Dagur - 24.05.1988, Page 9

Dagur - 24.05.1988, Page 9
24. maí 1988 - DAGUR - 9 íslandsmeistaramir fengu að- eins eitt stig í Ólafsfirði - Leiftur og Valur gerðu markalaust jafntefli á föstudagskvöld „Það var ágætt að fá stigið úr þessari viðureign. Fyrri hálf- leikur var mjög slakur hjá okk- ur en það var góð barátta í þeim seinni. Það vantar enn töluvert upp á að spilið sé nógu gott hjá okkur en það kemur með haustinu,“ sagði Haf- steinn Jakobsson leikmaður Leifturs í knattspyrnu eftir leikinn við Islandsmeistara Vals á föstudagskvöld. Leikn- um lauk með markalausu jafn- tefli þrátt fyrir að bæði lið hafi fengið mjög góð marktæki- færi. Valsmenn voru mun ákveðnari í fyrri hálfleik og réðu lögum og lofum á vellinum. Þeir létu bolt- ann ganga vel og gáfu Leifturs- menn þeim allt of mikinn tíma til þess að athafna sig. Jón Gunnar Bergs hinn stóri framherji Valsmanna var mjög ógnandi í vítateig Leifturs og gekk varn- armönnum liðsins erfiðlega að eiga við hann. Valsmenn fengu tvö sannköll- uð dauðafæri í fyrri hálfleik og voru miklir klaufar að nýta þau ekki. Sigurbjörn Jakobsson bjargaði naumlega í horn, skoti frá Jóni Gunnari af stuttu færi eftir góðan undirbúning Tryggva Gunnarssonar. Úr horninu átti síðan Magni Blöndal skalla rétt framhjá Leiftursmarkinu. Skömmu síðar fengu Valsmenn enn betra færi en á einhvern óskiljanlegan hátt tókst þeim ekki að nýta það. Valur Valsson átti þá skot í þverslá og af henni barst boltinn út í teiginn, þar kom Bergþór Magnússon á ferð- inni og skallaði boltann yfir tómt Leiftursmarkið. í hálfleik var staðan því 0:0. Leiftursmenn byrjuðu seinni hálfleikinn með miklum látum og strax á 47. mín. fékk Hörður Benónýsson mjög gott færi. Hann fékk boltann- einn og óvaldaður rétt utan markteigs en skaut föstu skoti beint á Guð- mund Baldursson markvörð Vals. Á 56. mín. voru heima- menn enn á ferðinni, er Guð- mundur Garðarsson átti gott skot að marki Vals en Bergþóri Magn- ússyni tókst að bjarga á mark- línu. Skömmu síðar var Steinar Ingimundarson nærri því að skora eftir mistök í Valsvörninni en skot hans úr erfiðri stöðu fór rétt yfir. Eftir öll þessi læti, fóru Vals- menn aðeins að bíta frá sér á ný og leikurinn jafnaðist. Bæði lið- in fengu þó þokkaleg færi til viðbótar en í markið vildi boltinn ekki og því varð markalaust jafn- tefli staðreynd. Leiftursmenn voru seinir í gang og voru heppnir að vera Akureyri: Sigurður Oddur fór holu Ungur kylfíngur í Golfldúbbi Akureyrar, Siguröur Oddur Sigurðsson að nafni fór holu í höggi á Jaðarsvelli á sunnu- dag. Þessu draumahöggi allra kylfínga náði Sigurður á 4. braut (en hann er 14 ára) og notaði járn númer 7. Það er því óhætt að segja að keppnistímabilið hafi byrjað r ■ ■■ ■ i hoggi skemmtilega hjá þessum unga kylfingi. Um helgina fóru fram þrjú mót að Jaðri og voru það jafnframt fyrstu mótin á þessu keppnistímabili. Fyrsta keppnin var Flaggakeppnin á laugardag en þar sigraði enginn annar en Sigurður Oddur Sigurðsson sá hinn sami og fór holu í höggi á sunnudag. Golfklúbbur Akureyrar: Breyttir æfinga- tímar unglinga Eins og komið hefur fram í Degi eru nú tveir þjálfarar í fullu starfí hjá Golfklúbbi Akureyrar. Það eru þeir David Barnwell og Peter Stacy og eru æfíngar hafnar hjá þeim af full- um krafti, enda keppnistíma- bilið rétt að hefjast. Nokkrar breytingar hafa orðið á æfingatímunum í unglinga- flokki en þeir eru á eftirtöldum dögum. Á mánudögum kl. 16 fyr- ir þá sem eru með frá 16-27 í forgjöf. Á þriðjudögum kl. 17 fyrir þá sem eru með 15 og lægra í forgjöf. Á miðvikudögum kl. 16 eru æfingar fyrir byrjendur og á fimmtudögum á sama tíma fyrir þá sem hafa 28 í forgjöf. Á föstudögum kl. 17 er æfingar fyrir unglinga með forgjöf frá 16- 27 en kl. 18 á föstudögum fyrir unglinga með 15 og lægra í forgjöf. ekki tveimur mörkum undir í hálfleik. En þeir fengu síðan ágæt færi í seinni hálfleik sem ekki nýttust. Bestir í þessum leik voru Gústav Ómarsson, Árni Stefánsson og Hafsteinn Jakobs- son. íslandsmeistar Vals hafa aðeins hlotið eitt stig í fyrstu tveimur leikjum sínum. Liðið lék þó ágætlega á köflum gegn Leiftri en tókst ekki að nýta færi sín. Bestir Valsmanna voru þeir Þor- grímur Þráinsson og Magni Blöndal Pétursson. Baldur Scheving dæmdi leikinn og gerði það ágætlega. Liðin: Leiftur: Þorvaldur Jónsson, Gústav Ómarsson, Árni Stefánsson, Sigurbjörn Jakobsson, Guðmundur Garðarsson, Friðgeir Sigurðsson, Hafsteinn Jakobs- son, Halldór Guðmundsson, Lúðvík Bergvinsson, Hörður Benónýsson (Ósk- ar Ingimundarson 86. mín) Steinar Ingi- mundarson. Valur:Guðmundur Baldursson, Þorgrím- ur Þráinsson, Tryggvi Gunnarsson (Ottar Sveinsson 67. mín.) Magni Blöndal Pét- ursson, Einar Páll Tómasson, Steinar Adolfsson, Jón Gunnar Bergs, Valur Valsson, Ingvar Guðmundsson, Bergþór Magnásson (Gunnlaugur Einarsson 75. mín.) Ámundi Sigmundsson. Friðgeir Sigurðsson leikmaður Leifturs og Einar Páll Tómasson stíga léttan dans í leik liðanna á föstudagskvöld. Leiftursmenn hafa ekki fengið mark á sig í deildinni en hafa heldur ekki skorað mark í fyrstu tveimur leikjunum. Mynd: TLV

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.