Dagur - 09.06.1988, Page 2
2^ DAQUR"- 9,/)úníl1'988
Sjómannadagurinn:
Úrslit í keppnis-
greinum
í tilefni sjómannadagsins um
sídustu helgi var keppt í hinum
ýmsu íþróttagreinum og háðu
sjómenn að vanda harða
keppni. Á laugardag var keppt
í róðri.
í róðri skipshafna sigraði sveit
togarans Oddeyrar, í öðru sæti
varð sveit togarans Margrétar og
í þriðja sæti varö sveit togarans
Sólbaks. í róðrarkeppni land-
manna sigraði sveit löndunarliðs
Útgerðarfélags Akureyringa í
karlaflokki og í kvennakeppninni
sigraði sömuleiðis sveit frá
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Við sundlaug Akureyrarbæjar
fór fram stakkasund á sunnudag-
inn þar sem Þórður Stefánsson
b/v Margréti sigraði. Annar varð
Stefán Ingvason m/s Oddeyri og
þriðji Sigurbjörn Tryggvason b/v
Sléttbak.
I keppni í björgunarsundi sigr-
aði Brynjar St. Jakobsen b/v
Akureyrinni, annar varð Sigur-
björn Tryggvason b/v Sléttbak og
þriðji varð Þórður Stefánsson b/v
Margréti.
I knattspyrnukeppni sigruðu
áhafnarmeðlimir á Margréti.
Afreksmaður í íþróttum dagsins
var Þórður Stefánsson af b/v
Margréti og vann hann til varð-
veislu Atlastöngina en sá gripur
var gefinn af Vélsmiðjunni Atla
árið 1945. JÓH
Sauðárkrókur:
Ruslabíll í sorp-
hreinsun í fyrsta sínn
Nýlega voru opnuð tilboð í
sorphreinsun hjá Sauðárkróks-
bæ, en mörg undanfarin ár
hefur bærinn leitaö til einkaað-
ila um að sjá um sorphreinsun-
ina. Fimm tilboð bárust og
lægstur var Ómar Kjartansson
með kr. 2.140.000. Ákveðið
hefur verið að taka tilboöi
Ómars og mun hann því sjá um
sorphrcinsun fyrir Sauðár-
króksbúa á næstunni.
Önnur tilboö sem bárust voru
frá Baldvini Jónssyni kr.
2.160.000, Hafsteini Oddssyni
kr. 2.162.500, Hirti S. Hjartar-
syni kr. 2.340.000 og Svavari
Helgasyni kr. 2.900.000. Þess má
geta að Baldvin Jónsson sá um
sorphreinsunina áður, en hingaö
til hefur Sauðárkróksbær samið
til eins árs í senn um sorphreins-
unina.
Ómar Kjartansson hefur keypt
ruslabíl í sorphreinsunina og hef-
ur ekki áður verið notaöur slíkur
bíll við sorphreinsun á Sauðár-
króki. Þetta er Benz-bifreið,
árgerð '74 og í fullu standi. Hann
var áður í eigu og notkun
Reykjavíkurborgar. Ómar sagði
aö ruslabíllinn mundi koma sér
vel. „Hann sparar tvö störf og ég
tek bæinn í þremur ferðum á
haugana," sagði hann.
Ómar ætlar að bæta útlit bíls-
ins örlítið, ntála hann og snurfusa
þannig að úr verði snotrasti rusla-
bíll. -bjb
Ómar Kjartansson við ruslabílinn sem hann notar við sorphreinsun á Sauð-
árkróki.
Löghlýðnir Akureyringar:
Nota belti og Ijós
Bíleigendur eiga nú fyrir margt
löngu að hafa skipti yfir í
sumardekk. „Við rekumst allt-
af öðru hvoru á menn sem enn
eru á nagladekkjum, og fá þeir
þá bágt fyrir,“ sagði Ólafur
Ásgeirsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn á Akureyri.
Óiafur taldi þó minna um það
nú að menn ækju um á nagla-
dekkjum, en verið hefur undan-
farin ár.
Lögreglan hefur fylgst grannt
með ökumönnum frá því ný
umferðarlög tóku gildi og sagði
Ólafur að notkun bílbelta og
ökuljósa væri í góðu lagi á Akur-
eyri. í um 90-95% tilfella virða
menn reglur þar að lútandi, sam-
kvæmt skyndikönnunum lögregl-
unnar. „í þeim tilvikum þar sem
belti og ljós eru ekki notuð hefur
verið um gleymsku að ræða,
menn kveikja ljósin eða spenna
beltin um leið og þeireru minntir
á það,“ sagði Ólafur.
Vinnuskólakrakkarnir hömuðust við að tína rusl í
poka en gáfu sér þó tíma til þess að stilla sér upp
fyrir TLV Ijósmyndara Dags.
Það er ágætt að vera
byrjuð að vinna
- segja krakkar í vinnuskólanum á Akureyri
„Það er alveg ágætt að vera
byrjuð að vinna,“ sögðu
nokkrir hressir krakkar úr
vinnuskólanum sem voru að
tína rusl í Strandgötunni á
mánudaginn. Krakkarnir sem
eru 12 og 13 ára drógu á eftir
sér stóra svarta ruslapoka og
hömuðust við að fjarlægja
dósir og alls konar rusl undir
stjórn flokksstjórans síns
Ólafar Ingu Andrésdóttur.
Krakkarnir eiga að vinna 4
tíma á dag en þar sem þau
sleppa kaffitímanum þá hætta
þau tuttugu mínútum fyrr. „Við
erum svo dugleg,“ sögðu þau
einum rómi þegar þau voru
spurð af hverju þau slepptu
kaffitímanum.
Þetta var fyrsti dagurinn
þeirra í vinnuskólanum og í
þessum hópi voru krakkar af
Eyrinni og munu þau sjá um að
hverfið þeirra verði snyrtilegt á
að líta í sumar.
„Við gerum þetta aðallega
peninganna vegna, ekki ánægj-
unnar,“ sögðu þau þegar þau
voru spurð af hverju þau hefðu
farið í vinnuskólann. En hvað
skyldu þau þá ætla að gera við
peningana. Það voru ýmis svör
sem fengust við því. Sumir ætl-
uðu að kaupa tölvur, aðrir að
leggja inn í banka og enn aðrir
ætluðu að bregða sér suður í
verslunarleiðangur.
Aðspurð hvort þetta væri í
fyrsta skipti sem þau ynnu fyrir
kaupi sögðu þau að svo væri
ekki. Öll höfðu þau passað,
borið út blöð eða eitthvað slíkt.
Þessu duglega vinnufólki ósk-
um við að lokum velfarnaðar í
starfi sínu í sumar og vonumst
til að ekki verði of mikið af rusli
á götum bæjarins fyrir þau að
tína upp. KR
Notkun tjónstilkynninga:
Hefur
gengið
mjög vel
„Að okkar mati hefur notkun
tjónstilkynninga gengið mjög
vel,“ sagði Ólafur Ásgeirsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn á
Akureyri í samtali við Dag, en
nú eru liðnir þrír mánuðir frá
því að nýju umferðarlögin
tóku gildi.
Aðspurður sagði Ólafur að til-
kynntum tjónum til lögreglunnar
hafi fækkað. „í janúar voru til-
kynntir 86 árekstrar til okkar, 96
í febrúar, 70 í mars en aðeins 46
í apríl, sem er þó nokkur
fækkun. Þá hafa sömuleiðis verið
færri slys hjá okkur, e.t.v. er það
öryggisbeltunum að þakka.“
Hann sagði fólk ekki feimið við
að fylla út tjónstilkynningar
sjálft, þó væru enn margir sem
kölluðu á lögregluna og bæðu
um aðstoð, sem að sjálfsögðu
væri veitt eftir getu. „Margir gera
þetta þó á eigin spýtur og við vit-
Ökumenn eru ófeimnir við að fylla
út tjónstilkynningar vegna árekstra.
Mynd: GB
um urn þó nokkuð stóra árekstra
sem menn hafa gert upp sjálfir.
Þá hafa aðeins komið upp sárafá
þrætumál vegna árekstra."
Ólafur sagðist þess fullviss að
áróðurinn sem átti sér stað sam-
fara umferðarlagabreytingunum
hafi gefið góða raun og jafnvel
valdið einhverjum hugarfars-
breytingum. VG
Myndgerðarsamkeppni:
Fjórir drengir
úr Odd-
eyrarskóla
í öðm sæti
I vetur fóru fram myndgerðar-
og ritgerðasamkeppnir á veg-
um Norræns tækniárs og
menntamálaráðuneytisins.
Myndgerðarsamkeppnin fór
fram í 4. bekk grunnskóla og
ritgerðasamkeppnin í 6. bekk.
Fjórir drengir úr Oddeyrar-
skóla á Akureyri urðu í öðru sæti
í myndgerðarsamkeppninni og
fóru þeir um daginn til Reykja-
víkur ásamt kennara sínum
Guðnýju Stefánsdóttur til þess að
taka við viðurkenningum.
Drengirnir heita Guðmundur
Árni Hilmarsson, Gunnar Árni
Jónsson, Sævar Örn Hallsson og
Þorbjörn I. Stefánsson. Þeir
unnu saman að verkefninu sem
var „Tækni framtíðarinnar".
Þurftu þeir að lýsa þeirri framtíð-
arsýn sem þeir hugsa sér að verði
raunveruleiki fólks sem lifir t.d. á
21. öldinni eða síðar. KR