Dagur - 24.05.1988, Side 13

Dagur - 24.05.1988, Side 13
24. maí 1988 - DAGUR - 13 Sumarbridds í Dynheimum - Hefst í kvöld Briddsspilurum á Akureyri og nágrenni er óhætt að setja sig í stellingar því í kvöld hefst svokallaður sumarbridds í Dynheimum á vegum Bridge- féíags Akureyrar. Ætlunin er að spila á hverju þriðjudags- kvöldi fram eftir sumri, ef næg þátttaka fæst. Um er að ræða eins kvölds tví- menning hverju sinni og er spilað um bronsstig, auk þess sem verð- laun verða veitt fyrir besta heild- arárangur sumarsins. Pátttöku- gjald er ekkert. Sem fyrr segir hefst spila- mennskan í kvöld í Dynheimum, kl. 19.30. Bókaforlag Odds Björnssonar: „Ripples from lceland" - endurútgefin Þann 19. maí sl. kom út hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar ný útgáfa af bók Amaliu Líndal, Ripples from lceland. Pessi nýja útgáfa er í kiljuformi og fyrst og fremst ætluð erlendum ferða- mönnum. Amalia Líndal er fædd og uppalin í Bandaríkjunum. Hún kynntist íslenskum náms- manni sem var samtíma henni við háskólanám í Boston, giftist hon- um og þau stofnuðu heimili sitt í Kópavogi 1949. í bókinni er brugðið upp mynd af íslandi og íslendingum, eins og þeir komu hinni bandarísku konu fyrir sjón- ir eftir 12 ára viðkynningu, en bókin kom fyrst út í New York 19. maí 1962. Hún vakti þegar mikla athygli og seldist fljótlega upp og hefur verið ófáanleg þar til nú, að hún kemur í þessari nýju útgáfu. Höfundurinn lýsir fyrst tildrög- um þess að hún fluttist til íslands, síðan komunni hingað, staðhátt- um og fólki, veðurfari, lifnaðar- háttum, siðum og ósiðum. Bókin er mjög fjörlega og skemmtilega skrifuð, þar úir og grúir af hnyttnum og skarplegum athugasemdum, og er ekki að efa að bæði íslendingar og erlendir ferðamenn hafi bæði gagn og gaman af að kynnast viðhorfum og skoðunum hinnar erlendu konu sem tók ástfóstri við landið, þrátt fyrir ýmsa agnúa á daglegu lífi hér. „Glöggt er gests augað“, segir máltækið, og má til sanns vegar færa um þessa bók, því Amalia Líndal hefur veitt eftir- tekt ýmsum hversdagslegum og smávægilegum hlutum í lífi og fari íslendinga, sem heimamenn munu flestir lítinn eða engan gaum gefa. Hér kemur bæði fram hörð gagnrýni og einlæg viður- kenning, en bókin er samin af frábærri hreinskilni, mikilli hlýju og næmu skopskyni. Ámaíia Líndal fluttist aftur vestur um haf árið 1972 og er nú búsett í Toronto í Kanada. Hún hefur oft heimsótt ísland síðan, og í lokakafla þessarar nýju útgáfu greinir hún frá þeim stór- felldu breytingum sem orðið hafa á högum Islendinga eftir að bók- in var upphaflega samin. Listakonan Halldóra Gísla- dóttir (sem er tengdadóttir Amaliu Líndal) hefur teiknað bókarkápuna. Þessi bók er skemmtileg gjöf handa erlendum vinum og kunn- ingjum. BOLTINN BUGÐUSÍÐU 1 SÍMI (96) 26888 Náxnskeið!! Frá 16. maí til mánaðamóta bjóðum við upp á tilsögn í veggtennis. Kennari á staðnum frá kl. 8-14. Tímapantanir í síma 26888. Þeir sem vilja fá tilsögn í sínum föstu tímum, vinsamlegast látið vita í næsta tíma. BOLTINN BUGÐUSÍÐU 1 SÍMI (96) 26888 Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Aðalstræti 17, n.-endi, Akureyri, þingl. eigandi Birkir Björnsson, föstudaginn 27. maí kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Birkilundi 10, Akureyri, þingl. eigandi Guðbjörn Þorsteinsson, föstudaginn 27. maí kl. 15.45. Uþpboðsbeiðendur eru: Inn- heimtumaður ríkissjóðs, Guð- jón Ármann Jónsson hdl. og Gunnar Sólnes hrl. Dalsgerði 1i, Akureyri, þingl. eigandi Finnur Marinósson, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 16.00. Uppboösbeiðandi er Kristján Ólafsson hdl. Draupnisgötu 3, K og L-hl., Akureyri, þingl. eigandi Hreiðar Hreiðarsson, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 16.00. Upþboðsbeiðendur eru Ingvar Björnsson hdl. og Pétur Kjerúlf hdl. Fögrusíðu 13b, Akureyri, talinn eigandi Kristján Þorvaldsson, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 16.15. Uþpboðsbeiðandi er Bæjar- sjóður Akureyrar. Flögusíðu 5, Akureyri, þingl. eigandi Erling Pálsson, föstu- daginn 27. maí 1988, kl. 16.15. Uppboðsbeiðandi er Gunnar Sólnes hrl. Gránugötu 7, hesthús, Akur- eyri, 50% norður-hluti, talinn eigandi Kristján Þorvaldsson, v/B.R.Þ. sf. föstudaginn 27. maí 1988, kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Grenivöllum 16, 1. hæð t.v. Akureyri, þingl. eigandi Stein- dór Kárason, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 15.00. Uþþboðsbeiðendur eru: Gunn- ar Sólnes hrl., Bæjarsjóður Akureyrar og innheimtumaður ríkissjóðs. Hjallalundi 17a, Akureyri, þingl. eigandi Björk Dúadóttir, föstud. 27. maí 1988, kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Jónas Aðalsteinsson hrl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Hrafnagilsstræti 10, n.h., Akur- eyri, þingl. eigandi Tryggva Guðmundsdóttir, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er Gunnar Sólnes hrl. Kaldbaksgötu 5, Akureyri, þingl. eigandi Ofnasmiðja Norður- lands hf., föstudaginn 27. maí 1988, kl. 13.30. Upþboðsbeiðendur eru: Skúli Bjarnason hdl., innheimtumað- ur ríkissjóðs, Útvegsbanki fslands og Iðnlánasjóður. Smárahlíð 18i, Akureyri, þingl. eigandi Hrefna Helgadóttir, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Veð- deild Landsbanka ísiands og Ólafur Birgir Árnason hdl. Strandgötu 53, Akureyri, þingl. eigandi Skipagata 13 hf., fösstudaginn 27. maí 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Inn- heimtumaður ríkissjóðs, Sigurður G. Guðjónsson hdl., Bæjarsjóður Akureyrar, Björn Ólafur Hallgrímsson hdl. og Ragnar Steinbergsson hrl. Ægisgötu 13, Akureyri, þingl. eigandi Sveinar Rósantsson, föstudaginn 27. maí 1988, kl. 13.45. Uþpboðsbeiðendur eru: Gunn- ar Sólnes hrl. og Ólafur Birgir Árnason hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Sjúkraliðar og nemar Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 29. maí að Hótel KEA kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Kaffisala á staðnum. Stjórnin. _______________________ Frá menntamála- ráðuneytinu: Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður við eftirtalda framhaldsskóla framlengist til 31. maí næstkom- andi: Við Menntaskólann í Kópavogi er laus til umsóknar kennarastaða í viðskiptagreinum. Við Menntaskólann að Laugarvatni vantar kennara í stærðfræði/tölvufræði, eðlisfræði, stjörnufræði, frönsku Vfe stöðu og dönsku 1/2 stöðu. Við Framhaldsskólann í A.-Skaftafellssýslu eru lausar til umsóknar kennarastöður í: ensku, stærðfræði og við- skiptagreinum ásamt tölvufræði. Hlutastöður í dönsku, þýsku, líffræði, eðlisfræði og efnafræði. Æskilegt er að umsækjendur geti kennt meira en eina grein. Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keflavík vantar kennara í eftirtöldum greinum: ensku, íslensku, listgrein- um, rafmagnsgreinum, sögu, sérgreinum háriðna, stærð- fræði, tölvufræði og vélstjórnargreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 31. maí nk. Menntamálaráðuneytið. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla Við Fjölbrautaskólann í Garðabæ eru lausar til umsókn- ar kennarastöður í eftirtöldum greinum: stærðfræði, við- skiptagreinum, ensku, samfélagsgreinum, raungreinum, íslensku, spænsku og fjölmiðlafræði. Þá vantar stunda- kennara í ýmsar greinar. íþróttakennara vantar enn fremur í heila stöðu í eitt ár. Við Kvennaskólann í Reykjavík, Menntaskólann við Fríkirkjuveg vantar kennara í stærðfræði, líffræði og íslensku. Þá vantar stundakennara í þýsku og félagsfræði. Við Verkmenntaskóla Austurlands, Neskaupsstað eru lausar kennarastöður í íslensku, ensku, dönsku, stærð- fræði, tréiðn, málmiðn og rafiðn. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 6. júní næstkomandi. Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum við- komandi skóla. Menntamálaráðuneytið. AKUREYRARBÆR Eftirtaldar kennarastöður við Tóniistarskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar: Staða yfirkennara, nýtt starf. Staða fiðlukennara. Staða þverflautukennara. Staða básúnu/málmblásturskennara. Staða sellókennara. Staða píanókennara. Staða slagverkskennara. Mikil gróska og fjölbreytt tækifæri fyrir áhugasama tón- listarkennara og tónlistarmenn. (skólanum eru 580 nemendur og 30 kennara starfslið. Ráðningartími er 1. sept. 1988 til 31. ágúst 1989. Upplýsingar veittar hjá: 1. Starfsmannastjóra Akureyrarbæjar, alla virka daga frákl. 9-15, sími (96-)21000. 2. Á skrifstofu Tónlistarskólans mánudaga og fimmtu- daga kl. 13-17, sími (96-)21460 eða á kvöldin í síma (96-)24769. Umsóknarfrestur er til 25. júní. Umsóknir ásamt staðfestingum um próf og starfs- reynslu á að senda Tónlistarskólanum á Akureyri, pósthólf 593, 602 Akureyri. Tónlistarskólinn á Akureyri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.