækja. Og er reiknað með að um helmingur framleiðslu Fljótalax verði seldur innanlands svo fremi sem eðlilegt magn fari til sjóeldis í ár. Tvö sl. ár hefur fyrirtækið selt mikið magn seiða til írlands en sá markaður lokaðist í ár. Teitur reiknar ekki með að farið verði að seltuvenja seiðin fyrr en að 4-6 vikum liðnum. Úr Hólalaxi fara 200 þúsund seiði í vor. Jón Stefánsson fram- kvæmdastjóri segir að veiðifélög- in kaupi alltaf ákveðinn hluta af framleiðslunni, en meirihluti framleiðslunnar færi til sölu er- lendis. Engir samningar hafa ver- ið gerðir og ekkert annað að gera en bíða og sjá. Ekkert liggur því á að seltuvengja seiðin fyrr en séð verður hvernig salan verður og hvernig hún skiptist. En það sem fer á heimamarkað seltu- venja kaupendur sjálfir. -þá upp úrskurð sinn enda um opin- bert mál að ræða en að sögn Hreins Pálssonar bæjarlögmanns hefur það gengið hægt fyrir sig þrátt fyrir ítrekanir. Hann bjóst þó við að málið yrði afgreitt hjá saksóknara á næstunni. „Ég get því ekkert sagt til um það ennþá hvaða stefnu málið tekur og hvort ákært verði vegna óleyfilegrar stöðu hússins, eins og vísað var til í kærunni, brott- nám ólöglegs ástands, eins og það heitir í lögunum. Það fellur undir lög um meðferð opinberra mála og ef ríkissaksóknari ákærir þá verður málið rekið af hálfu ríkisins, bærinn kemur ekki beint þar inn í þótt hann sé kærandi," sagði Hreinn. Hlutafélagið Skipagata 13 er eigandi hússins og er Jón Stein- dórsson þar í forsvari. Hreinn Pálsson sagði að eigendurnir hefðu fengið bráðabirgðaleyfi fyrir staðsetningu hússins árið 1957 og gilti það til 10 ára. Síðan hefði ekkert verið gert í málinu fyrr en byrjað var á miðbæjar- skipulaginu. „Húsið átti að fara 1978, þannig að þetta mál á eigin- lega 10 ára afmæli núna,“ sagði Hreinn. Dagblaðið Vísir og Verslunin Skemman eru til húsa að Skipa- götu 13 og óvíst er hve lengi DV og Skemman fá að vera á þessum stað, en svo lengi sem málið velt- ist um í „kerfinu" verður ekki hróflað við húsinu. SS Eyjafjöröur: Öm á sveimi Örninn, konungur fuglanna, er sjaldgæfur hér á landi og sjálf- sagt eru áratugir síðan hann hefur komið í konunglega heimsókn til Eyjafjaröar. Steinberg Friðfinnsson, Spóns- gerði í Arnarneshreppi, sá þó öm á flugi yfir Eyjafirði fyrir skömmu og vakti hann mikla athygli þar á bæ. „Það hlaut að vera eitthvað óvenjulegt á seyði því fuglarnir görguðu og það var heilmikið fjaðrafok. Eg leit upp og kom þá auga á örninn sem hnitaði hringi í loftinu. Gæsir, endur og veiði- bjöllur forðuðu sér með látum en hrafninn virtist ekki eins hræddur og hann vildi greinilega skoða þennan gest nánar. Við náðum í kíki og fylgdust með erninum í einar 10 mínútur,“ sagði Stein- berg. Hann sagðist ekki geta áttað sig á því hvað örninn gæti verið gamall. Hann hefði hins vegar verið stór og tígulegur, vænghaf- ið mikið. Hann var dökkur og dálítið úfinn. Örninn hélt síðan flugi sínu áfram inn fjörðinn og úr sjónmáli. „Ég veit ekki til þess að örn hafi sést á þessum slóðum í áratugi,“ sagði Steinberg. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.