Dagur - 24.05.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 24. maí 1988
SL-mótið 1. deild:
Aðalsteinn tiyggði
Skagamönnum
sigur á Húsavík
- skoraði bæði mörkin gegn Völsungum
Það var ekki rismikil knattspyrna
sem sýnd var á malarvellinum á
Húsavík á laugardag þegar
Skagamenn sigruðu Völsunga
2:1. Malarvöllur og rok settu svip
sinn á leikinn, en þó eiga bæði lið
hrós skilið fyrir að reyna að spila
vel við þessar slæmu aðstæður.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik,
mest um miðjuþóf, en þó brá fyrir
góðum samleiksköflum. Það var svo
á síðustu mínútu hálfleiks að fyrsta
markið kom, Haraldur Ingólfsson
braust framhjá varnarmönnum
Völsunga og upp að endamörkum,
sendi fyrir á Aðalstein Víglundsson
sem skoraði af stuttu færi.
Völsungar komu ákveðnir til leiks
í síðari hálfleik og sóttu mun meira
en það voru Skagamenn sem skor-
uðu næsta mark. Eftir að vörn
Völsunga hafði sofnað á verðinum
komst Heimir Guðmundsson upp
kantinn, gaf fyrir og Aðalsteinn
skoraði.
Það sem eftir var leiks þyngdist
sókn Völsungs meira og á 79. mín.
skoraði Sveinn Freysson sannkallað
draumamark. Hann fékk boltann
fyrir utan vítateig á ská við markið,
og þrumaði honum beint upp í
hornið fjær, alveg óverjandi fyrir
Ólaf í markinu. En fleiri urðu mörk-
in ekki og Skagamenn fögnuðu sín-
um fyrsta sigri í sumar, en Völsung-
ar hafa ekki fengið stig enn.
„Ég er bjartsýnn á framhaldið,
það er stígandi í þessu hjá okkur,“
sagði Sigurður Halldórsson, þjálfari
Völsungs en liðið lék án Snævars
Hreinssonar.
„Ég er ánægður með stigin, meira
er ekki um þennan leik að segja,“
sagði Sigurður Lárusson, þjálíari
Skagamanna.
Lið Skagamanna virðist ekki eins
sterkt og undanfarin ár. Völsungar
léku þokkalega á köflum en virtist
vanta meiri trú á það sem þeir voru
að gera. ASG
Liðin:
Völsungar: Haraldur Haraldsson, Eiríkur
Björgvinsson, Sveinn Freysson vm 49 mín.,
Skarphéðinn Ivarsson, Theodór Guðmunds-
son, Björn Olgeirsson, Helgi Helgason,
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Kristján Olgeirs-
son, Sigurður Illugason vm 68 mín., Stefán
Viðarsson, Guðmundur Guðmundsson og
Jónas Hallgrímsson.
IA: Olafur Gottskálksson, Heimir Guð-
mundsson, Haftiði Guðjónsson, Sigurður B.
Jónsson, Mark Duffield, Ólafur Þórðarson,
Haraldur Hinriksson, Guðbjörn Tryggva-
son, Alexander Högnason vm 46 mín., Har-
aldur Ingólfsson, Aðalsteinn Víglundsson,
Sigurður Harðarson vm 78 mín. og Karl
Þórðarson.
Dómari: Bragi Bergmann, dæmdi ágætlega.
Línuverðir: Óli Olsen og Sveinn Sigurjóns-
son.
Stefán Viðarsson fyrrum Skagamaður og núverandi leikmaður Völsungs í baráttu við Mark Duffield leikmannn íA í leiknt
laugardag. Mynd
KA lagði Víking á gervigrasinu
KA gerði sér iítið fyrir og sigraði
lið Víkinga 1:0 á gervigrasvell-
inum í Laugardal á laugardaginn.
Það var Valgeir Barðason sem
skoraði markið í sínum fyrsta
deildaleik fyrir KA. Þetta var sig-
ur liðsheildarinnar hjá KA-
mönnum og voru þeir að vonum
ánægðir að fara með sigur af
hólmi á erfiðum vellinum í
Reykjavík.
„Það sannaðist í þessum leik að
úrslitin ráðast á leikvellinum, en
ekki í blöðum fyrir leiki,“ sagði
Stefán Gunnlaugsson formaður KA
kampakátur eftir sigurinn. Það ríkti
mikil gleði hjá KA-mönnum eftir
þennan sigur enda voru spádómarn-
ir fyrir leikinn ekki þeim gulklæddu
í hag. En þeir komu inná staðráðnir
í því að vinná og Víkingsliðið fékk
engan tíma til að byggja upp spil.
Mark KA kom á 24. mínútu fyrri
hálfleiks er Gauti Laxdal tpk góða
hornspyrnu. Bjarni Jónsson skallaði
knöttinn til Valgeirs Barðasonar
sem rak hnéð í hann og beint inn í
markið. Við þetta tvíefldist KA lið-
ið og sótti stíft að marki Víkinga.
Nokkru síðar fékk Anthony Karl
Gregory sendingu inn fyrir vörnina
og skoraði, en markið var dæmt af
vegna rangstöðu.
- Valgeir skoraði í sínum fyrsta leik fyrir KA
í seinni hálfleik jafnaðist leikur-
inn og var mikil barátta á miðju vall-
arins. Lítið var um marktækifæri og
var boltinn mest í háloftunum, enda
mikið rok á meðan á leiknum stóð.
Þetta var sigur liðsheildarinnar
hjá KA. Vörnin var sterk með Erl-
ing Kristjánsson í fararbroddi og
Haukur Bragason var einnig örugg-
ur í markinu. Miðjumennirnir börð-
ust vel og Anthony Karl Gregory
var sprækur í framlínunni. Ekki er
hægt að hrósa neinum hjá Víkings-
liðinu, enda var þetta ekki þeirra
dagur. Vörnin virkaði mjög óörugg
hjá þeim og sóknarmennirnir sáust
ekki í leiknum.
Liðin:
KA: Haukur Bragasnn, Slrtón S. Ólafsson,
Gauti Laxdal, Jón Kristjánsson (Arnar
Freyr Jónsson 63 ntín.), Lrlingur Kristjúns-
son, Þorvaldur Örlygsson, Bjarni Jónsson,
Valgeir Barðason ( Friönnmir Herinannsson
83 mín.), Örn Arnaison, Anthony Karl
Gregory, Arnar Bjarnason.
Lið Víkings: Guðinundur Hreiðarsson,
Andri Marteinsson, Gunnar Gunnarsson,
Atli Helgason, Jón Oddsson, Ólafur Ólafs-
son (Björn Bjartmarz 33 mín.), Jóhann Þor-
varðarson, Trausti Ómarsson, Atli Einars-
son, Einar Einarsson, Hlynur Stcfánsson
(Guðmundur Pétursson 72 mín.).
Dómari: Magnús Jónatansson og átti hann
ágætan lcik.
G 4 spjöld: Þorvaldur Örlygsson KA og
Stefán Ólafsson KA AP
Gauti Laxdal lagöi upp mark KA í lciknunt gegn Víkingi á laugardag.