Dagur - 24.05.1988, Blaðsíða 2
jp . vao i‘ * .t
2 - DAGUR - 24. maí 1988
Bein tveggja Hólabiskupa grafin upp:
Þeir voru að koma úr dagróðri og sögðu aflann vera lítinn. Einhverju var þó landað á bryggjuna i Hnsey, mest var
það þorskur í smærri kantinum eins og þessir sem hér er haldið á lofti. Mynd: et
Voru í kistu undir
gólfi dómkirkjunnar
í síðustu viku fannst við upp-
gröft undir gólfi dómkirkjunn-
ar á Hólum í Hjaltadal kista
með mikið skreyttum járnum á
göflum. í kistunni voru 5 eða 6
beinagrindur sem fluttar voru
suður til aldursgreiningar.
Kom þá í Ijós að um gröf
tveggja fyrrverandi Hóla-
biskupa var að ræða, Björns
Þorleifssonar sem dó 1710 og
Gísla Þorleifssonar. Þá fannst
einnig skjöldur með upphafs-
stöfunum G.T.D og ártalið
1660, sem er dánarár fyrstu
konu Gísla, Gróu Þorleifsdótt-
Félag Sambandsfiskframleíðenda:
Rösklega 5% tap varð
á frystihúsum innan SAFF
Aðalfundur SAFF, Félags Sambandsfiskframleiðenda, var hald-
inn í síðustu viku, en Sjávarafurðadeild Sambandsins annast sölu
á afurðum þeirra. Á árínu 1987 voru fluttar út sjávarafurðir fyrír
7,4 milljarða kr. (cif), sem er 6,5% meira en árið áður.-Otflutt
magn nam alls rösklega 66.400 lestum, sem var 3,8% minna en
áður. Alls voru fluttar út tæplega 52.800 lestir af frystum sjárvar-
afurðum á vegum deildarínnar 1987, að verðmæti rösldega 6,5
milljarða króna (cif), sem er 4,1% aukning í krónutölu frá árinu
á undan. Magnminnkun varð sem nam 2,8% milli ára.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður á
árinu 1987, m.a. vegna stórauk-
ins útflutnings á ófrystum fiski,
SAFF:
Gengisskráning
veröi óháð
afskiptum
stjómvalda
„Aðalfundur Félags Sambands-
fiskframleiðenda, haldinn í
Reykjavík þriðjudaginn 17. maí
1988, telur þá stefnu fráleita að
litlar sem engar hömlur séu hafð-
ar á innlendum kostnaði, en
gengi íslensku krónunnar sé
bundið og gengisskráningin sé oft
og tíðum ekki í neinu samræmi
við kostnaðinn, sem er því sam-
fara að afla erlends gjaldeyris,"
segir í ályktun sem gerð var á
fundi SAFF. „Fundurinn telur að
tvennt komi til greina:
Að allur innlendur kostnaður
sé háður sömu takmörkunum
og gengisskráningin, eða
að gengisskráningin sé óháð
afskiptum stjórnvalda þannig
að tekjumyndun útflutnings-
greinanna sé jafn frjáls og önn-
ur tekjumyndun í Þjóðfélag-
inu. Verð gjaldeyris ráðist ein-
göngu af framboði og eftir-
spurn, enda er það í fullu sam-
ræmi við stjórnarsáttmála
núverandi ríkisstjórnar, þar
sem tekið er fram að framboð
og eftirspurn skuli ráða verð-
myndun í landinu.
Fundurinn leggur til að tekið
verði upp samstarf allra helstu
útflytjenda um hvernig að því
verði staðið að tryggja að erlend-
ur gjaldeyrir verði aldrei afhend-
ur undir kostnaðarverði."
tókst framleiðendum í SAFF að
auka framleiðslu frystra afurða
um 10,5%, eða úr 49.500 tonnum
1986 í 54.700 tonn árið 1987.
Fram kom á fundinum, að ef
miðað er við hlutfallsskiptingu
útflutnings eftir myntum megi
ætla, að framleiðendur í SAFF
hafi á árinu 1987 tapað um 240
milljónum kr. á falli dollarans, en
fengið það tap borið uppi að
hálfu með hækkun á sterlings-
pundi og þýsku marki.
Þá kom einnig fram, að rösk-
lega 5% tap varð á frystihúsum
innan SAFF á sl. ári, miðað við
þau uppgjör sem fyrir liggja, og
er þá tekið tillit til sannanlegs
kostnaðar sem fellur á frystihús-
in, en hefur ekki að öllu leyti
fengist viðurkenndur í útreikn-
ingum þjóðhagsstofnunar.
Talið er að þrátt fyrir gengis-
fellingu í byrjun vikunnar sé
frystiiðnaðurinn rekinn með
6,6% haila, og að hallareksturinn
væri um 15% ef ekki hefði komið
til gengisfelling krónunnar.
Veruleg breyting hefur orðið á
útflutningi SAFF-frystihúsanna
eftir mörkuðum og í fyrsta skipti
í fyrra varð útflutningur á fryst-
um sjávarafurðum til Evrópu
meiri en til Bandaríkjanna, eða
um 20.300 tonn á móti 18.600
tonnum. Þá hefur orðið veruleg
aukning á útflutningi til A-Asíu-
landa, einkum til Japans.
Árið 1987 var hlutdeild Sjávar-
afurðadeildar Sambandsins 13%
af heildarvöruútflutningi lands-
manna, en 16,7% af heildarút-
flutningi sjávarafurða. Hlutur
deildarinnar í útfluttum freðfiski
var tæplega 33% á síðasta ári.
Tryggvi Finnsson var endur-
kjörinn formaður stjórnar SAFF.
ur. Það er einmitt Gísli Þor-
láksson Hólabiskup og konur
hans 3, þ. á. m. Gróa, sem eru
á fimm þúsund kallinum nýja.
Eins og kunnugt er af fréttum
er nú unnið að endurreisn Hóla-
dómkirkju að innan. Þegar verið
var að grafa fyrir loftræstistokk-
um og fleiri lögnum í aprílmán-
uði var komið niður á kistu með
nokkrum beinagrindum. Var
strax haft samband við þjóð-
minjavörð og Mjöll Snæsdóttir
fornleifafræðingur send norður.
Þar sem hún var þá önnum kafin
í öðrum verkefnum gat hún ekki
gert nema frumrannsókn, en í
síðustu viku kom hún svo aftur
norður ásamt Guðmundi Ólafs-
syni fornleifafræðingi. Það var þá
sem komið var niður á kistuna
sem sagt var frá hér að framan.
Þótti strax sýnt á skreytingum
sem greinilega höfðu fylgt kist-
unni að þarna var hefðarfólk
grafið.
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup á Hólum segir skýringuna
á beinafundinum þá að framan af
öldum hafi biskuparnir verið
grafnir inni í kirkjunum. Sá síð-
asti að vitað sé og sá eini sem
grafinn var í núverandi dóm-
kirkju, er Jón Teitsson sem dó
1781 og kona hans 1798. Kirkj-
urnar voru stærri hér áður og því
lenti norðurveggur Hóladóm-
kirkju inn á gólffleti Halldóru-
kirkjunnar gömlu. Því voru tekn-
ar upp nokkrar biskupagrafir og
þeim komið fyrir inni í kirkjunni.
Beinin verða flutt aftur heim
að Hólum og grafin að nýju undir
gólfi Hóladómkirkju. -þá
Heilbrigðisráðherra:
Mótun opinberrar mann-
eldis- og neyslustefnu
I starfsáætlun ríkisstjórnarínn-
ar er gert ráð fyrir að sam-
ræmdar verði aðgerðir stjóm-
valda til að framfylgja neyslu-
og manneldisstefnu með heil-
brigði landsmanna að leiðar-
Ijósi. HeUbrigðisráðherra hef-
ur skipað samráðshóp til þess
Carmína ’88 komin út
Carmína ’88 er komin út. í
bókinni er að venju fjallað um
þann graut sem undanfarin
Ijögur til fimm ár hefur verið
eldaður í því hlýja „eldhúsi
menntunar og mannþroska,“
sem Menntaskólinn á Akur-
eyri er.
„Ymsir hafa átt hlut í mikilli
grautargerð sem nú sér fyrir end-
ann á. í þessum graut kennir
ýmissa grasa og víst er að hann er
ekki soðinn af einum nagla. þess
hefur verið vandlega gætt að
hræra reglulega í pottinum ,og
halda hitanum hæfilegum, því
hérna tíðkast engin slumpugraut-
argerð. Og þó svo að eitt og eitt
grjónakorn hafi brunnið við þá
virðist grauturinn vel boðlegur og
bara girnilegur,“ segir í formála
bókarinnar sem er 288 blaðsíður
að stærð.
Bókin er til sölu í Bókabúð
Jónasar og kostar þar 1100
krónur. ET
Haraldur Bernharðsson, Einar Bjarki Malmquist og Snorri Gylfason úr
Carmínunefnd, með afrakstur starfsins. Mynd GB
að vinna að mótun opinberrar
manneldis- og neyslustefnu,
með það að markmiði, að ýta
undir heilsusamlegar matar-
venjur og heilbrigðan lífsstfl og
bæta þannig heilbrigðisástand
þjóðarinnar.
Verkefni samráðshópsins verði
m.a. eftirfarandi:
Að tryggja að íslensk matvæla-
framleiðsla verði í samræmi við
neysluþarfir þjóðarinnar.
Að manneldismarkmið Mann-
eldisráðs um hollustu fæðunn-
ar, verði lögð til grundvallar
við stefnumótunina.
Að leiðbeina og fræða fólk um
hollt mataræði, meðferð mat-
væla og matreiðslu.
Að gangast fyrir neyslukönnun
til að öðlast yfirsýn yfir neyslu-
venjur þjóðarinnar.
Stefnumörkun sem þessi kem-
ur inn á mörg svið stjórnsýslunn-
ar.
Ráðherra hefur skipað þriggja
manna framkvæmdahóp sem skal
vinna að daglegri framkvæmd
verkefnisins. Hann skipa Páll
Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, for-
maður, Brynhildur Briem, nær-
ingarfræðingur og dr. Stefán
Aðalsteinsson.
Verkefnisstjóri hefur verið
ráðinn Unnur Stefánsdóttir,
fóstra.