Dagur - 09.06.1988, Blaðsíða 5
9. júní 1988 - D'AGUR - 5
Starfshópurinn bendir á, að eftir því sem útflutningur matfisks eykst verður
brýnna að huga að vöruþróun og markaðs- og sölumálum.
þeim komið fyrir í sjókví og þau
alin þar við náttúrulegar aðstæð-
ur í 6-8 mánuði eða þar til æski-
legri sláturstærð er náð.
Þær aðstæður sem nú eru uppi
gefa sérstakt tilefni til að hyggja
að kostum þessarar aðferðar,
enda skapar hún færi á að nýta
rými í nýjum strandstöðvum
fram á næsta vor fyrir hluta
þeirra seiða sem nú er óráðstaf-
að.
Um sölu seiða á erlendan
markað ber þess að geta að
almennt er bannað að flytja lif-
andi fisk milli landa. Seiðaút-
flutningur byggist á undanþágum
frá slíkum laga- eða reglugerð-
arákvæðum í hverju landi. Full-
trúar LFH telja að Noregsmark-
aður geti e.t.v. tekið á móti
útflutningi á bilinu 0,5-1,5 m.
seiða, en að fyrirvara yrði að gera
við þá áætlun. Á síðasta ári var
seld ein milljón seiða til Noregs,
og tókst ekki að anna allri eftir-
spurn. í framhaldi af því gerðu
fiskeldismenn ráð fyrir því í byrj-
un þessa árs að til Noregs mætti
selja allt að 5 milljónir seiða í ár.
Dæmi um ráðstöfun seiða
Fulltrúar LFH telja að af þeim
6,7 milljónum seiða sem óráð-
stafað er, séu 1,9 milljónir af
stofnum sem séu best komnir í
hafbeit. Þá er nú gert ráð fyrir að
hægt verði að selja 0,8 milljónir
til Noregs.
En hver er hugsanleg ráðstöf-
un þeirra fjögurra milljóna sem
þá eru eftir? Til er í landinu eldis-
rými sem rúmað gæti umræddan
seiðafjölda á meðan seiðin eru
innan við tiltekna stærð. í sumar
verður tiltækt rými 373.000 m'
sem skiptist þannig að 277.000 m'
verða í sjókvíum og 97.000 m í
strandstöðvum. Fyrirliggjandi
áætlanir stöðva, sem ýmist
hyggja á nýframkvæmdir eða
stækkun rýmis, leiða til þess að
rými gæti aukist í tæplega
550.000 m' á næstu tólf mánuð-
um.
Fessi áform fela í sér meiri lán-
veitingar til fiskeldis sem svarar
til 300 m.kr. í ár umfram það sem
gert er ráð fyrir í lánsfjáráætlun.
Jafnframt fela áform þessi í sér
lánsfjármögnun á næsta ári að
upphæð tæplega 500 milljónir
króna.
í umsögn framkvæmdasjóðs
kemur fram að áætluð rýmis-
þörf á árinu 1989 verður mest
720.000 m' miðað við nýliðun
sem nemur 7 m. seiða næsta vor.
Sú rýmisþörf nemur 170.000 m’
umfram það rými sem fyrirliggj-
andi áætlanir eldisfyrirtækja fela
í sér.
Eignarhaldsfélag
Verði uppbyggingu eldisrýmis
hraðað miðað við fyrri áform
kunna í ýmsum tilfellum að verða
vandkvæði fyrir eigendur stöðva
að mæta kröfu fjárfestingarlána-
sjóða um 25% eiginfjárframlag.
Peirri hugmynd hefur verið
hreyft að stofnað verði eignar-
haldsfélag er hefði að markmiði
að eiga hlut í fiskeldisfyrirtækj-
um í því skyni að styrkja tíma-
bundið eiginfjárstöðu þeirra.
Gera verður ráð fyrir að til að
slíkt félag hefði bolmagn til að
láta að sér kveða á þessum vett-
vangi, yrði hlutafé að nema
a.m.k. 100 m. kr.
Rekstrarfjármögnun
Flestar stærstu fiskeldisstöðvarn-
ar hafa þegar tryggt sér banka-
viðskipti til rekstrarfjármögnun-
ar. Bankarnir munu almennt
vera reiðubúnir til að fjármagna
framleiðslu í samræmi við fram-
leiðslugetu stöðvanna enda liggi
fyrir fullnægjandi tryggingar.
Nýjar fiskeldisstöðvar hafa yfir-
leitt ekki komist í bankavið-
skipti. Gera má ráð fyrir að bank-
arnir endurskoði afstöðu sína til
viðskipta við nýja aðila eftir því
sem reynsla fæst af viðskiptum
sem þegar eru komin á.
Fram til ársins 1986 voru
rekstrarlán eingöngu veitt gegn
tryggingu í fasteignum. Vegna
mikillar rekstrafjárþarfar þessar-
ar greinar reyndist þessi háttur
ófullnægjandi og því var sam-
þykkt heimild til að veðsetja
eldisfisk til tryggingar lánum.
Til að bankar fái meira svig-
rúm til að lána meira en þeir gera
nú, þurfa eldisfyrirtæki að leita
eftir frekari vátryggingum, eink-
um hvað varðar bætur í þeim til-
vikum þegar um er að ræða röð
smærri tjóna. Sjálfsábyrgð nemur
yfirleitt um 25% af birgðum svo
að röð smærri tjóna getur valdið
eldisstöðvum miklum búsifjum.
Fjármögnun hafbeitar hefur þá
sérstöðu að ekki er um að ræða
áþreifanlegar birgöir sem bankar
og tryggingarfélög geta lagt hald
á. Lánshæfni hafbeitarstöðva
byggist á endurheimtulíkum,
skilyrðum á sleppistað, eðli haf-
beitarstofns og kunnáttu þeirra
sem sleppa.
Fjármögnun til hafbeitar-
stöðva felst í lánum til að kaupa
seiði. Til að raunhæft sé að
bankar láni hafbeitarstöðvum
verður að gera ráð fyrir að
ábyrgðir þurfi að koma í stað
afurðaveða að svo miklu leyti
sem önnur veð eru ekki tiltæk. í
þessu sambandi væri hugsanlegt
að fyrrgreint eignarhaldsfélag
legði fram ábyrgðir í krafti eigin-
fjárstöðu sinnar.
Afrakstur af fískeldi
Samfara vaxandi umsvifum í
fiskeldi hafa viðhorf til sérstöðu
og fjárþarfar greinarinnar breyst.
Fyrirgreiðsla hefur aukist og
komist í fastara form og lána-
stofnanir hafa mótað ákveðnar
kröfur varðandi fjárhagsstöðu og
ytri skilyrði fyrirtækjanna.
Viðunandi árangur í fiskeldi
krefst þess m.a. að framleiðslu-
kostnaður íslenskra fyrirtækja
reyndist ekki hærri en hjá erlend-
um keppinautum. Hér á landi
bjóðast um margt betri skilyrði
en víða annars staðar til fiskeldis.
Sérstakar vonir má binda við
hina íslensku aðferð sem þróast
hefur við strandeldi.
í eftirfarandi töflu er sett fram
áætlun um skilaverðmæti 1 millj-
ónar seiða með hinum ýmsu eld-
isaðferðum. í töflunni kemur
fram að framleiðsluverðmæti
verður mest við að ala seiði í
strandstöð. Þar þarf að kosta
mestu til, en sá kostnaður felst að
mestu í innlendum aðföngum:
ET tók saman og stytti
1. Strandeldi
3 kg fiskur, 95% nýting, 250 kr/kg -712,5 m.kr.
2. Kvíaeldi
2,2, kg fiskur, 75% nýting, 220 kr/kg -363,0 m.kr.
3. Hafbeit
2,5 kg fiskur, 8,5% heimtur, 230 kr/kg -48,8 m.kr.
4. Útflutningur seiða
50 g seiði, 90% nýting, 75 kr/seiði -67,5 m.kr.
Lokað
á laugardögum
frá 1. júní til 1. september
Opnunartími aðra daga
Manudaga-miövikudaga frá kl. 9-18.
Fimmtudaga frá kl. 9-20.
Föstudaga frá kl. 9-19.
Verið velkomin
HAGKAUP
Akureyri
Eyfirðingar,
Þingeyingar og
aðrir Norðlendingar
Stórdansleikur
verður í Freyvangi laugardaginn 11. júní.
Stórsveit félagsins leikur undir stjórn Atla Guölaugssonar
frá kl. 22.00-22.30 og síðan veröur stiginn dans.
Mætum svo hress og kát og skemmtum okkurtil kl. 03.00.
Allir velkomnir. FHUE
1 lúsnæöisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD
Simi 696900
Útboó
Stjórn verkamannabústaða á Eskifirði í umboði
bæjarstjórnar óskar eftir tilboðum í byggingu fjög-
urra leiguíbúð í tveggja hæða sambýlishúsi
byggðu úr steinsteypu. Verk nr. z 04.01 ú*teikninga-
safni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál hvors húss 390.7 m’
Brúttórúmmál hvors húss 1248.8 m3
Húsið verði byggt við götuna Dalbarð 6, Eskifirði og
skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna fer fram á bæjarskrifstofu
Eskifjarðar, Strandgötu 49, 735 Eskifirði og hjá
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá miðviku-
deginum 8. júní 1988 gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en þriðju-
daginn 21. júní 1988 kl. 11.00 og verða þau þá
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
llúsnæðisstofnun ríkisins
Sumarstuð
T Sjallanum
Hljómsveit Ingimars Eydal
T Sjallanum föstudags-
og laugardagskvöld
Sjallinn 25 ára
Matseðill
5úpa kvöldsins
Rækjukokteill með hvítvínssósu og ristuðu brauði
Hvítlauksristaður hörpuskelfiskur með glóðuðu brauði
★
Pönnusteiktur skötuselur með saffronsósu
Fylltar smálúðurúllur með kryddjurtasósu
★
Meilsteiktlambafille með grænmeti og bökuðum kartöflum
Hautasteik að hætti hússins
★
úanilluís með ferskum ávöxtum
Djúpstelktur Cammembertostur með rifsberjahlaupi