Dagur


Dagur - 24.05.1988, Qupperneq 5

Dagur - 24.05.1988, Qupperneq 5
24. maí 1988 - DAGUR - 5 Hann Sigurjón Jónsson á Grenivík er fyrrverandi sjómaður en kemur þó mikið á bryggjuna og fylgist með trillunum þegar þær koma inn. Hér áskotnaðist honum þessi fíni þorskur í soðið. Mynd: tlv lesendahornið i Betl á götum Akureyrar Jóna hringdi: Um daginn var ég stödd í göngu- götunni á Akureyri þegar ég varð vör við mann, sem gekk á milli fólks og bað það að gefa sér pen- inga. Flestir hristu þennan mann af sér, sem betur fer, en þó sá ég að einn gamall maður gaf honum peninga. Ég hringdi á lögregluna til að stöðva þennan ljóta leik, en því miður komu þeir of seint og gripu því í tómt. Ég veit að þessi maður leitar mikið til gamla fólksins, sem gef- ur honum peninga þótt það hafi lítið á milli handa nema ellistyrk- inn og greiðslur Iífeyrissjóða. Þetta gamla fólk virðist þó vera auðveld bráð fyrir þennan mann. Ég vil beina því til fólks að gefa alls ekki peninga á götum úti til manna af þessu tagi, og ættu yfir- völd að reyna að stöðva þetta betl á götum Akureyrar hið fyrsta." Að vinna gegn eigin hagsmunum - Varnaðarorð að sunnan í morgunútvarpinu átti einn starfsmanna Rásar 2 viðtal við tvo forystumenn sveitarstjórna á Eyrarbakka og Stokkseyri um hina nýju Ölfursárbrú. Fögnuðu þeir því að nú styttist leiðin til Þorlákshafnar, sem er að verða þeirra fiskihöfn í vaxandi mæli. Fréttamaðurinn spurði hvort ekki styttist nú leiðin í Flagkaup í Reykjavík. Þetta var sveitar- stjórnarmönnunum áhyggjuefni og skírskotuðu til þýðingar þess að sem best þjónusta væri til staðar í heimabyggð. Töldu þeir svo vera, ef betur væri að gáð. Þetta spjall minnti mig á góða grein, er ég fyrir tilviljun rakst á í blaðinu „Dagskrá“ sem gefið er út á Selfossi, eftir Helga Ólafs- son, frá Álfsstöðum á Skeiðum. Grein sína nefnir Helgi „Að vinna gegn eigin hagsmunum". í greininni bendir Helgi á þann bónus, sem frystihúsið Bakka- fiskur á Eyrarbakka veitir sínu fólki, með fríum ferðum í stór- markaði Reykjavíkur. Hann bendir á að þetta sé blendin kjarabót fyrir fiskvinnslukonur á Bakkanum. Hér sé þetta ágæta fólk að grafa undan eigin hags- munum. Samdráttur í þjónustu skapi minnkandi atvinnu og í framhaldi af því minna vörufram- boð, en ella í heimabyggð. Minni tekjur sveitarfélagsins af aðstöðu- gjöldum til að efla heima- starfsemi. F>að alvarlega er, að máttarstólpar byggðalaganna draga úr starfsemi, vegna vax- andi rekstrarhalla. Á sama tíma blómstra verslunarhofin í Reykja- vík og kaupahéðnarnir kunna sér ekki læti í fjárfestingum. Við- skiptagróðinn leitar suður yfir heiðar, en eftir eru kaupfélögin til að veita brýnustu þjónustu, sem ekki verður sótt suður. Bætt- ar samgöngur hafa styrkt stöðu höfuðborgarsvæðisins, en ekki landsbyggðarinnar, eins og menn óskuðu eftir. Dæmin á Suðurlandi eru átakanleg, þar sem það þykir fínt að sækja vatnið yfir lækinn í þess- um efnum. í ágætri ræðu, sem bæjarstjórinn á Akureyri hélt á fundi verkfræðingafélagsins um hálendisvegi, gat hann þess að með bættu vegakerfi færðist í vöxt að menn allt norðan úr Skagafirði færu í innkaupaferðir um dagvörukaup í verlunarhofum á Reykjavíkursvæðinu. Þetta er ný þróun, sem virðist koma alvarlegast fram í rekstrar- afkomu kaupfélaganna. Er gamla samkenndin að hverfa, sem var sú hugsjónastefna er gerði byggð- unum fært að verjast áföllum og sækja fram til stórra sigra. Eru landsbyggðarmenn að verða línu- dansarar á skeiðflötum frjáls- hyggjunnar í hátimbruðum versl- unarhofum hinnar nýju stéttar á íslandi, sem lifir á fjármagninu, en tekur ekki þátt í áhættu hinna grónu atvinnuvega. Um það skal engu spáð hér og nú. Hitt er ljóst að hér verður að stemma á að ósi. Það verður fólk- ið sjálft að gera heima í byggðum, með uppbyggingu eig- in atvinnutækja og þjónustu- starfsemi. Þetta er sú byggða- stefna hvers og eins, sem lands- byggðin stendur og fellur með. Menn mega ekki treysta á fyrir- hyggjustarfsemi fjármálaspekul- anta eða kjaftaska í pólitík. Sjálfshöndin er best. Hafi Helgi Ólafsson þökk fyrir holla hugvekju. Þetta -er boð- skapur sem á erindi til állrar landsbyggðarinnar, jafnt fyrir austan fjall og norðan heiðar. Gamall sunnlendingur. r----------------------------------------- \ Hitaveita í Gerðahverfi 2 Hvetjum íbúa í Gerðahverfi 2 til þess að tjá sig um hitaveitu í hverfið, með því að útfylla heimsenda spurningalista og póstsetja. 67 hafa þegar svarað. • Já segja 48 (þar af 28 með rafmagnsþilofna). • Nei segja 16 (þar af 13 með rafmagnsþilofna). • Hlutlaus segja 3. Fundur með íbúum í hverfinu verður fyrir miðjan júní. Áhugamenn um hitaveitu í Gerðahverfi 2. Ari Rögnvaldsson, Gísli Jónsson, Halldór Halldórsson, Hólmsteinn Hólmsteinsson. AKUREYRARB/ÍR Kjörskrá Kjörskrá Akureyrar til forsetakjörs, sem fram á að fara laugardaginn 25. júní 1988, liggurframmi á bæjarskrifstofunum, Geislagötu 9, 2. hæð, alla virka daga á almennum skrifstofutíma frá 25. maí til 14. júní. Kærur við kjörskrána skulu hafa borist bæjarskrif- stofunni eigi síðar en 10. júní 1988. Akureyri, 20. maí 1988. Bæjarstjóri. sfo stö Húseigendur Húsbyggjendur Tökum að okkur ásetningu á utanhússklæðningar- efnunum frá StD á ný og gömul hús, með eða án einangrunar. Leitið nánari upplýsinga hjá: Egill Stefánsson MÚRARAMEISTARI MÓASlÐU 6 C 600 AKUREYRI SlMI 96-24826

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.