Dagur - 15.09.1988, Blaðsíða 5

Dagur - 15.09.1988, Blaðsíða 5
15. september 1988 - DAGUR - 5 Frá afhendingu verðlaunanna. Frá vinstri: Steinunn Hjartardóttir formaður umhverfis- og gróðurnefndar, Katrín Jóelsdóttir Skógargötu 24, Jóhanna Valdimarsdóttir og Sigurgeir Þórarinsson Grundarstíg 7, Þorbjörn Arnason forseti bæjarstjórnar, Jón Jakobsson úr dómnefnd og Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri. Sauðárkrókur: Fallegir garðar verðlaunaðir - tveir að þessu sinni - ekkert fyrirtæki verðlaunað Garður Katrínar Jóclsdóttur og Jóns Þórarinssonar að Skógargötu 24, sem hlaut fegrunarverðlaun ’88 á Sauðárkróki. Um síöustu helgi voru afhent verölaun fyrir fallega og snyrti- lega garða á Sauðárkróki. Að þessu sinni voru það tveir garðar sem hlutu verðlaun, en ekkert fyrirtæki. Afhending verðlauna fór fram á Hótel Mælifelli og boðið var til kaffi- drykkju að því loknu. Þeir garðar sem hlutu verðlaun voru; Skógargata 24 í eigu Katrínar Jóelsdóttur og Jóns Þórarinssonar og Grundarstíg- ur 7, lóð Sigurgeirs Þórarins- sonar og Jóhönnu Valdimars- dóttur. Verðlaunin afhenti, fyrir hönd bæjarins, Þorbjörn Árnason for- seti bæjarstjórnar. Umhverfis- og gróðurverndarnefnd Sauðár- króks tilnefndi dómnefnd til að velja garða til verðlauna, og í nefndinni voru Jón Jakobsson, Stefán Pedersen og Hulda Jóns- dóttir. Fyrir afhendinguna kom fram í máli Þorbjarnar að til vandræða horfði með umgengni bæjarbúa á götum bæjarins og umhverfi hans. Þá mættu fyrirtæki taka sér tak og fegra umhverfi sitt, en dómnefndinni fannst ekki ástæða að þessu sinni til að verðlauna nein fyrirtæki fyrir umhverfi þeirra. Flest þau fyrirtæki sem hafa snyrtilegt umhverfi hafa fengið verðlaun nú þegar. Verðlaunagarðarnir að þessu sinni eru sérlega snyrtilegir og vel skipulagðir og ættu bæjarbúar að taka þessa garða sér til fyrir- myndar. -bjb Iionessur selja plastpoka - Ágóðinn rennur til F.S.A. Lionessur á Akureyri hefja árlega sölu á heimilispokum í dag, fimmtudag. Þær munu ganga í hús í bænum í dag og næstu daga. Heimilispokarnir eru hentugir til ýmissa hluta og nýtast t.d. vel við sláturgerð þessa dagana. Ágóði sölunnar mun renna til líknarmála. Lionessur á Akureyri styrktu Fæðingadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri til tækjakaupa á síðasta ári og munu einnig gera það nú. Vonast þær til að bæjarbúar taki þeim vel að vanda og sýni með því áhuga sinn á að ljá góðu málefni lið. Slippstöðin hf. óskar að leigja 2ja-3ja herbergja íbúð í 6 mánuði. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 96-27300. slippstödín. Pajero og Range Rover eigendur! Merktar aurhlífar. Svartar lugtargrindur. Merktir hliðarlistar. • Úrval af aukahlutum Sendum í póstkröfu samdægurs! LLUMLLUR. h öldursf. Varahlutaverslun Akureyri, Símar 96-21365 og 96-21715. Á AKUREYRI NÁMSKEIÐ Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri 3. október til 20. janúar. Barna- og unglinganámskeið. Teiknun og málun. 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku. 4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku. 5. fl. 12-13 ára. Einu sinni í viku. Málun og litameðferð. Byrjendanámskeið. 14-15 ára. Einu sinni í viku. Framhaldsnámskeið. 15-16 ára. Einu sinni í viku. Skrift og leturgerð. Byrjendanámskeið. 13-15 ára. Einu sinni í viku. Kvöldnámskeið fyrir fullorðna. Teiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Módelteiknun. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Málun og litameðferð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Auglýsingagerð. Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku. Byggingalist. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Skiltagerð. Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku. Skrift og leturgerð. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958 kl. 13.00-17.00 virka daga. Skólastjóri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.