Dagur - 15.09.1988, Page 3

Dagur - 15.09.1988, Page 3
15. september 1988 - DAGUR - 3 SkagaQörður: Nokkrir bæir ná ekki sendingum Sjónvarps - lagað á næsta ári að sögn sjónvarpsmanna 22 ár eru liðin frá því að útsendingar Sjónvarps hófust og síðan þá hefur dreifikerfi þess teygt sig um mestallt land. En í dag eru ennþá nokkrir sem ekki ná sendingum Sjón- varps eða ná þeim ilia. Það eru einna helst bæir í innsveitum og afskekktum byggðum. Eitt af þeim svæðum er innanverð- ur Skagafjörður, Austurdalur og Vesturdalur. Þar nást send- ingar Sjónvarps mjög illa, einna skást er það þegar stafa- logn er og sjónvarpsgreiður bifast ekkert. Peir íbúar í Austur- og Vest- urdal sem Dagur hafði samband við höfðu svipaða sögu að segja. Sumir höfðu komið sér upp stór- um greiðum og magnara, en dugði ekki. Þeir voru að vonum orðnir langþreyttir á þessu ástandi og sögðu að margsinnis hafi verið reynt að fá úrbætur, en hvorki gengið né rekið. Vegna þess hve sendingar Sjónvarps nást illa hafa íbúarnir ekki þurft að greiða afnotagjaldið. Hjalti Jóhannsson á Giljum, sem er innsti bærinn í Vesturdal, sagði að ástandið væri mjög slæmt. „Oftast sést mjög illa og stundum ekki neitt á skerminum. Þetta er svona á mörgum bæjum hérna í Vesturdal, og verst vest- an til í dalnum," sagði Hjalti. Útsendingar útvarps heyrast ágætlega að sögn Hjalta en til að ná rás 2 vel þarf mjög gott loftnet. Hans G. Þormar tæknifræðing- ur hjá Pósti og síma sagði í sam- tali við Dag að ekki stæði til alveg á næstunni að bæta dreifikerfi Sjónvarpsins á þessum stöðum. Hans kannaðist vel við þetta svæði og sagði að erfitt væri að ná til þessara bæja vegna legu þeirra. „Það er mjög kostnaðar- samt að koma upp sendi fyrir hvern bæ, eða nokkra, og það gæti náð annari milljóninni. Ann- ars er það Sjónvarpsins að ákveða hvað gert verður í dreifi- kerfinu, við hjá Pósti og síma sjáum um að framkvæma,“ sagði Hans Þormar. Auk bæjanna í Austur- og Vesturdal sagði Hans að erfitt væri að ná til nokkurra bæja í Skagafirði. Má nefna Kot í Norðurárdal, Heiði í Göngu- skörðum og innstu bæi í Fljótum. Útsendingar útvarps sagði Hans að víðast væri það komið í lag, einna helst væri það erfitt í Fljót- um með rás 2, og áðurnefndum Austur- og Vesturdal. Eyjólfur Valdimarsson hjá tæknideild Sjónvarpsins sagði að innanverður Skagafjörður, auk Svartárdals í Húnavatnssýslu, væru ofarlega á verkefnalista næsta árs á Norðurlandi, ef nægt fjármagn fæst. „Lýtingsstaða- hreppur, eða innanverður Skaga- fjörður er ofar á lista en Svartár- dalur og þar stefnum við á að koma upp tveim nýjum stöðvum. Kostnaður við þær mun nema um 3 milljónum króna. Vonandi verður hægt að byrja þarna í Skagafirði á næsta ári,“ sagði Eyjólfur. Þá kom fram hjá Eyjólfi að um 40-70 bæir á land- inu væru enn sjónvarpslausir, sem væri um 1% af íbúatölu. Það þýðir að sendingar Sjónvarps nást til um 99% landsmanna. -bjb Tilboð óskast í eftirtalda bíla sem eru skemmdir eftir umferðaróhöpp og eru til sýnis í B.S.A. porti. MMC Lancer árg. ’80 MMC Lancer árg. ’82 MMC Colt árg. ’86 Toyota Corolla árg. ’88 Tilboöum skal skilað fyrir kl. 16.00 föstud. 16. sept. nk. ÆtenTiTEiT? TRYGGINGAR Uppeldis- málaþing á Akureyri Uppeldismálaþing á vegum Hins íslenska kennarafélags og Kennarasambands íslands verður haldið á Akureyri 24. september næstkomandi. Efni þingsins verður Skólaþróun og er það ætlað kennurum á hvaða skólastigi sem er, enda er markvisst starf að skólaþró- un forsenda framfara í íslensk- um skólum. Þinginu er skipt í tvo hluta, hið fyrra er haldið á Akureyri, eins og áður sagði, en það síðara í Reykjavík 15. október. Verða haldnir þrír fyrirlestrar á þingun- um: Hanna Kristín Stefánsdóttir, kennari, fjallar um hlut kennara í skólaþróun. Fyrirlestur Ingvars Sigurgeirssonar, kennslufræðings ber heitið „Námsefni-þarfur þjónn eða harður húsbóndi“, og loks flytur Húgó Þórisson, sál- fræðingur, fyrirlestur um uppeld- isþáttinn í skólastarfi. Á dagskrá eru einnig þrettán styttri erindi um kannanir og nýbreytni í skólastarfi og gefst þátttakendum kostur á að hlýða á tvö þeirra. Þingið á Akureyri verður haldið í Sjallanum. ÁP / berjamó Berjavertíðin er senn á enda og margir hafa haldið á fjöll í lcit að þessum eftirsótta ávexti. Sigurður Jóhannesson var einn þeirra Qölmörgu sem dreif sig af stað - enda fátt eins gómsætt og berjaskyr - sem hann ætlaði að hafa í matinn um kvöldið. Mynd: tlv Bókhald ★ Leiöbeiningar og aöstoð við bókhald á staönum ★ Einnig fullkomin bókhaldsvinna á skrifstofu okkar ★ Val hagkvæmustu leiöa Uppgjör og framtöl ★ Á réttum tíma ★ Stórra og smárra fyrirtækja ★ Samvinna viö löggilta endurskoðendur Tölvur — Hugbúnaður ★ Ráögjöf, sala og kennsla í samvinnu við Trón ★ Tölvuvinnsla bókhalds, launa, ritvinnsla o.fl. Rekstrarráðgjöf ★ Áætlanagerð ★ Stofnun sameignarfélaga, hlutafélaga ★ Skipulagning Laun ★ Fullkomin launaúrvinnsla ★ Kennsla á launaforrit Ráðningar Sérþekking í ráðningu: ★ Skrifstofufólks ★ Stjórnenda ★ Sölumanna, bankamanna o.fl. ★ Afleysingar 5L =L 5 = REKSTRARRÁÐGJÖF E~ ==~ = = REIKNINGSSKIL — ===== RÁÐNINGAR TRYGGVABRAUT 22 • SÍMI 96-25455 ■ 602 AKUREYRI Pjonustukort af Húsavík - ætlað þeim sem leið eiga um bæinn Fyrirhugað er að gefa út kort af Húsavík ásamt upplýsingum um helstu þjónustu í bænum sem nýtist ferðafólki. Ferðaland, sem er útgáfu- og kynningarfyrirtæki í ferðaþjónustu, hyggst gefa kortið út um áramót ef nægur áhugi er fyrir hendi. Ferðaland hefur áður gefið út kort af Reykjavík og Keflavík/ Njarðvík. Tilgangur kortanna er að þjóna ferðafólki og öðrum sem leið eiga um bæinn. Umhverfis kortið og á bakhlið þess eru auglýsingar og er útgáfa þess fjármögnuð með sölu þess- ara auglýsinga. Þá er einnig þjón- ustulisti yfir fyrirtæki á kortinu, ávarp bæjarstjóra og litmynd frá Húsavík. Áformað er að prenta 20.000 eintök af Húsavíkurkort- inu. BÚÁLFUR SfÐAN 1210 Lifrarkæfu Papriku paté Karrý paté Skinku paté Veisiusklnku Skinku Hangiáleggi Rúllupyisu Lambasteik

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.