Dagur - 09.06.1988, Qupperneq 1
71. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 9. júní 1988
108. töiublað
^LE'%
Vou&Me
Beint frá Ítalíu
Skyrtur - Buxur
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599^
Prjóna- og saumastofur:
„Allt mallar sem ekki
er farið á hausinn“
Raöhúsaíbúöir fyrir
aldraöa við Víðilund:
Fólki gefinn
kostur á að
- segir Unnur Kristjánsdóttir iðnráðgjafi
Prjóna- og saumastofur á land-
inu eiga við ramnian reip að
draga um þessar mundir.
Yerkefnaskortur hrjáir þær
flcstar og fjöldi fólks hefur
misst atvinnu sína. Á Norður-
landi vestra er þetta mikið
vandamál enda eru þar margar
saumastofur. Unnur Kristjáns-
dóttir iðnráðgjafí sagði þó að
eini Ijósi punkturinn í þessu
væri sá að verð á framleiðslu-
vörunum hefði hækkað lítil-
lega.
Unnur sagði að þær saumastof-
ur sem ekki hefðu þegar hætt að
starfa væru flestar í miklunr
vandræðum. Fyrirtækin Pólar-
prjón á Blönduósi og Víóla á
Skagaströnd hafa verið tekin til
gjaldþrotaskipta og starfsemin
liggur ennþá niðri hjá Salínu á
Siglufirði.
„Allt mallar sem ekki er farið á
hausinn. Starfsemin mallar áfram
hjá saumastofunni á Húnavöll-
unr, einnig hjá Evu á Blönduósi
og hjá Vöku á Sauðárkróki er
verið að vinna og reyna að selja,“
sagði Unnur.
Ekki eru öll kurl komin til
grafar með Pólarprjón. Til stóð
að endurreisa fyrirtækið undir
nafninu Prjónastofan Snældan og
þegar þetta er skrifað eru líkur á
því að vélar fyrirtækisins verði
frystar þannig að hægt verði að
hefja framleiðslu á ný með litlum
fyrirvara.
Hjá Saumastofunni Drífu á
Hvammstanga fengust þær upp-
lýsingar að þar væru menn að
kljást við verkefnaskortinn líkt
og aðrar saumastofur en þó væri
ýmislegt á döfinni senr hleypt
gæti lífi í starfsemina. SS
Endurbættur Brettingur
- heim um áramótin
Togarinn Brettingur frá
Vopnafirði er væntanlegur til
heimahafnar um næstu mán-
aðamót, en hann hefur verið í
gagngerum endurbótum í Pól-
landi.
Pað var í ágúst í fyrra sem
Brettingur fór utan, en hann er
Sláttur innan
tíu daga?
„Ég held að ástand sé yfirleitt
gott á túnum hér á Norður-
landi og útlitið fyrir sumarið
sé alls staðar gott,“ segir
Bjarni E. Guðleifsson hjá
Ræktunarfélagi Norðurlands
aðspurður um hvernig tún á
Norðurlandi komi undan
vetri.
einn af Japanstogurunum svo-
kölluðu. Skipt var um vél í togar-
anum, hann lengdur og einnig
var settur í hann frystibúnaður.
Sveinn Guðmundsson sveitar-
stjóri á Vopnafirði sagði í samtali
við Dag, að ekki væri meiningin
að gera Bretting að frystitogara,
heldur myndi hann frysta aflann
að hluta.
Að undanförnu hefur afli verið
góður hjá bátum, fiskur því nóg-
ur og atvinna mikil. Grásleppu-
vertíðin gekk þokkalega, að sögn
Sveins, en þó kom talsvert minna
að landi nú en í fyrra. Enda
óvenjugóð grásleppuveiði það
árið. mþþ
Sól og sumar á timburstafla í Byggingavörudeild KEA.
Mynd: TLV
byggja sjálft
„Það voru tvær tillögur í gangi
í nefndinni um þessar raðhúsa-
byggingar en í þeirri tillögu
sem samþykkt var á síðasta
fundi, var mun meira frjáls-
ræði til handa því fólki sem
hyggst byggja þessi hús,“ sagði
Sigurður Ringsted formaður
FIFA, framkvæmdanefndar
íbúðabygginga fyrir aldraða, í
samtali við Dag. En innan
fárra vikna verður hafist handa
við byggingu 13 raðhúsaíbúða í
þremur húsum á svæðinu sem
FÍFA fékk úthlutað við Víði-
lund. Á því svæði verða einnig
byggð tvö fjölbýlishús á vegum
nefndarinnar.
Með þeirri tillögu sem sam-
þykkt var, er fölki sem dregst
saman í hús, gefinn kostur á því,
að byggja sjálft undir ströngu
eftirliti og samkvæmt teikningum
FÍFA, láta FÍFA skila húsunum
fokheldum, eða alveg fullfrá-
gengnum. í hinni tillögunni var
lagt til að FÍFA skilaði húsunum
fullfrágengnum.
í dag verða opnuð tilboð vegna
jarðvegsskipta undir húsin en alls
bárust fjögur tilboð í verkið. Sú
vinna tekur ca. þrjár til fjórar
vikur að sögn Sigurðar og í fram-
haldi af því verður hafist handa
við sjálfar byggingarnar, sam-
kvæmt óskum kaupcnda.
„Við erum í dag með 11 aðila
sem eru ákveðnir í því að kaupa
raðhúsaíbúðir en auk þess erum
við með 4 á biðlista, bæði fyrir
fjölbýlis- og raðhúsin. Pannig að
ég held að við verðum ekki í
vandræðum með að koma þess-
um íbúðum út,“ sagði Sigurður
Ringsted ennfremur. -KK
Álag á skussana?
Þeir sem hundsa
bmna-
vamir borgi hærra iðgjald
- Brunabótafélag íslands vinnur að endurmati á öllum fasteignum á sínu tryggingasvæði
Bjarni segir að kal sé lítið,
bletti sé að finna í túnum á Sval-
barðsströnd og einnig sé um
einhverjar skemmdir að ræða í
Pistilfirði. Pá hefur orðið vart
við nokkurt kal í nýræktum í
Pingeyjarsýslum en ástæður fyr-
ir því telja menn vera lélegt
grasfræ.
Sprettuhorfur eru góðar á
Norðurlandi og áberandi er
hversu lítill munur hefur verið á
gróðri á annesjum og innsveit-
um í vor. Síðustu daga hefur
gras mjög tekið við sér og sagði
Bjarni að friðuð sáðgresistún í
innanverðum Eyjafirði megi að
líkindum slá innan tíu daga.
Svæði þar sem grasmaur herj-
aði mikið í fyrravor hafa að
mestu losnað við þennan vágest
í vor. Veður hefur verið kaldara
í vor en síðastliðið vor og ræður
það miklu um útbreyðslu á
maurnum. JÓH
Brunabótafélag íslands hefur
að undanförnu unnið að
endurmati á öllum fasteignum
á landinu, sem eru á þeirra
tryggingasvæði. Ef allt gengur
að óskum er búist við að
endurmatið liggi fyrir bráð-
lega. í reglugerð um töxtun
húsatrygginga er heimildar-
ákvæði bæði til hækkunar og
lækkunar taxta. „Þessu
ákvæði hefur hingað til ekki
verið beitt að neinu gagni,“
sagði Sigurður Harðarson
skrifstofustjóri Brunabótafé-
lagsins á Akureyri en bætti við
að skoða ætti þessa hluti betur
er endurmatið lægi fyrir.
Iðgjöld brunatrygginga íbúðar-
húsa á Akureyri eru mun lægri en
annars staðar tíðkast, að sögn
Sigurðar og svigrúm til lækkunar
hvað þau varðar því ekkert. Fyrst
og fremst væri um að ræða iðnað-
arhúsnæði. Ákveðinn meðaltaxti
er á húsatryggingum og sagði
Sigurður að þeim hefði verið
hyglað sem hefðu góðar bruna-
varnir, en álag sett á þá sem hirða
ekki um slíkt. Hugmyndir eru
uppi um að beita þessu í auknum
mæli, enda brunavarnir víða í
ólestri. „Pað er ekki sanngjarnt
að þeir aðilar sem ekki hyggja vel
að brunavörnum í fyrirtækjum
sínum njóti sömu kjara og þeir
sem til fyrirmyndar eru í þeim
efnum,“ sagði Sigurður.
Brunavarnir á svæðinu hafa þó
farið batnandi og hafa mörg fyrir-
tæki tengst beinni línu við
slökkvistöð og einnig er orðið
algengt að viðvörunarkerfum
hefur verið komið fyrir. „Eftir-
litsmenn hafa af elju og atorku
komið þessu til lciðar," sagði
Sigurður, enda væru taxtar á
svæðinu svo lágir vegna þess hve
brunavarnir væru almennt góðar.
Á undanförnum árum hafa
komið upp nokkur dæmi þess að
hús hafa brunnið ótryggð, en
skyldutrygging er á öllum fast-
eignum. Einkum á þetta við um
viðbyggingar ýmiss konar og sagði
Sigurður að menn áttuðu sig oft
ekki á að láta tryggingafélag vita
þegar bætt hcfði verið við hús-
næði sem fyrir er. í því endurmati
sem nú er unnið að á vegum
Brunabótafélagsins er ætlunin að
reyna að koma í veg fyrir að
þetta geti gerst. mþþ