Dagur - 20.07.1988, Side 4
4 - DAGUR - 20. júlí 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÚLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÚSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRfMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Atvinnulíf
í ógöngum
Það blæs ekki byrlega fyrir fiskvinnslufyrir-
tækjum á landsbyggðinni. Hvarvetna heyrast
raddir þess efnis að áður en langt um líður
muni hvert fyrirtækið á fætur öðru stöðvast
vegna slæmrar lausafjárstöðu. Einna verst
virðist ástandið vera á Vestfjörðum - reyndar
er það svo slæmt að jafnvel Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra sá ástæðu til að fara vestur á
firði og ræða við forystumenn í atvinnulífi.
Lýsing ráðamanna fyrir vestan er afar svip-
uð þeirri sem Hermann Hansson gaf í Degi í
síðustu viku. Lokun blasir við — svo einfalt er
málið. Jónas Ólafsson, formaður Fjórðungs-
sambands Vestfjarða var myrkur í máli þegar
hann lýsti ástandi mála í Tímanum: „Það má
segja, að allt sé á heljarþröm," og bætti því
við að forráðamenn þjóðarinnar skildu ekki
hver undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar
væri. „Fjármagnið er búið að streyma af
landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins
undanfarin þrjú ár og þetta er bara ekki hægt
lengur. Ytri aðstæður hafa verið erfiðar líka
hvað fiskverð varðar og allt er rekið með tapi
eins og er, og verðbólgan drepin niður á
kostnað landsbyggðarinnar. “ Sighvatur
Björgvinsson, alþingismaður, var ekki síður
þungorður: „Ég fæ ekki séð að þetta sé sér
vestfirskt fyrirbrigði. Ástæðan fyrir því að það
ber meira á þessu á Vestfjörðum er fisk-
vinnslan, þá sérstaklega hraðfrystiiðnaður-
inn, undirstaða alls atvinnulífs... Það leysir
engan vanda að auka fjárveitingu til fyrir-
tækja sem eru þannig komin að þau eigi eng-
in veð lengur. Þá er ekki nema um tvennt að
ræða, að horfa fram á rekstrarstöðvun og það
sem henni fylgir eða þá að lánardrottnar af-
skrifi hluta af sínum kröfum eða breyti þeim í
hlutafé. Það getur verið dagaspursmál
hvenær reksturinn stöðvast. Það er varla að
þessi fyrirtæki orki miklu meira en að kraka
saman í launagreiðslurnar. “
Auðvitað geta menn deilt um af hverju
svona er komið hjá fiskvinnslunni. Vel má
vera að sum fiskvinnslufyrirtækin hafi ekki
nýtt sér uppsveifluna á síðasta ári til að eiga
varasjóð þegar illa árar. Þá er það ljóst að
kaupmáttur jókst meira en góðu hófi gegndi.
Hvað sem því líður verða stjórnvöld að taka á
honum stóra sínum ef atvinnulíf á ekki að
stöðvast á landsbyggðinni. ÁÞ.
Horft yfir svæðið og cins og sjá má var krökkt af einkaflugvélum á flugdeginum.
Sauðárkrókur:
Vel heppnuð
flughátíð
- Sauðárkróksflugvöllur hér eftir nefndur
Gestsson sveitarstjóri á Hofsósi
setti fundinn og bauð gesti vel-
komna. Þá flutti Þórir Kr. Þórð-
arson prófessor ræðu um dr.
Alexander og tengsl hans við
Háskóla íslands. Pétur Einarsson
flugmálastjóri flutti erindi um
Flugfélag fslands nr. 2 og hlut
Alexanders í stofnun þess og
störf hans að flugmálum. Að lok-
um talaði Sveinn Sæmundsson
deildarstjóri hjá Flugleiðum um
félagið í nútíð og framtíð.
Að loknum hátíðarfundi var
opnuð ljósmynda- og munasýn-
ing í Safnahúsinu er tengdist dr.
Alexander og flugsögunni. Þar
var margt merkra mynda og
muna. Eftir sýninguna var gest-
um boðið til veislu á Hótel
Aningu.
Flugdagurinn á Sauðárkróks-
flugvelli hófst kl. 13.30 á laugar-
deginum og var fjöldi fólks og
flugvéla mættur á svæðið. A
Akureyri:
Eimskipafélagið
fær nýj a lyftara
Alexandersflugvöllur
Flughátíðin á Sauðárkróki um
síðustu heigi, haldin til
minningar um dr. Aiexander
Jóhannesson sem hefði orðið
100 ára sl. föstudag, tókst með
afbrigðum vel og voru forráða-
menn hátíðarinnar yfir sig
hrifnir hvernig til tókst. Hátíð-
in byrjaði á föstudagskvöld
með hátíðarfundi í Safnahús-
inu og á Iaugardag var flugdag-
ur á Sauðárkróksflugvelli. Þar
flaug um nánast allt það sem
flogið getur. Segja má að há-
punktur hátíðarinnar hafi ver-
ið á sunnudagskvöldið þegar
Ioftbelgur fór á loft frá Sauðár-
króki með tvo meðlimi Flug-
klúbbs Sauðárkróks innan-
borðs, formanninn Hauk Stef-
ánsson og ritarann Sigurð
Frostason.
Hátíðarfundurinn í Safnahús-
inu hófst með því að Ófeigur
Matthías Á Mathiesen samgöngu-
ráðherra flutti ávarp á flugdeginum.
Umtalsverðar breytingar hafa
verið gerðar hjá afgreiðslu
Eimskipafélags Islands hf. á
Akureyri. Hillur hafa verið
settar upp í vöruskálanum,
aðstaða fyrir starfsmenn verið
bætt og nú síðast voru keyptir
þrír rafmagnslyftarar í vöruaf-
greiðsluna.
Guðni Sigþórsson, forstöðu-
maður Eimskipafélagsins á
Akureyri, sagði að með hillu-
væðingunni og kaupunum á lyft-
urunum hefði verið stigið fram-
faraskref í vörumeðferð og þjón-
ustu. Lyftararnir, sem eru af
Still-gerð, hafa 3,5 tonna lyfti-
getu. Tveir verða notaðir í
gámatæmingu og röðun í skálan-
um en sá þriðji verður notaður á
hafnarbakkanum og við að lyfta
vörum í efstu hillurnar því hann
er sérútbúinn til að lyfta upp í allt
að 6,5 metra hæð.
Jens Gíslason, sölustjóri hjá
Globusi hf. - en Globus flytur inn
Still-lyftara - sagði að lyftararnir
væru v.-þýskir. Fyrirtæicið hefur
sent tvo menn á sérstakt nám-
skeið til að þjónusta Still-lyftara
enda ekki vanþörf á því á 2. tug
slíkra tækja eru nú komin á
Eyj afj arðars væðið.
Hvað aðrar breytingar varðar
þá hefur Eimskipafélagið á
Akureyri látið seja upp tengla
fyrir 64 frystigáma á malbikuðu
svæði austan vöruskálans. Fyrir
viðskiptavini sem eru með laust
efni í flutningum hafa verið settir
upp sérstakir „bulk“-gámar og
losunarbúnaður fyrir þá. EHB