Dagur - 09.06.1988, Qupperneq 14
14 - DAGUR - 9. júní 1988
VARUÐ!
Ætlarþú ad kaupa
notaðan bíl?
Þá borgar sig að láta mæla hann I hinni nýju
undirvagnsstillingatölvu okkar, sem segir þér
með útskrift eftirfarandi:
1. Hvort bíHinn sé skakkur eftir tjón.
2. Hvort hjói bílsins séu með réttum halla.
3. Hvort slit sé komið í hjólabúnað.
4. Hvort öll fjögur hjól bílsins þarfnist stillingar.
5. Hvort bíllinn sé rangskreiður.
Athugið: Eina hjólastillingatölvan á landinu
sem stillir öll fjögur hjól bifreiðarinnar ásamt
undirvagnsmælingu.
Samkvæmt nýjum reglum
bifreiðaeftirlitsins á enginn
bíll er lent hefir í verulegu
tjóni að fá skoðun, nema
hafa útskrift úr slíkri tölvu.
Verið velkomin
á stillingaverkstæðj
okkar.
Höldursf.
Draupnisgötu 1
símar 21715 & 26915
Garðáhöld
í úrvali
★ Úðarar ★ Klórur ★ Hrífur ★ Slöngur
★ Garðaplast ★ Slöngusamsetningar
.
ÍIÍMÍ
Verslunin er opin á
laugardögum frá kl. 9-12.
Byggingavörur
Lónsbakka
Sími 96-21400
fþrótfir
KA leikur gegn KR í kvöld:
Verður einn erfið-
asta útileikurinn
hjá okkur í sumar
- segir Porvaldur Örlygsson
„Mér líst ágætlega á þetta. Að
vísu sóttum við ekki gull í
greipar þeim í fyrra, töpuðum
þá 0:3, þannig að þetta verður
örugglega einn af erfiðustu úti-
leikjunum,“ sagði Þorvaldur
Örlygsson, leikmaður KA,
þegar hann var spurður hvern-
ig honum litist á leikinn í
kvöld, en KA-menn halda til
Reykjavíkur og leika gegn KR
á KR-velIinum kl. 20 í kvöld.
Verður það lokaleikurinn í 4.
umferð SL-deiIdar Islands-
mótsins í knattspyrnu.
Þorvaldur sagðist þó telja
möguleika KA-manna nokkuð
góða. „Við eigum a.m.k. meiri
möguleika nú en í fyrra. Við
erum með betra lið og höfum
byrjað mótið mun betur en í
Helgina 1.-3. júlí mun knatt-
spyrnudeild KA halda Esso-
mót í miniknattspyrnu fyrir 5.
flokk með þátttöku A og B
liða. Verðlaun verða veitt fyrir
1., 2. og 3. sætið í hvorum
flokki. Einnig verður haldið
innanhússmót í „bandí“ með
útsláttarfyrirkomulagi og
verða veitt verðlaun fyrir sigur
í því móti.
Áætlað þátttökugjald er 4.100
krónur á þátttakanda og er þar
innifalið gistin í svefnpokaplássi,
morgunverður í 3 daga, kvöld-
verður á föstudag og laugardag
og máltíð að lokinni keppni á
sunnudag um kl. 15-16. Frítt
verður í sund alla keppnisdagana
og aðstaða til ýmiss konar leikja
þegar lið eru ekki að keppa. Þá
er einnig bent á ýmsa aðra mögu-
leika til dægrastyttingar, s.s.
minigolf, bátaleigu, hestaleigu
o.fl.
Þátttökutilkynningar skulu
berast fyrir 20. júní og skal
greiða staðfestingargjald kr.
5.000 sem er óendurkræft.
Áhersla er lögð á að staðfesting
berist réttilega til að hægt sé að
senda út endanlega riðlaskipt-
ingu og dagskrá.
Þátttöku skal tilkynna til
Leikið í
4. deild
Fjórða umferð í D-riðli 4.
deildar íslandsmótsins í knatt-
spyrnu fer fram í kvöld.
UMSE-b og Efling leika á
Laugalandsvelli, HSÞ-b og Vask-
ur leika á Krossmúlavelli og
Kormákur og Neisti leika á
Hvammstangavelli. Allir leikirnir
hefjast kl. 20. JHB
fyrra, auk þess sem KR-ingarnir
hafa ekki verið mjög sannfærandi
upp á síðkastið. Þeir eru að vísu
með marga sterka einstaklinga en
þeir eru líka með nokkra miðl-
ungsleikmenn þannig að við eig-
um tvímælaust möguleika.“
Þorvaldur sagðist vera ánægð-
ur með stigin sem KA-liðið hefði
fengið í tveimur fyrstu leikjum
sínum en sagðist þó ekki vera
fullkomlega ánægður með leik
liðsins. „Það á eftir að laga margt
í spilinu hjá okkur. En við erum
með sterkan hóp og ef við slepp-
um við meiðsli er ég bara bjart-
sýnn á framhaldið hjá okkur. Ég
vil ekki spá neitt um sæti en vona
að við lendum fyrir ofan miðja
deild,“ sagði Þorvaldur Örlygs-
son. JHB
Sveins Brynjólfssonar í vinnu-
síma 96-25606 eða heimasíma 96-
25885, eða Gunnars Kárasonar í
vinnusíma 96-21866 eða heima-
síma 96-22052.
Um hclgina fer fram svokallað
Lacoste-mót í golfi á Jaðars-
vellinum á Akureyri. Leiknar
verða 36 holur með og án for-
gjafar. Mótið hefst kl. 9 á laug-
ardagsmorgun og verða 18 hol-
Það verður áreiðanlega hart barist í
Lacoste-mótinu að Jaðri um hele-
ina.
Þorvaldur Örlygsson: „Erum með
betra lið en í fyrra.“
2. deild:
Heil umferð
í kvöld
Heil umferð verður leikin í
kvöld í 2. deild íslandsmótsins
í knattspyrnu. Selfoss og Fylkir
leika á Selfossi, ÍR og Víðir í
Reykjavík, UBK og KS í
Kópavogi, FH og ÍBV í Hafn-
arfirði og loks tekur Tindastóll
á móti Þrótti á Sauðárkróki.
Möguleikar Siglfirðinga á sigri
í Kópavogi í kvöld ættu að vera
nokkrir. Bæði liðin hafa leikið 3
leiki í deildinni til þessa og hlotið
4 stig. Siglfirðingarnir hafa
ágætu liði á að skipa og ef þeir ná
góðum leik í kvöld ættu þeir að
geta haft 3 stig með sér heim.
Möguleikar Tindastóls eru
sömuleiðis nokkuð góðir. Þrótti
hefur gengið illa í upphafi móts
og aðeins hlotið eitt stig úr þrem-
ur leikjum. Liðið tapaði síðast
fyrir Fylki á mánudagskvöldið,
2:4. Tindastólsliðið virðist hins
vegar vera að komast í gang eftir
slæma byrjun. Liðið sigraði ÍBV í
Eyjum um síðustu helgi, 4:2, og
hlaut þar með sín fyrstu 3 stig.
Þar að auki verður það á heima-
velli í kvöld þannig að mögu-
leikarnir ættu að vera þeirra.
JHB
ur leiknar þann dag og 18 á
sunnudaginn, en þá verður
einnig byrjað kl. 9 um morgun-
inn.
Það er herradeild JMJ á Akur-
eyri sem heldur Lacoste-mótið og
gefur jafnframt verðlaunin en
þau verða svo sannarlega ekki af
verri endanum. Veittir verða
veglegir bikarar fyrir fyrstu sætin
en einnig mun JMJ gefa mikið af
fatnaði frá Lacoste í fjölmörg
aukaverðlaun á mótinu. Norð-
lenskir golfarar hafa því greini-
lega til mikils að vinna um helg-
ina. JHB
Frestað hjá
Reyni
Leik Reynis og Hugins í 3.
umferð B-riðils 3. deildar, sem
fara átti fram í kvöld hefur ver-
ið frestað fram á laugardag.
Að öllu óbreyttu mun hann
hefjast á Arskógsstrandarvelli
kl. 14 þann dag.
Einn leikur verður þó í riðlin-
um í kvöld, en það er leikur
Sindra og Þróttar sem fram fer á
Hornafjarðarvelli. Sá leikur hefst
kl. 20. JHB
Knattspyrna yngri flokka:
Esso-mót fyrir
5. flokk
- með þátttöku A og B liða
Lacoste-mótið í
golfi um helgina