Dagur - 15.09.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur Akureyri, fímmtudagur 15. september 1988 174. tölublað
Hi*aí)a
feaffld
Akureyri:
Hugarfars-
breyting í
garð hettu-
mávanna
Lítil umræða hefur átt sér stað
í sumar um máva og leiðindi af
þeirra völdum, en í fyrra angr-
uðu þeir bæjarbúa á Akureyri
töluvert. Mætti draga þá álykt-
un af því, að lítið hafí verið um
máva í sumar.
Svo mun ekki vera, að sögn
Þorsteins Þorsteinssonar for-
manns Umhverfisnefndar Akur-
eyrarbæjar. „Þeir voru talsvert á
ferli á næturnar í sumar bæði á
tjaldsvæðinu og á ákveðnum lóð-
um í Þorpinu. Ég er ekki frá því
að hugarfarsbreyting í garð
hettumávanna hafi átt sér stað,
því ég hef tekið eftir því nokkr-
um sinnum að fólk hefur verið að
gefa þeim að éta.“
Ef fólk telur sig hafa orðið
minna vart við mávinn í sumar,
sagði Þorsteinn að það mætti
e.t.v. rekja til ýmissa breytinga
sem átt hafa sér stað. „í Krossa-
nesi er nú t.d. farið að geyma
beinin sem alltaf lágu á planinu í
lokuðum geymum og þá er minna
um máv á öskuhaugunum því það
er farið að ganga mun betur um
haugana en verið hefur. Nú er á
staðnum maður á jarðýtu sem
urðar rusl jafn óðum.“ VG
Það er aldrei of snemmt að byrja að spá í skólatöskur og pennaveski.
Mynd: GB
Hótel Stefanía Akureyri:
Byggingafrain-
kvæmdir í haust
- Stefán Sigurðsson eigandi
óhress með Edduhótelin
Þeir á Hótel Stefaníu á Akur-
eyri hyggjast hefja bygginga-
framkvæmdir nú í haust. Fyrir-
hugað er að byggja í sundið á
milli Hafnarstrætis 81 og 83,
ásamt matsal og eldhúsi á bak-
lóð Hafnarstrætis númer 85.
Alls eru þetta um 300 fermetr-
ar að stærð og kostnaðarætlun
hljóðar upp á 15 milljónir
króna.
Stefán Sigurðsson eigandi
Hótel Stefaníu sagði mikla þörf
fyrir viðbótarhúsnæði, en m.a.
verður aðstaða fyrir starfsfólk í
nýja húsnæðinu, sem og eins og
fyrr sagði eldhús og matsalur.
„Það er full löngun til að byrja á
þessu í haust," sagði Stefán.
Sumarið kom þokkalega út, að
sögn Stefáns. Þó vantaði mikið
upp á að það hefði verið eins gott
og sumarið 1987. „Ég kenni
Eddunum um það. Hótelin hafa
tekið mjög mikið til sín af fólki
og það fer enginn í samkeppni
við þau, en í sumar var boðið upp
á gistingu fyrir 800 krónur á nótt-
ina,“ sagði Stefán. „Við stöndum
það ekki af okkur. Við verðum
að fara að funda eitthvað um það
mál.“
Stefán var nokkuð bjartsýnn á
að veturinn yrði góður, en sagði
Slegið á þensluna
með fjáröflun innanlands
- ítarlegar tillögur framsóknarmanna um efnahagsaðgerðir
Breytingartillögur Framsókn-
arflokksins við tillögur forsætis-
ráðherra í efnahagsmálum
ganga mun lengra í verðstöðv-
un en tillögur forsætisráðherra
og Alþýðuflokks, að sögn
Steingríms Hermannssonar,
utanríkisráðherra og formanns
Framsóknarflokksins. Gert er
ráð fyrir víðtækum aðgerðum
til aðstoðar útflutningsgreinum
án þess að fella gengið, skatt-
lagningu fjármagnstekna til
jafns við launatekjur, afnámi
lánskjaravísitölu og breyttum
grundvelli hennar við 10%
verðbólgu, lækkun raunvaxta í
6% og ákvörðun vaxtamunar
með lagasetningu, náist ekki
samkomulag við viðskipta-
bankana. Slegið verði á þenslu
með þvi að afla fjár innan-
lands. Þá er reiknað með 200
milljóna króna niðurgreiðslu
til landbúnaðarins vegna
kostnaðarhækkana sem urðu
fyrr í sumar.
Verðbólguhjöðnun verður
hraðari samkvæmt þessum tillög-
um, að sögn Steingríms, en sam-
kvæmt tillögum forsætisráðherra
og Alþýðuflokks, vegna þess
m.a. að tekið verður fastar á
vaxtamálum. Gert er ráð fyrir
frystingu fiskverðs til 10. apríl.
ítarlegar tillögur eru um aðgerðir
til hjálpar útflutningsgreinum.
Ekki er einblínt á stöðu frysting-
arinnar heldur er horft til allra
þátta útflutningsgreina, m.a. er
ullariðnaði, sem stendur í svip-
aðri stöðu og frystingin, ætluð
sambærileg aðstoð. Létt verði
ýmsum gjöldum, t.d. launatengd-
um gjöldum, af útflutnings- og
samkeppnisgreinum, raforku-
verð til útflutningsiðnaðar verði
lækkað. Afurðalán verði endur-
skoðuð og vaxtamunur á þeim
minnkaður. Settur verði á stofn
sérstakur útflutningslánasjóður
sem annist aðstoð og aðra sér-
staka fyrirgreiðslu til útflutnings-
greina. Sett verði upp tímabund-
ið sérstök deild við Fram-
kvæmdasjóð sem fái þrjá millj-
arða króna til umráða, en tekjur
til deildarinnar verði teknar af
aðstöðugjöldum þar sem þau eru
hæst og umfram það sem er í
ýmsum öðrum sveitarfélögum.
Þessi ráðstöfun verði til þriggja
ára. Lán úr sjóðnum yrðu notuð
til skuldbreytinga, afborgana- og
vaxtalaus í þrjú ár.
„Ég vil taka skýrt fram að við
erum ekki hrifnir af millifærslu
en ég vil kalla þessa leið bak-
færslu, við færum til baka frá
þeim sem notið hafa vitlaust
skráðs gengis til útflutningsgrein-
anna,“ sagði Steingrímur um
tillögurnar. EHB
1 tillögum framsóknarmanna er m.a. gert ráð fyrir aðstoð við ullariðnaðinn.
að þó yrðu menn að fara að
hugsa sinn gang alvarlega. Hann
sagði að nauðsynlegt væri að
byggja upp eins konar prógramm
í tengslum við svokallaða helg-
arpakka. Fylla þyrfti upp í eyður
sem mynduðust hjá fólki á milli
leikhús- og dansleikjaferða og
væru ýmsir möguleikar fyrir
hendi í þeim efnum. Nefndi
Stefán í því sambandi að bjóða
mætti upp á margs konar útilíf,
jazzuppákomur og að jafnvel
væri hægt að fá verslunareigend-
ur til að hafa verslanir opnar
lengur á laugardögum. Þetta
væru enn sem komið er óform-
legar hugmyndir, en þær þyrfti að
ræða við helstu hagsmunaaðila
fljótlega. mþþ
Hækkun bifreiðaiðgjalda:
Frestað meðan
verðstöðvun
erí gildi
Ríkisstjórnin setti bráða-
birgðalög og kom í veg fyrir
fyrirhugaða hækkun trygginga-
félaganna á bifreiðaiðgjöldum,
sem taka átti gildi 1. septem-
ber sl. Var það gert vegna verð-
stöðvunarinnar sem nú er í
gildi.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Degi, átti samfara hækkuninni að
breyta greiðslufyrirkomulagi
bifreiðaiðgjalda þannig að í stað
eins gjalddaga á ári yrði þeim
fjölgað í 12.
„I raun og veru átti ekki að
hækka verð á iðgjöldum heldur
aðeins leiðrétta þau. Auk þess
átti að hækka vátryggingarfjár-
hæðir,“ sagði Ólafur Jón Ingólfs-
son hjá Almennum Tryggingum í
samtali við blaðið, en nú er beðið
eftir því að verðstöðvun verði
aflétt svo hægt verði að fram-
kvæma breytinguna. VG
Raufarhöfn:
Nýr togari
árið 1990?
Stefnt er að því að fá nýjan
togara til Raufarhafnar eftir
um 2 ár. Rauðinúpur, togari
hreppsins, er nú 16 ára gamall.
Gunnar Hilmarsson sveitar-
stjóri sagði ekkert endanlega
hafa verið ákveðið ennþá.
„Skrokkur Rauðanúps er mjög
góður en hann er orðinn sæmi-
lega gamall. Við erum jafnvel að
leita að einhverjum til að verða
okkur samferða við nýsmíði því
það er hagkvæmara, en allt kem-
ur til greina.“ VG