Dagur


Dagur - 15.09.1988, Qupperneq 6

Dagur - 15.09.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 15. september 1988 Verslmun og þjónustan mega ekki flytjast úr dreifl)ýlinu - segir Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri á Blönduósi Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri. Mynd: -fh Þann 16. ágúst tók Guðsteinn Einarsson við starfi kaupfé- lagsstjóra við Kaupfélag Hún- vetninga á Blönduósi og fram- kvæmdastjóra Sölufélags Austur-Húnvetninga. Guð- steinn er fæddur á Patreksfirði árið 1954 og útskrifaðist úr Samvinnuskólanum í Bifröst vorið 1974. Hann hefur verið skrifstofustjóri hjá Kaupfélagi Húnvetninga síðan 1980. Eig- inkona Guðsteins er Erla Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur og þau eiga tvö börn. Blaðamaður Dags spjallaði við Guðstein á skrifstofu hans og þar sem vitað er að rekstur flestra kaupfélaga á landinu gekk illa á síðasta ári lá beint við að spyrja hann hvort væntanlegar væru ein- hverjar breytingar á rekstri sam- vinnufélaganna á Blönduósi. „Pað eru ekki fyrirhugaðar neinar breytingar alveg á næst- unni en að vísu erum við að yfir- fara nánast alla þætti rekstursins með það fyrir augum að endur- skipuleggja hann, gera hann ódýrari og aðlaga hann þeim aðstæðum sem eru í dag,“ sagði Guðsteinn. „Ef við tökum kaup- félagið fyrst fyrir þá er ljóst að rekstur þess hefur gengið illa það sem af er árinu, talsvert verr en á sama tíma í fyrra og það ár var þó tiltölulega slæmt. Tíminn á næstu mánuðum kemur til með að fara að mestu í að koma jafn- vægi á þann rekstur. Við munum fækka starfsfólki eitthvað þótt væntanlega verði engum starfsmanni sagt upp, hins vegar verður fólk fært eitthvað til á milli deilda. Vélsmiðjan er sérstakt vanda- mál og hefur verið svo lengi sem ég þekki til. Rekstur hennar verður tekinn sérstaklega fyrir í haust þegar nýr yfirmaður tekur þar við. Mjólkurframleiðslan komin í jafnvægi Hjá sölufélaginu er hefðbundin starfsemi sem menn verða að aðlaga að breyttum forsendum í landbúnaði. Slátrun fer minnk- andi og það er einnig verið að skoða hver af mjólkursamlögun- um verða hreinlega lögð niður. Ég vona reyndar að okkar mjólk- urstöð verði ekki inni í því dæmi. Vandinn er einfaldlega sá að verja fyrirtækin áföllum við þær breytingar sem óhjákvæmilega verða.“ - Er mjólkurstöðin hér á Blönduósi eina fyrirtækið í land- inu sem framleiðir valsað þurr- mjólkurduft? „Jú og það gæti orðið til þess að hún yrði látin lifa. Annað sem hefur talsvert mikil áhrif er að mjólkurstöðvarnar í nágrenni við okkur eru mikið í því að fram- leiða osta sem hafa verið fluttir út. Nú er mjólkurframleiðslan í landinu komin í jafnvægi og því líkur á að útflutningur á mjóikur- afurðum leggist af og þá leiðir það til niðurskurðar á framleiðslu þeirra mjólkurvara sem hafa ver- ið fluttar út. Þess vegna stöndum við talsvert mikið betur nú en menn héldu fyrir ári.“ - Vantar mikið á að jafnvægi náist í framleiðslu á kindakjöti? „Ég man nú ekki tölur í því sambandi en það hefur verið tal- að um verulegan samdrátt í sölu á kindakjöti síðustu mánuði mið- að við sama tíma í fyrra. Margir hafa farið út í fram- leiðslu nautakjöts og hrossakjöts í stað kindakjöts en allt fer þetta inn á sama markaðinn og það eru ákveðin takmörk fyrir því hvað hver neytandi borðar af kjötvör- um. Þar er verið að skapa nýtt vandamál með því að leysa annað. Ég held að framleiðslu- stýring þurfi að koma á allar teg- undir kjöts ef vel á að fara.“ - Er hrossakjötsmarkaðurinn ekki hreinlega út úr myndinni? „Hann virðist vera það í dag, a.m.k. fyrir okkur. Við höfum verið að halda okkur við ákveðið verð en undirboðin á þeim mark- aði hafa verið slík að við höfum nánast ekkert selt. Við erum að gera átak í þessu núna og vonum að rofi til þó að þetta líti ekki vel út. Neysluvenjur fólks hafa breyst. Nú vill það fá dilkakjöt, nautakjöt, svínakjöt, hrossakjöt, kjúklinga og fisk, hæfilegt magn af hverju fyrir sig en lifir ekki lengur eingöngu á kindakjöti og fiski. Eitt stærsta vandamál slátur- leyfishafa er að ríkið er búið að gera samning við bændur um ákveðið magn af vöru sem á að framleiða en sláturleyfishafar að greiða fyrir. Ríkið einn versti skuldunauturinn Við eigum orðið inni hjá ríkinu tugi milljóna í ógreiddum út- flutningsbótum og vöxtum og öðru þess háttar. Þetta hefur nú á undanförnum mánuðum átt að koma í næstu viku og það er búið að halda svo marga fundi út af þessu að ég er viss um að þeir sem hafa komið nærri þessu eru löngu hættir að reyna að telja fundina en aðgerðir eru engar. Ríkið er örugglega einhver versti aðili sem nokkur lendir í að eiga viðskipti við. Þetta er staðan hjá okkur og lausafjárstaðan mundi breytast mjög til batnaðar ef við fengjum útflutningsbætumar greiddar. Þetta gerir alla stjórnun erfiða þegar málið snýst um að lifa dag- inn af fjárhagslega.“ - Ert þú búinn að mynda þér skoðun á hvað sé til ráða til að ná betri rekstri? „Ég hef nú verið að skoða hitt og þetta og hef vissar hugmyndir. Það eitt er deginum ljósara að fjármagnskostnaður er kominn úr samhengi við allt annað í þjóð- félaginu og hann hlýtur að verða að minnka. Menn eru að tala um raunvexti langt yfir 10% og það getur enginn venjulegur atvinnu- rekstur borgað hvort sem hann heitir kaupfélag eða eitthvað annað. Hitt atriðið sem er ljóst hjá okkur er að launakostnaður hefur farið mjög mikið hækkandi á sama tíma og verslunin hefur heldur dregist saman. Verslunin er að færast úr héraðinu til stór- markaðanna á suðvesturhorninu en fólki ætti að vera það ljóst að það er hreinlega að éta undan sjálfu sér með því að flytja við- skipti sín úr héraði. Þegar fólk fer að sækja verslun og þjónustu annað þá er það að veikja hérað- ið.“ - Hvernig líst þér á þessa svo- kölluðu niðurfærsluleið sem nú er til umræðu hjá ríkisstjórninni? „Ég hef ekki skoðað hana. Hitt held ég að allir geti verið sam- mála um, að gengisfelling án ann- arra aðgerða eins og gerð var í vor, sé tilgangslaus. Hins vegar finnst mér það skammarlegt af ríkisstjórninni að vera að fá menn úti í bæ til að taka ákvarð- anir fyrir sig. Til hvers erum við að kjósa menn á Alþingi ef þeir fá svo menn frá fyrirtækjum úti í bæ til að segja þeim hvað þeir eiga að gera? Þeir sem til voru kvaddir hljóta að vera mótaðir af sínu umhverfi.“ Kannski ráða þeir sem sitja yfir kjötkötlum í Reykjavík of miklu? - Er eitthvað sem þú vilt leggja áherslu á svona að lokum? „Ekki annað en að menn ættu að gaumgæfa rækilega að það að fara með verslun og þjónustu úr héraðinu gerir einfaldlega að verkum að ekki verður hægt ann- að en skera niður þá þjónustu sem er hér fyrir hendi. Það skipt- ir ekki öllu máli hvort fólk verslar við kaupfélagið eða aðrar versl- anir innan héraðs. Aðalatriðið er að fólk athugi hvað það geti fengið í heimahér- aði áður en það fer að kanna verð í Reykjavík. Ég er ekki viss um að munurinn sé mikill ef allt er reiknað með. Hitt verða menn að skilja að ýmis þjónusta í velferð- arríki verður ekki rekin úti um allt landið. Þetta er stórt mál vegna þess að fyrst fækkar þeim sem lifa af frumgreinum atvinnulífsins, síð- an þeim sem lifa á henni og þar á eftir fækkar skólum og öðrum þjónustustofnunum sem endar svo með því að eftir situr eyði- byggð og blómlegt borgríki í suðri. Ég held að annað sem menn ættu að skoða í fullri alvöru sé í sambandi við húsnæðiskerfið. Vilhjálmur Egilsson var með þá tillögu að húsnæðiskerfið skiptist upp eftir landshlutum sem mundi örugglega þýða að á Norðurlandi yrði til fjármagn til þeirra íbúða- bygginga sem óskað er eftir og þar ættu menn þá að geta fengið lán nánast samdægurs. Skortur- inn á fjármagninu er í Reykjavík en ekki annars staðar og þess vegna er fjármagnið sogið þang- að af landsbyggðinni." - Ertu þarna að meina að byggðarlögin ættu að fá að njóta aflaðs fjár? „Ég á við að ef lífeyrissjóðirnir hér keyptu skuldabréf í „Hús- næðismálastofnun Norðurlands", sem aftur lánaði íbúðakaupend- um hér á svæðinu þá væri hér fyr- ir hendi nægjanlegt fjármagn fyr- ir alla þá sem vildu byggja sér íbúðir á Norðurlandi en aftur á móti yrði biðtími eftir lánum á Reykjavíkursvæðinu þá sjálfsagt orðinn átta ár. Nú er biðtími eftir lánum hér fjögur til fimm ár. Þetta held ég að sé eitt af því sem okkar ágætu þingmenn ættu að skoða og koma í framkvæmd áður en fjármagnið verður endanlega allt komið suður. Það verður að halda nauð- synlegu fjármagni úti í dreifbýl- inu ef byggðir landsins eiga ekki að leggjast í auðn,“ sagði Guð- steinn Einarsson, kaupfélags- stjóri að lokum. fh Höfuðstöðvar kaupfélagsins. Mynd: gb

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.