Dagur - 09.06.1988, Qupperneq 7
9. júní 1988- DAGUR-7
Smiðirnir Jónas Bcrgstcinsson og Gunnar Árnason ræða við Halldór Árna-
son skósmið um gang mála við bygginguna.
bænum, enda eru margir á þeim
miðum.
Við þetta hefur áætlun okkar
riðlast og í dag er stefnt að því að
loka húsinu. Einnig stefnum við
að því að ganga frá í kringum
húsið fljótlega, helluleggja og
gera þar eins fínt og hægt er. En
það er ljóst að við verðum annað
hvort að hægja á ferðinni, eða
leita nýrra leiða við útvegun
fjármagns."
- En hefur þetta þá ekki kom-
ið sér illa fyrir ykkur?
„Jú það hefur gert það og á eft-
ir að koma sér enn verr fyrir okk-
ur síðar. Við tókum þó þá
ákvörðun er ljóst varð hversu lít-
ið við fengjum úr þessum
sjóðum, að halda áfram á sama
hraða, þar til húsið yrði fokhelt."
- Nú er þetta mikil og stór
bygging, varð húsið að vera
svona stórt?
„Það var auðvitað reynt að
hafa það eins lítið og frekast var
unnt en þegar Ijóst var hvaö
menn vildu hafa í húsinu, varð
þetta niðurstaðan. Ég held líka
að húsið í þessari stærð, geti nýst
okkur vel um ókomin ár. Alla
vega að það þurfi ekki að breyta
eða byggja við alveg á næstunni."
- Getur þú sagt okkur í stór-
um dráttum hvað verður í hús-
inu?
„í kjallaranum verður búninga-
ag baðaðstaða, þvottaaðstaða
fyrir búninga, vélageymsla og
aðrar geymslur. Þar verða einnig
nuddpottar, sólbekkir og aðstaða
fyrir nuddara. Á aðalhæðinni
verður samkomusalur, kaffitería,
þreksalur, eldhús og pláss fyrir
verslun. í risinu verður aðstaða
fyrir hinar ýmsu deildir, skrif-
stofa framkvæmdastjóra, setu-
stofa, gestaherbergi og lítil
húsvarðaríbúð."
- Hvernig hefur gengið að fá
félaga í vinnu við bygginguna?
„Það hefur gengið þokkalega
að fá fólk til starfa, þó að alltaf sé
pláss fyrir fleiri. Það hafa margir
Þórsarar komið og lagt hönd á
plóginn og sumir verið óhemju-
duglegir. Einnig höfum við verið
mjög heppnir með þá smiði sem
hafa unnið hjá okkur," sagði
Guðmundur. KK
Guðmundur Sigurbjörnsson: „Það hafa margir lagt hönd á plóginn en það er
alltaf pláss fyrir fleiri.“ Myndir: kk
Bindindisfélag ökumanna:
Heldur keppni í öku-
leikni í 11. skipti
í sumar mun Bindindisfélag
ökumanna halda keppni í öku-
Ieikni. Þetta er 11. árið sem
ökuleiknin er haldin og hafa
3500 ökumenn tekið þátt í
henni. í ár verður keppt á fleiri
stöðum en nokkru sinni fyrr
eða á nærri 40 stöðum víðs
vegar um landið.
Okuleikninni er skipt í
kvenna- og karlariðla en reið-
hjólakeppninni er skipt í riðla
eftir aldri, 9-11 ára og 12 ára og
eldri.
Vegleg verðlaun verða veitt
s.s. Mazda bifreið, DBS reiðhjól
og Timex úr. Mazda umboðið
Bílaborg mun lána bíla til úrslita-
keppninnar og Fálkinn lánar
reiðhjól til reiðhjólakeppninnar.
Auk alls þessa mun Nesco
Kringlan gefa öllum þátttakend-
um happdrættishnappa.
Ökuleiknin skiptist í tvo þætti,
umferðarspurningar og þrauta-
akstur. í þrautaakstrinum er það
leiknin sem skiptir máli, ekki
hraðinn. Allir sem hafa ökuleyfi
og skoðunarhæfan bíl geta tekið
þátt í keppninni, gegn vægu þátt-
tökugjaldi. Ekki er nein hætta á
að bílar skemmist í keppninni.
Á Akureyri fer keppnin fram
18. júní kl. 14; á Húsavík 19. júní
kl. 14; á Dalvík 20. júní kl. 19; á
Ólafsfirði 21. júní kl. 19; á Siglu-
firði 22. júní kl. 19; á Sauðár-
króki 23. júní kl. 19; á Blönduósi
24. júní kl. 19 og á Hvammstanga
25. júní kl. 20.
Sigurvegarar úr kvenna- og
karlariðlum munu fara í úrslita-
keppnina þann 3. september nk.
og verða eins og fyrr sagði veitt
vegleg verðlaun. Sigurvegarar fá
utanlandsferð auk verðlaunabik-
ara. Sá sem ekur villulaust í
gegnum þrautaplanið í keppninni
hlýtur Mazda bílinn að launurn.
KR
^*************tjj,* j >.
spurning vikunnar
h
Veist þú hverjir
vinarbæir Akureyrar eru?
Jón Egilsson: Það eru Váster-
ás, Randers og bíddu nú við,
Lahti og Álasund.
Annette Deveng: Nei, jú það
er Álasund í Noregi. Ég veit því
miður ekki hverjir hinir eru.
Sesselía Steingrímsdóttir: Ég
man það nú ekki í fljótu bragði.
Þeir eru a.m.k. í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.
Jón Hallsteinsson: Er það
ekki Álasund? Það eru náttúr-
lega fleiri en ég man ekki hverjir
þeir eru.
Stefán Ólafsson: Já, ég veit
það. Það eru Álasund í Noregi,
Vásterás í Svíþjóð, Randers í
Danmörku og Lahti í Finnlandi.
Soffía Árnadóttir: Það eru
Lahti í Finnlandi, Randers í
Danmörku og í Noregi er það...,
ég man það ekki. Ég gefst upp.