Dagur - 09.06.1988, Qupperneq 16
Fyrsta sjókvíin frá Istess verður sett upp við Reykjavík. Myndin er tekin á dögunum við Sundahöfn í Rcykjavík þar
sem kvíin er sett saman þessa dagana.
Steinullin:
Nýr framkvæmda-
stjóri í haust
Þórður Hilmarsson fram-
kvæmdastjóri Steinuliarverk-
smiðjunnar á Sauðárkróki hef-
ur sagt starfi sínu lausu og við
tekur Einar Einarsson fram-
leiðslustjóri verksmiðjunnar.
Einar tekur formlega við 1.
september nk., en Þórður mun
taka við forstjórastöðu hjá
Globus í Reykjavík.
I samtali við Dag sagði Þórður
að hann hefði verið ráðgjafi
Globus nokkur undanfarin ár.
„Ég var ekkert á leiðinni suður,
en hins vegar er ekki hægt að
neita hverju sem er. Það er nú
ístess hf. selur stálþils sjókvíar
- „mlkill spenningur í þeim,“ segir Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri
ístess hf. á Akureyri hefur selt
sína fyrstu stálþils sjókví, en
fyrirtækið hóf fyrir skömmu að
selja norskar sjókvíar af gerð-
inni System Farm og úthafs-
kvíar frá sænska fyrirtækinu
Farmocean. Fyrsta stöðin var
seld íslenska fiskeldisfélaginu
hf. og verður henni komið upp
í Eiðsvík sem er á milli Gufu-
ness og Geldingavíkur við
Reykjavík. Stöðin sem er af
gerðinni System Farm kostar
fullbúin og komin út á sjó rúm-
lega 7 milljónir króna.
Þarnu er um að ræða átta
kvíar, sem skrúfaðar eru saman
og eru fjórar hvorum megin og
göngubrú á milii. Brú er einnig
utan um hverja kví, sem og utan
með þeim öllum, þannig að
vinnuaðstaöa er þægileg. Hver
kví er 15x15 metrar þannig að
stöðin er 65 metrar að lengd og
32 metrar að breidd. Allt í allt er
eldisrýmið 18(X) rúmmetrar, sem
þýðir að stöðin getur borið allt að
300 tonn-af fiski.
Akureyri:
Lögreglan
óskar eftir
sjónarvottum
Síðstliðinn mánudag var ekið á
bláa Lancer fólksbifreið á bif-
reiðastæði á Akureyri og hún
skemmd nokkuð. Sá sem tjón-
inu olli hvarf hins vegar af vett-
vangi og leitar lögreglan á
Akureyri hans nú.
Lancer bifreiðin var skemmd á
bifreiðastæðinu við Kaupang eða
á bifreiðastæði Hagkaups. Að
sögn rannsóknarlögreglu hefur
atvikið átt sér stað á tímabilinu
frá kl. 9.30-15.00. Þeir sem
kunna að geta gefið upplýsingar
um málið eru beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna á
Akureyri hið fyrsta. JÓH
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri sagðist sannfærður
um að kvíar sem þessar ættu
mikla framtíð fyrir sér, en
algengast er nú að nota plast-
hringi með grindverki svo fiskur-
inn stökkvi ekki úr hringnum, en
vinnupláss við slíkar kvíar væri
ekkert.
Úthafskvíar kosta á bilinu 10-
12 milljónir króna uppsettar, en
slíkar stöðvar þola vond veður og
hafrót, en hinar stöðvarnar eru
ætlaðar fyrir fiskeldi í innfjörð-
um. „Það er mikill spenningur
fyrir þessu og ég er sannfærður
um að salan á eftir að ganga vel,
enda eru þessar stöðvar ágætur
kostur. Viðhaldslítið má reikna
með að stálverkið endist í 15-20
ár, stofnkostnaður er að vísu
nokkuð mikill, en rekstrarkostn-
aður miklu minni en þegar plast-
hringir eru notaðir. Auk þess
sem vinnusparnaður er mikill og
aðstaðan öll þægilegri," sagði
Guðmundur. mþþ
Leirubrú:
Dræm veiði
Þeir sem hafa verið á ferð um
Leirubrúna, hafa vart komist
hjá því að sjá nokkurn fjölda
veiðimanna renna fyrir silung
af brúnni í vor. Ekki eru allir
sáttir við þessa veiði og telja að
fiskurinn eigi að komast
óáreittur upp í Eyjafjarðará,
þar sem rennt er fyrir hann á
sumrin. Um hversu mikið
veiðist þarna er ekki vitað en
að sögn kunnugra er það
óverulegt.
„Ég hef nú farið nokkrar ferð-
irnar á brúna og fylgst með
þessari veiði en aldrei orðið var
við að cinn einasti maður hafi
fengiö silung. Og þegar ég hef
rætt við þessa menn, segjast þeir
hafa ögn orðið varir en ekki feng-
ið neitt," sagði Jóhannes Krist-
jánsson formaður veiðifélagsins
Strauma á Akurcyri um þetta
mál í samtali við blaðið.
„Ég álít að þessi veiði skipti
engu máli fyrir göngur í ána. Það
veiðist alltaf citthvað af silungi
þarna en eftir að Árnagarður var
eyðilagður, held ég aö það sé
óverulegt. Alla vega held ég að
menn ættu að kanna það nokkuð
vei hversu mikið veiðist af brúnni
og í kringum hana, áður en farið
verður að vera með einhver læti
og þcssi veiði bönnuð. Það veið-
ast um 2000 bleikjur i' Eyjafjarð-
ará á ári og þó að veiddust um
100 bleikjur við brúna, hefði
þaö engin áhrif í ánni," sagöi
Jóhanes Kristjánsson. -KK
Stangveiði hefur verið mikið stunduð við Leirubrú að undanförnu.
Mynd: TLV
málið, þetta er mjög spennandi
verkefni. Ég tók ekki þessa
ákvörðun fyrr en ég var búinn að
gera það upp við mig að ég væri
ekkert að fara frá hálf kláruðu
verki við Steinullarverksmiðj-
una. Það er mjög hentugt að gera
þessar breytingar núna því verk-
smiðjan er í farsælum farvegi.
Það hefði eðlilega átt að gera
ákveðnar áherslubreytingar á
mínu starfi, þar sem vissri frum-
uppbyggingu er að Ijúka," sagði
Þórður.
„Þar sem Einar Einarsson
tekur við þá tel ég það vera kom-
ið í mjög farsælt horf, því hann
þekkir 80% af því sem ég hef ver-
ið að gera hingað til," sagði
Þórður. Hann vildi taka það fram
að honum og fjölskyldu hans væri
sérstaklega sárt að yfirgefa Sauð-
árkrók. „Okkur er það mikil
eftirsjá því það eru vissir hlutir
sem Sauðárkrókur hefur upp á að
bjóða, sem eru ekki í Reykjavík
og verða ekki metnir til fjár."
Staða verksmiðjunnar er mjög
góð að sögn Þórðar og allt sam-
kvæmt áætlun. Farið verður í
upplýsingaherferö á næstunni og
gefnir út bæklingar. Búið er að
skipuleggja markaðs- og sölumál
fram á mitt næsta ár.
Ekki hefur verið ákveðið hver
tekur stöðu Einars, eða með
hvaða hætti það verður, þar sem
áherslubreytingar gætu orðið
á starfssviði einstakra lykilmanna
hjá verksmiðjunni. -bjb
Grenivík:
Lítið byggt
en nokkuð
malbikað
I sumar verður gert nokkurt
átak í gatnagerðarmálum
Grenvíkinga, en malbika á um
hálfan kílómetra og eftir
standa þá nokkur hús við mal-
arvegi. Undirbúningur fyrir
malbikunina er þegar hatinn
og sagði Guðný Sverrisdóttir
sveitarstjóri að í haust myndi
ástand vega á Grenivík vera
komið í þokkalegt horf.
Lítið hefur verið byggt á
Grenivík síðastliðin 8 ár, beðið
er eftir grænu ljósi frá Húsnæðis-
stofnun varðandi byggingu par-
húss í verkamannabústaðakerf-
inu.
„Það hefur ríkt algjör stöðnun
í byggingamálum hér á staðnum.
En við vonum að úr því rætist,"
sagði Guðný.
Þá vonast Grenvíkingar til að
úrbætur verði gerðar á hafnar-
aðstöðu, en til stendur að byggja
50 metra viðlegukant og sagðist
Guðný vongóð um að fjárveiting
til þess verkefnis fengist á næsta
ári. Samkvæmt verðlagi frá því í
október í fyrra kostaði bygging
viðlegukantsins um 16 milljónir.
„Hafnaraðstaðan hjá okkur er
ekki nógu góð, það er þröngt hér
og stærri skip eru treg að leggjast
að bryggju," sagði Guðný. mþþ