Dagur - 20.07.1988, Qupperneq 5
20. júlí 1988 - DAGUR - 5
svæðinu voru um 2000 manns og
á milli 40 og 50 flugvélar af öllum
stærðum og gerðum höfðu raðað
sér upp. Aldrei áður hefur jafn
mikill fjöldi flugvéla og fólks ver-
ið samankominn á Sauðárkróks-
flugvelli.
Dagskráin hófst með því að
Snorri Björn Sigurðsson bæjar-
stjóri Sauðárkróks flutti setning-
arræðu, en Snorri átti síðar eftir
að koma við sögu í flugdeginum.
Þá flutti Matthías Mathiesen
samgönguráðherra ávarp og í
máli hans kom m.a. fram að
minning dr. Alexanders Jóhann-
essonar yrði heiðruð með því að
hér eftir verði Sauðárkróksflug-
völlur nefndur Alexandersflug-
völlur. Að loknu ávarpi ráðherra
hófst flugsýning. Hvert atriðið
tók við af öðru, hverju glæsilegra
og stóð sýningin yfir í nærri 4
tíma í norðan andvara með sól
öðru hvoru.
Varnarliðið byrjaði með því að
sýna björgun úr þyrlu og fleiri
kúnstir. Þyrlan var svo til sýnis á
eftir. Orion-ratsjárflugvél varn-
arliðsins flaug nokkrunt sinnum
yfir svæðið og síðan þutu fjórar
F-15 orrustuþotur framhjá með
tilheyrandi drunum og látum.
Næst fór Björn Thoroddscn á loft
á listflugvél sinni og Magnús
Nordal sýndi svipaðar brellur á
listflugvél sköntmu seinna.
Einn af hápunktum hátíðar-
innar var fallhlífarstökk Snorra
Björns bæjarstjóra. Hann stökk í
farþegafallhlíf með kennara og
áður en Snorri stökk hentu menn
grín að því að nú þyrfti að fara að
leita að varabæjarstjóra. En til
allrar hamingju heppnaðist
stökkið vel og Snorri Björn lenti
heill á húfi. Að loknu stökki
sagðist hann ekki liika við að
stökkva einhvern tímann aftur,
þetta hefði verið meiriháttar lífs-
reynsla.
Af fleirum loftförum sem svifu
yfir voru svifflugvélar, mótorsvif-
dreki, módelflugvél, þyrla Land-
helgisgæslunnar, flugvél Flug-
málastjórnar, Frúin hans Ómars
o.fl. Fallhlífarstökkvarar stukku
aftur og hjá einum flæktist í fall-
hlífinni en varafallhlífin bjargaði
honum og lenti hann heilu á
höldnu.
Að lokum var reynt að koma
loftbelgjum á loft og eftir margar
tilraunir tókst að koma breska
loftbelgnum upp, en tveir sænskir
belgir komust ekki vegna óstöð-
ugra vinda. Þá var dagskráin
tæmd og flugdegi lokið. Eins og
fyrr sagði tókst flughátíðin mjög
vel og eiga forráðamenn hennar
heiður skilið fyrir það. -bjb
Frúin hans Ómars að lokinni sýningu.
Þyrla varnarliðsins sýndi gestum ýmsar kúnstir.
Hún er myndarleg Frúin hans Ómars, séð að framan!
Forstöðumaður Eimskipafélagsins á Akureyri og sölustjóri Globus hf. við nýju lyftarana. Stóri 42 tonna lyftarinn
er í baksýn. Mynd: ehb
Reiðskóli Æskulýðsráðs Akureyrar
og hestamannafélagsins Léttis
25 ára
í tilefni 25 ára afmælis reiöskólans eröllum nemend-
um skólans í sumar boðið til grillveislu að Hamra-
borgum fimmtudaginn 21. júlí nk. kl. 5-7 e.h.
Eldri nemendur skólans og kennarar einnig vel-
komnir.
Æskulýðsráð Akureyrar.
Hestamannafélagið Léttir.
AKUREYRARBÆR
Hitaveita Akureyrar
Lokun vegna sumarleyfa
Allar deildir H.A. verða lokaðar 23. júlí til 8. ágúst
vegna sumarleyfa og verða engar nýlagnir eða
tengingar framkvæmdar þetta tímabil.
Vakt verður á síma á vinnutíma og bilanavakt
eins og venjulega. Sjá símaskrá.
TÍMAMÓT í REKSTRI FYRIRTÆKJA
Tölur á blaði geta gefið upplýsingar um
góða afkomu og trygga stöðu fyrirtækja, en
þær koma að takmörkuðum notum sem
rekstrarfjármagn. Vanskil, erfið innheimta
o. fl. kostar bæði tíma og fé og geta skipt
sköpum um afkomu fyrirtækjanna.
Kröfukaupadeild KAUPÞINGS hf. kaupir
og/eða innheimtir:
— Reikninga
— Víxla
— Euro-Visa afborgunarsamninga
— Euro-Visa sölunótur
og greiðir handhafa skuldaviðurkenningar
andvirðið samdægurs.
ééi KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri
Siml 96-24700
KROFU
KAUPA
DEILD
iKAUPÞINGS HF
Bolholti 4 ■ simi: 68 90 80
TOLUR
A BLAÐI
VERÐA AÐ
PENINGUM
STRAX